Morgunblaðið - 30.04.1994, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. APRÍL 1994
9
Hvítar, franskar bómullarblússur
frá stærð34.
TESS
IMt
NEÐST VIÐ
DUNHAGA,
S. 622230.
Opiðvirka daga
kl.9-18,
laugardag
kl. 10-14.
Bómullarrúmföt
Ódýr, hömruð og slétt bómullarrúmföt nýkomin.
Tilvalin fyrir sumarhús og gistiheimili.
Saumum teygjulök og lök á þunnar yfirdýnur.
Póstsendingaþjónusta
Njálsgötu 86, sími 20978.
Við erum í sumarskapi
En pú?
Ný meiriháttar sundföt
á fráhæru verði
kr. 4.450
Opið laugardaga
frá kl. 10-16.
snyrti- og gjafavöruverslun
Miðbæ, Háaleitisbraut.
LUTUÐ FURUHUSGOGN
NÝKOMIN - MIKIÐ ÚRVAL
Furuhornsófar. Verð frá kr. 59.600 stgr.
it-
Borðstofuskápar m/yfirskáp. Glerskápar.
Verð frá kr. 39.500.
Verð frá kr. 38.400.
OPIÐ I DAG KL. 10-14
□□□□□□
HUSGAGNAVERSLUN
REYKJAVfKURVEGI 66, HAFNARFIRÐI, SÍMI 654 100
Samkeppnis-
hæfni Evrópu
hefur dalað
Carlos Ferrar, formað-
ur UNICE, sagði m.a. á
Iðnþingi:
„Hlutverk okkar þjá
UNICE er að vinna að
bættri samkeppnisstöðu
evrópskra fyrirtækja. Um
þessar mundir á iðnaður
og efnahagslíf í Evrópu
erfitt uppdráttar. Engin
teikn eru á lofti um að
viðvarandi efnahagsbati
sé á næsta leiti. Við þetta
bætist að samkeppnis-
hæfni Evrópu hefur dalað
og atvinnuleysi aukizt.
Þessu ástandi fylgir óhjá-
kvæmilega þrýstingur um
aukna vemdarstefnu og
tímabundið fráhvarf frá
agaðri hagstjóm.
Að mati UNICE er
minnkandi samkeppnis-
hæfni Evrópu grunnorsök
núverandi erfíðleika í
efnahagsmálum. Þessi
greining vandans hefur
fengið hljómgrunn víða
og er nú almennt viðtekin
skoðun meðal sljómmála-
manna, fyrirtælga og
stéttarfélaga í Evrópu.“
Hvað veldur
miimisam-
keppnishæfni
Evrópu?
„I fyrsta lagi hefur
framleiðslukostnaður
aukizt meira í Evrópu en
í helztu iðnríkjum og er
um þessar mundir hærri
en í Japan og Bandaríkj-
unum. Hvort sem litið er
til launa- eða orkukostn-
aðar, vaxta- eða skatt-
byrði, hafa evrópsk fyrir-
tæki þurft að sæta lakari
Samkeppnishæfni Evrópu
Úr rœðu Carlos Ferrer formanm UNICE
l.-vtópu a uitíiJii cn i HuntJartkjsifiutn í>sí >;KVi Ui utl'jaiörunl.! ytn h'cnjtg
Japau. «:« 'Lííii tiLi.i3u>>u marV.tt:iDt«:> lil
Catiity 1‘vHVT htnn^Xt? UNIÍ'F. Jgt {ICS' í jutðja iayi hchtf íctowwiilnolj fjtr- 4)>nUu v" ck'in sK'tuu rcib fjár
| i ttpi'it.U: í»ál< s-m ú iánbttiy.'. aá itu.'k:a i Evjnjxt vyftá <Vst«>)us:Kt <•>£ síðui h;ci> cn tctja skuti ct cc
vur|a
Carlos Ferrer formaður UNICE.
Erfiðleikar Evrópu
Hefur samkeppnishæfni Evrópu í atvinnu- og efnahagslífi heims-
ins dalað? Því heldur Carlos Ferror, formaður UNICE (Samtaka
atvinnu- og iðnrekandi í Evrópu), fram. íslenzkur iðnaður, frétta-
bréf Samtaka iðnaðarins, birtir kafla úr ræðu hans á Iðnþingi,
sem Staksteinar staldra við í dag.
kjöram en fyrirtæki í
helztu samkeppnislönd-
um.
I öðm lagi er framleiðni
í Evrópu lakari en í hag-
kerfum helztu samkeppn-
islanda, þrátt fyrir að
framleiðniaukning hafi
verið svipuð á síðasta ára-
tug. Helzta ástæðan er að
sveigjanleiki vinnuaflsins
í Evrópu er minni en í
Bandaríkjunum og Japan.
í þriðja lagi hefur
rekstrammhverfi fyrir-
tælga í Evrópu verið
óstöðugra og síður hlið-
hollt atvinnulífi en þekkist
meðal helztu samkeppnis-
landa. Ennfremur er
rekstrarumhverfi fram-
tíðarinnar óvissara í Evr-
ópu en víða annars staðar.
Fyrirtæki í Evrópu hafa
þurft að búa við hærri
verðbólgu, umsvifameiri
opinberan rekstur, meiri
halla á búskap hins opin-
bera, hærri vexti og
sveiflukenndara gengi
bæði innan Evrópusam-
bandsins og utan.“
Hvemig má
bæta
samkeppnis-
stöðuna?
„Til að bæta samkeppn-
isstöðuna þarf að koma til
aðgerða á sex sviðum.
