Morgunblaðið - 05.05.1994, Qupperneq 2
2 FIMMTUDAGUR 5. MAÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Arskort og
fjölskyldu-
gjald í hús-
dýragarð
BORGARRÁÐ hefur samþykkt
gjaldskrá fyrir Fjölskyldugarðinn
sem tók gildi í gær. Sérstakt gjald
er að Húsdýragarðinum yfir vetrar-
tímann en að sumri er eitt gjald
fyrir báða garðana. Boðið er uppá
sérstakt fjölskyldugjald yfir sumar-
ið og árskort.
Frítt er í Húsdýragarðinn yfir
vetrartímann fyrir böm að fimm
ára aldri. Böm sex til sextán ára
greiða 100 krónur og fullorðnir 200
krónur. Ellilífeyrisþegar 67 ára og
eldri greiða ekki aðgangseyri.
Ókeypis fyrir yngri en 5 ára
Yfir sumarið er frítt fyrir böm
að fimm ára aldri í báða garðana
en börn á aldrinum sex til sextán
ára greiða 200 kr. og fullorðnir 300
kr. Ellilífeyrisþegar 67 ára og eldri
greiða ekki aðgangseyri.
í sumar er boðið upp á sérstakt
fjölskyldugjald. Tveir fullorðnir með
1 bam greiða 700 krónur og síðan
100 krónur að auki fyrir hvert bam
sem bætist við.
Þá er boðið uppá árskort, og
greiða böm sex til sextán ára 1.800
krónur fyrir kortið, fullorðnir greiða
2.700 fyrir kortið og hópar 20.000
krónur.
------♦--------
Eldur í
Suðursveit
ELDUR kom upp í mannlausri vél-
argeymslu á bænum Lækjarhúsum
í Suðursveit um klukkan 19 í gær-
kvöldi, en hesthús er samfast því.
Eldurinn kviknaði þegar vinnu-
lampi bræddi plastefni sem í
geymslunni voru, og komst síðan í
olíubrúsa. Bærinn stendur um 50
kílómetra vestur af Höfn í Homa-
firði og var slökkvilið þar kallað
út. Bændur á nærliggjandi bæjum
þyrptust á vettvang með slökkvi-
tæki og tókst að slökkva eldinn
áður en hann breiddist út, og var
slökkviliðið afturkallað. Á húsinu
urðu töluverðar sót- og reyk-
skemmdir.
Forsætisráðherra á Alþingi
um aðild EFTA-rikja að ESB
Breytir ekki
stefnu Islands
Frystigámar
skoðaðir í
Helgafelli
Þór Sævaldsson, annar vélstjóri
á ms. Helgafelli, skoðar frystig-
ám í lest skipsins þar sem það
var á leiðinni til Hull með fryst-
an fisk. Frystigámum er raðað
í lestina hlið við hlið og allt að
fjórum hveijum upp á annan
en hver þeirra er tæpir þrír
metrar á hæð. Gámarnir þurfa
að vera í sambandi við rafmagn
og vélstjórar athuga reglulega
hvort hitastig í þeim sé rétt og
hvort þeir starfi eðlilega, og
gera við það sem þarf. Til þess
að þeir komist að stjómtækjum
gámanna er innan við eins
metra rými haft á milli þeirra
til endanna. Þar klifra þeir
upp, allt upp í 10 metra hæð,
án nokkurra hjálpartækja.
Morgunblaðið/Golli
DAVÍÐ Oddsson, forsætisráðherra, sagði í eldhúsdagsumræðum á Alþingi
í gærkvöldi, að aðildarsamningar annarra EFTA-ríkja að ESB breyttu
ekki þeirri stefnu sem þegar hefur verið mótuð hérlendis gagnvart Evrópu-
sambandinu. Hann vitnaði i ræðu sína frá því í mars 1992 um viðbrögð
við hugsanlegri inngöngu annarra EFTA-ríkja í ESB og sagði: „Menn
komu því ekki af fjöllum fyrir nokkrum vikum þegar samningar tókust
um aðild annarra EFTA-ríkja að Evrópusambandinu. Þvert á móti hefur
legið fyrir skýr stefna um viðbrögð við slíkri þróun mála.“
Davíð sagði að mikil andstaða
við aðildarsamninginn í þeim hlut-
um Noregs sem háðir eru sjávarút-
vegi og svipar til íslenskra að-
stæðna, stafaði af því að varanleg
undanþága hafí ekki fengist frá
sameiginlegri sjávarútvegsstefnu
ESB í norskri lögsögu. Við þyrftum
miklu meira og sjávarútvegsþáttur-
inn í aðildarsamningum Norðmanna
breyti því ekki forsendum íslenskrar
stefnu gagnvart ESB, sagði hann.
„Evrópustefna íslendinga snýst um
íslenska hagsmuni og íslenskan
vilja, en ekki um að vera með í lest-
arferð eins og stundum er haldið
fram. Enginn flokkur og engin
hagsmunasamtök eða fyrirtæki
hafa mælt með því að íslendingar
færu á lestarstöðina, enn síður út
á lestarpallinn — hvað þá að við
stigum um borð,“ sagði Davíð.
