Morgunblaðið - 05.05.1994, Page 32
32 FIMMTUDAGUR 5. MAÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
BORGAR- OG SVEITARSTJÓRNARKOSNINGARNAR 28. MAÍ
Þrír framboðs-
Kstar í Grindavík
Grindavik - ÞRÍR
listar eru í framboði
í Grindavík.
Alþýðuflokkur
Listi Alþýðuflokks-
manna er skipaður
samkvæmt niður-
stöðum prófkjörs
um efstu 11 sæt-
in.: 1. Kristmundur
Ásmundsson bæj-
arfulltrúi, 2. Hulda Jóhannes-
dóttir fóstra, 3. Pálmi Ingólfsson
kennari, 4. Sigurður Gunnars-
son vélstjóri, 5. Hörður Helga-
son rafverktaki, 6. Fanný Erl-
ingsdóttir leikskólastarfsmaður,
7. Magnús Andri Hjaltason sölu-
maður, 8. Ásgeir Magnússon
skipstjóri, 9. Álfheiður Guð-
mundsdóttir fískverkakona, 10.
Andrea Hauksdóttir sjúkraliði,
11. Grétar Schmidt sjómaður,
12. Jón Gröndal bæjarfulltrúi,
13. Petrína Baldursdóttir alþing-
ismaður og 14. Svavar Árnason
fyrrv. oddviti.
Alþýðuflokksmenn verða með
skrifstofu á Víkurbraut 26 og
verður opið á hveiju kvöldi frá
9. maí. Þar verður boðið upp á
kaffi og hægt að taka frambjóð-
endur tali.
Framsóknarmenn
Listi Framsóknarmanna er í
samræmi við niðurstöður próf-
kjörs: 1. Hallgrímur Bogason
atvinnurekandi, 2. Valdís Inga
Kristinsdóttir kennari, 3. Sverrir
Vilbergsson vigtarmaður, 4.
Kristrún Bragadóttir banka-
starfsmaður, 5. Róbert Karl
Tómasson slökkviliðsmaður, 6.
Anna María Sigurðardóttir
verkakona, 7. Símon Alfreðsson
starfsmaður íþróttahússins, 8.
Svavar Svavarsson bifreiða-
stjóri, 9. Þórarinn Ólafsson
verkamaður, 10. Sigríður Þórar-
insdóttir kaupmaður, 11. Jónas
28.MAI
Þórhallsson
skrifstofustjóri,
12. Bjarni Ándr-
ésson bæjarfull-
trúi, 13. Halldór
Ingvason bæjar-
fulltrúi og 14.
Ragnheiður
Bergmundsdótt-
ir húsmóðir.
Framsókn hefur
nú tvo bæjarfull-
trúa og gefur hvorugur þeirra
kost á sér áfram. Þeir skipa nú
12. og 13. sæti listans.
Sjálfstæðismenn
Á lista Sjálfstæðisanna í
Grindavík eru mörg ný andlit.
Margrét Gunnarsdóttir
bæjarfulltrúi skipar efsta sæti
listans, en hún vann glæsilegan
sigur í prófkjöri, sem haldið var
í febrúar. Halldór Halldórsson
atvinnurekandi skipar annað
sætið og Ólafur Guðbjartsson
skrifstofustjóri þriðja sætið.
Aðrir á listanum eru: 4. Ólöf
Þórarinsdóttir sölustjóri, 5. Jón
Emil Halldórsson bygginga-
tæknifræðingur, 6. Þorgerður
Guðmundsdóttir skrifstofumað-
ur, 7. Kjartan Adolfsson skrif-
stofumaður, 8. Hrafnhildur
Björgvinsdóttir húsmóðir, 9.
Sæþór Þorláksson sjómaður, 10.
Sigurjón Þórhallsson skipstjóri,
11. Jón Guðmundsson smiður,
12. Jóhannes Karlsson útgerðar-
maður, 13. Birna Óladóttir hús-
móðir og 14. Eðvarð Júlíusson
bæjarfulltrúi.
Sjálfstæðismenn hafa nýlokið
við að gera upp félagsheimili
sitt við Víkurbraut, þar sem
Kiwanismenn voru áður, og
verða með starfsemi þar fram
að kosningum. Félagsheimilið
nefna þeir Smiðjuna og þar verð-
ur hægt að taka frambjóðendur
tali á auglýstum tímum og boðið
verður upp á veitingar.
