Morgunblaðið - 06.05.1994, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 06.05.1994, Blaðsíða 26
26 FÖSTUDAGUR 6. MAÍ1994 STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík. FRAMKVÆMDASTJÓRI: Haraldur Sveinsson. RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 691100. Auglýsingar: 691111. Askriftir: 691122. SfMBRÉF: Ritstjórn 691329, frétt- ir 691181, íþróttir 691156, sérblöð 691222, auglýsingar 691110, skrif- stofa 681811, gjaldkeri 691115. Áskriftargjald 1.400 kr. á mánuði innan- lands. í lausasölu 125 kr. eintakið. FORMANN S SKIPTIHJA FRAMSÓKNARFLOKKI T^ORMANNSSKIPTI urðu í Framsóknarflokknum sl. föstudag. Halldór Ásgrímsson, sem verið hafði varaforrhaður flokksins í þrettán ár, tók þá við for- mannsembættinu af Steingrími Hermannssyni, sem nú hefur hafið störf sem seðlabankastjóri. Þó svo að Halldór hafi verið í forystu Framsóknarflokksins í nær hálfan annan áratug, er ljóst að þessi breyting mun hafa töluverð áhrif á Framsóknarflokkinn og stöðu hans á stjórnmálasviðinu. Ef dæma má af framgöngu Halldórs Ásgrímssonar undanfarna daga virðist Ijóst að hann ætli strax frá upphafi að setja sitt eigið mark á Framsóknarflokk- inn. Af ummælum hans er greinilegt að búast má við töluverðum áherslubreytingum. í fyrsta lagi hefur hinn nýi formaður Framsóknar- flokksins slegið á mildari strengi í Evrópumálum. Hann telur aðild að Evrópusambandinu ekki æskileg- an kost en engu að síður eru viðhorf hans til sam- starfs við Evrópusambandið um margt frábrugðin viðhorfum forvera hans í embætti. í viðtali við Morg- unblaðið um helgina sagði hann m.a., að hann teldi að íslendingar ættu að leita leiða til að hafa áhrif innan Evrópusambandsins án þess að gerast aðilar. Þó að hugmyndir Halldórs Ásgrímssonar um hvernig koma eigi slíku samstarfi á séu óraunhæfar kveður þó þarna við allt annan tón en hjá þeim framsóknar- mönnum sem lögðust gegn aðild að Evrópska efna- hagssvæðinu. Þá hefur Halldór Ásgrímsson lýst því yfir að hann telji að endurskoða verði vinnulöggjöf hér á landi til að koma í veg fyrir að fámennir hópar geti í krafti valds náð fram kjarabótum umfram láglaunafólk. Ennfremur hefur formaður Framsóknarflokksins lýst þeirri skoðun, að ekki verði lengra gengið í skatt- heimtu og að áfram verði þörf á verulegu aðhaldi í ríkisbúskapnum. Frekari hækkun skatta segir hann verða til að kalla fram samdrátt og hefta verðmæta- sköpun í þjóðfélaginu. Hann hefur jafnframt hvatt til aukinnar fjárfestingar almennings í hlutabréfum og mælt gegn því að skattaafsláttur vegna hluta- bréfakaupa verði afnuminn. Þessi dæmi sýna að það eru að verða verulegar áherslubreytingar hjá Framsóknarflokknum. Á und- anförnum áratugum hefur hann fyrst og fremst ver- ið landsbyggðarflokkur með takmarkað fylgi á höfuð- borgarsvæðinu. Að öllum líkindum mun hinn nýi for- maður í auknum mæli reyna að afla flokknum fylgis á höfuðborgarsvæðinu, en til að svo megi verða er nauðsynlegt að ákveðin breyting verði á ímynd Fram- sóknarflokksins. Á undanförnum áratugum hefur Framsóknarflokk- urinn oft reynzt flokka íhaldssamastur og staðið gegn margvíslegum breytingum, sem til heilla hafa horft. Yfirlýsingar hins nýja formanns flokksins vekja upp áleitnar spurningar um, hvort Framsóknarflokk- urinn eigi eftir að færast til í hinu pólitíska litrófi á næstu árum. En jafnframt er ekki ólíklegt að við- leitni nýrrar forystu að því marki muni kalla fram sterka andstöðu innan flokksins, andstöðu, sem nú þegar bryddir á. Halldór