Morgunblaðið - 30.04.1994, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. APRÍL 1994
Utanríkisráðherra í blaðasamtali
Alþýðuflokkur endur-
skoðar afstöðu til ESB
JÓN Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra segir í blaðaviðtali
að Alþýðuflokkurinn muni taka afstöðu sína til Evrópusambands-
ins til gagngerrar endurskoðunar á flokksþinginu sem haldið verð-
ur i júní. Hann segist telja mögulegt að Islendingar gætu samið
um aðild að Evrópusambandinu og haldið áfram fullum yfirráðum
yfir fiskistofnum sínum.
Haft er eftir Jóni Baldvin í
News from Iceland, sem kom út
í gær, að aðildarsamningar Nor-
egs, Svíþjóðar og Finnlands við
Evrópusambandið hafí breytt
myndinni nægilega til að Islend-
ingar þurfi að endurskoða afstöðu
sína til aðildar að sambandinu.
Hann bendir á að Evrópusam-
bandið hafí, í samningnum um
Evrópska efnahagssvæðið, viður-
kennt sérstöðu Islendinga sem
Spurt og svar-
að um borg-
armálefni
í TILEFNI borgarstjórnar-
kosninga, sem fram fara í
lok maímánaðar, mun Morg-
unblaðið gefa lesendum sín-
um kost á að beina fyrir-
spurnum til borgarstjórans
í Reykjavík, Árna Sigfús-
sonar, um hvaðeina í mál-
efnum borgarinnar, sem
þeir hafa áhuga á að spyij-
ast fyrir um. Hefur borgar-
stjóri fyrir sitt leyti sam-
þykkt að svara þessum fyr-
irspurnum.
Lesendur Morgunblaðsins
geta hringt í síma 691100 á
milli'kl. 11 og 12 árdegis frá
mánudegi til föstudags og lagt
spumingar fyrir borgarstjóra,
sem blaðið kemur á framfæri
við hann og verða svörin birt
nokkrum dögum síðar. Einnig
má senda spumingar í bréfí
til Morgunblaðsins. Nauðsyn-
legt er að nafn og heimilisfang
fyrirspyrjanda komi fram.
í dag
Ofbeldi
Unglingar hafa framið margar
alvarlegar árásir 16
Tap
Landsvirkjun tapaði 3,2 milljörð-
um á síðasta ári 17
Læknisfræði
Unnið er að mótun samnorr-
ænna vinnureglna við leit og
greining erfðagalla 22
Leiðari
Kosningar í Suður-Afríku 24
i-Bamg
► Böðvar Guðmundsson um
ísl Ameríkubréf - Bjarki Jó-
hannesson um bætt umhverfí
í borgum - Rannsóknir: Sigurð-
ur Greipsson um melgresi -
Þórður í Skógum um safn-
varðaför norður
ær°
► Uppáhaldsmyndböndin
Erlendur dómur um bók Ólafs
Jóhanns - Ung finnsk listakona
- Skúli áttræður - Tónleikar
helgarinnar
fískveiðiþjóðar. í aðildarsamning-
um við Norðmenn hafí sambandið
breytt reglum sínum til að tryggja
hagsmuni þeirra.
„Ráðherrann telur það mögu-
legt að ísland gæti samið um að-
ild en haldið allt að 100% yfírráð-
um yfír fískveiðikvótum sínum,“
segir í News from Iceland.
Morgunblaðið/Ámi Sæbcrg'
Steingrímur hættir sem formaður
„NÚ ÆTLA ég að afhenda Halldóri flokkinn," sagði Steingrímur Hermannsson að lokinni yfirlitsræðu
sinni á miðstjórnarfundi framsóknarmanna í gær. Fundarmenn stóðu á fætur og þökkuðu Steingrími
með langvinnu lófataki en Steingrímur og Halldór Ásgrímsson varaformaður flokksins tókust í hendur
________________ þegar Steingrimur afsalaði sér formennskunni í hendur Halldóri.
Halldór Ásgrímsson formaður Framsóknarflokksins á miðstjórnarfundi
Kosningar fari fram í haust
vegna viðræðna við ESB
STEINGRÍMUR Hermannsson lét af formennsku í Framsóknarflokkn-
um á miðstjómarfundi í gær. Halldór Ásgrímsson varaformaður tók
við formennsku fram að flokksþingi sem haldið verður í haust. í yfir-
litsræðu sinni á fundinum í gær sagði Steingrímur að íslendingar stæðu
nú á miklum tímamótum. Varaði hann mjög við aðild að Evrópusam-
bandinu og sagði að ísland yrði þá aldrei annað en útkjálki. I ræðu
sinni sagði Halldór Ásgrímsson að meginverkefnið framundan væri
að ná samningum við Evrópusambandið og sagði eðlilegt við þessar
aðstæður að kosningar færu fram á komandi hausti.
