Morgunblaðið - 30.04.1994, Qupperneq 18
18
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. APRÍL 1994
VIÐSKIFn AIVINNULÍF
Sjávarútvegur
Grandi býður út nýtt
80 millj. kr. hlutafé
Samþykkt á aðalfundi að greiða 8% arð
SAMÞYKKT var á aðalfundi Granda hf. í gær að selja nýtt hlutafé í
fyrirtækinu fyrir allt að 80 miHjónir króna til þess að styrkja fjárhags-
stöðu fyrirtækisins. Þá var samþykkt að greiða 8% arð og hækka hluta-
fé um 10% með útgáfu jöfnunarhlutabréfa. Hagnaður af rekstri Granda
á síðasta ári nam 108 milljónum króna sem er um 3,7% af rekstrartekj-
um. Eru það mikil umskipti frá árinu á undan þegar tap var á rekstrin-
um upp á 156 milljónir sem nam um 6,3% af rekstrartekjum.
Sýning
Vörukynn-
ing Golden
Products
GOLDEN Products er í dag með
vörusýningu á Hótel Loftleið-
um. Þar verða sýndar fram-
leiðsluvörur fyrirtækisins og
markaðssetningarkerfi þess
kynnt. Forseti Golden Products
á Norðurlöndum, George Ca-
sale, mun segja frá starfsemi
fyrirtækisins.
Golden Products selur hrein-
lætisvörur, heilsufæði og snyrtiv-
örur. Sölukerfi þess byggir á ein-
staklingum sem halda vörukynn-
ingar og selja framleiðsluvörur
fyrirtækisins. Sýningin er opin frá
klukkan 10 til 17 í dag. Á morgun
fer fram þjálfun fólks sem vill
selja vörur Golden Products, að
því að fram kemur í fréttatilkynn-
ingu.
Ámi Vilhjálmsson, stjómarfor-
maður Granda hf., sagði á aðaifund-
inum að sölu á nýju hlutafé væri
ætlað að styrkja fjárhagsstöðu fyrir-
tækisins almennt, því þótt það væri
bærilega sett fjárhagslega veitti ekki
af auknu eigin fé, þar sem ráðist
hefði verið í verulegar fjárfestingar
sérstaklega með kaupum á frystitog-
aranum Þerney. Um reksturinn á
yfirstandandi ári sagði hann að ætl-
unin væri að stórauka sóknina í út-
hafskarfa. Rekstraráætlun gerði ráð
fyrir að hreinn hagnaður verði um
220 milljónir króna og er þá miðað
við úthlutað verði sömu fiskveiði-
heimildum og á jrfírstandandi físk-
veiðiári og að verð á landfrystum
afurðum fari heldur lækkandi.
Bókfærðar eignir Granda námu
4.348 milljónum samkvæmt efna-
hagsreikningi og hækkuðu um rúmar
500 milljónir frá árinu áður. Heildar-
skuldir námu 2.826 milljónum sam-
anborið við 2.367 árið áður og eigið
fé var 1.522 milljónir króna saman-
borið við 1.467 milljónir árið áður.
Rekstrartekjur á árinu 1993 voru
2.895 milljónir króna samanborið við
2.466 milljónir árið 1992. Rekstrar-
gjöld voru 2.128 milljónir og hagnað-
ur án afskrifta og fjármagnskostnað-
ar tæpar 767 milljónir króna. Af-
skriftir námu 355 milljónum og fjár-
VEIÐIFELAG
ELLIÐAVATNS
Stangveiði á vatnasvæði Elliðavatns hefst
1. maí. Veiðileyfi eru seld á Vatnsenda og
Elliðavatni. Á sömu stöðum geta félagar úr
Sjálfsbjörg, unglingar (12-16 ára) og ellilífeyr-
isþegar úr Reykjavík og Kópavogi fengið af-
hent veiðileyfi án greiðslu.
Veiðifélag Elliðavatns.
HEILSU (a) LINDIN
NÝBÝLAVEGI24 ^ SÍMI46460
5 ára afimæU
Opið hús í dag frá kl. 13.00-16.00.
★ Boðiö upp á nudd, ljós, líkamsrækt og
tölvufitumælingu gestum að kostnaðarlausu.
★ Skráning í trimmhóp, tveir flokkar, byrjendur og
lengra komnir, æfingar 2 sinnum í viku. 1. mánuður
með fitumælingu við upphaf og lok námskeiðs
kr. 2.900,-.
★ Clæsileg afmælistilboð á ljósum - nuddi og líkamsrækt.
Kaffiveitingar. Nýir og gamlir viðskiptavinir velkomnir.
Uþplýsingar í síma 46460.
magnsgjöld 109 milljónum króna og
því var hagnaður af reglulegri starf-
semi rúmar 302 milljónir króna.
Gengistap nam tæpum 160 milljón-
um króna og tap dótturfélaga var
rúmar 68 milljónir króna. Eiginfjár-
hlutfall í árslok var 35% en var 38%
árið áður. Arðsemi eigin fjár var já-
kvæð um 7% samanborið við að hafa
verið neikvæð um 10% árið áður.
Veltufé frá rekstri var 685 milljónir
króna en var 1992 370 milljónir.
Hlutafé í árslok var 995 milljónir sem
var óbreytt frá árinu áður og hluthaf-
ar 590 og fjölgaði um 118 milli ára.
Grandi gerði út átta skip á síðasta
ári, tvö frystiskip, þrjá ísfisktogara
sem aðallega sigla með afla sinn á
Þýskalandsmarkað og þijú skip sem
landa meginhluta afla síns hér landi,
auk nýs frystitogara sem bættist í
flotann í lok október.
