Morgunblaðið - 30.04.1994, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. APRÍL 1994
33
jfWeööur
r
a
morgun
r—^
ÁSKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 14.
Kirkjukaffi Snæfellinga og Hnapp-
dæla ettir messu. Árni Bergur Sig-
urbjörnsson.
BÚSTAÐAKIRKJA: Barnamessa
kl. 11. Heimsókn barna og ung-
linga frá Akranesi. Guðsþjónusta
kl. 13.30. Athugið messutfmann.
Lögreglumenn annast alla þjón-
ustu messunnar. Hans M. Haf-
steinsson lögreglumaður prédik-
ar. Lögreglukórinn syngur undir
stjórn Guðlaugs Viktorssonar.
Organisti Guðni Þ. Guðmundsson.
Fyrir altari þjóna fyrrum lögreglu-
menn sr. Sigurður Kr. Sigurðsson,
sr. Kjartan Orn Sigurbjörnsson og
sr. Pálmi Matthíasson. Altaris-
ganga. Kaffi á vegum eiginkvenna
lögreglumanna eftir messu. Allir
hjartanlega velkomnir í þessa
messu, sem helguð er málefnum
lögreglunnar.
DOMKIRKJAN: Fjölskylduguðs-
þjónusta kl. 11. Prestur sr. Jakob
Á. Hjálmarsson. Dómkórinn syng-
ur. Organisti Marteinn H. Friðriks-
son.
GRENSÁSKIRKJA: Guðsþjónusta
kl. 11. Athugið breyttan messu-
tíma. Prestur sr. Halldór S. Grön-
dal. Organisti Árni Arinbjarnar-
son.
HALLGRÍMSKIRKJA: Barnasam-
koma og messa með altarisgöngu
kl. 11. Sr. Ragnar Fjalar Lárusson.
Guðrún Hrund Harðardóttir leikur
á lágfiðlu. Organisti Hörður
Áskelsson. Félagar úr Mótettukór
Hallgrímskirkju leiða söng. Tón-
leikar Listvinafélags Hallgríms-
kirkju kl. 17. Jósef Ognibene leikur
á horn og Hörður Áskelsson á
orgel. Leikin verða barrokverk og
frönsk orgeltónlist.
LANDSPÍTALINN: Messa kl. 10.
Sr. Jón Bjarman.
HÁTEIGSKIRKJA: Messa kl. 11.
Orgel- og kórstjórn Pavel Mana-
sek. Sr. Helga Soffía Konráðsdótt-
ir.
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guð-
brands biskups. Messa kl. 11.
Prestur sr. Flóki Kristinsson. Org-
anisti Jón Stefánsson. Kór Kór-
skóla Langholtskirkju sér um söng
og hljóðfæraleik.
LAUGARNESKIRKJA: Messa kl.
11. Bjöllusveit, drengjakór og Kór
Laugarneskirkju taka þátt í mess-
unni, sem verður síðasta messa
sóknarprestsins að sinni. Sr. Jón
D. Hróbjartsson.
NESKIRKJA: Árlegt ferðalag
barnastarfsins í dag. Lagt af stað
frá kirkjunni kl. 11. Farið verður í
Kaldársel, grillað og skemmt sér
við leik og störf. Guðsþjónusta kl.
11. Athugið breyttan tíma. Orgel-
og kórstjórn Reynir Jónasson.
Guðmundur Óskar Ólafsson.
SELTJARNARNESKIRKJA:
Messa kl. 11. Organisti Hákon
Leifsson. Prestur sr. Ingólfur Guð-
mundsson. Ræðuefni: „Sá sem
hefur tvö störf..." Barnastarf á
sama tíma.
ÁRBÆJARKIRKJA: Útvarpsguðs-
þjónusta kl. 11 árdegis. Sr. Þór
Hauksson prédikar og þjónar fyrir
altari. Barnakórinn syngur stól-
vers, Helga Þórarinsdóttir leikur á
lágfiðlu. Organisti Sigrún Stein-
grímsdóttir. Sr. Guðmundur Þor-
steinsson.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Fjölskyldu-
guðsþjónusta kl. 11. Lok barna-
starfsins, barnakórarnir syngja.