* *
Akall úr Arbæjarhverfi
I HRINGIÐU
stjórnmálaátaka um
hvort næsti _ borgar-
stjóri heiti Árni eða
Ingibjörg Sólrún hefur
komið fram að þið
bæði hafið sérstakan
áhuga á íjölskyldu-
málum og dagheimil-
um fyrir börn. Er þetta
mjög gott málefni og
kemur mörgum að
góðum notum.
En í umræðunni
gleymist oft að börnin
vaxa úr grasi og verða
að yfirgefa dagheimil-
in eftir að ákveðnum
aldri er náð. Hvað verður þá um
þau sem ennþá er börn og ungling-
ar. Sum læra á fiðlu og önnur
verða skátar en langstærsti hópur-
inn fer í íþróttafélögin.
Eitt þessara félaga er í Árbæj-
arhverfi með fjöldann allan af
börnum í hand- og fótbolta, fim-
leikum o.fl. Aðstöðuleysi hefur í
30 ára sögu hverfísins verið til
skammar og enn þann dag í dag
er ekki kennd lögboðin íþrótta-
kennsla í Árbæjarhverfi vegna
húsnæðisskorts.
Stefna borgarstjórnar virðist
önnur í Breiðholti og Grafarvogi
þar sem stór glæsileg íþróttahús
standa þótt hverfín séu yngri
byggingarlega séð. í mínum huga
er þetta mismunun af hálfu borg-
arinnar.
Nú er hafín bygging íþróttahúss
Fylkis og stendur steypt tóftin til
vitnis um aðstöðuleysi barna Ár-
bæjarhverfis andspænis glæsi-
byggingu sundlaugarinnar við
Fylkisveg.
Fjárveiting sú er borgin veitir
til íþróttahússins er dregin árum
saman og skorin svo við nögl
fyrstu árin að framkvæmdir liggja
niðri að mestu leyti. Á fundi fyrr-
verandi borgarstjóra komu þessi
sjónarmið fram og vegna þess
þrýstings sem sá fundur olli þá
var leitað leiða til að flýta fram-
kvæmdum við húsið. Lausnin varð
sú að Iána íþróttafélaginu 25 millj-
ónir á 2 árum sem fyrirfram-
greidda húsaleigu sem dregin
Theódór
Óskarsson
verður í A-, B- og C-riðlum,
j verður dömuriðill frá 8-
ára aldri.
Einnig verður keppt í riðlum
frjálsri aðferð.
Verð, 1 dagur:
Börn kr. 400,-
Fullorðnir kr. 600,-
Sæti við borð kr. 1.000,-
Ath., afsláttur ef mætt er báða dagana.
Miðasala hefst kl. 9.30 báða dagana.
Húsið opnað kl. 10.
Keppnin hefst kl. 11.
Setningarathöfn verður
kl. 14 iaugardag.
Allir velkomnir.
Dansráð íslands.
verði af húsaleigu fé-
lagsins á næstu 10
árum. Þó þannig að
hálf húsaleiga greið-
ist.
Fé þetta er hugsað
til vaxtagreiðslna á
bankalánum til að
brúa bilið þar til fram-
lag þorgarinnar kem-
ur. í mínum huga eru
þetta aum viðbrögð
og til þess eins fallin
að stefna íþróttafé-
laginu í gjaldþrot og
gera að engu þá miklu
vinnu sem hefur verið
lögð í uppbyggingu á
þessu rúmlega 25 ára gamla fé-
lagi.
Nýlega voru tveir litlir leikfimi-
salir teknir í notkun, annar við
Ártúnsskóla og hinn við Selás-
skóla og er það af hinu jgóða en
leysir alls ekki þarfir Arbæjar-
hverfis. Enn þá fara börn í svart-
asta skammdeginu í önnu hverfi
og yfir hættulegar umferðargötur
til æfinga.
Ég sem faðir þriggja barna sem
fengu aldrei lögboðna kennslu í
íþróttum í skólanum og nú sem
afi þriggja barnabarna hér í Ár-
Hálfbyggt íþróttahús
Fylkis er til vitnis um
aðstöðuleysi bama Ár-
bæjarhverfís, segir
Theódór Óskarsson,
og væntir svara um úr-
bætur frá frambjóðend-
um til borgarstjóraemb-
ættisins.
bænum sem ennþá fá ekki lög-
boðna kennslu í íþróttum í Árbæj-
arskóla er búinn að fá mig
fullsaddan af þessu aðgerðarleysi
borgaryfirvalda og mótmæli fyrir
mína hönd því sinnuleysi sem enn-
þá ríkir í þessum málum. Með ósk
um skjót alvöruviðbrögð af ykkar
hálfu sem sækist nú eftir borgar-
stjórastólnum.
