Morgunblaðið - 30.04.1994, Qupperneq 45

Morgunblaðið - 30.04.1994, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. APRÍL 1994 45 ! I I I I I ( < < < ( j I i í i i i i i l i Gaspur í sjónvarpi Frá Gunnlaugi M. Sigmundssyni: Nýlega var fluttur í sjónvarpinu umræðuþáttur sem fjalla átti um vanda íslensks atvinnulífs. Efnið til umfjöllunar er mikilvægt og margt sem kryfja þarf. Það voru því von- brigði að þátturinn var með afbrigð- um lélegur. Þátttakendur voru þrír auk stjórnanda. Dr. Pétur Blöndal stærðfræðingur og frumkvöðull, Þór- arinn Þórarinsson starfsmaður VSI og starfsmaður hjá Eimskip. Eftir þáttinn verður manni betur Ijóst hvað gera verður miklar kröfur til þeirra sem taka að sér þáttagerð í sjón- varpi. Stjómendur verða ekki ein- ungis að halda þátttakendum við efnið heldur velja sér þátttakendur með það í huga að viðkomandi hafi eitthvað fram að færa. Dr. Pétur var sá eini sem hafði eitthvað að segja um mál sem við kom efni þáttarins. Dr. Pétur er ætíð ferskur og frumleg- ur í hugsun auk þess að þekkja vanda íslensks atvinnulífs og nýsköpunar af eigin raun. Það litla sem konan frá Eimskipi sagði var í lagi en hún Gagnasafn Morgimbladsins Allt efni sem birtist í Morgun- blaðinu og Lesbók verður fram- vegis varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskil- ur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endur- birtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. þagði reyndar mest allan tímann og umsjónarmaður gætti þess ekki að koma henni að heldur lét manninn úr Garðastrætinu geisast um víðan völl. Var með ólíkindum sú vella sem ollið gat upp úr Þórami. Fæst af því sem hann sagði kom í reynd umræðu- efninu nokkuð við. Hvaða erindi átti löng ræða Þórarins um verkfall meinatækna eða „gamalla hjúkrun- arfræðinga" inn í þessa umræðu. Eða þá lýsing hans á meintum þrautum forstjóra Ríkisspítalanna. Eða um- fjöllunin um þingmenn. Allt sundur- laust hjal út og suður. Eitt af því fáa sem starfsmaður VSÍ hafði að segja um vanda atvinnulífsins var að Hall- dór Laxness hefði með Atómstöðinni gert landsmenn andsnúna atvinnu- rekendum. Þvílíkt og annað eins bull. Þáttagerðarmenn verða að velja fólk til þátttöku sem hefur raunveru- lega reynslu af því efni sem fjalla á um. Hvetjum dytti t.d. í hug að fá embættismann úr stjómarráðinu til að fjalla um stjómmálaviðhorfið? Hvernig á maður að geta skilið vanda atvinnulífsins í víðara samhengi sem varið hefur starfsaldri sínum í að þrefa við ASÍ um vaktaálag, kaffí- tíma og launaprósentur? Eg vona að við fáum að heyra meira um atvinnumál og nýsköpun frá dr. Pétri. Það er alltaf gaman að hlusta á greinda menn. En í öllum bænum hlífíð þjóðinni við uppþembd- um göspurum og amatörum í sjón- varpinu. Fjölskylduboð verða áfram að vera vettvangur slíkra manna til að viðra skoðanir sínar. GUNNLAUGUR M. SIGMUNDSSON, Þverárseli 20, Reykjavík. YELVAKANDI 30 ÓSKILADÝR í KATTHOLTI SIGRÍÐUR í Kattholti bað Vel- vakanda að koma á framfæri