Morgunblaðið - 30.04.1994, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. APRÍL 1994
23
Milligöngumenn reyna að afstýra átökum í norðurhluta Bosníu
Vilja samninga um
vopnahlé sem fyrst
Sar^jevo, New York. Reuter.
VESTRÆNIR og rússneskir milligöngumenn ræddu við leiðtoga
Bosníu-Serba í gær til að hvetja þá til að semja um vopnahlé við
stjórn Bosníu og afstýra því að átök blossuðu upp í norðurhluta
landsins.
Milligöngumennirnir voru undir
forystu bandaríska sendiherrans
Charles Redmans og Aleksejs
Níkíforovs, sendimanns rússnesku
stjórnarinnar, og þeir ræddu við
serbneska leiðtoga í Pale, skammt
frá Sarajevo. Þeir neituðu að ræða
niðurstöðu fundarins við blaða-
menn.
Daginn áður fóru milligöngu-
mennirnir á fund Alija Izet-
begovics, forseta Bosníu, sem
sagði að stjórn sín vildi bráða-
birgðasamning um vopnahlé í -tvo
til þijá mánuði svo hægt yrði að
leysa deilur hennar við Serba um
skiptingu landsvæða í Bosníu. Ser-
barnir, sem hafa náð 70% land-
svæðanna á sitt vald, vilja hins
vegar semja strax um varanlegt
vopnahlé.
Milligöngumennirnir kappkosta
að tryggja vopnahlé sem allra fyrst
þar sem óttast er að harðir bardag-
ar blossi upp að nýju í norðurhluta
Bosníu. Serbar eru sagðir vera
með mikinn viðbúnað í grennd við
Brcko, þar sem þeir eru veikastir
fyrir á landsvæði sem tengir yfir-
ráðasvæði þeirra í Vestur- og
Austur-Bosníu.
Jeltsín fordæmir Serba
Borís Jeltsín, forseti Rússlands,
fordæmdi Bosníu-Serba þegar
hann var spurður um þjóðernis-
hreinsanir þeirra í viðtali við
bandaríska sjónvarpið ABC. „Ég
fordæmi Serba vegna þess að þeir
hafa svikið loforð sín. Þetta er
algjör villimennska," sagði Jeltsín,
sem skýrði ennfremur frá því að
hann hygðist gegna forsetaemb-
ættinu „að minnsta kosti þangað
til í júní 1966“. Þá rennur kjör-
tímabil hans út.
Jórunn Eyfjörð
Jórunn flutti á fundinum erindi,
sem hún nefndi „Stutt yfirlit yfir
erfðafræðilegar aðferðir og fram-
tíðarmöguleika", en á fyrra degi
ráðstefnunnar var aðallega rætt um
vísindaleg efni en siðfræðileg álita-
mál á þeim síðari. í nefndinni sitja
auk vísindamanna heimspekingar,
læknar og lögfræðingar, það er að
segja fulltrúar þeirra stétta, sem
þessum málum tengjast óhjá-
kvæmilega, og lögðu þeir sitt af-
mörkum til umræðunnar.
Aldrich Ames dæmdur í lífstíðarfangelsi
HaUmælti leyniþjón-
ustunni fyrir rétti
Alexandra, Washing^ton. Reuter. The Daily Telegraph.
ALDRICH Anies, sem sakaður hefur verið um einar mestu njósn-
ir Bandaríkjamanns í þágu Sovétmanna og síðar Rússa, þáði sem
svarar 160 milljónum í laun fyrir njósnir. Ames játaði á fimmtu-
dag njósnir og skattsvik og var dæmdur í lífstíðarfangelsi. Hall-
mælti hann leyniþjónustunni í yfirlýsingu sem hann Ias upp fyrir
rétti og sagði hana m.a. aðeins starfa í eigin þágu. Með játningu
Ames kemst CIA hjá vandræðalegum réttarhöldum, sem víst er
að hefðu beint athyglinni að því hversu áfátt eftirliti var innan
stofnunarinnar.
Ames játaði m.a. að hafa boðist
til að gefa Sovétmönnum upp nöfn
á að minnsta kosti tíu sovéskum
borgurum sem njósnuðu fyrir
Bandaríkjamenn en talið er að
flestir þeirra hafi verið teknir af
lífi. Hlaut hann tvær milljónir dala
fyrir greiðann.
Rosario, hin kólumbíska eigin-
kona Ames, grét þegar hún játaði
á sig sakir. Dómsuppkvaðningu
yfir henni hefur verið frestað um
hálft ár þar til Ames hefur gefið
fullnægjandi upplýsingar um það
hvernig liann kom gögnum til
Rússa. Sýni frú Ames samstarfs-
vilja fær hún líklega aðeins fímm
ára fangelsi. Nokkrir þingmenn
hafa gagnrýnt harðlega, hversu
stuttan dóm hún muni líklega fá
en hún hefur ekki viðurkennt að
hafa aðstoðað við að koma gögn-
um til Sovétmanna, síðar Rússa.
