Morgunblaðið - 30.04.1994, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. APRÍL 1994
11
Eitt verka Aðalheiðar Skarphéðinsdóttur.
Tréristur
______Myndlist__________
Bragi Ásgeirsson
Listhúsið Úmbra opið 13-18
nema mánudaga
Aðalheiður Skarphéðinsdóttir,
til 11. maí.
Aðalheiður Skarphéðinsdóttir
telst einn okkar efnilegu lista-
manna á sviði grafíklistar og mun
trúlega fleirum en mér minnis-
stæð ágæt sýning hennar í Sverr-
issal Hafnarborgar á sl. ári.
Nú sýnir hún í annað skipti á
höfuðborgarsvæðinu, en hún
sýndi einmitt á sama stað síðast
1985, en þá var hann kenndur
við (Hallgerði) Langbrók. Það
sem einkenndi sýningu Aðalheið-
ar í Sverrissal voru einkum sam-
skipti karls og konu í saklausri
og undirfurðulegri túlkun svo og
hugleiðingar um lífið, hvunnda-
ginn og ástina.
Og enn leggur hún út af sama
myndefni í svart-hvítum trérist-
um, sem hún af og til málar í
með vatnslit, en þá oftast aðeins
einn flöt eins og til áherslu og
munúðarauka.
Verur hennar eru eins og í
biðsal ástarinnar, einhvetju
óræðu tilhugalífi handan tíma og
rúms þar sem þögnin og eilífðin
virðast ráða ríkjum. Skurðurinn
er staðlaður og harður og virkar
eins og flæði um allan myndflöt-
inn og honum er ekki skipt í ein-
ingar áherslu né blæbrigða og
virkar því einhæfur, stendur ekki
fullkomlega fyrir sínu sem sér-
tæk grafísk tjáning. Þannig séð
hafa myndir Aðalheiðar oftar en
ekki meiri svip af myndlýsingum
eða beinni frásögn en sjálfstæð-
um grafíkverkum.
Mikil listaverk eru auðvitað
einnig gerð við lýsingu einhvers
fyrirbæris í umhverfinu og skal
ekki skoða þetta sem beina gagn-
rýni, en það leggst á mig að
Aðalheiður mætti færast meira í
fang hvað sjálfan miðilinn áhrær-
ir, og að hún hafi góða möguleika
á að blómstra á því sviði. Einnig
gæti hún náð langt við lýsingar
bóka og ljóða og væri æskilegt
að hún fengi verðug og átaka-
mikil verkefni á því sviði.
En að öllu samanlögðu er þetta
eftirtektarverð sýning, og Aðal-
heiður Skarphéðinsdóttir stað-
festir vissulega færni og hæfi-
leika á sviði strembnasta miðils
grafíklistarinnar.
Kínverskir tónleikar í Háskólabíói
_________Tónlist____________
Ragnar Björnsson
Háskólabíó
Sinfóníuhljómsveit Islands
Kínverskur stjórnandi
kínverskur píanóleikari
kínversk viðfangsefni
28. apríl 1994
Chen Yi heitir tónskáld (kona)
og átti fyrsta verkið á efnis-
skránni, Sprout fyrir strengja-
sveit. Chen Yi er þessarar aldar
tónskáld en strengjasveitarverkið
hefði getað verið frá miðri síð-
ustu öld eða fyrr, og það frá
Vesturlöndum. Höfundur sýndi
þó að hún kann að skrifa fyrir
strokhljóðfæri, en forvitnilegt var
verkið ekki, nema þá fyrir að
vera kínverskt, þótt kínverskt
yfirbragð eða innihald hafi verið
víðs fjarri. Miklu áhugaverðara
og um leið kínverskara var annað
kínverskt verk á efnisskránni,
Hljómsveitarleikhús heitir það,
Ton Dun heitir höfundur þess og
sagður hafa alþjóðlega viður-
kenningu sem tónskáld og býr í
Bandaríkjunum sem og Chen Yi.