Utanríkisviðskipti
VÖRUSKIPT4N % 1994 breyting á mars föstu gengi*
VIÐ ÚTLÖND^ Verðmæti vöruút- og innflutnin í mars 1993 og 1994 1993 (fob virði í milljónum króna) mars
Útflutningur alls (fob) 8.905,4 12.065,2 23,4
Sjávarafurðir 7.673,6 10.099,9 19,9
Ál 605,2 953,4 43,5
Kísiijárn 50,4 165,9
Skip og flugvélar 34,7 62,2 63,3
Annað 541,5 783,8 31,8
Innflutningur alls (fob) 6.879,9 6.768,9 -10,4
Sérstakar fjárfestingarvörur 228,6 9,0 -96,4
Skip 161,0 -
Flugvélar - 0,5
Landsvirkjun 67,6 8,5
Tilstóriðju 658,2 273,8 -62,1
íslenska álfélagið 621,1 213,8
fslenska járnblendifélagið 37,1 60,0
Almennur innflutningur 5.993,1 6.486,1 -1,4
Olía 6,3 71,0
Matvörur og drykkjarvörur 649,5 874,1 22,6
Fólksbílar 427,6 266,0 -43,3
Aðrar neysluvörur 1.619,5 1.789,1 1,1
Annað 3.290,2 3.476,9 -3,8
Vöruskiptajöfnuður 2.025,5 5.296,3
Án viðskipta íslenska álfélagsins 2.041,4 4.556,7
Án viðskipta íslenska álfélagsins,
íslenska jámblendifélagsins
og sérstakrar fjárfestingarvöru 2.222,0 4.397,6
’ Miðað er við meðalgengi á viðskiptavog; á þann mælikvarða var ipeðalverð eriends gjaldeyris 9,8% hærra
í mars 1994 en á sama tima árið áður.
Vöruskiptajöfnuður hag-
stæður um 5,3 milljarða
Verðmæti vöruútflutningsins á fyrsta ársfjórðungi 18% meira en í fyrra
VÖRUSKIPTAJÖFNUÐURINN var hagstæður um 5,3 milljarða
króna í marsmánuði en sama mánuð í fyrra voru vöruskiptin hag-
stæð um 2,2 milljarða króna. Fyrstu þijá mánuði ársins voru vöru-
skiptin við útlönd hagstæð um 8,6 milljarða króna samanborið við
3,7 miljjarða króna fyrsta ársfjórðunginn í fyrra á föstu gengi.
í frétt frá Hagstofu íslands
segir að verðmæti vöruútfiutn-
ingsins á fyrsta ársfjórðungi
hafi verið 18% meira en í fyrra
á föstu gengi og verðmæti sjáv-
arvöruútflutningsins, sem er
79% af heildarútflutningnum,
15% meira en í fyrra á sama
tíma. Verðmæti vöruinnflutn-
ingsins var 4% minna en sama
tímabil í fyrra á föstu gengi.
Að frátöldum innflutningi á sér-
stakri fjárfestingarvöru, olíu-
innflutningi og innflutningi til
stóriðju sem er jafnan mjög
breytilegur frá einum tíma til
annars var annar innflutningur
3% minni en fyrsta ársfjórðung
í fyrra. Þar af dróst bflainn-
flutningur saman um fjórðung,
innflutningur á mat- og drykkj-
arvöru óx um 6%, innflutningur
annarrar neysluvöru var 5%
minni en sama tímabil í fyrra
og innflutningur annarrar vöru
2% minni.
Útflutningurinn í marsmánuði
nam 12,1 milljarði króna og inn-
flutningurinn 6,8 milljörðum
þannig að verðmæti útflutn-
ingsins var nær helmingi meira
en innflutningsins. Fyrstu þijá
mánuði ársins voru fluttar út
vörur fyrir 26;9 milljarða en inn
fyrir 18,3 milljarða króna.
laETTHimSf
Hlutabréf seldust
fyrir 15 milljónir
LÍFLEG viðskipti voru með
hlutabréf í íslandsbanka á
Verðbréfaþingi íslands í gær
annan daginn i röð og seldust
hlutabréf fyrir samtals rúmar
15 milljónir króna. Framan at'
degi hélt gengi hlutabréfanna
Diplomat flgölva
alvöru 486
Uppfæranleg 25-B6 MIIz
HockingStation
BOÐEIND-
Austurströnd 12. Sími 612061. Fax 612081
áfram að hækka eins og daginn
áður, en Iækkaði svo aftur er á
daginn leið og síðustu viðskipti
dagsins að nafnverði 1,5 millj-
ónir voru á genginu 0,89, sem
er 0,05 stigum lægra en var í
upphafi dagsins og 0,10 stigum
hærra en gengið var áður en
bréfin fóru að hækka. Lítið var
um viðskipti með hlutabréf í
öðrum félögum.
Gengi hlutabréfanna var 0,96
við upphaf viðskipta í gærmorgun
en hækkaði síðan í 0,99 og fór
síðan hæst í 1,03 í tvennum við-
skiptum fyrir samtals rúmar 700
þúsund krónur að nafnverði.
Gengið lækkaði síðan aftur í 0,97
og 0,96 og seldust samtals hluta-
þ)
ins vóru síðan á gehgínu 0,90 og'
Gengi hlutabréfa í
íslandsbanka I gær
• '
1,10
Gengi við lokun
á fimmtudag
0,85
FOSTUDAGUR
Kl. 9:00 10 11 12 13 14 15 16 17
0,89 og seldust hlutabréf að nafn-
virði 1,5 milljónir í hvort skipti.
Á fimmtudag seldust hlutabréf
fyrir samtals 11,4 milljónir í ís-
laiyisbanka pg hækkaði gengið úr
0,79 í upphafi víðskipta á Verð-
bréfaþingi í 0,96 við lök viðskipta.