Guðspjall dagsins:
(Jóh. 16.) Sending heil-
ags anda.
Guðsþjónusta ísfirðingafélagsins
í Reykjavík kl. 14. Prestur er sr.
Örn Bárður Jónsson. Organisti
Daníel Jónasson. Vorferðalag
barnastarfsins, brottför frá Breið-
holtskirkju kl. 13.30. Samkoma
Ungs fólks með hlutverk kl. 20.30.
Organisti Daníel Jónasson. Sr.
Gísli Jónasson.
DIGRANESPRESTAKALL: Guðs-
þjónusta í Kópavogskirkju kl. 11.
Sr. Þorbergur Kristjánsson.
FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Guðs-
þjónusta kl. 11. Prestur sr. Hreinn
Hjartarson. Barnaguðsþjónsta á
sama tíma í umsjón Ragnars
Schram og Ágústs Steindórsson-
ar. Organisti Lenka Mátéová.
Prestarnir.
GRAFARVOGSKIRKJA: Guðs-
þjónusta kl. 11. Ath. breyttan
messutfma. Hilmar Guðlaugsson
Grafarvogsbúi prédikar. Organisti
Ólafur Finnsson. Barnakór Graf-
arvogs syngur við guðsþjónustu í
Víkurkirkju, Vík í Mýrdal, kl. 14
undir stjórn Sigurbjargar Helga-
dóttur organista. Sr. Vigfús Þór
Árnason.
HJALLAKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11. Prestur dr. Sigurjón Árni Eyj-
ólfsson. Kór Hjallakirkju syngur.
Aðalheiður Magnúsdóttir syngur
stólvers. Organisti Oddný J. Þor-
steinsdóttir. Sr. Kristján Einar
Þorvarðarson.
KÁRSNESPRESTAKALL: Guðs-
þjónusta í Kópavogskirkju kl. 14.
Organisti Örn Falkner. Sr. Ægir
Fr. Sigurgeirsson.
SELJAKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
14. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir
messar. Organisti Kjartan Sigur-
jónsson. Sóknarprestur.
FRÍKIRKJAN í Rvík: Guðsþjónusta
kl. 11. Skaftfellingakórinn syngur
vorlög í byrjun guðsþjónustunnar.
Stjórnandi Violeta Smid. Organisti
Pavel Smid. Skráning í vorferðalag
barnanna 8. maístenduryfir í síma
14579. Cecil Haraldsson.
KRISTSKIRKJA, Landakoti: Há-
messa kl. 10.30. Messa kl. 14.
Ensk messa kl. 20. Laugardaga
messa kl. 14 og ensk messa kl.
20. Aðra rúmhelga daga messur
kl. 8 og kl. 18.
SÍK, KFUM og KFUK, KSH: Sam-
koma kl. 20 í Kristniboðssalnum.
„Uppvaktir með Kristi" (Kól. 3,1).
Sr. Sigurður Pálsson prédikar.
Upphafsorð hefur Árni Geir Jóns-
son. Munið samkomur 7. og 8.
maí með gestum frá Norðurlönd-
unum.
MARÍUKIRKJA, Breiðholti:
Messa kl. 11. Alla rúmhelga daga
messa kl. 18.30.
HVÍTASUNNUKIRKJAN Fíladelf-
ía: Almenn samkoma kl. 16.30.
Ræðumaður Mik Fitzgerald.
Barnasamkoma á sama tíma.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Helgun-
arsamkoma og sunnudagaskóli kl.
11. Hjálpræðissamkoma kl. 20.
Brigader Ingibjörg og Óskar Jóns-
son stjórna og tala á samkomum
dagsins.
FÆR. sjómannaheimilið: Sam-
koma sunnudag kl. 17.
VEGURINN, kristið samfélag:
Fjölskyldusamvera kl. 11. Almenn
samkoma kl. 20.
ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN: Guðs-
þjónusta kl. 14. Kirkjukórinn syng-
ur undir stjórn Veru Gulázsiová,
organista safnaðarins. Kaffiveit-
ingareftir messu. Þórsteinn Ragn-
arsson.