Ásgrímsson hefur lýst sjálf- um sér sem stefnuföstum stjórnmálamanni. Fróðlegt verður að sjá, hvort sú stefnufesta heldur þegar á reynir. Super Puma keypt Ríkisstjóm Davíðs Oddssonar ákveður á fundi sínum næstkomandi þriðjudag, að kaupa Super Puma björgunarþyrluna. Agnes Bragadóttir reifar hér mismunandi sjónar- mið í þessu máli og gagnrýni ríkisstjómarinn- ar á vinnubrögð bandarískra stjórnvalda. Akvörðun um kaup á Super Puma björgunarþyrlu fyr- ir Landhelgisgæsluna, verður tekin á fundi ríkis- stjórnar næsta þriðjudag. Ekki gefst ráðrúm til þess að af- greiða málið á stuttum ríkisstjórnar- fundi síðdegis í dag, vegna sameigin- legs fundar utanríkisráð- -------- herra Norðurlandanna hér á landi. Ráðherrar ríkis- stjórnarinnar hafa lýst yfír óánægju sinni með vinnu- _________ brögð bandarískra stjóm- valda. Öruggt er' talið, samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins, að ríkisstjórnin samþykki á fundi sínum á þriðjudag harðorða ályktun, þar sem skýrra og afdráttarlausra svara Bandaríkjastjórnar verður krafist, og jafnframt óskað eftir skýringum Bandaríkjamanna á því, hvernig staðið hefur verið að verki í sam- bandi við viðræður við ís- _______ lendinga. Ríkisstjórnin er sam- mála um að mikið skorti á, að Bandaríkjamenn hafi komið fram við íslensk stjórnvöld af fullri kurteisi undan- farnar þrjár vikur. Það er raunar hófsöm lýsing á afstöðu ríkisstjórn- arinnar, þar sem ráðherrar hennar hafa lýst framkomu bandarískra stjórnvalda í þessum máli, sem hreinum og klárum dónaskap í garð íslendinga. Svar Parkers Borg, sendiherra Bandaríkjanna á íslandi, þegar blaðamaður Morgunblaðsins innti hann eftir viðbrögðum bandarískra stjórnvalda við þeirri gagnrýni sem stjórnvöld hafa sett fram á þau bandarísku var svohljóðandi: „Sendiráðinu er kunnugt um efni- sinnihald viðtala við ráðherra ríkis- stjórnarinnar, sem birtust í Morgun- Talið útilokað að fresta ákvörðun Kapp lagt á samningavíð- ræður blaðinu. Við viljum ekki tjá okkur um viðtölin. Við höfum útvegað ís- lenskum stjórnvöldum allt sem þau hafa farið fram á, í sambandi við þyrlur. Ástæða þess að einvörðungu einn maður var í bandarísku sendi- nefndinni, er sú að það var ekki fyrr en síðastliðinn föstudag, sem sendi- ráði Bandaríkjanna varð kunnugt um þá ósk íslenskra stjómvalda, að hingað kæmi bandarísk sendinefnd eigi síðar en á þriðjudag í þessari viku. Við höfum ekkert að segja um efnislegt innihald viðræðna þeirra sem farið hafa fram.“ Þyrlukaupamál hafa tekið á sig hinar sérkennilegustu myndir að undanfömu. Hvað eftir annað hefur komið upp á yfirborðið ágreiningur -------- á milli Jóns Baldvins Hannibalssonar utanríkis- ráðherra og Þorsteins Pálssonar dómsmálaráð- _____ herra, þar sem Davíð Oddsson forsætisráðherra hefúr miðlað málum. Fyrir þremur vikum, þegar Bandaríkjamenn höfðu dregið verð- kynningu sína til baka og beðist velvirðingar á eigin klúðri, taldi Þor- steinn rétt að nú yrði tekið af skarið og ákveðið að kaupa Super Puma. Þá var það Davíð Oddsson forsætis- ráðherra, sem kvað upp úr með það, að þriggja vikna frestur yrði veittur, til þess að fá botn í það, hvort samn- ingsflötur væri fyrir hendi um framtíð þyrlubjörgun- arsveitarinnar í viðræðum við Bandaríkjamenn. Þorsteinn Pálsson tók þessari ákvörðun forsætisráðherra ekki ýkja vel, en ákvað engu að síður að una henni. Ríkisstjórnin, einkum þeir Davíð, Friðrik, Jón Baldvin og Sig- hvatur, gerðu sér í framhaldi þessa, vonir um að þriggja vikna fresturinn yrði nýttur