Þrátt fyrir að Ames viðurkenndi
að honum þætti leitt hvað njósnir
hans hefðu kallað yfir eiginkonu
hans og son, var ekki að sjá eða
heyra að hann bæri neinn hlýhug
til stofnunarinnar, sem hann vann
hjá í áratugi. í yfirlýsingu, sem
Ames las upp réðist hann ennfrem-
ur á bandarísk yfírvöld og leyni-
þjónustu. „Ég tel ekki að að gerð-
ir mínar hafí skaðað þjóðarhags-
muni okkar verulega, eða verið
Sovétmönnum og Rússum til mik-
ils góðs.“
Niðurstaða þingnefndar í Brandenburg
Manfred Stolpe var
ekki á vegum Stasi
Berlín. Frá Hrönn Marinósdóttur, fréttaritara Morgunblaósins.
MEIRIHLUTI þingnefndar í Brandenburg í Þýskalandi sem rannsak-
að hefur tengsl Manfreds Stolpe, forsætisráðherra sambandslands-
ins, við fyrrum öryggislögreglu Austur-Þýskalands, Stasi, hefur úr-
skurðað að hann sé saklaus af ásökunum um að hafa unnið fyrir hana.
f
Stolpe var lögfræðingur og for-
maður kirkuráðs Austur-Þýskalands
en til kirkunnar leituðu ásjár margir
andstæðingar ríkjandi stjórnskipu-
lags.
Fyrir rúmum tveimur árum var
Stolpe fyrst ásakaður um að hafa
starfað sem leynilegur uppljóstrari
frá miðjum sjöunda áratugnum og
fram til ársins 1989. Þá var rann-
sóknarnefnd þingsins í Brandenburg
sett á laggirnar og hefur hún starf-
að óslitið síðan.
í ítarlegri lokaskýrslu Lothars
Bisky, formanns nefndarinnar en
hann er þingmaður PDS, arftaka
fyrrum kommúnistaflokks A-Þýska-
lands, kemur m.a. fram að starfs
síns yegna hafi Stqlpe þurft að hafa
samskipti við yfirmenn Stasi en hann
hafi aldrei skaðað neinn með þeim
samskiptum. Hvort Stolpe hafi þegið
heiðursorðu Stasi telur Bisky sig
ekki geta dæmt um.
Niðurstaða nefndarinnar hefur
verið harðlega gagnrýnd á þeim
grundvelli að kosningabaráttan hafi
sett mark sitt á niðurstöðuna en
kosið verður til landsþings Brand-
enburg 5 september.
SUMARTIMI
Páfinn
fótbrotn-
aði í baði
Róni. Reuter.
JÓHANNES Páll páfi gekkst
undir aðgerð á sjúkrahúsi í
Róm eftir að hafa fótbrotnað
í baðherbergi sínu í Páfa-
garði.
Hann missti fótanna þegar
hann var að fara úr baðkarinu
með þessum afleiðingum. Að-
gerðin tók fjórar klukkustundir
og talsmaður páfagarðs sagði
að hann væri við „mjög góða
heilsu“. Talið er að páfi verði
í tíu daga á sjúkrahúsinu. Þetta
er í sjötta sinn sem hann fer á
sjúkrahús frá því hann var varð
páfi árið 1978.
Skrifstofa RKI á Rauðarárstíg 18 verður opin
kl. 8.00-16.00 frá 1. maí til 1. september.
RAUÐI KROSS ÍSLANDS
HELIVAC - snígildælur
Eigum mikið úrval
af ýmsum gerðum
og stærðum af
dælum.
Við seljum
aðeins dælur
sem standast kröfur
flokkunarfélaga.
Viðgerðarþjónusta
/
Vatnagörðum 16,
• s. 686625 og 686120.
FAGOR
UPPÞVOTTAVELAR
12 manna
7 þvottakerfi
Hljöölát 40dB
Þvottatími 7-95 mín
Sjálfv.hitastillir 55-65'C
Stillanlegt vatnsmagn
Sparnaðarrofi
Hitaþurrkun
HxBxD: 85x60x60cm
Án topp-plötu:
82x60x58cm
MUNALÁN, VISA OG EURO RAÐGREIÐSLUR
RONNING
BORGARTÚNI 24
SÍMI 68 58 68
U
T I Ð
<y//rnœ/itioeiti/a
1954 var veitingarekstur hafinn í Naustinu.
í tilefni 40 ára afmælisins bjóðum við þríréttaða
máltfð fyrir aðeins 1954 kr.
0%H*/*éttÍr
Rækjukokkteill með ristuðu brauði og smjöri
Þrjár tegundir af síld með brauði og smjöri
Gratineruð frönsk lauksúpa
'úfalréttif'
Steikt skarkolaflök „Bangkok"
með rækjum, ananas, hrísgrjónum og karrísósu
Djúpsteiktur körfúkjúklingur Naustsins
með hrásalati og frönskum kartöflum
Lambageiri með grilluðum tómati og sveppasósu
ir/iirrétíi/'
Djúpsteiktur camembert með kexi
Perur „Bella Helena"
Jit/idt
/ónW
c/ér<) urh’i/i.s' t(C)S4 An
Veitíngahúsiá Naust
- i 9 9 4
/
B o rð apatit an ir í stma 17759