Morgunblaðið - 06.05.1994, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 06.05.1994, Blaðsíða 1
96 SÍÐUR B/C/D 101. TBL. 82.ÁRG. FÖSTUDAGUR 6. MAÍ1994 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Ölokið við að skipa Palestínska þjóðarráðið og 1.000 manna löggæsluliðið ekki tilbúið „Tæknilegar ástæður“ tefja sjálfsstjóm Kaíró, Kaupmannahöfn. Reuter. TALSMAÐUR Palestínumanna sagði í gær, að þeir væru tilbúnir til að taka strax við stjórn í Jeríkó og á Gaza-svæðinu ojg vísaði á bug þeim ummælum Yitzhaks Rabins, forsætisráðherra Israels, að Yasser Arafat, leiðtogi PLO, Frelsissamtaka Palestínumanna, hefði beðið ísraelska herliðið að fara ekki fyrr en palestínsku löggæslu- mennirnir væru reiðubúnir að taka við. Samkvæmt friðarsamningun- um hafa þó ísraelar 21 dag til að flytja burt alla hermenn sína. Marwan Kanafani, ráðgjafi Ar- afats, sagði, að Arafat hefði aðeins verið að tala um frestinn, sem ísra- elar hafa til koma sér burt, en pal- estínska þjóðarráðið væri tilbúið til að axla skyldur sínar. Þó kann að verða einhver dráttur á því þar sem í gær hafði ekki verið lokið við skip- an ráðsins en Arafat var þá í Kaíró til að ganga frá því. Að sögn Palest- ínumanna hafa einnig tæknileg vandamál tafið fyrir, að 1.000 manna löggæslulið þeirra geti hafið störf en búist er við, að það verði í næstu viku. Meirihluti telur litlar líkur á friði Shimon Peres, utanríkisráðherra ísraels, sagði í gær, að ísraelar væru að yfirgefa Gaza fyrir fullt og allt. „Við munum ekki fara aftur til Gaza og Gaza mun ekki koma aftur til okkar. Svo er guði fyrir að þakka,“ sagði hann en sam- kvæmt skoðanakönnun í ísrael telur þó meirihluti landsmanna, að litlar líkur séu á raunverulegum friði. Opinbert málgagn sýrlensku stjórnarinnar fordæmdi í gær frið- arsamningana og sagði, að þeir yrðu ekki langlífir vegna þess, að flestir Palestínumenn styddu þá ekki. ------------»-»■♦------ Átökin harðna í Rúanda Kigali. Reuter. HÓRÐUSTU átök, sem verið hafa í Kigali, höfuðborg Rúanda, bloss- uðu upp í gær er uppreisnarmenn létu sprengjum rigna yfir borgina. I allsherjarherkvaðningu voru allir þeir, sem vettlingi geta valdið, hvattir til að grípa til vopna og ganga til liðs við stjórnarherinn í stað þess að flýja átökin. Ógnaröldin heldur áfram i land- inu og telja hjálparstarfsmenn að um 200.000 manns hafi látið lífið síðasta mánuðinn. Morðaldan hefur aðallega komið niður á tútsum, sem hútúar drepa, hvat' sem til þeirra næst. Geti menn ekki fæit sönnur á að þeir séu hútú- ar eru þeir drepnir. Kveiktu slökkviliðs- menn skóg- areldana? Los Angeles. Reuter. TVEIR slökkviliðsmenn í Los Angeles voru í gær sakaðir um að hafa kveikt skógareld- ana í Malibu í Suður-Kalifor- níu, sem urðu þremur að bana auk þess sem um 350 hús brunnu til kaldra kola. Lögreglumenn, sem unnið hafa að rannsókn eldanna, segja slökkviliðsmennina, sem þá voru sjálfboðaliðar, hafa þráð að gerast slökkviliðsmenn að atvinnu. Hafi mennirnir kveikt eldana í von um að geta sýnt fádæma hetjuskap við að slökkva þá og fá að launum fasta stöðu í liðinu. Felipe Gonzalez Gonzalez fer hvergi Madrid. Reuter. FELIPE Gonzalez, forsætisráð- herra Spánar, sagði á blaðamanna- fundi í gær, að hann ætlaði ekki að verða við áskorunum um að segja af sér. Hvert hneykslismálið öðru meira hefur ekki aðeins rýrt álit stjórnar hans og sósíalistaflokksins, heldur einnig þjóðarinnar allrar í augum umheimsins. „Ég ætla að sitja áfram og komast til botns í þessum málum og reyna að girða fyrir, að önnur komi upp,“ sagði Gonzalez. ■ Skorað á GonzaIez/16 Fyrstu tölur úr sveitarstj órnarkosningunum í Bretlandi Ihaldsmenn tapa en Frjálslyndir vinna á Lesið í framtíð f orsætisráðherrans Beðið eftir syninum ÍSRAELSKUR hermaður skipar palestínskri konu að halda á braut, en hún var í hópi fólks sem beið ættingja sinna, sem láta átti lausa úr fangelsi í Israel í gærdag. Lundúnum. Reuter. BRESKA íhaldsflokknum var spáð miklu fylgistapi í sveitar- stjórnarkosningunum sem fram fóru í gær. Fyrstu tölur bentu til þess að flokkurinn tapaði um 6% á landsvísu, Verkamannaflokkur- inn bætti um 4% við fylgi sitt og Fijálslyndir demókratar um 8%. 5.000 sæti í borgar-, bæjar- og sveitarstjórnum, sem eru um 60% kjördæma. Tapaði íhaldsflokkurinn í nokkrum sterkustu vígjum sínum, m.a. Tunbridge Wells. Fylgi íhaidsflokksins hefur dalað mjög síðasta eitt og hálfa árið og enginn forvera Johns Majors hefur mælst með eins lítið fylgi og hann. Fái flokkurinn slæma útreið í kosn- ingum til Evrópuþingsins í júní, er staða Majors í hættu. Hann þótti ’ þó fullur baráttuþreks í fyrirspurn- artíma þingsins í gær og réðst óspart að andstæðingum sínum. Slökkviliðsmennirnir geng- ust undir próf í lygamæli og féllu á því en þeir neita engu að síður öllum sakargiftum. í leiðara The Times sagði, að úrslit kosninganna yrðu sem rúnir sem lesa mætti framtíðarhorfur forsætisráðherrans í. Fyrir kosn- ingarnar lagði Sir Norman Fowler, flokksformaður íhaldsflokksins, áherslu á að þær væru ekki þjóðar- atkvæðagreiðsla um John Major, eins og Verkamannaflokkurinn fullyrti og kvaðst Fowler bera fulla ábyrgð á kosningabaráttunni. Senna jarðsettur ÚTFÖR kappaksturshetjunnar Ayrton Senna fór fram í Sao Paulo í Brasilíu í gær. Þúsundir aðdáenda fylgdu kistu Senna um götur borgarinnar. A myndinni standa foreldrar hans og systir við kistuna í þinghúsinu í Sao Paulo.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.