í samtali við Halldór Ásgrímsson
í Morgunblaðinu í dag segir hann
m.a. að hann telji þá ákvörðun ranga
að afnema skattafslátt gegn því að
fólk leggi áhættufé í fyrirtæki. Ríkis-
valdið verði að vera með hvetjandi
aðgerðir til þess að koma atvinnulíf-
inu á skrið og það verði m.a. gert
með því að tryggja atvinnulífinu auk-
ið fjármagn bæði frá einstaklingum
og Íífeyrissjóðum, sem að hans mati
eigi að vera skattfijálst.
Sjá miðopnu: „Það skortir..“ og
bls. 16: „Steingrímur..."
Halldór sagði eitt mikilvægasta
verkefni næstu mánaða vera að
ganga til samninga við Evrópusam-
bandið um framtíðarskipan í sam-
skiptum Islendinga við það. Islend-
ingar þyrftu að ná meira tollfrelsi á
Evrópumarkaði. „Við þurfum jafn-
framt að vinna að því að hafa áhrif
innan Evrópusambandsins. Það get-
um við gert bæði í gegnum norrænt
samstarf og með því að fara fram á
áheymaraðild og tillögurétt í þeim
nefndum og ráðum sem skipta okkur
mestu máli,“ sagði Halldór. Hann
sagði líklegt að viðræðumar við ESB
kæmust á skrið næsta haust og vet-
ur og því væri eðlilegt að alþingis-
kosningar færu fram í haust.
Steingrímur Hermannsson sagði
að Framsóknarflokkurinn ætti stóran
hlut í framförum undanfarinna ára-
tuga. Unnið hefði verið í anda bland-
aðs hagkerfís og skapast hefði gott
jafnvægi milli einkaframtaksins,
samvinnuhreyfingar og ríkisvalds.
„Ætíð sami
framsóknarmaðurinn“
Steingrímur sagðist láta af for-
mennsku þegar allt léki í lyndi innan
Framsóknarflokksins og samstaða
mikil innan flokksins. Hann sagðist
hafa ákveðið að verða við hvatningu
forsætisráðherra og viðskiptaráð-
herra að sækja um starf seðlabanka-
stjóra. „Ég vona svo sannarlega að
ég geti unnið þarft starf, þar sem
ég verð og það vil ég segja ykkur,
að ég verð ætíð sami framsóknar-
maðurinn,“ sagði Steingrímur.
Lödur í lögsögnnni?
„VIÐ reynum eftir fremsta megni að fylgjast með því hvort Rúss-
amir losa sig við bilhræin innan 200 mílna lögsögu okkar, því
þær sögur hafa heyrst að þeir hirði varahluti úr bílunum og
hendi restinni í sjóinn," sagði Helgi Hallvarðsson, skipherra hjá
Landhelgisgæslunni, í samtali við Morgunblaðið.
Eins og kunnugt er af fréttum
eru rússneskir sjómenn iðnir við
að kaupa aflóga bíla hér á landi,
oftast Lödur. Þær sögur hafa
gengið að þeir hirði varahluti úr
bílunum á heimstíminu og kasti
hræunum svo í sjóinn.