Olafur Ragnar Grímsson, for-
maður Alþýðubandalagsins, sagði
að með orðum forsætisráðherra um
menn sem kæmu af fjöllum og
menn sem vildu villast upp í lestir,
væri hann að senda utanríkisráð-
herra beisk skeyti.
Halldór Ásgrímsson, formaður
Framsóknarflokksins, sagði að
samskiptin við Evrópusambandið,
Norðurlönd og Norður-Ameríku
væru á tímamótum, og íslendingar
þyrftu að ræða þau öfgalaust og
án þess að útiloka eða neita að
ræða ákveðna kosti. íslendingar
ættu að leita að samningum sem
gæfu möguleika til áhrifa í mikil-
vægum nefndum og ráðum ESB.
Gunnlaugur Stefánsson, þing-
maður Alþýðuflokksins, sagði að
væntanleg aðild annarra EFTA-
þjóða að ESB gæfí ekki tilefni nú
fyrir íslendinga að sækja um aðild.
Þvert á móti ætti það að geta styrkt
stöðu íslands í samfélagi þjóðanna
að standa utan við ESB.
Bandarískur listamaður á Keflavíkurflugvelli og varnarliðið
Stytta af Hrafna-Flóka
við gömlu flugstöðina
Keflavík. Morgunblaðið.
„ÞETTA er að verða kapphlaup við tímann því það á að afhenda
og afhjúpa verkið við hátíðlega athöfn 11. júní,“ sagði Bandaríkja-
maðurinn Mark J. Ebbert, sem að undanförnu hefur unnið að högg-
mynd af landnámsmanninum Hrafna-Flóka á bílaverkstæði á Kefla-
víkurflugvelli. Ætlun varnarliðsins og Ebberts er að gefa íslending-
um styttuna á þjóðhátíðarári og verður hún afhjúpuð 11. júní
næstkomandi fyrir framan gömlu flugstöðina.
Morgunblaðið/Björn Blöndal
MARK J. Ebbert myndlistar-
maður við verk sitt Hrafna-
Flóka, sem verður afhjúpað
við hátiðlega athöfn 11. júní.
Mark J. Ebbert er sjálfmenntað-
ur listamaður, hann málar, skrifar
og býr til höggmyndir. Eiginkona
hans er sjóliðsforingi og hafa þau
dvalið á Islandi síðan 1992. Mark
sagðist strax hafa heillast af landi
og þjóð, hann væri þegar búinn að
ferðast mikið um landið og eignast
góða vini.
„Hugmyndinni laust niður þegar
ég sá stóran marmarastein í Stein-
smiðjunni í Kópavogi. Ég fór með
hugmyndina til yfírmanns vamar-
liðsins og hann féllst á að aðstoða
mig við að kaupa steininn. Mark
gerði síðan frummynd af Hrafna-
Flóka úr leir sem hann vinnur nú
eftir. Steinnlnn var í upphafí 8 tonn
og sagðist Mark reikna með 1.800-
2.000 tíma vinnu við verkið og þá
hefði hann höggvið um helminginn
af steininum í burtu.
í MORGUNBLAÐINU þessa
dagana taka lesendur eftir nokkr-
um breytingum á niðurrööun
efnis blaðsins. Markmiöið er að
færa saman tengda efnisþætti,
þannig að þeir verði aðgengilegri
Breytt efnisskipan í Morgunblaðinu
fyrir lesendur. Á myndinni hér að
neðan er sýnt hvar helstu efnis-
þætti er að finna. Dagskrá ljós-
vakamiðlanna er nú á öftustu
opnu blaösins ásamt dagbók og
veðurkorti. íþróttaopnan færist
Innlendar fréttir
Auglýsingar
Forsiða,
erlendar fréttir
WW-
fram um eina opnu. Teikning
Sigmunds verður á sama stað og
áður — á blaðsíðu 8 — innan um
innlendar fréttir. Staksteinar
verða aftarlega í blaðinu í grennd
við Bréf til blaðsins, Velvakanda
og Víkverja og ýmsa þjónustu-
tengda þætti.
a! —J
11 j\
Baksíða,J Dagbók
innlendar Veður
fréttir Krossgáta
Utvarp/
Sjónvarp
Iþróttir
Akureyri/Landið
Daglegt lif, neytendur
Sigmund
Erlendar frettir
Leiðan
Minmngargremar
Kvikmynda-
auglýsingar
Fólkí
fréttum
Velvakandi
Stjörnuspá
Víkverji
Bréf til
blaðsins
Mynda-
sögur
Staksteinar
Þjónusta
Borgarstjóri Aðsendar-
svararfyrirspurnum greinar Peningamarkaður Miðopna-
Sérblóð dagsins eru Viðskipti/Atvinnulíf og Dagskrá