Morgunblaðið - 30.04.1994, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR LAUGARDAGUR 30. APRÍL 1994
47
ÚRSLIT
HANDKNATTLEIKUR
Körfuknattleikur
Stúlknalandsliðið lék gegn breska félagslið-
inu Ronda í Cardiff í gærkvöldi og mátti
þola tap, 49:51. Erla Reynisdóttir skoraði
19 stig í leiknum.
Hjólreiðar
í gær var keppt á fimmtu leiðinni í Spánar-
keppninni. Hjólaðir voru 167 km fjallaleið
frá Cordoba til Granada. Tíu hjólreiðamenn
komu í mark á sama tíma 4:24.10 kls., en
Frakkinn Jalabert var skráður sigurvegari.
1. Laurent Jalabert, Frakklandi.
2. Endrio Leoni, ftalíu
3. Angel Edo, Spáni
4. Fabio Roscioli, ftalíu
5. Antonio Fanelli, Ítalíu
6. Simone Biasci, ftalíu
7. Juan Gonzalez, Spáni
8. Toni Rominger, Sviss
9. Jesper Skibby, Danmörku
10. Giuseppe Calcaterra, Ítalíu
Staðan er þessi eftir fimm áfanga:
(Fyrst er það timi Rominger og síðan hvað
aðrir keppendur eru mörgum sek. á eftir).
1. Toni Rominger, Sviss.....21:39.38
2. Jalabert, Frakklandi...........13
3. Melchor Mauri, Spáni...........28
4. Alex Zulle, Sviss..............29
Ji. Gianluca Pierobon, Ítaiíu......36
Íshokkí
Leikir í 8-liða úrslitum f NHL-deildinni.
Chicago - Toronto................0:1
■Toronto vann 4:2.
Vancouver Calgary................3:2
■Eftir framlengingu. Staðan er jöfn 3:3
þegar einn leikur er eftir.
Detroit - San Jose...............7:1
BStaðan er jöfn 3:3.
Heimsmeistarakeppnin
A-riðill:
Ítalía - Bretland...............10:2
Staðan:
Rússland................3 3 0 0 23: 4 6
Kanada..................3 3 0 0 13: 4 6
Þýskaland......••......3 111 8: 5 3
Ítalía................ 3 1 0 2 11:13 2
Austurríki..............3 0 1 2 4:12 1
Bretland................3 0 0 3 5:26 0
B-riðli:
Rússland - Austurríki...................4:1
Finnland - Noregur....................5:1
Staðan:
Bandaríkin...........3 3 0 0 17: 6 6
Finnland.............3 2 1 0 14: 8 5
Tékkland.............3 1 1 1 12:11 3
Svíþjóð..............3 1 1 1 12: 8 3
Noregur..............3 0 1 2 6:14 1
Frakkland............3 0 0 3 3:16 0
Snóker
Jimmy White hefur forustu, 15:7, gegn
Darren Morgan frá Wales í undanúrshtum
heimsmeistarakeppninnar i snóker, sem
stendur yfir f Sheffield. White þarf því að-
eins einn ramma f viðbót til að komast f
úrslit. Úrslit í einstökum leikjum: (White
fyrst) 98-25 84-5 69-50 31-72 90-26
18-124 24-69 68-46 84-12 31-61 57-2
108-0 (108 í einu stuði) 67-24 80-6 71-25
30-78 78-22 116-0 59-62 0-75 77-48 84-0.
Stephen Hendry, Skoltlandi, er yfir gegn
Steve Davis, England, 8:7. Úrslit í einstök-
um leikjum: (Hendry fyrst) 6-100 15-63
68- 26 79-28 75-32 29-74 81-47 18-76
74-51 110-22 19-77 68-49 83-16 5-82
69- 78.
■Keppnin heldur áfram í dag.
Knattspyrna
Reykjavíkurmótið
A-riðill
KR - Víkingur...................0:0
Frakkland
Cannes - Nantes.................4:0
Franck Priou 2 (30. - vítasp., 44.), Johan
Micoud (34.), Patrice Sauvaget (78.).
10.000.
Ítalía
1. deild:
Parma - Piacenza...................0:0
26.614.
Sviss
Grasshopper - Sion.................3:1
Staða efstu liða:
Grasshopper..........11 5 3 3 24:16 29
Sion.................11 4 4 3 19:14 28
Servette.............10 5 4 1 21:13 27
Aarau................10 5 3 2 15:10 24
Go|f
Úrval-Útsýn mót
Haldið á Quinta do Lago golfvellinum f
Portúgal miðvikudaginn 20. apríl. Þátttak-
endur voru 72.
Konur með forgjöf:
1. Björk Tryggvadóttir...............83
2. Þyri Þorvaldsdóttir...............84
3. María Magnúsdóttir................89
Kai'lar með forgjöf:
1. Jóhann Jóhannsson.................76
2. Róbert Örn Jónsson................76
3. Ólafur Jóhannesson................76
4. Haukur Björnsson..................76
5. Einar Magnússon...................76
■Jóhann telst sigurvegari á stigum.
■Marfa Magnúsdóttir var með fæst högg
kvenna án forgjafar, 98, en í karlaflokki
lék íslandsmeistarinn Þorsteinn Hallgríms-
son á fæstum höggum, 79.
Afmælismót GK
Fyrsta opna mót sumarsins, liaidið hjá
Kcili laugardaginn 23. apríl. Keppnisfyr-
irkomulag 7/8 Stableford punktakeppni.