MOSFELLSPRESTAKALL:
Messa í Mosfellskirkju kl. 14. Jón
Þorsteinsson.
BESSASTAÐAKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 14. Nemendur úr Álftanes-
skóla og Félag heyrnarlausra taka
þátt í athöfninni. Bragi Friðriks-
son.
HAFNARFJARÐARKIRKJA:
Sunnudagaskóli kl. 11. Munið
skólabílinn. Guðsþjónusta kl. 14.
Organisti Helgi Bragason. Gunn-
þór Ingason.
VÍÐISTAÐASÓKN: Laugardag:
Vorferð barnastarfsins kl. 10.
Komið heim kl. 13. Sunnudag:
Guðsþjónusta í Hrafnistu kl. 13.
Guðsþjónusta í Víðistaðakirkju kl.
14. Kór Víðistaðakirkju syngur.
Organisti Úlrik Ólason. Ólafur Jó-
hannsson.
FRÍKIRKJAN, Hafnarfirði: Barna-
guðsþjónusta kl. 11. Organisti
Kristjana Þ. Ásgeirsdóttir. Sr. Ein-
ar Eyjólfsson.
KAPELLA St. Jósefssystra,
Garðabæ: Þýsk messa kl. 10.
JÓSEFSKIRKJA, Hafnarfirði:
Messa kl. 10.30. Rúmhelga daga
messa kl. 18.
KARMELKLAUSTUR: Messa kl.
8.30. Rúmhelga daga messa kl. 8.
KEFLAVÍKURKIRKJA: Fjölskyldu-
guðsþjónusta kl. 11 árd. Stund
fyrir börnin í upphafi, sem síðan
fara yfir í safnaðarheimilið. Guð-
rún Ölafsdóttir, formaður Verka-
kvennafélags Keflavíkur og ná-
grennis, og Kristján Gunnarsson,
formaður Verkalýðs- og sjó-
mannafélags Keflavíkur og ná-
grennis, lesa lexíu og pistil dags-
ins. Prestur sr. Sigfús Baldvin
Ingvason. Kór Keflavíkurkirkju
syngur. Organisti og söngstjóri
Einar Örn Einarsson. Prestarnir.
KAÞÓLSKA kapellan, Keflavík:
Messa kl. 16.
GAULVERJABÆJARKIRKJA:
Messa kl. 14. Aðalsafnaðarfundur
eftir messuna.
ÞORLÁKSKIRKJA: Messa kl. 11.
Aðalfundur safnaðarins verður
haldinn í kirkjunni mánudag kl. 20.
STRANDARKIRKJA: Messa kl. 14.
Fermdur verður Kristbjörn Hrólfur
Gunnarsson, Reykjabraut 14, Þor-
lákshöfn. Altarisganga.
STÓRA-NÚPSPRESTAKALL:
Guðsþjónusta í Ólafsvallakirkju á
Skeiðum kl. 14. Guðsþjónusta á
Blesastöðum á eftir. Sóknarprest-
ur.
LANDAKIRKJA, Vestmannaeyj-
um. Almenn guðsþjónusta kl. 10
og sunnudagaskóli á baráttudegi
verkalýðsins. Forsvarsmenn
verkalýðsfélaga flytja ritningar-
lestra. Heitt á könnunni að messu
lokinni. Unglingafundur KFUM og
K kl. 20.30.
HVAMMSTANGAKIRKJA: Barna-
samvera kl. 11 í umsjá Lauru Ann-
Howser barnafræðara. Hafinn
verður undirbúningur að vorferða-
lagi sunnudagaskólans, sem verð-
ur í maí. Kristján Björnsson.
MELSTAÐAKIRKJA í Miðfirði:
Fermingarmessa kl. 11. Fermd
verða börn úr Staðarbakka-, Mel-
staðar-, Hvammstanga- og Tjarn-
arsókn. Kristján Björnsson.
AKRANESKIRKJA: Vorferð barna-
starfsins til Reykjavíkur kl. 9.
Barnastarf Bústaðakirkju heim-
sótt. Björn Jónsson.