á þann veg, að hægt væri að kveða upp úr með það, eigi síðar en í dag, hvort grundvöllur væri fyrir því, að óska eftir formleg- um samningaviðræðum við banda- rísk stjórnvöld um framtíð þyrlu- björgunarsveitarinnar á Keflavíkur- flugvelli og íslenska verktöku. Nú telur ríkisstjórnin á hinn bóg- inn ófært að bíða með ákvörðun um MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. MAÍ 1994 27 alvara lægi að baki tilboðinu, en ekki eitthvert innihaldsrýrt „snakk“. Sú skoðun hefur á vissan hátt verið að breytast, undanfarna daga og vikur, þar sem engin skýr svör hafa fengist frá Bandaríkjamönnum, og engin niðurstaða í sjónmáli á þeim bæ. Vissar efasemdir eru því uppi nú, um hversu mikil alvara var að baki þessu tilboði Perrys. Ríkisstjórnin, með þá Davíð og Jón Baldvin í fararbroddi, hefur lagt kapp á að kannað yrði til hlítar, hvort hægt sé að ná samningum um framtíðarrekstur þyrlubjörgunar- sveitar í Keflavík, þar sem Islending- ar komi að rekstrinum með verk- tökusamningum. Þar sem enn vantar mikið á, að afstaða Bandaríkjanna sé skýr og takmörkuð vinna virðist hafa farið fram af þeirra hálfu, er niðurstaðan sú, að ríkisstjórnin ákveður á fundi sínum á þriðjudag, að halda sig við þann kost að kaupa Super Puma þyrluna, eins og dóms- málaráðherra og þyrlukaupanefnd leggja til. Þó með því hugarfari, að slík kaup setji á engan hátt strik í reikning- inn, að því er varðar framhaldsvið- ræður við Bandaríkjamenn. Ríkis- stjórnin vill halda því opnu, að ef viðunandi samningar takast á milli íslands og Bandaríkjanna, verði bundið þannig um hnúta í kaup- samningi á Super Puma þyrlunni, að þar verði einhver fyrirvari um endursölu. Það munu líða 12 til 14 mánuðir, frá því að kaupsamningur er undir- ritaður, þar til Super Puman verður afhent. Við undirritun verða greidd- ar 100 milljónir króna, en eftirstöðv- ar við afhendingu. Áður en það verð- ur, verður þyrlan tekin í nákvæma yfirferð, þar sem hún verður tekin í sundur og við samsetningu hennar verður síðan bætt búnaði, sam- kvæmt þeim kröfum sem Langhelg- isgæslan gerir til útbúnaðar björgun- arþyrlu. Jón Baldvin hefur haft af því áhyggjur, að ef ríkisstjórnin ákveður að kaupa Super Puma, muni Banda- ríkjamenn skoða slíka ákvörðun sem vísbendingu um, að hér sé enginn áhugi á því, að ganga til samninga við Bandaríkin á grundvelli tilboðs Perrys varnarmálaráðherra. Því muni Bandaríkjamenn telja sig óskuldbundna íslendingum og ákveða að flytja þyrlubjörgunar- sveitina heim til Bandaríkjanna við næstu endurskoðun vamarsamnings íslands og Bandaríkjanna. Ríkisstjórnin ætlar að leggja áherslu á það, í kjölfar ákvörðunar um kaup á Super Puma, að þessi ákvörðun sé á engan hátt vísbending um slíkt áhugaleysi íslenskra stjórn- valda. Þvert á móti sé einhugur inn- an ríkisstjórnarinnar, um að það verði forgangsverkefni á næstunni að leita eftir samningum við Banda- ríkin. Raunar er það viðhorf uppi innan ríkisstjórnarinnar, að seinagang bandarískra stjórnvalda í þessu máli megi skýra á þann veg, að Banda- ríkjamenn hafi litið þannig á, að við- ræðugrundvöllur sá sem dr. Perry bauð upp á, að því er varðar þyrlur varnarliðsins, væri mál sem ætti að skoðast rækilega af hálfu beggja aðila, á þeim tveimur árum, sem varnarsamningurinn nær til, en ekki innan þröngra tímamarka. Sé það raunin, verður vissum þrýstingi létt af stjórnvöldum, með því að ákveða Super Puma kaupin og þannig ætti að gefast svigrúm til viðræðna við Bandaríkjamenn, þegar stjórnvöld eru laus