Úrslit: punktar
1. Jónas Þorvaldsson, GR..............37
Ingvar Ágústsson, GR....-........... 35
Dérek Penriing...........á.,.,'........34
Magnús Gunnarsson, GR.................34
Landsliðshópurinn frá vinnu í 87 daga fram að HM á íslandi í maí á næsta ári:
Þrír leikir í Portúgal
Þorbergur Aðalsteinsson hefur valið sautján manna landsliðshóp
ÞORBERGUR Aðalsteinsson,
landsliðsþjálfari í handknatt-
leik, hefur valið sautján leik-
menn til æfinga og undirbún-
ings fyrir heimsmeistara-
keppnina, sem verður hér á
landi á næsta ári. Fyrsta verk-
efni liðsins eru þrír leikir gegn
Portúgölum í Portúgal í maí.
Enginn nýliði er í hópnum, en
hann skipa reyndir landsliðs-
menn sem léku með liðinu í Evr-
ópukeppni landsliða. Þorbergur
hefur aðeins valið tvo markverði,
en mun fljótlega velja þriðja mark-
vörðinn. Fyrirhugaðir eru nítján
landsleikir fyrir HM. Undirbúning-
urinn hefst 15. maí og er áætlað
að landsliðshópurinn verði saman
í 121 dag næstu tóif mánuði.
Reiknað er með að landsliðsmenn-
irnir verði frá vinnu í 87 daga fram
að HM á íslandi.
Það er nú ljóst hvaða þjóðir taka
þátt í sterku móti hér á landi í
byrjun nóvember. Það eru Frakk-
ar, Spánverjar, ítalir, Svíar, Norð-
menn og Pólverjar.
Spánverjar koma hingað til
lands í desember og leika tvo leiki.
Bjarki Sigurðsson er kominn á ný í landsliðshópinn. Hann lék ekki með
landsliðinu sl. vetur vegna meiðsla.
íslenska landsiiðið heldur síðan til
Svíþjóðar í byrjun janúar og leikur
þar í móti ásamt heimamönnum,
Dönum og Svisslendinguní. ~
Rúmenar koma hingað til lands í
febrúar og Portúgalir í apríl.
Landsliðshópurinn sem Þorberg-
ur hefur valið, er þannig skipaður:
Markverðir:
Guðmundur Hrafnkelsson, Val
Bergsveinn Bergsveinsson, FH
Hornamenn:
Konráð Olavson, Stjörnunni
Gunnar Beinteinsson, FH
Valdimar Grímsson, KA
Bjarki Sigurðsson, Víkingi
Línumenn:
Geir Sveinsson, Alzira
Gústaf Bjamason, Selfossi
Útispilarar:
Héðinn Gilsson, Dússeldorf
Patrekur Jóhannesson, Stjörnunni
Einar Gunnar Sigurðsson, Selfossi
Júlíus Jónasson, Alzira
Dagur Sigurðsson, Val
Guðjón Ámason, FH
Jón Kristjánsson, Val
Sigurður Sveinsson, Selfossi
Ólafur Stefánsson, Val
Breytingar geta orðið á lands-
liðshópnum þegar nær dregur HM.
Morgunblaðið/Kristinn
Árni íslandsmeistari í sportklifri
ÁRNl Birgisson varð um síðustu helgi íslandsmeistari í sportklifri. Þórarinn
Pálsson varð annar og Jökull Bergmann þriðji. Mótið fór fram í húsnæði Björg-
unarsveitar Fiskakletts í Hafnarfirði. 10 keppendur tóku þátt í mótinu. Á
myndinni er Árni Birgisson íslandsmeistári á klifurveggnum.
KNATTSPYRNA
Ná Geir og Júlíus
að feta í fótspor
Kristjáns?
Alzíra leikur síðari úrslitaleikinn í EHF-
keppninni gegn Linz í Austurríki í dag
Geir Sveinsson og Júlíus Jón-
asson eiga möguleika á að
verða Evrópumeistarar með liði
sínu Alzíra í dag. Spænska liðið
vann fyrri leikinn gegn Linz 28:19
úm síðustu helgi á Spáni. Liðin
leika aftur í Linz í dag og má því
segja að íslendingarnir séu aðeins
einum leik frá því að hampa EHF-
bikarnum.
Kristján Arason er eini íslend-
ingurinn sem orðið hefur Evrópu-
meistari, en hann varð Evrópu-
meistari bikarhafa með Teca frá
Spáni 1990 er liðið vann Drott í
úrslitum.
Axel Axelsson og Ólafur H.
Jónsson voru fyrstir Islendinga til
að leika til úrslita í Evrópukeppni
er þeir léku með Dankersen gegn
Granollers 1976, en töpuðu. Al-
freð Gíslason lék tvívegis til úr-
siita í Evrópukeppninni, með Ess-
en og Bidasoa og tapaði ( bæði
skiptin.
Valur er eina íslenska liðið sem
náð hefur alla leið í úrslit Evrópu-
keppninnar. Það var árið 1980
gegn Grosswallstadt og tapaði
stórt 12:21.
„Markið" sögulega í Munchen
EINS og sést hér á myndinni, fór knötturinn aldrei inn fyrir markltnu í leik
Bayem Múnchen og Númberg. Markvörður Númberg, Andreas Köpke, liggnt
í markinu, en Thomas Helmer stendur við stöngina — hann spymti knettinum
aftur fyrir sig og framhjá markinu. Köpke sagði við Helmer, að það hefði ver-
ið auðveldara að skora en spyrna knettinum framhjá marki. Bayern vann, en
liðin verða að mætast á ný á miðvikudaginn kemur.