BORGARPRESTAKALL: Ferming-
arguðsþjónusta í Akrakirkju kl.
10.30. Fermingarguðsþjónusta í
Álftaneskirkju kl. 13. Sóknarprest-
ur. Aðalfundur Borgarnessafnað-
ar verður haldinn í Samkomuhús-
inu miðvikudaginn 4. maí nk. kl.
20.30. Sóknarnefnd.
Minning
Astrún Jónsdóttir
frá Brúnastöðum
Fædd 20. mars 1938
Dáin 1. apríl 1994
Laugardaginn 16. apríl var jarð-
sungin frá Bessastaðakirkju systir
mín Ástrún Jónsdóttir, að viðstöddu
miklu fjölmenni. Það var yndislegt
veður, sólin sendi hlýja geisla sína
og það var vorilmur í lofti. Þetta
átti svo vel við hana Rúnu, það
fylgdi henni alltaf svo mikil hlýja
og birta. Hún var öllum svo kær,
sem hana þekktu, sannur vinur vina
sinna.
Það var að kvöldi föstudagsins
langa, að Haukur mágur minn
hringdi og flutti mér þá sorgarfrétt
að hún Rúna væri dáin. Hún Rúna,
sem við elskuðum og virtum svo
mikið. Kallið kom alltof snemma.
Hún hafði átt við veikindi að stríða
síðastliðið ár, en hver heldur ekki
í vonina um bata, það gerði ég,
fram á síðasta dag, og var farin
að hlakka til endurfundar að sumri.
Þegar ég lít til baka hrannast
upp minningar frá bernskuárum
okkar systra, þegar við vorum litlar
telpur á Brúnastöðum. Minningar
um leik og starf, gleði og sorg.
Minningar, sem við áttum einar og
enginn getur tekið frá okkur. Minn-
ingar um Fljótin okkar, þessa fal-
legu sveit, sem okkur þótti svo
vænt um og varð svo tíðrætt um,
þegar við hittumst. Um fólkið, sem
var okkur samtíða, svo samhent
sem ein stór fjölskylda.
Á veturna, þegar Fljótin, með
öllu sínu litrófi, nánast hurfu í snjó
og engum var fært nema fuglinum
fljúgandi, tókum við fram skíðin
okkar og brunuðum niður brekk-
urnar. Sumrin í Fljótunum voru
hrein Paradís. Við systurnar áttum
okkur bú, með hornum, leggjum og
fallega rósóttum glerbrotum. Á þau
settum við brúnar kökur skreyttar
sóleyjum og fíflum, og efa ég ekki,
að þar steig Rúna sín fyrstu spor
í matargerðarlist. Leggina höfðum
við fyrir hesta, og þeyttumst á þeim
um holt og hæðir. Rétt við túnfót-
inn var allt þakið bláberjalyngi með
gómsætum aðalblábeijum. Þar und-
um við okkur og tíndum í föturnar
okkar, eða bara í þetta botnlausa
ílát. Við vissum upp á hár hvar
mestu berin var að finna og áttum
okkur sérstakar beijalautir.
Besti silungur í heimi, sem Rúna
fékk, var úr Miklavatni og var allt-
af reynt að hafa hann á borðum,
þegar hún kom í heimsókn. Hún
var íjórum árum eldri en ég og er
mér ekki grunlaust um að stundum
hafi henni leiðst að hafa þessa
ærslafullu, litlu systur sína alltaf á
hælunum, en hún hafði alveg ein-
staka þolinmæði.
Rúna var ekki langskólagengin,
eftir barnaskóla fór hún í Gagn-
fræðaskólann á Siglufirði og einn
vetur í Húsmæðraskólann á Blöndu-
ósi, síðan lá leiðin suður. Fyrir tæp-
um 35 árum hitti hún draumaprins-
inn sinn, Hauk Dór myndlistar-
mann. Þau gengu í hjónaband og
héldust í hendur gegnum súrt og
sætt. Ævintýraþráin togaði í þessi
ungu hjón. Þau bjuggu erlendis um
nokkur ár við nám og störf.