við hina háværu kröfu þingheims, almenn- ings og Landhelgisgæslu um að ganga þegar í stað frá þyrlukaupum. Þetta er að vísu undir því komið, að stirðleikar í samskiptum banda- rískra og íslenskra stjórnvalda verði ekki viðvarandi, vegna þess vand- ræðagangs sem ítrekað hefur komið upp í samskiptum ríkjanna að undan- förnu. Ríkisstjórn íslands gerir sér vonir um, að sú óánægja sem hún hefur látið í ljós með vinnubrögð þeirrar bandarísku, geti orðið til þess, að Bandaríkjamenn komi af krafti til viðræðna, með skýra af- stöðu og greinargóð svör. ÞYRLUMÁL Parker Borg Dr. William Perry þyrlukaup lengur, enda liggur fyrir, að Þorsteinn Pálsson myndi ekki ljá máls á því að ákvörðun yrði frestað enn einu sinni. Jón Baldvin hefur gefið í skyn, að nauðsynlegt sé að fresta ákvörðun enn um sinn, en hann hefur ekki fylgi til slíks í ríkis- stjórninni. Forsætisráðherra er sam- mála dómsmálaráðherra, að ekki komi til greina að fresta ákvörðun. Auk þess hefur Alþingi kveðið upp úr um það, að þyrla skuli keypt og þrýstingur er mikill á ríkisstjórnina frá fjölmörgum þingmönnum, al- menningi og starfsmönnum Land- helgisgæslunnar, að þeirri ákvörðun þingsins verði nú hrint í framkvæmd. Ríkisstjórnin telur að sá kostur sem dr. William Perry, þá starfandi varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, nú varnarmálaráðherra, bauð upp á hér á landi, í janúarbyrjun, sé mjög álitlegur. Perry bauð upp á þennan kost, bæði á fundi sem hann átti með forsætisráðherra og á fundi með utanríkisráðherra. Ríkisstjórnin taldi, að þetta hátt- settur starfsmaður bandaríska vam- armálaráðuneytisins gæti ekki boðið upp á kost sem þennan, nema full Neitar að tjá sig um gagn- rýni íslenskra stjórnvalda. Segir banda- rísk stjórnvöld hafa veitt þær upplýsingar sem um var beðið. Reifaði í árs- byrjun tilboð um samstarf og verktöku ís- lendinga, varð- andi rekstur þyrlubjörgunar- sveitarinnar. Tilboðið fæst ekki staðfest Taldi ófært að fresta ákvörðun eina ferðina enn. Vill upplýsingar um afstöðu Bandaríkja- manna. Vildi ákvörðun um kaup á Super Puma og fær hana. Davíð Oddsson Jón Baldvin Ilannibalsson Þorsteinn Pálsson Fáleikar milli ríkjanna um stund EITT HJARTA MÚ SÍKALSKT Það hlýtur fleirum en mér að blöskra, segir Þuríður Pálsdóttir, að Helgi Hálfdanarson skuli bannfæra opinberlega íslenskt tónverk og flytjendur þess og heimta að Ríkisútvarpið útskúfi verkinu til að þjóna lund hans. Þar sem mér er málið nokkuð skylt, fæ ég ekki orða bundist. Þuríður Pálsdóttir HÚN VAR köld kveðjan sem Helgi Hálfdanarson sendi tónskáldinu Jórunni Við- ar í sumarbyijun. í inn- rammaðri grein í Morgunblaðinu lít- ilsvirðir hann gullfallegt sönglag Jómnnar við ljóð eftir Stein Steinarr og niðurlægir þá söngvara sem flutt hafa umrætt lag. Hann gengur svo langt að krefjast þess að Ríkisútvarpið „afræki allan flutning“ á ljóði og lagi. Það hlýtur fleirum en mér að blöskra að Helgi Hálfdanarson skuli bannfæra opinberlega íslenskt tónverk og flytjendur þess og heimta að Ríkisútvarp- ið útskúfi verkinu til að þjóna lund hans. Þar sem mér er málið nokk- uð skylt, fæ ég ekki orða bundist. Það var árið 1961 sem ég frumflutti fal- legt og einkar söng- hæft lag eftir Jóranni Viðar við ljóð Steins Steinars, Vort líf, vort líf. Tilefni flutnings þessa lags sem ég flutti ásamt tónskáldinu, var tónskáldakynning í Ríkisútvarpinu. Fleiri tónverk Jór- unnar voru flutt við sama tækifæri og kynnti Páll ísólfsson tónskáldið áður en tónflutningurinn hófst. Hann