Morgunblaðið - 30.04.1994, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. APRÍL 1994
29
Sameining sveit-
arfélaga í Norður
Isafjarðarsýslu
eftir Örn Friðjónsson
Forystuhlutverk ísafjarðar
ísafjarðarkaupstaður hefur um
áratugaskeið gegnt forustuhlut-
verki byggða á Vestfjörðum og
gegnir því vonandi um ókomna
tíð. Til þess liggja bæði sögu- og
landfræðilegar ástæður. Byggð
efldist mjQg á ísafirði fyrir og eft-
ir aldamótin síðustu fram á miðja
20. öld, en þá náði íbúatalan há-
marki. Bæjarlífið tók stakkaskipt-
um, stofnuð voru margvísleg félög
og prentsmiðja með fjölþættri útf-
áfustarfsemi. ísafjörður varð eitt
aðalvígið í stjórnmálabaráttu
landsmanna og orðinn næstur á
eftir Reykjavík að stærð. Skólar
voru stofnsettir, bankar reistir og
hafnarframkvæmdir efldar, út-
gerðinni til hagsbóta. ísfirðingar
höfðu forystu um stofnun Fjórð-
ungssambands Vestfjarða sem
ætlað var að sameina sýslu- og
bæjarfélög um menningar- og
hagsbótamál. ísfírðingum hafði, á
nokkrum áratugum, tekist að gera
kaupstað sinn að miðstöð verslun-
ar, útgerðar, iðnaðar, þjónustu,
stjómsýslu, fjár- og stjómmála.
Með bættum samgöngum
Enn hafa ísfírðingar forystu-
hlutverki að gegna. Með bættum
samgöngum við nágrannabyggð-
arlögin aukast skilyrði til sam-
vinnu fískvinnslufyrirtækja og út-
gerða um nýtingu sjávarfangs,
stækkun atvinnusvæðis, eflingar
þjónustu og iðnaðar og samnýt-
ingu stjómsýslu. Þetta mun auka
hagsæld íbúanna, spara fjármagn
og efla samtakamátt byggðarlag-
anna. Við opnun jarðganga mun
taka um tuttugu mínútur að aka
frá nærliggjandi byggðum til ísa-
fjarðar eða svipað og frá ystu
hverfum Reykjavíkurborgar niður
í miðbæ hennar.
Annan þankagang
Sú heimóttarlega hugsun að
einhveijir kunni að missa spón úr
aski sínum er og verður dragbítur
á alla framþróun. Hún minnir ill-
þyrmilega á umræðuna um aðild
Islendinga að EFTA á sínum tíma
og núna á aðild íslendinga að ESB.
Aukið svigrúm til athafna
Stjómsýsla sameinaðs sveit-
arfélags, í hinu glæsilega stjóm-
sýsluhúsi á Isafírði, mun spara
mikið fjármagn sem nýtast mun
íbúum til eflingar og framþróunar
í nýsköpun atvinnulífsins. Hver
staður gæti sérhæft sig í full-
vinnslu ákveðins sjávarfangs og
framleitt þannig verðmætari vöru.
Sérhæfíng, fullvinnsla, nýsköpun
og samvinna eru leiðir sem efla
munu byggðirnar og spoma við
þeirri miklu blóðtöku sem Vest-
fírðingar hafa mátt horfa upp á
hin síðari ár.
Spymum við atgervisflótta,
sameinum krafta okkar
Fólksfækkunin á Vestfjörðum
hlýtur að vera mönnum áhyggju-
efni og hvatning til róttækra að-
gerða er eflt gætu okkar harðbýlu
svæði.
Stærri sveitarfélög hafa meira
bolmagn gegn fjárhagslegum
áföllum en smærri, þetta ættu
menn að hugleiða nú þegar breyt-
Örn Friðjónsson
„Fólksfækkunin á Vest-
fjörðum hlýtur að vera
mönnum áhyggjuefni
og hvatning til rót-
tækra aðgerða er eflt
gætu okkar harðbýlu
svæði.“
ingar hafa orðið á verkaskiptingu
ríkis og sveitarfélaga, meiri
ábyrgð í menntamálum kallar á
aukið fjármagn og stærri fjár-
skuldbindingar en áður.
Það er því mikið kappsmál að
Mar í nærbyggðum Isafjarðar
geri sér grein fyrir nauðsyn sam-
einingar og gangi til hennar af
heilum hug. Samvinna á sem flest-
um sviðum er alltaf til hagsbóta
en sundrung og einangrun vísust
leið til hnignunar. Sameinaðir
stöndum vér en sundraðir föllum.
Höfundur er sjúkraþjálfi og
skipar 3. sæti á iistaAIþýðuflokks
til bæjarstjómar á ísafirði.