Þegar heim kom fundu þau sér
lítið, lágreist hús, Marbakka. Það
var hlaðið úr steini með fallega bláu
þaki. Nú var brett upp ermum. Það
var byggt, breytt og bætt og þegar
upp var staðið líktist það litlu ævin-
týrahúsi jafnt utan sem innan.
Veggir og borð piýdd listaverkum
unnum af þeim hjónum og ljósin á
kertunum hennar Rúnu, sem hún
byijaði að steypa í eldhúsinu sínu,
vörpuðu rómantískri birtu um húsið
og allt varð svo notalegt. Ekki spillti
ilmurinn úr eldhúsinu, hann var svo
lokkandi. Rúna var alveg frábær
kokkur, allur matur hjá henni var
veislumatur, listilega fram borinn,
og enginn gat sest með sútarsvip
að matborðinu hennar. Að Mar-
bakka var notalegt að koma, þang-
að kom ég oftast af þeim stöðum,
sem þau bjuggu á. Þar fæddist
hugmyndin að kertunum hennar
Rúnu og leirinn hjá Hauki tók á
sig nýja mynd og breyttist í fal-
lega, nytsama hluti. En brátt varð
húsið of lítið. Þau réðust í að byggja
sér hús á Arnarnesi og völdu sér
annan sjávarbakka, með einstak-
lega fallegu útsýni. Þau stöldruðu
þó ekki lengi við þar og einn góðan
veðurdag pökkuðu þau saman,
seldu húsið og héldu á önnur mið.
Þau dvöldu í Bandaríkjunum í
nokkur ár og fluttu þaðan til Dan-
merkur. Á Norður-Sjálandi komu
þau auga á gamlan, úr sér genginn
herragarð. Hann urðu þau að eign-
ast og teningunum var kastað. Þau
festu kaup á þessum gamla garði,
breyttu honum, eins og hendi væri
veifað, í glæsilegan veitingastað.
Þar nutu gestir góðra veitinga, sem
Rúna og Haukur höfðu veg og
vanda af. Eftir tvö erilsöm ár hættu
þau veitingarekstri og fluttu inn til
Kaupmannahafnar, þar átti Rúna
sitt síðasta heimili.
Þeim hjónum varð ekki barna
auðið, en þau ættleiddu tvær falleg-
ar stúlkur frá Suður-Kóreu, Tinnu
1973 og Tönju 1975. Þær eignuð-
ust góða foreldra, sem vöfðu þær
umhyggju og ástúð.
Eg minnist systur minnar sem
glæsilegrar konu með fallegt bros,
sem yljaði manni um hjartarætur.
Hún var orðvör, en glettin, eilítið
dul og bar tilfinningar sínar ekki á
torg.
Mér er efst í huga síðasta heim-
sókn hennar til mín norður í Skaga-
íjörð. Við áttum saman notalega
kvöldstund hjá móður okkar á
Hólmagrundinnr. Daginn eftir
heimsóttum við Fljótin og nutum
þess að eiga góðan dag með ætt-
ingjum. Þetta var síðasta ferð okk-
ar systra saman í fallegu sveitina
okkar.
Rúna mín, ég þakka þér alla
elsku og hlýju, sem þú veittir mér
og fjölskyldu minni.
Elsku Haukur, Tinna og Tanja.
Ég bið góðan Guð að styrkja ykkur
og hugga um ókomin ár.
Jóna Jónsdóttir.
Birting afmælis- og
minningargreina
MORGUNBLAÐIÐ tekur afmælis- og minningargreinar til birting-
ar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á ritstjórn blaðsins
Kringlunni 1, Reykjavík, og á skrifstofu blaðsins í Hafnarstræti
85, Akureyri.
Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með góðum
fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðvikudagsblaði að
berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með greinar aðra daga.
Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru birtar grein-
ar um fólk sem er 70 ára eða eldra. Hins vegar eru birtar afmælis-
fréttir með mynd í dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra.
Mikil áhersla er á það lögð að handrit séu vel frá gengin, vélrituð
og með góðu línubili.
Ákjósanlegasl er að fá greinarnar sendar á disklingi.