Meðal þess sem þarf til
bragðs að taka er að:
* auka sveigjanleika &
vinnumarkaði;
* bæta gæði menntunar
og þjálíunar;
* auka hagkvæma nýt-
ingu tækni og nýjmiga;
* auka samkeppni miUi
fyrirtækja;
* draga úr hiutverki
hins opinbera og gera
rekstur þess hagkvæmari
og rekstrarumhverfi stöð-
ugra með viðeigandi hag-
stjórn. “
Carlos Ferrer heldur
því fram að sveigjanlegri
vinnumarkaðuf auki hvat-
ann til að skapa ný störf.
Sama máli gegni ef dregið
verði úr launatengdum
gjöldum, sem séu tvöfalt
hærri í Evrópu en Banda-
ríkjunum og Japan.
Hann fullyrðir og að
aukin tengsl atvinnulífs
og námsefnis í skólum,
stöðug endurmenntun og
aukin áherzla á rannsókn-
ir, þróun og nýjungar séu
mikilvægir þættir til að
efla atvinnu- og efnahags-
líf Evrópuþjóða. Viðvar-
andi aðlögnn í efnahags-
starfseminni krefst einnig
nýrra vara og framleiðslu-
ferla, endurbóta á því sem
fyrir er, sóknar á nýja
markaði og eðlilegrar úr-
eldingar, sem allt verður
að ganga hindrunarlaust
fyrir sig. Og að lokum
leggur hann áherzlu á
áreiðanlegt efnahagsum-
hverfi, stöðugleika í verð-
lagi, baráttu gegn verð-
Itólguþrýstingi og gegn
ríkissjóðshalla, sem sé
mikilvæg til að lækka
vexti og auka fjárfestingu
þegar frarn í sækir.
Meira en þú geturímyndaó þér!
Málverka-
uppboð
1. maí
GALLERÍ Borg heldur málverka-
uppboð í satnvinnu við Listmuna-
uppboð Sigurðar Benediktssonar
hf. Uppboðið fer fram á Hótel
Sögu sunnudagskvöldið 1. maí kl.
20.30.
Að þessu sinni verða boðin upp
um eitt hundrað verk. Þar má nefna
málverk eftir Jóhannes S. Kjarval,
Ásgrím Jónsson, Jón Stefánsson,
Júlíönu Sveinsdóttur, Nínu Tryggva-
dóttur, Gunnlaug Blöndal, Jóhann
Briem, Jón Engilberts, Gunnlaug
Scheving, Þorvald Skúlason, Brynjólf
Þórðarson, Svavar Guðnason, Jón
Þorleifsson, Nínu Sæmundsson og
Kristján Davíðsson. Þá eru einnig
verk eftir, yngri myndlistarmenn eins
og Sigurbjörn Jónsson, Tolla, Karó-
línu Lárusdóttur, Braga Ásgeirsson,
Tryggva Ólafsson, Veturliða Gunn-
arsson, Eirík Smith, Einar Hákonar-
son, Guðrúnu Ólafsdóttur, Eyjólf
Einarsson og Gunnar Inga Guðjóns-
son.
Uppboðsverkin verða sýnd í Gall-
erí Borg við Austurvöll í dag, laugar-
dag, og sunnudag 1. maí frá kl. 12
til 18. Þar verður hægt að gera for-
boð í verkin og einnig verður hægt
að bjóða í þau símleiðis. Uppboðs-
haldari verður að venju Haraldur
Blöndal.
-----» ♦—4----
■ BJÖRN Þorsteinsson heldur
laugardaginn 30. apríl fyrirlestur í
Félagi áhugamanna um heimspeki
sem nefnist Sérstæð tign heimspek-
innar. Hann fjallar um tilraun Im-
manuels Kants í Gagnrýni hreinnar
skynsemi til að setja notkun skynsem-
innar reglur með það fyrir augum að
auka veg heimspekinnar í heiminum.
DAGBOK
/? Ciára afmæli. Á morgun,
UU 1. maí, verður sextug
Aðalbjörg Albertsdóttir,
Bogahlið 12, Reylgavík. Eigin-
maður hennar er Torfi Guð-
brandsson, fv. skólastjóri. Þau
hjónin taka á móti gestum í
dag, laugardag, kl. 17-21 í sal
Meistarafélags húsasmiða, Skip-
holti 70.
FÉLAGS- og þjónustumið-
stöðin Hvassaleiti 56-58.
Mánudaginn 2. maí verður tekið
á móti munum á sölusýningu
sem verður 7., 8. og 9. maí.
Uppl. í s. 679335.
KIRKJUSTARF
HÁTEIGSKIRK J A: Kirkju-
starf barnanna í dag kl. 13.
NESKIRKJA: Árlegt ferðalag
barnastarfsins verður á morgun,
sunnudag. Lagt af stað frá kirkj-
unni kl. 11. Farið í Kaldársel,
grill og skemmtun.
flT Ckára afmæli. í dag, 30.
tl\J apríl, er fimmtug Ólöf
Ágústa Karlsdóttir, ritari á
slysadeild Borgarspítala, Ból-
staðarhlíð 50, Reykjavík. Eig-
inmaður hennar er Sigurjón Jó-
hannsson leikmyndateiknari.
pT /\ára afmæli. Mánudaginn
UU 2 maí nk. verður fimm-
tugur Gylfi Guðjónsson öku-
kennari og varabæjarfulltrúi í
Mosfellsbæ. Hann og kona hans,
Elfa S. Guðmundsdóttir, taka
á móti gestum í dag, laugardag,
kl. 17-19 í félagsheimilinu Þrúð-
vangi, sem er í gömlu Ála-
fosskvosinni í Mosfellsbæ.