Morgunblaðið - 30.04.1994, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. APRÍL 1994
17
ARSFUNDUR LANDSVIRKJUNAR
Rckstrarhallinii rúmir 3,2
milljarðar kr. á síðasta ári
Annað árið í röð með verulegum rekstrarhalla
Morgunblaðið/Júlíus
Við upphaf ársfundar
HALLDÓR Jónatansson forstjóri Landsvirkjunar býður Davíð Oddsson forsætisráðherra velkominn
til ársfundar fyrirtækisins.
REKSTRARHALLI Lands-
virkjunar á síðasta ári var
3.250 milljónir króna og er
þetta annað árið í röð sem
verulegur rekstrarhalli er á
afkomu fyrirtækisins eftir
rekstrarhagnað í átta ár í röð.
Árið 1992 var rekstrarhallinn
liðlega 2,1 milljarður króna. Á
ársfundi Landsvirkjunar sem
haldinn var í gær sagði Halldór
Jónatansson forstjóri fyrirtæk-
isins að áætlanir gerðu ráð
fyrir að rekstrarhallinn á þessu
ári verði mun minni en árið á
undan, eða um 805 milljónir
króna. Hann sagði rekstrar-
hallann í fyrra að verulegu
leyti skýrast af því að gengi
íslensku krónunnar var fellt
um 7,5% í júní síðastliðnum, en
við það hækkuðu rekstrargjöld
ársins um 1.300 milljónir
króna, en auk þess var rekstr-
arkostnaður Blönduvirkjunar
1.450 milljónir án þess að tekj-
ur hafi hækkað á móti.
Davíð Oddsson forsætisráð-
herra sagði í ávarpi sem hann
flutti á ársfundinum að óhagstæð
rekstrarafkoma Landsvirkjunar
væri tímabundinn vandi sem
rekja mætti til þess að afkasta-
geta fyrirtækisins væri vannýtt
og einnig hefðu ytri aðstæður
verið óhagstæðar. En nú hillti
undir betri tíð í skjóli stöðugs
verðlags og batnandi ástands í
heimsbúskapnum.
í máli Halldórs Jónatanssonar
kom fram að rekstrartekjur
Landsvirkjunar námu alls 6.395
milljónum króna á árinu 1993 og
rekstrargjöld 9.645 milljónum
króna. Vaxtagjöld voru stærsti
gjaldaliðurinn eða tæplega 4.553
milljónir króna sem gerir 47,2%
af heildargjöidum Landsvirkjunar
á árinu 1993. Annar stærsti
gjaldaliðurinn var afskriftir sem
námu 3.109 milljónum króna eða
32,2% af heildargjöldum. Al-
mennur rekstrar- og viðhalds-
kostnaður nam 1.983 milljónum
króna eða 20,6% af heildargjöld-
unum.
Framleiðsla jókst um 4,3%
Rafmagnsframleiðsla Lands-
virkjunar árið 1993 jókst um 4,3%
frá árinu á undan og nam 4.369
GWst eða 92,5% af heildarfram-
leiðslu landsins. Rafmagnssalan
nam hins vegar 4.188 GWst og
töp og eigin notkun 181 GWst,
eða 4,1% sem er lægra hlutfall
en 1992. í heild jókst rafmagns-
salan um 4,3%. Rafmagnssalan
til almenningsrafveitna jókst hins
vegar aðeins um 0,4% á meðan
aukning í rafmagnssölu til stór-
iðju var 7,8%. Af rafmagnssöl-
unni til almenningsrafveitna jókst
sala forgangsrafmagns um 0,5%
og sala ótryggðs rafmagns og
afgangsorku um 0,2%.
Halldór sagði að hin litla aukn-
ing í rafmagnssölunni til almenn-
ingsrafveitna á undanfömum
árum hefði að sjálfsögðu leitt til
lélegri afkomu hjá Landsvirkjun
en orðið hefði ef orkuspár frá því
snemma á níunda áratugnum
hefðu gengið eftir. Hefði t.d. raf-
magnssalan til almenningsraf-
veitna aukist í samræmi við spá
orkuspárnefndar frá 1981, sem
lögð var til grundvallar við ákvörð-
un um byggingu og tímasetningu
Blönduvirkjunar, mundi raf-
magnssala Landsvirkjunar til al-
menningsrafveitna á árinu 1993
hafa orðið um 750 GWst meiri en
raun varð á og tekjur Landsvirkj-
unar rúmlega 1.800 milljónum
króna hærri en í reynd miðað við
meðalverðið til almenningsraf-
veitna sem var rúmlega 2,44 kr.
