Morgunblaðið - 05.05.1994, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 5. MAÍ 1994 27
AÐSEMPAR GREINAR
Vísindin efla
alla dáð
Um hjúkrunarfræði og mannúð
UM ÞAÐ leyti sem
vorar og náttúran losn-
ar úr vetrarhýðinu ger-
ist hið óumflýjanlega,
prófin nálgast og ég
skríð í mitt prófhýði.
Lánasjóðurinn sýnir
enga miskunn, nú er
annað hvort að duga
eða láta víxilinn í bank-
anum falla.
Frækorn efasemda
En einmitt þegar ég
er að hefja próflestur-
inn er fræjum efa-
semda stráð í huga
mér. Hef ég virkilega
vaðið í villu þau síðustu
þrjú ár sem ég hef stundað nám í
hjúkrunarfræði við Háskóla Islands?
Eg, sem hef valið mér það hlutverk
í lífinu að efla heilbrigði, sporna við
sjúkdómum, bæta heilsu og lina
þjáningar meðbræðra minna og
systra, eins og siðareglur hjúkrunar-
fræðinga gera ráð fyrir. Getur það
verið að ég hafi valið mér ranga
námsleið?
Fimmtudaginn 28. apríl birtist hér
á síðum blaðsins grein eftir fulltrúa
sjúkraliðastéttarinnar, þeirrar stétt-
ar sem ég mun í framtíðnni verða í
hvað nánasta samstarfi við. Þar er
því gert skóna að í hjúkrunarfræði
ráði nú hin „kalda“ vísindahyggja,
hjúkrunarfræðingar séu vísinda-
menn, sem hættir eru að sinna þörf-
um sjúklinganna og jafnvel látið að
því liggja að þeir stundi ekki að-
hlynningu sjúkra af alúð eða metn-
aði. Mannúðarsjónarmið réðu engu.
Já, hjúkrunin hafi glatað allri róman-
tík!_
Eg grét nú ekki rómantíkina, enda
aldrei séð neitt rómantískt við hjúkr-
un. Hitt þótti mér skelfileg tilhugs-
un, að hjúkrunarfræðin snérist ekki
lengur um fólk, heilbrigt eða sjúkt,
heldur óskilgreind „köld“ vísindi. Ég
hugsaði með mér að ef rétt væri,
væri ég greinilega á rangri hillu.
Augljóslega myndi námið ekki skila
mér því sem ég stefndi að, því að
hjúkra.
Hjúkrunarfræði - „köld“
vísindahyggja?
Ég spurði sjálfa mig: er hjúkrun-
arfræði „köld“ vísindi? Til að svara
því varð fyrst að leiða hugann að
öðrum spurningum: Hvað eru vís-
indi, hvernig samræmist hjúkrunar-
fræðin þeim, hvað eru þá „köld“ vís-
indi og á hjúkrun eitthvað skyit við
sllkt?
Prófessor Páll Skúlason svarar
fyrstu spurningunni á þann hátt að
benda á einkenni þeirrar viðleitni
sem kennd er við vísindi. Vísindaleg
hugsun (vísindahyggja) er gagnrýn-
in hugsun, sem vill vita hvers vegna
hlutirnir eru eins og þeir eru og um
leið fá fram rök eða ástæður til að
reisa skoðanir sínar á (Pælingar,
1987). Svarið við annarri spurning-
unni kemur að sjálfu sér: hjúkrunar-
fræði er vísindagrein vegna þess að
hún stundar gagnrýna hugsun, þar
sem hún veltir stöðugt upp spurning-
um um hjúkrunarfræðileg viðfangs-
efni og stundar sífellda þekkingar-
öflun á sínu fræðasviði.
Þriðja spurningin er flóknari, enda
„kalt“ lýsingarorð sem greinahöf-
undurinn Pála Jakobsdóttir skil-
greinir ekki frekar. í daglegu tali
er hins vegar stundum talað um
raunvísindi sem „köld“ vísindi, þar
sem þau vísindi fjalla um fyrirbæri
náttúrunnar. Önnur vísindi eru hug-
vísindi sem fjalla um manninn,
menningu hans, samfélag og sögu.
Hvað er hjúkrunarfræði? Raunvís-
indi eða hugvísindi?
Ég velti því fyrir mér hvað ég
hefði í raun og veru verið að lesa
þessi síðustu þijú ár í háskólanum.
