Morgunblaðið - 30.04.1994, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. APRÍL 1994
íslandsbanki
Æfingn
frestað
ÖRYGGISÆFINGU, sem vera átti
eftir lokun í útibúi íslandsbanka
við Suðurlandsbraut í fyrrakvöld,
var frestað þegar vart varð ferða
fréttamanns og myndatökumanna
á Stöð 2 fyrir utan bygginguna.
Að sögn Sigurveigar Jónsdóttur,
upplýsingafulltrúa ísiandsbanka, eru
öryggisæfingar sem þessi gerðar í
útibúum bankans á nokkurra mán-
aða fresti. Sigurveig segir að þegar
æfingin hafí um það bil verið að
heflast hafí menn orðið varir við
fréttamanninn n þess að vita hvað
hann væri að gera á staðnum. Hún
segir augljóst að ekki sé hægt að
vera með svona æfíngu að viðstöddu
Qölmiðlafólki þar sem óviðkomandi
megi ekki vita í hveiju öryggisráð-
stafanir bankans séu fólgnar. Þess
vegna hafí æfíngunni verið frestað.
Stöð 2 var í fyrrakvöld með frétt
um gengi hlutabréfa bankans og var
útibú hans við Suðurlandsbraut bak-
grunnur í hluta fréttarinnar.
Morgunblaðið/Gísli Þór
Lokaæfingin
SIGRÍÐUR Beinteinsdóttir og bakraddasöngvararnir fimm á lokaæfingu í Dyflinni gær.
Nætur á
SVlðll
Dyflinni
ÍSLENSKI hópurinn í Dyflinni
stígur á svið í Söngvakeppni
sjónvarpsstöðva _ í Evrópu i
kvöld. Framlagi íslands að þessu
sinni, laginu Nóttum eftir Frið-
rik Karlsson, við texta Stefáns
Hilmarssonar, hefur verið spáð
ágætu gengi í veðbönkum Ira
og Breta, en samkvæmt fregnum
frá Svíþjóð hafa menn þar minni
trú á laginu og telja að það verði
ekki á meðal tíu efstu.
Bein útsending Ríkissjónvarps-
ins frá keppninni hefst kl. 19 í
kvöld. Sigríður Beinteinsdóttir og
bakraddasöngvaramir fimm eru
fimmtu í röðinni, á eftir Svíum,
Finnum, írlandi og Kýpur. „Ég get
engu spáð um úrslitin, en vona að
við verðum sátt við okkar,“ sagði
Sigríður í samtali við Morgunblað-
ið. Hún kvaðst ekki veðja á eitt lag
öðrum fremur, en átti þó von á að
pólska söngkonan yrði framarlega.
VEÐUR
VEÐURHORFUR í DAG, 30. APRIL
YFIRLIT: Yfir A-Grænlandi er 1.025 mb hæð og fró henni hæöarhrygggr suður um
island og hreyfist hann hægt austur. 500 km suður af landinu er 1.008 mb lægð
sem eyðÍ8t. 700 km suður af Hvarfi er 970 mb viöáttumikil lægð sem þokast norður.
SPÁ: Austan- eða suðaustanátt, 3 til 5 vindstig. Þykknar upp á Suður- og Vestur-
landi og litils háttar súld eða rigning síðdegis. Norðan- og austanlands verður lótt-
skýjað. Hiti á bilinu 3 til 6 stig.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á SUNNUDAG: Suðaustanátt, nokkur strekkingur suðvestanlands en
hægari annars staðar. Skýjað um allt land og rigning um landið sunnanvert. Hiti 4
til 10 8tig.
HORFUR Á MÁNUDAG OG ÞRIÐJUDAG: Hæg suðaustiæg eða breytileg átt og
skýjað um mest allt land. Dálltil súid með suður- og austurströndinnl en annars
þurrt. Áfram hlýtt.
04 ^ A
Heiöskírt Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað Alskýjað
r r r * / * ***
f f * f * *
f f f f * / ***
Rigning Slydda Snjókoma
V ^ v
Skúrír Slydduél Él
Sunnan, 4 vindstig.
Vindörin sýnir vindstefnu
og fjaðrimar vindstyrk,
heil fjðður er 2 vindstig.^
10° Hitastig
V Súld
= Þoka
ítig-.
FÆRÐA VEGUM:
Greiöfært er yfirleitt á öllum aöalþjóðvegum á landinu, en
einkum á Norður- og Norðausturlandi.
Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti í síma 81
línu 99-8315.
(Kl. 17.30 ígeer)
hálkublottir eru víða,
-631500 og í grænni
Vegagerðin.
