Morgunblaðið - 05.05.1994, Side 36
36 FIMMTUDAGUR 5. MAÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
SPURT OG SVARAÐ UM BORGARMÁL
LESENDAÞJÓNUSTA MORGUNBLAÐSINS
Arni Sigfússon borgarstjóri svarar
spurningum iesenda
Árni Sigfússon
borgarstóri í
Reykjavík og efsti
maður á framboðs-
lista sjálfstæðis-
fólks í borgar-
stjórnarkosningum,
sem fram fara 28.
mai næstkomandi,
svarar spurningum
í Morgunblaðinu
um borgarmál í til-
efni kosninganna.
Lesendur Morgun-
blaðsins getíi hringt
til ritstjórnar blaðs-
insísíma 691100 á
milli kl. 11 og 12 árdegis, frá að nafn og heimilisfang spyrj
mánudegi til föstudags, og lagt anda komi fram.
spurningar fyrir
borgarstjóra sem
blaðið kemur á
framfæri við hann.
Svörin birtast síðan
í þættinum Spurt og
svarað um borgar-
mál. Einnig má
senda spumingar í
bréfí til blaðsins.
Utan á bréf skal
rita: Spurt og svar-
að um borgarmál,
ritstjórn Morgun-
blaðsins, pósthólf
3040,103 Reykja-
vík. Nauðsynlegt er
Samgöngur í
Grafarvogi
Gunnar Bjarnason, Hlaðhöm-
rum 38,112 Reykjavík, spyr:
„Þarsem hefur verið hætt við
byggingu Ósabrautar og tvöföld-
un Gullinbrúar, hvað hefur borg-
arstjórinn hugsað sér aðgera fyr-
ir Grafarvogsbúa í samgöngumál-
um ístað þessara framkvæmda?“
Svar:
Ekki hefur verið hætt við bygg-
ingu Ósabrautar heldur fram-
kvæmdum frestað og breikkun
Vesturlandsvegar látin ganga fyr-
ir. Vonast er til að framkvæmdir
við breikkun Vesturlandsvegar
hefjist á næsta ári en það er verk
vegasjóðs (ríkisins). Stefnt er að
því að breikka Gullinbrú/Strand-
veg út að Hallsvegi á næsta kjör-
tímabili.
Sandfok
Kristinn Magnússon, Keilu-
granda 2, 107 Reykjavík, spyr:
„Eru engar framkvæmdir á
döfinni til að fyrirbyggja sandfok
á strandlengjunni við Eiðs-
granda?“
Svar:
Til þess að hefta sandfok var
gerð tilraun með að gera lágan
vamargarð úr jarðvegi samsíða
götunni. Árangur varð ekki mikill
og skiptar skoðanir um fram-
kvæmdina svo ákveðið var að íjar-
lægja garðinn. Á næstunni er fyr-
irhugað að leggja stórt safnræsi
með Eiðsgranda og Ægisíðu og
samhliða því verður fyllt lengra
út frá götunni, grjótvörn lagfærð,
göngustígur lagður og svæðið
Skjólbelti
Gísli Tryggvason, Eggertsgötu
16, íbúð 302, 101 Reykjavík, spyr:
„1. Viltu vinna aðþvíaðgróð-
ursetja skjóibelti vestan Hring-
brautar austan Háskólasvæðis til
skjóls fyrir Vatnsmýrina og byggð
á svæðinu og til fegrunar um-
hverfis?
2. Verður ferðum strætisvagna
SVR (hf.)fjöigað úr3 (á daginn)
og 2 (á öðrum tímum) í 6 eða 4
(á daginn) og 4 eða 3 (á öðrum
tímum)?“
3. „Er lengri afgreiðslutími
sundstaða þitt verk og varanleg
ráðstöfun?"
Svör:
1. Samkvæmt samningi við rík-
ið á Hringbrautin að færast til
vesturs á mestöllu þessu svæði.
Því hefur ekki verið farið í fegrun-
ar- og gróðursetningarfram-
kvæmdir meðfram götunni. Það
hefur hins vegar dregist að Al-
þingi veitti fé til að efna þennan
samning. Um svæðið milli Hring-
brautar og Háskólasvæðisins skal
tekið fram að þar verður farið
mjög varlega í allar framkvæmd-
ir, þar með taldar gróðursetning-
arframkvæmdir, vegna fuglalífs-
ins í Vatnsmýrinni.
2. Miðað við farþegafjölda eins
og hann er nú, er ekki tilefni til
þeirrar fjölgunar ferða sem spurt
er um. Leiðakerfi SVR er hins
vegar alltaf í endurskoðun og mun
ferðum fjölgað ef aðstæður breyt-
ast þannig að þörf verði á því.