fyrir sig að hún ætlar að vera í Kattholti í dag, laugardag, og taka á móti fólki sem vill koma og leita að köttunum sínum. í Kattholti eru nú um 30 kett- ir og hafa sumir hveijir verið þar mjög lengi. Biður hún nú alla þá sem týnt hafa köttum að koma við í Kattholti á laugar- daginn og athuga vort þeir kannist við einhver dýr. Húsið verður opið frá kl. 14-16. Einnig langar Sigríði að þakka þeim hjónum, .Helgu Finnsdóttur dýralækni og Sig- urði Erni Hanssyni, fyrir hvað þau brugðust fljótt við þegar hún hringdi til þeirra snemma morguns í leit að aðstoð. TAPAÐ/FUNDIÐ Hjól tapaðist BLÁTT 26“ fjallahjól, 21 gírs, með svörtum yrjum, af gerðinni Icefox, tapaðist frá íþróttahús- inu við Kaplakrika sl. miðviku- dag. Upplýsingar í síma 654653. Fundarlaun. Týnt veski SVART peningaveski merkt ís- landsbanka tapaðist í Tjamar- bíói á skemmtun Söngsmiðjunn- ar. í veskinu voru öll skilríki. Finnandi vinsamlega hringi í síma 611865. Úr tapaðist ÚR MEÐ leðuról, grænni skífu og hvítum stöfum og vísum tap- aðist sl. laugardag, sennilega í nágrenni Elliðaárhólmans eða á Bústaðavegi. Finnandi er beðinn að hafa samband í síma 36846 eftir kl. 18. Gleraugu töpuðust GYLLT kvenmannsgleraugu með gylltri festi töpuðust í eða við Neskirkju sl. sunnudag. Einnig er mögulegt að þau hafí týnst á leiðinni frá kirkjunni upp á Hagamel og að Reynimel 88. Finnandi vinsamlega hringi í síma 21598. Barnaarmband tapaðist BARNAAMBAND úr gulli með plötu sem á stendur Jason og á bakhlið 28.01. ’90 tapaðist fyrir nokkru. Armbandið hefur mikið tilfínningalegt gildi fyrir eigand- ann. Finnandi vinsamlega hringi í síma 611273 eða vinnusíma 813277. Fundarlaun. Fanney. Seðlaveski tapaðist SVART seðlaveski, merkt ís- landsbanka, tapaðist að kvöldi mánudagins 25. apríl sl. við Klukkuberg 16, Skátaheimilið, eða við Bæjarhraun 2 í Hafnar- firði. Litlir sem engir peningar voru í veski, en öll skilríki, ávís- anahefti og greiðslukort. Greiðslukortin og ávísanablöðin hafa verið ógilt. Skilvís finnandi vinsamlega hafi samband í síma 654513 eða komi veskinu á lög- reglustöð. GÆLUDÝR Týndur högni SVARTUR högni með hvítar loppur og bringu, rúmlega árs- gamall, tapaðist frá Gunnars- braut þriðjudaginn 26. þ.m. Hann er eyrnamerktur R-3102. Fólk í Norðurmýri er beðið að athuga í bílskúrum og kjöllurum eftir honum. Geti einhver gefið uppl. um hann vinsamlega hringið í síma 614008. Týndur köttur GULUR ómerktur högni tapað- ist frá Leifsgötu sl. helgi. Þeir sem hafa orðið ferða hans varir eru beðnir að láta vita í síma 15616 Margt smátt gerir eitt stórt Frá Sr. Sigurði Jónssyni: . í liðinni viku knúði neyðin dyra hér í sveitinni, eins og fram hefur komið í fréttum, þegar bærinn í Svínhaga á Rangárvöll- um brann til kaldra kola. Giftu- samleg björgun húsmóðurinnar ásamt tveimur börnum hennar gerði okkur öllum rórra um sinn. Eignatjón er alltaf bætanlegt á einhvern hátt, þótt tilfinnanlegt sé. En manntjón verður aldrei bætt. Guði sé því lof, að ekki fór