Eftirlitsflug
„Við höfum beðið hafnarverði
að láta okkur vita þegar rússnesk-
ir togarar með svona bílafarma
leggja úr höfn,“ sagði Helgi. „Við
fljúgum svo yfír skipin og fylgj-
umst með hvort hræin hverfa af
dekkinu. Við höfum enn engar
sannanir fyrir að bílum sé hent í
sjóinn, en ætlum okkur að fylgj-
ast með málinu áfram, því við
kærum okkur lítið um slíkan
ófögnuð innan efnahagslögsög-
Friðrik Sophusson gagnrýnir skýrslu Ríkisendurskoðunar um SR-mjöl
Alvarlegar áhyggjur af trú-
verðugleika stofnunarinnar
FRIÐRIK Sophusson fjármálaráðherra sagði á Alþingi i gær, að hann
hefði alvarlegar áhyggjur af því að skyrsla Ríkisendurskoðunar um
sölu á hlutabréfum ríkisins í SR-mjöIi væri svo illa unnin að hún gæti
skaðað stofnunina stórlega. Það væri afar slæmt fyrir Alþingi sem
þyrfti á því að haida að Ríkisendurskoðun starfi þannig að um trúverð-
ugleika sé að ræða hjá stofnuninni.
Óskað eftir endur-
upptöku SR-málsins
RÍKISLÖGMAÐUR, Gunnlaugur Claessen, hefur óskað eftir því við
Héraðsdóm að mál Haralds Haraldssonar í Andra gegn sjávarútvegsráð-
herra og fleirum verði endurupptekið. Vill lögmaðurinn eiga kost á
að leggja fram skýrslu Rikisendurskoðunar um söluna á hlutabréfum
SR-mjöIs í málflutningi sínum fyrir dóminum.
Gunnlaugur Claessen hrl. vill að grundvelli sömu sönnunargagna á
málið verði tekið til munnlegs flutn-
ings að nýju og þá aðeins um þennan
afmarkaða þátt. Telur ríkislögmaður
ekki fulinægjandi að leggja skýrslu
Ríkisendurskoðunar eingöngu fyrir
Hæstarétt og vill að dæmt verði á
báðum dómstigum eftir því sem kost-
ur sé. Þórunn Guðmundsdóttir hrl.
og Aðalsteinn E. Jónasson hdl. hafa
tekið undir ósk ríkislögmanns fyrir
hönd sinna umbjóðenda.
Friðrik sagði áhyggjur sínar stafa
af því að hann hefði séð gögn sem
lögð hefðu verið fram frá aðilum
málsins. En á ríkisstjórnarfundi í gær
voru lagðar fram greinargerðir frá
Verðbréfamarkaði Islandsbanka hf.,
sem sá um söluna og frá söluhópi
sjávarútvegsráðuneytisins. Friðrik
sagðist ekki vilja fella dóm um það
hvort skýrsla Ríkisendurskoðunar
væri afleit eða ekki en mjög nauðsyn-
legt væri að Alþingi fjallaði um þetta
mál fýrir frestun, þar sem allur sann-
leikurinn í málinu þyrfti að koma
fram.
Stuðningur dreginn til baka
Ummæli Friðriks féllu í umræðu
um frumvarp um að breyta Lyfja-
verslun ríkisins í hlutafélag. Efna-
hags- og viðskiptanefnd Alþingis hef-
ur fjallað um frumvarpið og skilaði
nefndin sameiginlegu áliti þar sem
fallist var á frumvarpið. í gær kom
hins vegar fram nýtt nefndarálit frá
Kristínu Ástgeirsdóttur þingmanni
Kvennalista og Steingrími J. Sigfús-
syni þingmanni Alþýðubandalags, þar
sem þau lýsa því yfir að þau dragi
stuðning sinn við málið til baka. Vísa
þau meðal annars til þess að reynslan
af einkavæðingaráformum ríkis-
stjómarinnar sé með þeim hætti að
Alþingi hljóti að segja hingað og ekki
lengra, og ríkisstjóminni beri að
hætta við fyrirhuguð áform um frek-
ari einkavæðingu. í því sambandi
vitna þau til skýrslu Ríkisendurskoð-
unar um söluna á SR-mjöli hf. en þar
komi fram hörð gagnrýni á hvemig
staðið hafí verið að þeim málum, auk
þess sem þau mál séu nú fyrir dóm-
stólum.
Svavar Gestsson þingmaður Al-
þýðubandalags mótmælti yfirlýsingu
fjármálaráðherra og sagðist ekki telja
hana smekklega nema fjármálaráð-
herra hefði látið forseta Alþingis vita
áður um þá skoðun sína að ríkisendur-
skoðandi væri tæplega starfi sínu
vaxinn. Ríkisendurskoðun heyrir
beint undir Alþingi.
Sjá bls. 26: „Ríkisendurskoðun
dregur...“