Morgunblaðið - 30.04.1994, Qupperneq 40
40
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. APRIL 1994
Svört kómidia um sérvitringinn Johnny, andhetju niunda áratugarins sem kemur til Lundúna og heim-
sækir gömlu kærustuna, henni til mikilla leiðinda. Hann sest að hjá henni, á i ástarsambandi við með-
eiganda hennar og gerir þar með líf allra að enn meiri armæðu. Einnig blandast inn I þessa ringulreið
sadískur leigusali, sem sest einnig að í ibúðinni og herjará kvenpeninginn með afbrigðilegum kynórum.
Sýnd kl. 5 og 9. Bönnuð innan 16 ára.
Nýr greiðslumáti
í kvikmyndahúsum.
Háskólabíó riður á vaðið
- þú átt góða mynd VÍSA
Snilldarmynd um ungan
snilling.
Aðalhlutverk: Ben
Kingsley, Joe Mantegna,
Sýnd kl. 2.50, 5 og 7
ADDAMS FJOLSKYLDUGILDIN
Óskarsverð-
launamynd
vinsælasta leikstjóra
allra tíma.
Sýnd kl. 3
Breiðholtshverfi
Sjálfstæðis-
menn opna
nýtt fél-
agsheimili
FÉLAG sjálfstæðismanna í
Bakka- og Stekkjahverfi
sem varð 20 ára fyrr á þessu
ári opnar ásamt félögum
Sjálfstæðismanna í Hóla- og
Fella-, og Skóga- og Selja-
hverfi nýtt félagsheimili
sjálfstæðismanna í Breið-
holti, Alfabakka 14a, laug-
ardaginn 30. apríl kl. 14.
í fréttatilkynningu segir að
stofnendur félagsins séu sér-
staklega velkomnir en auk
þeirra muni m.a. heiðra af-
mælið sem sérstakir gestir
Davíð Oddsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins, og for-
sætisráðherra, Friðrik Soph-
usson, varaformaður og fjár-
málaráðherra, Árni Sigfússon,
borgarstjóri í Reykjavík, borg-
arfulltrúar Sjálfstæðisflokks-
ins, formenn sjálfstæðisfélag-
anna í Reykjavík og stjórnir
sjálfstæðisfélaganna í Breið-
holti. Hinn landskunni harm-
onikuspilari Grettir Björnsson
mun leika fyrir gesti eins og
honum er einum lagið. Gest-
gjafi er Magnús L. Sveinsson,
forseti borgarstjórnar.
Félag sjálfstæðismar.na í
Hóla- og Fellahverfi verða 20
ára á þessu ári og mun félag-
ið halda sérstaklega upp á það
síðar.
Frá starfsemi Björgunarsveitarinnar Ingólfs,
v jÆ
ÉLirWr........ Zíiú&fSSÍPiti Vt
Merkjasala Björgnnar-
sveitarinnar Ingólfs
BJÖRGUNARSVEIT Ingólfs í Reykjavík verður 50 ára á þessu
ári og mun halda upp á það með margvíslegum hætti. Meðal ann-
ars er útgáfa sérstaks afmælismerkis sem verður selt í hinni ár-
Iegu merkjasölu sveitarinnar um þessa helgi. Sölubörn á aldrinum
10 til 12 ára munu ganga í hús í Reykjavík og bjóða merkið til sölu
á 200 krónur. Merkjasalan er mikilvægur þáttur í fjáröflunum
sveitarinnar og eru Reykvíkingar beðnir um að taka sölubörnunum
vel, segir í frétt frá Ingólfi.
Björgunarsveit Ingólfs er ein
af 90 björgunarsveitum Slysa-
vamafélags íslands og eina
Reykjavíkursveitin sem sinnir
bæði sjó- og landútköllum. Á síð-
asta ári var sjóflokkurinn kallaður
út 23 sinnum og land- og bíla-
flokkur 25 sinnum. Þessi útköll
voru margvísleg, þar á meðal leit-
ir að fólki á landi og sjó og óveður-
útköll sem komu á öllum tímum
sólarhringsins. Þessum útköllum
sinna u.þ.b. 50 virkir félagar, sem
allt eru sjálfboðaliðar.