Ton Dun leikur sér með alls kon-
ar stemmningar og hljóð úr kín-
versku þjóðlífi og reyndi hér tölu-
vert á leik hljóðfæraleikaranna í
hljómsveitinni, en einnig máttu
þeir gefa frá sér búkhljóð ýmis-
konar og varð úr þessu töluvert
kínverskur óður, merkilegur eða
ekki merkilegur en aldrei leiðin-
legur. Ting Zhou er 19 ára píanó-
leikari, margverðlaunaður, en er
þó ennþá við nám í Bandaríkjun-
um. Rackmaninoff píanókonsert-
inn nr. 2 var ieikur í höndum
hans. Grannan tón á píanó minn-
ist ég ekki að hafa heyrt talað
um, en var þó það sem ég fékk
sterkt á tilfinninguna meðan á
leik Ting Zhou stóð, sem átti í
erfiðleikum með að ná í gegn um
hljómsveitina, sem spilaði reynd-
ar oft mjög vel en kæfði líka oft
leik píanistans sem eðlilega hefur
ekki enn náð styrk fullþroskaðs
hljóðfæraleikara. Spurning er
einnig hvort endurkastsflekarnir
allir í kring um hljómsveitina á
sviðinu hafa ekki magnað óeðli-
lega upp hljómmagn sveitarinnar,
svo fannst fleirum en undirrituð-
um. Svo var einnig í síðasta verk-
inu á efnisskránni, hljómsveitars-
vítu op.. 32 eftir Tsjajkovskíj,
hvar hljómsveitin sýndi mjög góð-
an leik, en þar sannaði hljóm-
sveitarstjórinn sig, sýndi mjög
góða tækni og magnaði hljóm-
sveitina upp í eftirminnilegt spil,
og ekki var það hljómsveit eða
stjórnanda að kenna að svítan
verkar langdregin í lokin.
Sýning í Listasafni ASI1. maí
í ár ákvað Alþýðusamband íslands að efna til samkeppni um gerð
1. maí-merkisins meðal nemenda í Myndlista- og handíðaskóla
íslands, sem leggja stund á grafíska hönnun, í samstarfi við stjórn-
endur MHÍ. í samkeppninni var fylgt þeim reglum sem skólinn
hefur mótað og var umsjón með henni í höndum Gísla B. Björns-
sonar, auglýsingateiknara og kennara við MHÍ.
Samkeppnin fór þannig fram,
að nemendur höfðu 5 daga til að
vinna frumhugmyndir að merkj-
um. Föstudaginn 25. mars voru
Zhou Ting fæddist 1975 og hóf
píanónám fimm ára gamall. Árið
1986 var hann valinn ásamt fleir-
um ungum kínverskum listamönn-
um til tónleikaferðar til Bandaríkj-
anna. Árangurinn varð slíkur að
hann fékk inngöngu í Tónlistarhá-
skólann í Shanghai án inntöku-
prófs. Þótt ungur sé hefur Zhou
Ting unnið til fjölda verðlauna.
Sem dæmi má nefna „Grand Prix
Ivo Pogogrelich" í alþjóðlegri
píanókeppni i Bandaríkjunum.
Dómnefndinni fannst svo mikið til
valdar á annan tug tillagna til
frekari úrvinnslu. Fimmtudaginn
7. apríl valdi dómnefnd síðan 1.
maí-merkið fyrir árið 1994.
hæfileika hans koma að honum
var boðið að koma fram á sér-
stakri hátíð í Evrópu sem kennd
er við Ivo Pogogrelich. Hann
stundar nú nám við Oberlin-tón-
listarháskólann í Ohio.
Zhou Ting kemur hingað til
lands fyrir tilstilli KÍM, kínversk-
íslenska menningarfélagsins, í til-
efni 40 ára afmælis þess.
Á efnisskrá tónleikanna eru
verk eftir Beethoven, Brahms,
Ravel og Liszt og kínverska tón-
skáldið Wang Jianzhong.
Dómnefndina skipuðu: Af hálfu
MHÍ, Gísli B. Björnsson, Friðrika
Geirsdóttir og Finnur Malmquist.
Af hálfu ASI, Ingibjörg R. Guð-
mundsdóttir og Halldór Grönvold.
Verðlaunaafhending vegna
gerðar 1. maí-merkisins fyrir árið
1994 mun fara fram í húsnæði
Listasafns ASÍ á 1. maí kl. 16.30.
Fyrsti varaforseti ASÍ, Ingibjörg
R. Guðmundsdóttir, mun þar af-
henda öilum þeim nemendum
MHÍ, sem áttu tillögur sem valdar-
voru til frekari úrvinnslu, bók í
viðurkenningarskyni. Þá verða af-
hent verðlaun fyrir þá tillögu sem
valin var og Myndlista- og hand-
íðaskólanum veittur styrkur í efn-
is- og tækjasjóð skólans.
I tengslum við verðlaunaaf-
hendinguna 1. maí verður sýning
í Listasafni ASÍ á þeim tillögum
sem valdar voru til frekari úr-
vinnslu. Sýningin verður opin frá
16-19. Jafnframt verður boðið
upp á léttar kaffiveitingar.
IIlli Flisar á
HHfyrirtæki og
ESsMl stofnanir
ALFABORG f
KNARRARVOGI 4 • » 686755
Kínverskur píanóleik-
ari í Islensku óperunni
PÍANÓTÓNLÉIKAR verða haldnir í íslensku óperunni í dag klukk-
an 17. Þar kemur fram kínverski píanóleikarinn Zhou Ting. Tón-
leikarnir eru á vegum Tónlistarfélagsins í Reykjavík.
Núer
Vertu með
draumurinn gæti orðið að veruleika !
GRAFÍSK HÖNNUN: MERKISMENN HF