Morgunblaðið - 06.05.1994, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 6. MAÍ 1994 51
DAGBÓK
VEÐUR
* * * * Rigning
* * é * Slydda
Skúrir
Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað Alskýjað
y Slydduél
Snjókoma \/
Sunnan, 2 vindstig.
Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjöðrin
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
10° Hitastig
S Þoka
V Súld
FÆRÐ Á VEGUM
(Kl. 17.30 í gær)
Vegir á landinu eru yfirleitt greiðfærir. Verið
er að moka ýmsar heiðar svo sem á Vestfjörð-
um, Dynjandisheiði og Hrafnseyrarheiði. Einn-
ig er verið að moka norður í Árneshreppi á
Ströndum. Þessar leiðir eru þó ekki enn orðn-
ar færar, en fært um Eyrarfjall í (safjarðardjúpi
og einnig um Barðastrandarsýsluna. Upplýs-
ingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti í
síma 91-631500 og á grænni línu, 99-6315.
REYKJAVfK: Árdegisflóð kl. 3.46, síðdegisflóð kl.
16.11, fjara kl. 10.01 og 22.25, sólarupprás kl.
4.43, sólarlag kl. 22.08 og myrkur kl. 23.25. Sól
er i hádegisstað kl. 13.24 og tunglið í suðri kl.
10.22. ISAFJÖRÐUR: Árdegisflóð kl. 5.51, sið-
degisflóð kl. 18.16, fjara kl. 12.06 og 0.30, sólar-
upprás kl. 4.26, sólarlag kl. 22.35 og myrkur kl.
24.21. Sól er í hádegisstað kl. 13.29. AKUR-
EYRI: Árdegisflóð kl. 7.56, síðdegisflóð kl. 20.21,
fjara kl. 14.11 og 2.10, sólarupprás kl. 4.10, sólarlag kl. 22.10 og
myrkur kl. 23.49. Sól er i hádegisstað kl. 13.09. HÖFN i HORNA-
FIRÐI: Árdegisflóð kl. 3.41, siödegisflóð kl. 16.06, fjara kl. 9.56 og
22.20, sólarupprás kl. 3.58, sólarlag kl. 21.47 og myrkur kl. 23.18. Sól er
i hádegisstaö kl. 12.51.
VEÐURHORFUR í DAG
Yfirlit: Um 400 km suðvestur af Vestmannaeyj-
um er 975 mb lægð, sem þokast norðaustur.
Yfir Norðaustur-Grænlandi er 1.025 mb hæð.
Spá: Norðaustan stinningskaldi eða allhvasst
á Vestfjörðum. Annars austlæg átt, yfirleitt
gola eða kaldi. í innsveitum norðanlands verð-
ur að mestu þurrt en annars skúrir. Hiti verð-
ur á bilinu 3-7 stig.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA
Laugardagur og sunnudagur: Hæg breytileg
vindátt, víðast gola. Þokusúld á annesjum
norðanlands, en annars smáskúrir. Hiti 3-9
stig.
Mánudagur: Hæg breytileg eða suðaustan
átt, þurrt og víða bjart veður um norðanvert
landið, en skýjað og smáskúrir eða dálítil rign-
ing syðra. Hiti 5-11 stig.
Nýir veðurfregnatímar: 1.30, 4.30, 7.30,
10.45, 12.45, 16.30, 19.30, 22.30. Svarsími
Veðurstofu Islands - Veðurfregnir: 990600.
Spá kl.
H Hæð L Lægð Kuldaskil Hitaskil Samskil
Helstu breytingar til hádegis i dag eru þær að lægðin
suður af landinu þokast hægt norðaustur í átt að landinu.