sagði meðal annars: „Gáfur hennar komu mjög snemma í ljós, sérstaklega vakti óskeikul heyrn hennar athygli þegar á barnsaldri. Listin er henni í blóð borin og fant- asía hennar og hugarflug sívak- andi, enda kemur það vel í ljós þeg- ar hún töfrar fram verk meistar- anna á píanótónleikum sínum eða skrifar eigin hugsanir á nótnapapp- írinn, eins og nú mun best koma í ljós. “ Lögin sem ég flutti á tónskálda- kynningunni voru Gestaboð um nótt, ljóð Einar Bragi, Ung stúlka, ljóð Hannes Pétursson, Unglingur- inn í skóginum, ljóð Halldór Lax- ness, Júnímorgunn, Ijóð Tómas Guð- mundsson, Mamma ætlar að sofna, ljóð Davíð Stefánsson, og Vort líf, vort líf, ljóð Steinn Steinarr. Ég man enn hughrifin sem þessi lög og ljóð vöktu með mér og hve sterkt þau höfðuðu til sönggleðinnar. Enda fengu lögin vængi og eru nú dýr- mætar og vinsælar söngperlur. Lagið og ljóðið, Vort líf, er hríf- andi listaverk. Lagið lyftir ljóðinu. Það er samið í 3/4 takti og með flúrsöng sem undirstrikar að ljóðið er ort um tónlistarmann, sem gerir sönglagið afar skemmtilegt og fag- urt. Jórunn valdi þau erindi sem hún vildi hafa þegar hún samdi lagið og sleppti þriðja og fimmta erindi ljóðsins. Ekkert erindi hefur sömu laglínu, heldur fylgir laglínan stemmningu hvers erindis fyrir sig. Sjálf hefur Jórunn aldrei notað titilinn, Til minningar um misheppn- aðan tónsnilling, heldur ber lagið yfirskriftina Vort líf. í ljóði Steins kemur fram glöggur skilningur á kjörum listamanna. Þar er orðað allt sem einkennt hefur líf hérlendra listamanna í aldanna rás, - hæfí- leikar, vilji til að gera vel, minni- máttarkennd, húmor, vonbrigði, fá- tækt og fálæti samborgaranna. Nið- urstaðan birtist í gullfallegu lokaer- indi ljóðsins: Og sízt vér munum syrgja hve smátt að launum galzt. An efa í æðra Ijósi expert og virtuose mun Herrann hærra setja eitt hjarta músíkalskt. Það sem máli skipti var hið ljóð- ræna, myndræna og músíkalska hjarta lista- mannsins. Sú staðreynd að hann átti ekki ann- arra kosta völ en að lúta sinni listagyðju. Þannig skilja flestir listamenn ljóð Steins Steinars. Söngvarar sækjast eftir að syngja það og finna til innlif- aðrar samúðar og hlýju til Jóns Pálssonar við flutninginn, skilja hann og finnst þeir á ein- hvern hátt deila með honum kjöram. Slíkir eru töfrar þessa lags. Ekkert er fjarri flytj- endum en háð og spé. Um það get ég vitnað eftir áratuga starf með íslenskum einsöngvurum. Ekki þekkti ég persónulega Jón Pálsson, en heyrði að hann væri músíkalskt ljúfmenni. Helgi Hálf- danarson skrifar um dapurleg enda- lok Jóns, en um þau yrkir Steinfi ekki. Ég álít ekki rétt að Steinn Stein- arr hafi mjög fljótt verið viður- kenndur sem eitt af fremstu skáld- um þjóðarinnar, eins og Helgi held- ur fram. Hann var þvert á móti mjög umdeildur. Það voru ekki síst skáldbræður hans sumir hveijir, og menntamenn sem voru tregir til að viðurkenna list hans. Einnig er vert að gefa því gaum, að á þeim tíma sem Halldór Laxness skrifar ritdóm þann um Stein sem Helgi nefnir, var Halldór sjálfur ekki alls staðar í náðinni. Kristján Karlsson hefur varið ljóð Steinars og er það maklegt. Þeír gáfumennirnir hafa skrifast á, aðal- lega um eintölu og fleirtölumerk- ingu í ljóðinu. Ávirðingar á Jórunni Viðar virðast litlu máli skipta. Er snilldarkvæði Steins ef til vill sífellt að sanna sig: vor list var lítils metin, og launin eftir því. Jórunn er eitt okkar fremsta sam- tímatónskáld. Hún er frábær píanó- leikari og hefur helgað sig