Megi gæfan fylgja ykkur í störf-
um.
Höfundur er áhugamaður um
æskulýðsmál.
Kostnaður við
afbrot um 800
milljónir kr. á ári
KOSTNAÐUR við
afbrot sem framin eru
á einstaklingum og
fyrirtækjum á íslandi
er um 800 milljónir á
ári. 19% líkur eru á
því að fjölskylda eða
fyrirtæki í Reykjavík
hafi orðið fyrir skaða
vegna afbrota árið
1992 og er áætlað að
75% afbrota séu fram-
in á höfuðborgarsvæð-
inu, sem þýðir að af-
brot kosta meðalfjöl-
skyldu eða fyrirtæki á
svæðinu um 20.000
krónur árlega. Áætl-
aður kostnaður vegna manns, sem
á 25 ára afbrotaferil að baki, er
um 35 til 40 milljónir.
Þetta kemur fram í mjög at-
hyglisverðri skýrslu Þórs Sigfús-
sonar, Hagfræðileg athugun á af-
brotum og gagnsemi aðgerða gegn
þeim, sem hann vann nýlega fyrir
dómsmálaráðuneytið.
Þetta eru ískyggilegar tölur, en
í skýrslunni kemur einnig fram
að samkvæmt mati sérfræðinga
eru íslendingar aðeins nokkrum
árum á eftir nágrannaþjóðunum í
sambandi við afbrot. Standist það
er ætlað að ránum með vopnum,
ofbeldi og manndrápum íjölgi á
næstu árum.
Forvarnir
I skýrslunni kemur m.a. fram
að sumir afbrotamenn skoði líkleg-
ar tekjur og kostnað við að fremja
tiltekin afbrot. í því sambandi er
sett upp dæmi um ólöglega brugg-
un á 2.000 lítrum og er m.a. stuðst
við upplýsingar frá Lögreglunni í
Reykjavík. Hagnaður vegna sölu
þessa ólögmæta varnings er áætl-
aður 1.150.000 krónur og hefur
þá kostnaður, m.a. vegna sektar
og upptöku hráefnis og tækja,
verið dreginn frá, en sektir vegna
bruggunar hafa numið 150.000
krónum samkvæmt skýrslunni.
Afbrot eru kostnaðarsöm fyrir
íbúa Reykjavíkur. Undirritaður er
ekki hlynntur hertri löggæslu
Þorbergur Aðal-
steinsson
ur er
haft
það
þau
heldur áherslubreyt-
ingum. í því sambandi
er nærtækt að benda
á reynsluna úr Breið-
holtshverfí, sem hefur
sýnt að hverfalög-
regla fækkar afbrot-
um verulega. Til að
bæta þjónustuna við
íbúa borgarhverfanna
óska sjálfstæðismenn
eftir því við dóms-
málayfírvöld að
Reykjavíkurborg taki
þátt í afbrotavörnum
og löggæslu.
Enginn er afbrota-
maður í eðli sínu held-
umhverfíð, sem getur
áhrif að einstakligur
missir fótanna og fer út af spor-
íþróttir hafa mikið að
segja, segir Þorbergur
Aðalsteinsson, sem
fyrirbyggjandi þáttur
gegn fíkniefnaneyslu og
aðra óreglu.
inu. Til að lækka tíðni afbrota er
nauðsynlegt að auka forvarnir. Í
könnun Þórólfs Þórlindssonar á
viðhorfum og þátttöku ungs fólks
í íþróttum kemur fram að íþróttir
hafa mikið að segja sem fyrir-
byggjandi þáttur varðandi fíkni-
efnaneyslu og aðra óreglu.
Forvarnir eru kostnaðarsamar,
en uppbygging íþrótta- og tóm-
stundamála skilar sér margfalt og
sjálfstæðismenn munu halda
áfram að vinna markvisst að upp-
byggingu almennings- og keppnis-
íþrótta í Reykjavík, ekki síst vegna
þess hve íþróttir eru mikilvægur
þáttur í forvarnarstarfi barna og
unglinga.
Höfundur er landsliðsþjálfari og
skipar 8. sætið á D-lista í
Rcykjavík.