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12.00 í gær að ísl. tíma
Akureyri 7 alskýjað Glasgow 10 rigning
Reykjavík 8 rigning Hamborg 13 skýjað
Bergen 11 skýjað London 11 rigning
Helsinki 14 skýjað Los Angeles 14 súld
Kaupmannah. 10 skýjað Lúxemborg 11 skýjað
Narssarssuaq 1 skýjað Madríd 22 léttskýjað
Nuuk +1 snjókoma Malaga 22 léttskýjað
Ósló 15 skýjað Mallorca 22 léttskýjað
Stokkhólmur 13 léttskýjað Montreal 12 skýjað
Þórshöfn vantar New York 13 skýjað
Algarve 24 heiðskírt Orlando 21 skýjað
Amsterdam 13 skýjað París 13 skýjað
Barcelona vantar Madeira 18 skýjað
Berlín 14 skýjað Róm 18 skýjað
Chicago 11 heiðskírt Vín 16 alskýjað
Feneyjar 12 léttskýjað Washington 12 skýjað
Frankfurt 13 rlgning Winnipeg +2 léttskýjað
Yfirlit á hádegi í gaer:
\
I dag er föstudagur 6. maí,
126. dagur ársins 1994. Qrð
dagsins: Því sagði Jesús aftur:
„Sannlega, sannlega segi ég
yður: Ég er dyr sauðanna.“
Jóh. 10,7.
Skipin
Reykjavíkurhöfn: t gær
fór Ottó N. Þorláksson,
Bakkafoss, Helgafell,
Karina Danica, Bjarni
Sæmundsson fór í leiðang-
ur, oliuskipið Norsell fór.
Jón Baldvinsson kom af
veiðum og Gissur ÁR land-
aði rækju.
Mannamót
Húnvetningafélagið er
með félagsvist á morgun
kl. 14 í Húnabúð, Skeif-
unni 17.
Kvenfélag Grensás-
sóknar er með sína ár-
legu kaffisölu í safnað-
arheimilinu nk. sunnu-
dag kl. 15. Tekið á móti
kökum frá kl. 10 sama
dag. Síðasti fundur fé-
lagsins verður nk.
mánudag kl. 20.30.
Kvenfélag Árbæjar-
sóknar heldur vorfund
sinn í kvöld kl. 19.15 í
safnaðarheimilinu
v/Rofabæ. Farið í Hafn-
arfjörð á eftir.
Langahlíð 3. Spilað í
dag kl. 13-17. Vorsýn-
ing, basar og kaffisala
kl. 14-17 á morgun
laugardag, sunnudag og
mánudag. Síðasti skila-
dagur í dag. Öllum opið.
Hana Nú, Kópavogi.
Síðdegisgaman Ar-
bær/Skíðaskáli. Lagt af
stað frá Gjábakka kl.
14 á sunnudag.
Aflagrandi 40. Bingó
kl. 14. Samsöngur við
píanóið með Hans og
Fjólu kl. 15.30.
Bridsklúbbur félags
eldri borgara, Kópa-
vogi, spilar tvímenning
kl. 13.15 í Gjábakka.
Barðstrendinga- og
Djúpmannafélagið
spila félagsvist á Hall-
veigarstöðum á morgun
kl. 14.
Skaftfellingafélagið í
Rvík er með kaffiboð
fyrir aldraða kl. 14 á
sunnudag í Skaftfell-
ingabúð, Laugavegi
178, og er öllurn opið.
Félag eldri borgara,
Kópavogi. Spiluð fé-
lagsvist og dans í félags-
heimilinu, 2. hæð, í
kvöld kl. 20.30. Öllum
opið.
Félag eldri borgara í
Rvík. Félagsvist í Risinu
kl. 14. Göngu-Hrólfar
fara frá Risinu kl. 10 í
fyrramálið.
Grensáskirkja: Starf
10-12 ára kl. 17.30.
Langholtskirkja: Aft-
ansöngur kl. 18.
Seljakirkja: Fyrir-
bænastund kl. 18.
Talsímakonur halda -
hádegisfund á Loftleið-
um á morgun, laugar-
dag.
Sjöunda dags aðvent-
istar á íslandi: Á laug-
ardag:
Aðventkirkjan, Ing-
ólfsstræti 19: Bibl-
íurannsókn kl. 9.45.