3. Tillögur um afgreiðslutíma
sundstaða eru gerðar af íþrótta-
og tómstundaráði og voru sam-
þykktar í ráðinu 14. mars sl. og
staðfestar af borgarráði. Gert er
ráð fyrir að núverandi afgreiðslu-
tími haldist áfram jafnt sumar
sem vetur.
Gufunes
Örn Valdimarsson, Neshömrum
12, 112 Reykjavík, spyr:
„Hvað á að gera við gamla
öskuhaugasvæðið í Gufunesi og
hvenær á að byrja á framkvæmd-
um við golfvöli þar?“
Svar:
Vegna tæknilegra örðugleika á
að gera golfvöll hratt á gamla
sorphaugasvæðinu, var horfið að
því ráði að gera 18 holu golfvöll
í Korpúlfsstaðalandi í tengslum
við svokallað Staðahverfi, sem þar
hefur verið skipulagt. Gamla sorp-
haugastæðið verður grætt upp,
þar verður grænt svæði eða garð-
ur. Hugmyndir eru uppi um að
gera á hluta svæðisins léttan
golfæfingavöll og hafa þar ókeyp-
is æfingastað fyrir unglinga
hverfisins. Áætlað er að gera
átak í sumar í því að græða svæð-
ið upp.
Lóð Æfinga-
skólans
Margrét Þórarinsdóttir, Flóka-
götu 51, 105 Reykjavík, spyr:
„Hvað hyggst borgarstjórn gera
varðandi lóð Æfmgaskóla Kenn-
araháskóia Islands sem er í eigu
ríkisins? Hyggst Árni Sigfússon
beita sér fyrir að borgin gangi frá
lóðinni?“
Svar:
Eins og fram kemur í spurning-
unni er hér um að ræða ríkislóð.
Borgin hefur ekki enn farið út á
þá braut að ganga frá öðrum lóð-
um en sínum eigin þó að stundum
hafi þótt vera ástæða til. Þeim
tilmælum verður beint til mennta-
málaráðuneytisins að það beiti sér
fyrir því að gengið verði endan-
lega frá umræddri lóð.
Eignarlóðir
Erna Rut Konráðsdóttir, Reyk-
ási 37,110 Reykjavík, spyr:
„1. Er mikið af íbúðarhúsa-
byggð í iögsagnarumdæmi
Reykjavíkur á eignarlóðum?
2. Hvers vegna keypti Reykja-
víkurborg ekki Seláslandareignina
áður en hér var leyfð skipulögð
íbúðarhúsabyggð?
3. Keypti Reykjavíkurborg
landið þar sem vatnsmiðlunart-
ankurinn er reistur hér ímiðju
Reykáss?
4. Eru þetta ekki þeir„fjórir
hektarar lands á háhæðinni“ sem
hin íslenska þjóðkirkja átti aðfá
til að byggja sjómannakirkju, en
um þetta er skjai hjá bæjarfógeta
skv. eignaskiptapappír, 29.7. ’59?
5. Hafa íbúar á eignarlóðum
aðrar skyldur eða réttindi en þeir
sem búa á ieigulóðum?
6. Er möguiegt aðselja borg-
inni eignarlóðarétt sinn?
7. „Eru ekki lóðaleigugjöld lýð-
ræðisiegri heldur en að reikna
sumum íbúum borgarinnar iand
til eignar sem þeir hafa engan hag
af?“
Svör:
1. Langmestur hluti byggðar í
Reykjavík er á landi í eigu borgar-
innar. Eignarlóðir eru helst í
gamla bænum, Kvosinni og ná-
lægð hennar, í Skeijafirði og í
Selási.
2. Landeigendur vildu sjálfir
hafa ráðstöfunarrétt á lóðunum.
3. Reykjavíkurborg keypti 1.
apríl 1953 land það, er gamall
vatnstankur stóð á og þar er hinn
nýi vatnsmiðlunartankur reistur.
4. Þjóðkirkjunni hafði verið
veitt fyrirheit um lóð, allt að 4
ha til að reisa þar kirkju, en hún
afsalaði sér því fyrirheiti. Hvort
sú lóð hefði orðið, þar sem hinn
nýi vatnsmiðlunartankur stendur
nú, liggur ekki fyrir.
5. Lóðareigendur greiða ekki
lóðarleigu.
6. Ef hagsmunir borgarinnar
krefjast þess, t.d. vegna fram-
kvæmda á skipulagi.
7. Eignarréttur einstaklinga á
lóðum innan borgarmarkanna
byggist á gömlum eignarheimild-
um, sem borgaryfírvöld hafa engu
ráðið um. Eignarrétturinn er frið-
helgur samkvæmt stjórnarskránni
— og hefur verið talinn einn af
hornsteinum lýðræðis.