VEÐUR VIÐA
kl. 12.00 í gær
hiti
UM HEIM
að ísl. tíma
veður
Akureyri 2 heiðsklrt
Reykjavfk 5 hálfskýjað
Björgvfn 8 rigningogsúld
Helsinki 15 skýjað
Kaupmannahöfn 17 þokumóða
Narssarssuaq 6 skýjað
Nuuk 5 skýjað
Ósló 17 skýjað
Stokkhólmur vantar
Þórshöfn 2 rigning
Algarve vantar
Amsterdam 20 skýjað
Barcelona 20 léttskýjað
Berlfn 18 skýjað
Chicago 7 skýjað
Feneyjar 22 heiðskírt
Frankfurt 23 léttskýjað
Glasgow 12 skýjað
Hamborg 18 léttskýjað
London 22 skýjað
LosAngeles 11 léttskýjað
Lúxemborg 22 léttskýjað
Madrid 24 heiðskirt
Malaga 21 heiðskirt
Mallorca 21 léttskýjað
Montreal 6 aiskýjað
New York 9 alskýjað
Orlando 21 léttskýjað
París 24 skýjað
Madelra 24 skýjað
Róm 22 hálfskýjað
Vfn 22 léttskýjað
Washington 16 alskýjað
Winnípeg vantar
Bernard Granotier í 20 daga gæsluvarðhald
Vildi ekki tjá sig
um sakarefnið
BERNARD Granotier. sem grunaður er um að hafa kveikt í húsi Ba-
há’í-trúfélagsins, var í gær úrskurðaður í gæsluvarðhald í 20 daga.
Hann kaus að tjá sig ekki um sakarefnið fyrir dómi. Rannsóknarlög-
regla ríkisins gerði kröfu um að hann yrði úrskurðaður í gæsluvarð-
hald í 45 daga vegna rannsóknar máisins og að auki gert að sæta
geðheilbrigðisrannsókn. Þá kröfu tók dómari ekki til greina.
Morgunblaðið/Júlíus
Rannsóknarlögreglumenn að störfum við kofann við
Elliðavatn þar sem Granotier hafðist við.
Bernard Granoti-
er, sem var handtek-
inn í kofa við Elliða-
vatn í gær og dvalist
hefur hér í tvö ár,
hefur tvívegis verið
dæmdur fyrir
íkveikjur í heima-
landi sínu, Frakk-
landi, þar sem hann
strauk undan sér-
stöku eftirliti og hélt
til Noregs árið 1987.
Þar hlaut hann árið
1992 dóm fyrir ónæði og ógnanir í
garð konu og hótanir í garð opinbers
starfsmanns.
Var vísað frá en ekki bannað
að koma til Norðurlanda
í kjölfarið var honum vísað frá
Noregi en þeirri brottvísun virðist
ekki hafa fylgt endurkomubann til
Noregs og annarra Norðurlanda, að
sögn Jóhanns Jóhannssonar hjá út-
lendingaeftirlitinu, þar sem manninn
er ekki að finna á skrá yfir þá sem
settir hafa verið í slíkt bann.
Við komu til landsins var maður-
inn með fullgild ferðaskilríki sem
tekin eru gild hér á landi; franskt
nafnskírteini en ekki vegabréf. Hann
hefur síðar haft dvalarleyfí hér á
landi.
Formaður FÍA um dóm Hæstaréttar
Kemur mönnum
verulega á óvart
ATVINNUFLUGMENNþurfaaðendurskoðaafstöðusínatilþessaðfljúga
til þeirra flugvalla sem eru illa búnir tækjum, að sögn formanns Félags ís-
lenskra atvinnuflugmanna (FÍA). Einnig þurfa þeir að endurskoða hvaða
upplýsingar þeir veita við gerð slysarannsóknaskýrslna. Flugmenn munu
efna til fundar vegna nýlegs dóms Hæstaréttar í máli flugmanns sem lenti
flugvél utan brautar í Ólafsfirði.
„Dómurinn kemur okkur mjög á
óvart,“ sagði Tryggvi Baldursson,
formaður Félags íslenskra atvinnu-
flugmanna, um dóm Hæstaréttar.
„Við munum halda félagsfund, þar
sem þessi mál verða rædd, og athuga
réttarstöðu okkar gagnvart skýrsl-
ugjöf og ákæruvaldinu.“
Endurskoða skýrslugjöf
Tryggvi segir að flugmönnum sé
nú gert að fljúga á nokkra flugvelli
sem eru vanbúnir tækjum. „Auðvitað
vildum við að allir vellir væru sem
best búnir, en veruleikinn er annar.
Okkur er gert að fljúga við alskonar
aðstæður, en við hljótum að endur-
skoða það í Ijósi dómsins.“
Tryggvi segir að eftir óhöpp sé
gerð slysarannsóknaskýrsla, sem sé
fyrst og fremst hugsuð til að koma
í veg fyrir að óhöpp endurtaki sig.
„Þegar upplýsingar sem fiugmaður
gefur til* að forða endurteknum
óhöppum eru notaðar sem grundvöll-
ur ákæru og síðan sakfellingar, þá
hljótum við að íhuga í framtíðinni
að gefa einungis láginarksupplýsing-
ar við skýrslutöku og þá aðeins í
viðurvist lögmanns okkar.“
I
I
I
1
I
i
I
1
I
I
I
I
I
I