Guðsþjónusta kl. 11.
Ræðumaður David
West.
Safnaðarheimili að-
ventista, Blikabraut
2, Keflavík: Guðsþjón-
usta kl. 10.15. Biblíu-
rannsókn að guðsþjón-
ustu iokinni. Ræðumað-
ur er Einar V algeir Ara-
son.
Safnaðarheimili að-
ventista, Gagnheiði
40, Selfossi: Guðsþjón-
usta kl. 10. Biblíurann-
sókn að guðsþjónustu
lokinni. Ræðumaður
Kristján Friðbergsson.
Aafnaðarheimili,
Brekastíg 17, Vest-
mannaeyjum: Biblíu-
rannsókn kl. 10. Guðs-
þjónusta kl. 11. Ræðu-
maður Eric Guðmunds-
son.
Aðventsöfnuðurinn í
Hafnarfirði, Góð-
templarahúsinu, Suð-
urgötu 7: Samkoma kl.
10. Ræðumaður Stein-
þór Þórðarson.
Áfangar halda aðalfund
sinn í húsi Kletts, Vest-
urgötu 18-24, Hafnar-
firði, á morgun kl. 15.
Morgunblaðið/Karl Skímisson
Minkurinn
Vitatorg. Frjáls spila-
mennska kl. 14-15.30.
Fornbílaklúbbur ís-
lands fer í sína fyrstu
sumarferð sunnudaginn
8. maí til Keflavíkur-
flugvallar. Slökkviliðið
skoðað. Mæting við
Ráðagerði, Skeifunni 4,
kl. 13.
Laugarneskirkja: For-
eldramorgunn kl.
10-12.
Minkurinn er e.t.v. frægastur hér á landi
fyrir dálæti sitt á hænsnum og það drápsæði
sem gripur hann er hann kemst í kofann,"
sbr. frétt Morgunblaðsins í gær. Almenning-
ur veit kannski minna um hvað algengast er
á matseðlinum, en það er breytilegt eftir
kjörlendi og árstíma. Þar sem minkar hafa
verið rannsakaðir, t.d. við Sog og Álftavatn
í Grímsnesi, hafa ýmis dýr komið við sögu.
Má nefna hornsíli, seiði og ungfiska lax-
fiska, þresti, þúfutittlinga, egg og unga
þeirra og ýmissa annarra fugla, svo sem
anda. Einnig hagamýs, hunangsflugur og
bú þeirra, skordýralirfur, flugur, langfætl-
ur, bjöllur og vatnabobba.
94029
Excel námskeið
Tölvu- og verkfræöiþjónustan
Tölvuskóli Halldórs Kristjanssonar
Grensásvegi 16 • © 68 80 90
Krossgátan
LÁRÉTT:
I skinn, 4 beiuið, 7
blómið, 8 glufur, 9 op,
II mannsnafn, 13 baun,
14 hefur í hyggju, 15
gegnsær, 17 víða, 20
fljót, 22 fugl, 23 kirtill,
24 híma, 25 hinar.
LÓÐRÉTT:
I syrgja, 2 guðshús, 3
skökk, 4 tæplega, 5
hrósar, 6 gabba, 10
kjánar, 12 stúlka, 13
bókstafur, 15 flennan,
16 húsdýrin, 18 rándýr,
19 peningar, 20 mör,
21 haka.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
LÁRÉTT: 1 hrekkvísa, 8 kámug, 9 sætið, 10 góa,
11 tarfa, 13 Nýall, 15 hafís, 18 sauða, 21 kát, 22
slota, 2_3 andar, 24 skaflanna.
LÓÐRÉTT: 2 rómar, 3 kagga, 4 vísan, 5 sötra, 6
skot, 7 óðal, 12 frí, 14 ýsa, 15 hosa, 16 flokk, 17
skalf, 18 staka, 19 undin, 20 akra.
Opið föstudag frá kl. 9-18.30 — laugardag frá kl. 10-13
mmuTiuFmm
GLÆSIBÆ • S/Aff 812922