Nýsköpunar-
styrkir
Þórarinn Þórhallsson, Bræðra-
borgarstíg 5, 101 Reykjavík, spyr:
„1. Megum viðgeta búist við
þvíað fá einhvers konar athafna-
eða nýsköpunarstyrk frá Reykja-
víkurborg (óveruiegar upphæðir)
að þvígefnu að við leggjum fram
fullnægjandi gögn og að Reykja-
víkurborgsé okkur sammáia um
ágæti hugmyndarinnar?
2. Efsvarið erjá hvernig berum
við okkur að, og hvernær mætti
búast við niðurstöðu?“
Svör:
1. Já, svo fremi að hugmyndin
leiði ekki til mismununar í sam-
keppni.
2. Senda þarf skriflega umsókn
til Atvinnumálanefndar Reykja-
víkur, Ráðhúsinu, Reykjavík, lýsa
þar hugmyndinni í meginatriðum
og greina frá áætluðum kostnaði
við að hrinda henni í framkvæmd.
Reglulegir fundir nefndarinnar
eru 1. og 3. fimmtudag í mánuði
og hún er að jafnaði komin að
niðurstöðu innan mánaðar frá því
að erindið berst.
AÐSEIMPAR GREINAR
Baháítrú - kerfið
sem virkar
HVERS vegna er siðferðið svona
rotið í heiminum núna? Til að við
getum svarað þessari spurningu
held ég að við verðum að gera
okkur ljós tengslin milli trúar og
siðferðis.
Á síðustu öld komu fram tveir
spámenn Guðs, sem uppfylltu spá-
dóma trúarbóka fortíðarinnar, þar
á meðal Biblíunnar.
Fyrirrennarinn Báb-
inn fæddist 1819 og
var leiddur fyrir af-
tökusveit 1850. Árið
1844 stofnaði hann
þá trú sem síðar
hlaut heitið baháítrú.
Siðari spámaðurinn
Bahá’uTláh, sem
Bábinn hafði rutt
brautina fyrir, fædd-
ist árið 1817, fékk
vitrun um köllun sína
árið 1852 en hélt
henni leyndri til
1863 þegar hann
kunngjörði stöðu
sína.
Svo segir í íslensku kynningar-
riti um bahá’ítrúna:
„Sönn trú er uppspretta ástar
og samlyndis meðal manna ... en
fólk heldur sig við eftirlíkingar og
stælingar, skeytir ekki um raun-
veruna sem sameinar ... það er
svipt ljóma trúarinnar og hann er
frá því tekinn ... Af þeim sökum
hefur ríki trúaðra manna smátt
og smátt þrengst og myrkvast, en
svæði efnishyggjumanna víkkað
og græðst út, enda hafa trúaðir
menn haldið sig við eftirlíkingar
og stælingar, en vanrækt og hafn-
að heilagleika og hinni helgu raun-
veru trúarinnar," (Úrval úr ritum
Bahá’u’lláh, ’Abdu’l-Bahá og
Shoghi Effendi, bls. 57).
Bahá’ítrúin hefur breiðst miklu
hraðar út en öll fyrri trúarbrögð,
og eru nú samkvæmt Encyclopedia
Brittannica næst útbreiddustu trú-
arbrögð heimsins, næst á eftir
kristinni trú.
Mannkyni hefur staðið til boða
á að fá bót meina sinna í meira
en 100 ár, en það hefur hafnað
hinum alvitra lækni og verið upp-
tekið og hugfangið af alls konar
skottulæknum. Kerfi skottulækn-
anna hafa hrunið hvert af öðru og
mannkyni hefur elnað sóttin. Þessi
kerfi eru hin ýmsu kerfí heimspek-
inga og stjórnmálamanna efnis-
hyggjunnar.
En víkjum loks að siðferðinu.
Samkvæmt bahá’ítrú er tilgangur
lífsins að þekkja Guð og tilbiðja
hann. En tilbeiðsla er ekki einung-
is það bænahald sem menn hafa
vanist fram að þessu, heldur líka
öll heiðarleg vinna, sem skoðast
þjónusta við mannkynið.
Sameinuðu þjóðirnar hafa út-
nefnt þetta ár ár fjölskyldunnar.