Forvarmr - fjár-
festing fyrir alla
eftir Þorberg ^
Aðalsteinsson
Íþróttalíf er blómlegt í Reykja-
vík, en íþróttir eru ekki aðeins
keppni, heldur hluti af nauðsyn-
legri uppbyggingu einstaklingsins
til að gera honum betur kleift að
takast á við það sem að höndum
ber hveiju sinni. Því koma þær að
gagni hjá öllum aldurshópum og
rannsóknir sýna að íþrótta- og
heilsubótarstarf styrkir ekki aðeins
og eflir unglingana í námi sem
starfí heldur beinir þeim á braut
jákvæðni og bjartsýni og er mjög
mikilvægur þáttur í forvamar-
starfi. Sjálfstæðismenn hafa verið
meðvitaðir um gildi þessarar starf-
semi og sýnt hug sinn í verki í
borginni. Akveðið hefur verið að
ráðast í ýmsar framkvæmdir varð-
andi íþrótta- og tómstundamál á
komandi kjörtímabili og sjálf-
stæðismenn vilja hér eftir sem
hingað til hugsa til framtíðar með
hag borgarbúa að leiðarljósi.
Iþróttafélög styrkt
Reykjavíkurborg undir styrkri
stjórn sjálfstæðismanna hefur
styrkt íþróttafélög borgarinnar eft-
ir ákveðnu skipulagi, sem hefur
mælst vel fyrir hjá þeim, en fyrir
vikið hafa styrkhæf félög getað
komið upp þeirri aðstöðu, sem þau
hafa talið mikilvægasta. A síðasta
kjörtímabili' voru reist mörg
íþróttamannvirki í borginni og má
þar nefna íþróttahús Víkings og
Austurberg, íþróttamiðstöð í
Grafarvogi, auk tveggja húsa sem
eru í byggingu hjá Fram og Fylki,
gervigrasvöll hjá Leikni, tennisvelli
hjá Þrótti og áhorfendastúku á
KR-velli. Á komandi kjörtímabili
verður ,m.a. ráðist í byggingu
Þorbergur Aðalsteinsson
„Um 1,3 milljónir
manns sóttu sundlaug-
ar Reykjavíkur á síð-
asta ári og um mánaða-
mótin verður vígð sund-
laug í Arbæ, sannkall-
aður vatnsgarður.“
íþróttahúss fyrir KR og eins fyrir
Þrótt, en auk þess verður uppbygg-
ingu haldið áfram á íþróttasvæði
Fjölnis og ÍR. Þess ber að geta að
íþróttaiðkun er lang umfangs-
mesta tómstundastarf unglinga og
samkvæmt könnun Þórólfs Þór-
lindssonar á viðhorfum og þátttöku
ungs fólks í íþróttum æfa um 49%
drengja í 8. bekk oftar en tvisvar
í viku hjá íþróttafélagi og samsvar-
andi tala hjá stúlkum er 41%.
Breyttur og betri Kópavogur
eftir Guðmund
Gíslason
Undirritaður átti sæti í uppstill-
inganefnd Framsóknarfélaganna í
Kópavogi fyrir síðustu bæjar-
stjómarkosningar, en þá lá það
fyrir að Skúli Sigurgrímsson sem
veitt hafði bæjarstjórnarlista
Framsóknarflokksins forustu um
nokkurt skeið gaf ekki kost á sér
til þess lengur.
Fór þá fram almenn skoðana-
könnun meðal félagsbundinna
framsóknarmanna í Kópavogi um
vai á lista og hlaut Sigurður Geir-
dal flest atkvæði. Var því leitað
til hans að veita listanum forustu,
sem hann að vel athuguðu máli
samþykkti, þrátt fyrir miklar annir
í starfi sínu sem framkvæmda-
stjóri Framsóknarflokksins, en
áður en hann tók við því starfí var
hann framkvæmdastjóri Ung-
mennafélags íslands um langt
skeið.
Undirritaður telur að það hafi
verið happafengur að fá Sigurð til
forustustarfa fyrir Framsóknar-
flokkinn í bæjarmálum Kópavogs
á þessum tíma, þar sem margir
af frambjóðendum voru þá að
þreyta sína prófraun á þessum
vettvangi og því ekki vanþörf á
að hafa reynsluríkan félagsmála-
mann með viðskiptafræðimenntun
til að leiða starfíð.
Eftir síðustu kosningar fékk
flokkurinn einn mann kjörinn í
bæjarstjórn, þar sem nokkur at-
kvæði vantaði uppá að tveir menn
næðu kjöri.
Að kosningum loknum var
myndaður meirihluti Framsóknar-
flokks með einn bæjarfulltrúa og
Sjálfstæðisflokks með fímm bæj-
arfulltrúa.
Sigurður var ráðinn pólitískur
bæjarstjóri og gegndi jafnframt
fulltrúastarfí í bæjarstjóm og
bæjarráði.
Á líðandi kjörtímabili hefur
margt færst til betri vegar hér í
bænum. Staðið hefur verið við
gefín loforð um endurbyggingu
lélegra gatna, lokið byggingu
Listasafns Gerðar Helgadóttur og
skapaðir möguleikar til enn frek-
ari uppbyggingar íbúðahúsnæðis,
atvinnuhúsnæðis og unnið að
margháttuðum framkvæmdum á
sviði skóla, dagvistunar og íþrótta-
mála. Auk þess að gengið hefur
verið frá samkomulagi við Reykja-
víkurborg um skipulag og nýtingu
Fossvogsdals.