Andaði einhveijum „köldum" gusti
af því efAi? 'v) •"'bsuiYólr
Þegar ég leit yfir
fyrirlestra sem ég hef
sótt 'kenndi ýmissa
grasa: _ Sjúklingshlut-
verkið, Ahrif sjúkdóma
á kynlífshegðan, Sorg
og sorgarviðbrögð,
Tónlist sem meðferðar-
form í hjúkrun, Slökun
sem verkjameðferð,
Stjórnun blóðþrýstings,
Siðfræði heilbrigðis-
stétta.Vanliðan kvenna
eftir fæðingu, Lyfja-
fræði miðtaugakerfis-
ins, Blóð og blóðhlutar,
Efnasmíði alkana,
Streptococcar, Sjúk-
dómar í æðakerfi,
Hjartasjúkdómar, Viðtalstækni,
Samskiptatækni, Upplifun af veik-
indum ...
„Ég grét nú ekki róm-
antíkina, enda aldrei séð
neitt rómantískt við
hjúkrun,“ segir Anna
Sigrún Baldursdóttir,
sem fínnst það skelfileg
tilhugsun, að hjúkrun-
arfræðin snúist ekki
lengur um fólk.
Hvað er þetta? Kalt eða heitt?
Nei, hvorugt. Vissulega hafa áhersl-
ur í hjúkrunarfræði breyst eftir að
í Háskóla íslands kom. Til að svara
kalli tímans hefur meiri þungi flust
á sálræna og félagslega þætti hjúkr-
unarstarfsins og er ekki minni en á
hinn líffræðilega. Því segir m.a. í
hugmyndafræði Námsbrautar í
hjúkrunarfræði við Háskóla íslands:
„Hjúkrunarstarfið byggir á þekk-
ingu og skilningi á eðli mannsins.
... Hjúkrun er veitt með samskiptum
og umönnun og grundvallast á gagn-
kvæmu trausti hjúkrunarfræðings
og skjólstæðings." Mannúðarsjón-
armiðin í helstum heiðri höfð.
Hjúkrun - þekking í þína þágu
Florence Nightingale, sem líklega
er eini feministinn sem minnst er í
rósrauðum rómantískum bjarma, var
frumkvöðuli hjúkrunarfræðinnar.
Hugmyndafræði hennar um hjúkrun
byggðist á hreinlæti og hleypti heil-
brigðisvísindum í nýjan farveg.
I gegnum árin hafa hjúkrunar-
fræðingar fetað í fótspor hennar,
stundað vísindalegar rannsóknir sem
hafa haft gífurleg áhrif á heilbrigðis-
þjónustuna og framkvæmd hennar.
Nærtækt dæmi er nýleg rannsókn
hjúkrunarfræðinga á Landakoti, Frá
konum til kvenna, þar sem líðan
kvenna með bijóstakrabbamein og
aðferðir þeirra til að takaast á við
sjúkdóminn voru skoðaðar. Nú eru
hjúkrunarfræðingar að vinna heild-
ræðna hjúkrunarmeðferð til að
styðja sjúklinga sem ganga í gegn-
um þá erfiðleika sem greining
krabbameins hefur á líf þeirra.
Vísindin og ég
Þegar ég hafði velt þessu öllu
fyrir mér, varð mér ljóst að áhyggj-
urnar voru óþarfar. Byggðar á mis-
skilningi einhvers annars en mín.
Mér varð til mikillar gleði ljóst að
frækorn efsemdanna bæru engan
ávöxt. Ég helli mér í próflesturinn
og horfí til framtíðarinnar með já-
kvæðum huga, fullviss um heillaríkt
samstarf við allar þær stéttir sem
hafa sömu markmið og hjúkrunar-
fræðin.
Höfundur er stúdcnt á 3. ári í
hjúkruimifnrói vió Háskóla
Islands.
Anna Sigrún
Baldursdóttir
Sumarhlaðborð
S ■
- 15 rétta gimilegt
austurlenskt sumarhlac borð
Súpa dagsins
Steiktar núðlur með grœnmeti
Vermicelli baunir tau-sec
Anshau rúllur
RœkjufLögur
Svínarif með Pekingsósu
Szechuan fiskur
Fragrant kjúklingur
Steikt grænmeti
Yu-sidng skelfiskur
Svínakjöt með yang-chai
Lambakjöt með ostrusósu
Karrýkjúklingur að hœtti Malasíubúa
Luo nautakjót
Sœt hrísgrjón
Salat
Súrsatsósa, karrýsósa
barbecuesósa, sataysósa
Eftirréttur dagsins
Ming-court kokteill
veitingahúsið á íslandi
Laugavegi 28b Sími 16513 - 23535 - Fax 624762
Eitt blab
fyrir alla!
- kjarni málsins!