tónlistac- starfí frá unga aldri, er afar tón- elsk, hefur yndi af nútímaskáldskap og semur gjarnan tónverk við nú- tímaljóð. Hún hefur einnig unnið mikið úr íslenskum þjóðlögum, eink- um þulum, sem hún hefur beinlínis lyft úr öskustónni. Jórunn Viðar er hógvær listamaður sem hefur unnið að list sinni af lítillæti og óþreyt- andi eljusemi og nýtur nú heiðurs- launa frá alþingi. Svo er spurningin: Hvers vegna er Helgi Hálfdanarson núna fyrst Helgi Halfd; anarson VORT LIF, VORT LÍF Hvað eílir annað er Rík- isutvarpið að gæða hlustum landsmanna á sönglagi Jórunnar Viðar við kvæði Steins Steinars, sem hefst á ^jóðllnunum: „Vort líf, vort líf, Jón Pálsson, / er líkt og nóta fölsk.“ Illa tríii óg |>ví, að ég sé einn um að hneykslast á þessari list- kynningu. Þó að Steinn Steinarr sé eitl af eftirlætis-skáldum inln- um, gongið verr en illa honum manns, sem þeim, er til þekktu, ber saman um, að veriö hafi vammlaus, fáskipiinn öðlingur, öllum góðviljaður. Sár vonbrigði urðu þeim manni um megn, og hann fannst rekinn á fjöru við Örfirisey. Eftirmælin kórónar skáldið meö fyrírsögninni: „Til minningar um misheppnaðan tónsnilliiig.“ Með vafasömum rótti hefur vcrið reynt að kalla þi'lta gys „góðlátlegt“, og gerir það tóninn f kvæðinu einungis j>eim mun naprari. ti ég hiðja menn að bera ^nnan kv^ðskap Steins fails Jóns Pálssonar; það stað- fesli Tórnas sjálfur í mín eyru. Sleini Steinari er sízt með þrí greiði gi»rður, að þessari smekk- leysu sé á loft. haldið. Satt að segja furðar mig, að svo prýði- legur lisUmaður sem Jórunn Viðar skyldi í það sinn ekki finna sér verðugra viðfangsefni; og ég undrast, að sæmilegir sötigvarar skuli vilja spreyta sig á þessy naglaskaupi um látinn listbróður sinn öðru frcmur. Út. yfir tekur þó, að Ríkisút- varpið skuli gera sér það U1 van- _sæmdar að^Ujgf^a þessu upp f líær væri, að Þegar ég var lítil telpa og bjó á æskuheimili mínu að Mímisvegi 2 í Reykjavík, var mér eitt sinn sagt að hafa hægt um mig, því að fræg- ur listamaður myndi koma og æfa á flygilinn sem stóð í stofunni. Og næstu daga sat alvörugefinn hvít- hærður maður og lék tímunum sam- an stórkostlega tónlist. Þessi maður var Ignaz Friedman, heimsfrægur píanóleikari og talinn fremsti Chop- in-túlkandi heims. Hann hélt þrenna tónleika í Reykjavík og koma hans var stórviðburður í tónlistarlífi bæj- arins. Friedman var vissulega bæði „expert“ og „virtuose“ og það er öruggt að „hæðnishláturinn“ var ekki að list Jóns Pálssonar eins og Helgi Hálfdanarson heldur fram, heldur er miklu fremur átt við hæðnishlátur Jóns sjálfs að svo ójöfnum samanburði. Vér lékum Tarantella, Noctume, La Campanella. Svo gall við hæðnishlátur: Hvað hefði Friedman sagt? að geðvonskast yfír ljóði sem Steinn Steinarr orti fyrir meira en hálfri öld? Og yfír lagi sem var frumflutt fyrir þrjátíu og þremur árum? Lagi sem flutt hefur verið af fjölmörgum söngvurum bæði í útvarpi, á hljóm- leikum og á hljómplötum. Hvað dvaldi hann öll þessi ár? Vitað er, að Helgi Hálfdanarson á erfitt með að leggja frá sér penn- ann þegar hann leggst í blaðaskrif. Skrif hans, sem og hann sjálfur, hafa jafnan notið verðskuldaðrar virðingar. Ég treysti því, að virðing- arleysi það sem hann sýnir viður- kenndu íslensku tónskáldi og ís- lenskum söngvurum, hafí verið án ásetnings. Ég vil svo gjarnan trúa því, að í bijósti hans bærist það sem Steinn Steinarr svo fagurlega orð- ar, - eitt hjarta músíkalskt. Höfundur er söngvari.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.