Þar sem Björgunarsveit Ingólfs
er bæði land- og sjóbjörgunarsveit
þarf sveitin að eiga búnað til
beggja starfa. Þetta er mikill
kostnaður fyrir sveitina og er því
merkjasalan mikilvæg starfi sveit-
arinnar. Því er leitað til Reykvík-
inga um að styrkja björgunarsveit
sína um þessa helgi.
SÚRSÆTUR
SVEITASÖNGUR
Kvikmyndir
Sæbjörn Valdimarsson
Laugarásbíó:
Leikstjóri John G. Avildsen.
Handrit Monte Merrick. Kvik-
myndatökusljóri Victor Ham-
mer. Tónlist Bill Conti. Aðal-
leikendur Luke Perry, Cynthia
Geary, Stephen Baldwin, James
Rebhorn, Carrie Snodgress,
Red Mitchell. Bandarísk. New
Line Cinema 1994.
Það má segja að þessi glænýja
mynd um keppnismenn í bolareið
sé enn eitt tilbrigði leikstjórans
Avildsens við Rocky, sína bestu
og þekktustu mynd. Maðurinn
lætur freistast. Er að gera fjórðu
myndina um karatestrákinn, tvær
liggja um Rocky, að auki snúast
Power of One (s-afrískur undir-
málssnáði lærir að beija frá sér í
hringnum) og Lean on Me (Morg-
an Freeman gerir afburðanemend-
ur úr krakkaskríl) um sama þem-
að. Manndómsraunir, þar sem lítil-
magninn fær gjarnan uppreisn
æru.
Átta sekúndur segir sanna sögu
af sveitastráknum Lane Frost
(Luke Perry) og baráttu hans við
að ná heimsmeistartitli í bolareið.
Fyrir þá sem lítið þekkja til þessar-
ar sjálfsagt göfugu íþróttar, felst
þetta vinsæla karlmennskupróf í
því hver getur setið í það minnsta
8 sekúndur (berbakt) nautpening
sem vegur á annað tonn. Með
aðeins aðra hönd á tudda. Frost
ferðast á milli keppna vítt og breitt
um Bandaríkin ásamt vinum sín-
um Tuff (Stephen Baldwin) og
Cody (Red Mitchell). Á ferðum
sínum kynnist hann knapanum
Kellie (Cynthia Geary) og enda
þau í hnappheldunni. Nú taka við
erfiðir tímar. Hjónin eru mikið
fjarvistum svo brestur í hjóna-
bandinu um sinn og eftir því sem
Frost verður frægari verður hann
uppteknari af sjálfum sér. En þeg-
ar frægðarljóminn skín, FVost orð-
inn heimsmeistari, og hamingjan
blómstrar, er kippt í tauminn.
Ekki viðamikil mynd en hún
lumar á snefil af sannleika og
sakleysi sem er svo sannarlega
vandfundinn í kvikmyndum sam-
tímans. Sjálfsagt flokka einhveijir
þetta undir væmni, en þessum til-
finningum er gert hátt undir höfði
hér og Luke Perry kemur svo
sannarlega á óvart með leik sem
er trúverðugur og tilgerðarlaus.
Gott ef Hollywood hefur ekki eign-
ast nýjan Rock Hudson (!). Per-
sónusköpunin er einnig dágóð og
Stephen Baldwin fer vel með hlut-
verk harðnaglans Tuff og Red
Mitchell sómir sér vel sem skáldið
Cody. Veiki hlekkurinn er Cynthia
Geary sem er á köflum ósköp
velluleg.
8 sekúndur er fjarri því að vera
nokkur stórmynd og kemst ekki
með tærnar þar sem Rocky og
The Karate Kid (I) hafa hælana.
Engu að síður býr hún yfir fáséð-
um, hrekklausum einfaldleik og
slær stöku sinnum á rétta strengi.
Afgreiðir venjulegt fólk á sann-
ferðugan og yfirlætislausan hátt.