á kWst og hefur lækkað um 41,5%
að raungildi síðan 1984. Sagði
Halldór að þessi tekjumunur væri
mun hærri en bókfærð gjöld vegna
Blöndustöðvar 1993.
Jákvæð greiðsluafkoma
Þrátt fyrir óhagstæða rekstrar-
afkomu Landsvirkjunar 1993
reyndist greiðsluafkoma ársins
jákvæð, en fé úr rekstri til fjár-
mögnunar fjárfestinga og afborg-
ana af lánum nam 871 milljón
króna.
í árslok var eigið fé fyrirtækis-
ins 27.159 milljónir króna, eða
33,4% af heildareign sem nam
81.232 milljónum króna. Skuldir
fyrirtækisins námu hins vegar
alls 54.073 milljónum króna og
þar af voru langtímaskuldir
52.718 milljónir króna. Hefur eig-
ið fé fyrirtækisins lækkað um 14
milljónir króna frá 1992, en það
skýrist þannig að endurmat eigna
umfram verðbreytingartekjur
hækkar eignirnar um 3.236 millj-
ónir króna, en á móti lækkar eig-
ið fé um rekstrarhalla ársins að
fjárhæð um 3.250 milljónir króna.
Ræða dr. Jóhannesar Nordals stjórnarformanns Landsvirkjunar
Orkusala um sæstreng gæti
leitttil hagkvæniari reksturs
TIL umræðu er að Landsvirkjun eigi samvinnu við Reykjavíkur-
borg og hollenska aðila sem sameiginlega hafa kannað möguleika
á lagningu sæstrengs milli íslands og Hollands, en meðal athugana
sem Landsvirkjun hefur unnið að á þessu sviði er sameiginleg
könnun með raforkufyrirtæki í Skotlandi á tæknilegri hagkvæmni
þess að leggja sæstreng milli orkuveitusvæða Islands og Bretlands.
I ræðu sem dr. Jóhannes Nordal stjórnarformaður Landsvirkjunar
flutti á ársfundi fyrirtækisins í gær kom fram að frumniðurstöður
athugunar hollensku aðilana og Reykjavíkurborgar væru samhljóða
þeim skoðunum ráðunauta Landsvirkjunar að um tæknilega fram-
kvæmanlegt verkefni sé að ræða. Jóliannes ítrekaði að um frumat-
huganir væri að ræða og hefði verið lögð áhersla á að halda kostn-
aði Landsvirkjunar af þeim í lágmarki.
í ræðu sinni sagði Jóhannes að
mörgtæknileg úrlausnarefni þyrfti
að leysa áður en lagning sæ-
strengs milli Islands og næstu
lánda í Evrópu væri tæknilega
fýsileg. Hins vegar væri það skoð-
un allra færustu sérfræðinga sem
Landsvirkjun hefði haft samband
við að þau séu leysanleg og myndu
leysast á næstu árum. Hann sagði
arðinn af tengingu íslenska orku-
kerfísins við Evrópu ekki eingöngu
felast í tekjum af orkusölu héðan,
heldur gæti hún leitt til meiri hag-
kvæmni í rekstri orkuvera og auk-
ið öryggi varðandi afhendingu
orku hér innanlands. Þannig væri
jafnvel ástæða til að ætla að ís-
land verði álitlegri kostur fyrir
staðsetningu orkufreks iðnaðar
eftir að það er orðið hluti af sam-
tengdu orkukerfí Evrópu.
Dr. Jóhannes Nordal
Jóhannes gat þess að hug-
myndir hefðu verið settar fram
um jafnstraumskerfi er tengi alla
helstu orkumarkaði Evrópu inn-
byrðis og næði alla leið til Is-
lands, en tilgangur slíks kerfis
væri bæði að ná þeirri hag-
kvæmni sem samtenging ólíkra
orkukerfa getur haft í för með
sér og koma á samkeppnismark-
aði fyrir raforku er næði til allrar
Evrópu. Ef alþjóðlegt samstarf
næðist um flutningskerfi af þessu
tagi mætti búast við því að
áhersla yrði lögð á að jafna stöðu
allra þjóða sem við það myndu
tengjast. Sagði Jóhannes að þótt
kalla mætti hugmyndir af þessu
tagi aðeins framtíðardrauma á
þessu stigi málsins væru þær
engu að síður dæmi um þær bylt-
ingarkenndu breytingar sem
framtíðin kynni að bera í skauti
sér fyrir orkumál Islendinga.
Sófasett Seres
leðurlíki 3-1-1
áður 124.000
Nú 85.000
Hornsófi Ledana
tauákl. 2H2
áður 124.000
leður/LL
Nú 19.900
Gestarúm Legaflex
áður 19.800