verr. En fjölskyldan í Svínhaga stendur uppi allslaus. Engu af eigum hennar varð bjargað úr eldinum, svo brátt bar hann að. Að vonum er velviljað fólk, nær og fjær, boðið og búið að leggja lið og rétta fram hjálparhönd. Góðir grannar hafa reitt til hús- næði til bráðabirgða, fatnaður hefur borist úr ýmsum áttum og opnaður hefur verið söfnun- arreikningur í Búnaðarbankan- um á Hellu. Númer hans er 0308-26-4455. Ég vil með bréfí þessu skora á alla þá, sem tök hafa á, að leggja þessari söfnun lið með fjárframlagi. Með því munu drög verða lögð að bjartari framtíð fólksins í Svínhaga. Þar mun og sannast hið gamalkveðna, að margt smátt gerir eitt stórt. Með óskum um gleðilegt sumar. SIGURÐUR JÓNSSON, sóknarprestur, Odda. LEIÐRÉTTINGAR Nafn misritaðist í frétt um endumýjun Fáskrúðar- bakkakirkju í Miklaholtshreppi sl. miðvikudag var rangt farið með nafn Kristjönu Bjömsdóttur móður systr- anna Ingveldar og Ástu Láru Jó- hannsdætra. Einnig var Gústav ívarsson, Söðulsholti, rangtitlaður en hann er trésmíðameistari. Morgun- blaðið biður hlutaðeigendur velvirð- ingar á þessum mistökum. 8 tónleikar í frétt á bls. 10 í Morgunblaðinu í gær segir í tilefni tónleika Kórs Lanholtskirkju, sem eru í dag, að í utanferð kórsins muni kórinn halda tvenna tónleika með íslenzkri tónlist og eina með H-moll messu Bachs. Hið rétta er að tónleikarnir með ís- lenzkri tónlist verða 7 talsins, þannig að samtals heldur kórinn 8 tónleika í ferðinni. Beðizt er velvirðingar á þessu. Bassinn lifir í minningargrein um Jóstein Konr- áðsson á blaðsíðu 36 í Morgunblaðinu í gær var því haldið fram að með fráfalli Jósteins hefði þagnað „síð- asta söngröddin úr Smárakvartett Akureyrar". Þetta er ekki rétt. Magnús Sigurjónsson, sem söng ann- an bassa í þessum vinsæla kvartett, lifir enn. Hann er 96 ára að aldri og býr á Akureyri. Kjölur fyrstur í frétt Morgunblaðsins í gær af strandi trillunnar Egils út af Kjalar- nestöngum var sagt að björgunarbát- urinn Jón E. Bergsveinsson hefði komið fyrstur á staðinn. Hið rétta er að björgunarsveitin Kjölur kom fyrst á staðinn, 10 mínútum eftir að tilkynnt var um strandið, en Jón E. Bergsveinsson var hins vegar fyrri til á staðinn af tveimur björgunarbát- um Ingólfs í Reykjavík. Kór Langholtskirkju Tónleikar Kórs Langholtskirkju verða í kirkjunni í dag og hefjast þeir klukkan 17. í frétt um þá í blað- inu í gær láðist að geta timans. Beð- ist er velvirðingar á þvi. hjáANDRESI Skólavörðustíg 22A - sími 18250 - póstkröfuþjónusta. Ný sending af jakkafötum, verð kr. 14.900 og 16.900. s Ný sending af stökum buxum, verð frá kr. 2.900 - 5.900. * Galla- og flauelsbuxur í úrvali, verð kr. 1.790 - 5.600. VANDAÐUR FATNAÐUR Á GÓÐU VERÐI Úrval sokkabuxna í yfirvídd. HUDSON sM,b uxur í yfirvídd í sérstöku stærðarkerfi. » 20denkrep *• 30denkrep Nýtt! « GLAMOUR 20 den Lycra þrádur HUDSON Á SOKKABUXUR SEM HENTA ÞÉR! Davíd S. Jánsson 8 Co. h f . sími 91-24333

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.