Þess vegna tel ég rétt, af því til-
efni, að minnast á siðferði ástalífs-
ins. Aldarandinn virðist kreíjast
sem fijálsastra ásta. Tilkoma eyðni-
sjúkdómsins og baráttan við hann
hefur lítið beinst í þá átt að vara
við lauslæti, heldur hefur baráttan
mest falist í því að hvetja fólk til
að nota smokka. í ijölmiðlaumræð-
unni um þessi mál hafa siðaboðorð
trúarbragðanna jafnvel verið for-
dæmd sem fordómar. Ekki er að
undra að hið gamaldags gagnkyn-
hneigða hjónaband eigi nú í vök
að veijast við þessar aðstæður.
Þótt bráðnauðsynlegt sé að fólk
hafi sem mest yndi og nautn af
sínu ástalífi virðist samfélagið hafa
misst sjónar á því hlutverki ástalífs-
ins að mannkynið endurnýist á eðli-
legan hátt. Heillavænlegast hlýtur
samt að vera, að þessi gamaldags
stofnun, sem hjónabandið er, sé
efld, bæði til þes að fólk geti sótt
sér þangað þá nautn og það yndi
sem kynlífið veitir á hættulausan
hátt, og eins til að börnin sem fæð-
ast eignist þann bakhjarl sem einn
getur tryggt að þau nái eðlilegum
þroska líkamlega, tilfinningalega,
andlega og félagslega.
Bahá’ítrúin krefst skírlifis. Skír-
lífi táknar í þessu sambandi ekki
meinlætalifnað, klausturlíf eða
bælingu kynhvatarinnar heldur
táknar það að fólk hafi
ekki kynmök við neinn
nema lögmætan maka
sinn innan vébanda
hjónabandsins. Öll
kynmök utan hjóna-
bands eru óleyfileg.
Fólk er hvatt til að gift-
ast, þótt það sé samt
ekki skyldað til þess.
Ég gæti vel trúað að
færa mætti giftingar-
aldurinn niður, vegna
þess að ungt fólk er nú
líkamlega bráðþrosk-
aðra en áður fyrr, og
getnaðarvamir gera
skólafólki kleift að
fresta bameignum þar
til námi er lokið. Bahá’u’lláh segir
prestum og munkum að koma út
úr kirkjum sínum og klaustrum og
taka sér það fyrir hendur sem jafn-
framt leyfi til að ganga í hjóna-
band (sbr. Áttundu gleðifréttina á
Bahá’ítrúin hefur
breiðst miklu hraðar út
en öll fyrri trúarbrögð,
segir Baldur Braga-
son, og segir aðeins
kristna trú útbreiddari.
bls. 104 í bókinni Lind lifandi
vatna).
Bahá’u’lláh segir að hið sanna
frelsi felist í undirgefni mannsins
við boðorð Guðs (sbr. kafli CLIX í
bókinni Gleanings from the Writ-
ings of Bahá’u’lláh). Hér koma svo
nokkrar frekari tilvitnanir í bahá’í-
rit. Svo segir í bæn sem sögð er
við giftingarathöfn bahá’ía: „Og
þegar hann (þ.e. Guð) þráði að birta
mönnum náð og velgjörðir og koma
skipulagi á veröldina, opinberaði
hann siði og skapaði lög, þar á
meðal stofnsetti hann lögin um
hjónaband og gerði það að virki
velferðar og frelsunar og bauð oss
það í því sem sent niður frá himni
heilagleikans í helgastri bók hans:
„Giftist, ó fólk, svo að út af yður
birtist sá sem mun minnast mín
meðal þjóna minna; þetta er eitt
boðorða minna yður til handa, virð-
ið það sem aðstoð við yður sjálf.““
Ennfremur: „Allir menn hafa verið
skapaðir til að bera áfram siðmenn-
ingu, sem er í stöðugri framþróun.
Hinn almáttugi ber mér vitni: Að
hegða sér eins og dýr merkurinnar
er manninum ósamboðið." (Ba-
há’u’lláh). (Lausleg þýðing af bls.
214 í Gleanings from the Writings
of Bahá’u’lláh.)
„Engu máli skiptir hversu trygg
og fín ást milli fólks af sama kyni
kann að vera, að láta hana fá útrás
í kynmökum er rangt... Hvers kon-
ar siðleysi er í raun bannað af
Bahá’u’lláh og hann lítur á samkyn-
hneigð sambönd sem slík, auk þess
sem þau eru andstæð náttúrunni.
Að vera hijáður á þennan hátt er
mikil byrði fyrir sál sem er meðvit-
andi um það. En með ráðleggingum
og hjálp lækna, með sterku og ein-
beittu átaki og með bæn, getur sál
sigrast á þessari fötlun.“ (Tilvitnun
í bréf frá Shoghi Effendi til ein-
staklings.) (Lausleg þýðing af bls.
223 í Kitáb-i-Aqdas.)
Höfundur er tannlæknir á
Sauðdrkróki.
Baldur B. Bragason