Ekki síst ber að nefna umbylt-
ingu í skipulagi stjórnunar og á
fjármálum bæjarins, þannig að
dráttarvaxtakostnaður af skamm-
tímaskuldum hefur nær horfíð og
rekstrarkostnaður bæjarfélagsins
lækkað um á annan tug % m.v.
tekjur hvers árs, eða úr um 80%
niður fyrir 70%.
Undirritaður hefur oft undrast
hversu mikla starfsorku Sigurður
hefur, en oftar en ekki hefur það
borið við þegar undirritaður hefur
reynt að ná sambandi við bæjar-
stjórann utan hefðbundins starfs-
tíma, að hann hefur verið að sinna
ýmsum embættisverkum, meðal
annars að veita liðveislu sína ýms-
„Undirritaður veit af
fenginni reynslu hvers
vænta má af Sigurði ef
hann verður áfram í
forustusveit bæjarfé-
lagsins, en betra er að
róa báti ef tveir halda
um árar en einn og því
er hvert atkvæði sem
bætist í safn Framsókn-
arflokksins ávísun á öfl-
ugra starf.“
um samtökum er vinna að íþrótta,
æskulýðs og velferðarmálum. Set-
ið á skrifstofu sinni og spáð í spil-
in með tilliti til þess hvernig nýta
mætti betur fjármuni okkar skatt-
borgaranna, eða verið úti að
trimma.
Á ári fjölskyldunnar telst slík
vinnusemi vafalaust ekki til eftir-
breytni, en lýsir samt áhuga og
eljusemi mannsins að vinna verk
sitt af kostgæfni.
Nú nálgast kosningar á nýjan
leik og Sigurður leiðir lista Fram-
sóknarflokksins í Kópavogi í ann-
að sinn, reynslunni ríkari, ásamt
mörgum mætum mönnum og þá
verður það hlutverk hins almenna
kjósanda að leggja mat sitt á verk
þau sem unnin hafa verið og hverj-
um þeir treysta til að vinna áfram
að jákvæðri uppbyggingu bæjarfé-
lagsins. Undirritaður veit af feng-
Guðmundur Gíslason.
inni reynslu hvers vænta má af
Sigurði ef hann verður áfram í
forustusveit bæjarfélagsins, en
betra er að róa báti ef tveir halda
um árar en einn og því er hvert
atkvæði sem bætist í safn Fram-
sóknarflokksins ávísun á öflugra
starf. Starf sem meðal annars
þarf að beinast að útrýmingu hins
hræðilega vágests sem atvinnu-
leysi er og þjakað hefur þjóð vora
og drepið hana í dróma undanfar-
in misseri.
Höfundur er starfsmaður
Framleiðsluráðs landbúnaðarins
og Landssamtaka
sláturleyfishafa.
Óskum íbúa mætt
Stór hluti borgarbúa iðkar lík-
amsrækt og hafa sjálfstæðismenn
lagt áherslu á að mæta óskum íbú-
anna með bættri aðstöðu og skipu- *
lögðum útivistarsvæðum í Reykja-
vík. Bláfjallasvæðið er einn af un-
aðsreitum fjölskyldunnar á ve-
turna. Vélfryst skautasvell í Laug-
ardal, sem verður yfirbyggt á
næsta kjörtímabili, nýtur mikilla
vinsælda allra aldurshópa. Um 1,3
milljónir manns sóttu sundlaugar
Reykjavíkur á síðasta ári og um
mánaðamótin verður vígð sund-
laug í Árbæ, sannkallaður vatns-
garður. Innan tveggja ára ætla
sjálfstæðismenn að ljúka við gerð
göngu- og hjólreiðastígs, sem ligg-
ur frá Seltjamamesi meðfram
ströndinni, fyrir enda flugbrautar,
inn í Fossvogsdal, upp Elliðaárdal
og inn í Heiðniörk, auk þess sem
unnið verður að tengingu borgar-
hverfa með göngu- og hjólreiða-
stígum. Hafnar em framkvæmdir
við 18 holu golfvöll við Korpúlfs-
staði og fjölskyldugolfvöllur er á
dagskrá í Grafarvogi.
Haldið áfram á sömu braut
Sjálfstæðismenn leggja áherslu
á almenna heilsubót og hafa unnið
ötullega að uppbyggingu almenn-
ings- og keppnisíþrótta í Reykja-
vík, en rúmlega 10% af ráðstöfun-
arfé borgarinnar hefur verið lagt
í íþrótta- og tómstundastarf. Verk-
in tala sínu máli og með því að
veita sjálfstæðismönnum brautar-
gengi í komandi kosningum er
tryggt að haldið verður áfram á
sömu braut. Þitt er valið.
Höfundur er þjálfari og skipar 8.
sæti á framboðslista Sjálf-
stæðisflokksins í Reykjavík.