Morgunblaðið - 06.05.1994, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 06.05.1994, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. MAÍ 1994 15 VIÐSKIPTI Flugfélög Svartasta árið í sögu Air France Tap félagsins nam 8,5 milljörðum franka 1993 París. Reuter. AIR FRANCE segir að nettótap fé- lagsins hafi numið 8,48 milljörðum franka (1,47 milljörðum dollara) 1993 og verið næstum því þrisvar sinnum meira en tapið 1992, þegar það nam 3,3 milljörðum franka. „1993 var dekksta ár í sögu Groupe Air France,“ segir í tilkynningu frá félaginu. Staða franska ríkisflugfélagsins hríðversnaði á árinu á aðalmarkaði þess í Frakklandi og alvarlegar vinnudeilur voru því til trafala að því er segir í yfirlýsingunni. Félagið reynir nú að snúa baki við fortíðinni og endurskipuleggja fyrirtækið til þess að gera það samkeppnishæft á markaði, þar sem samkeppni er hörð og mun harðna enn meir á næstu árum þegar höft verða afnumin í evrópsku áætlunarflugi. Eitt síðasta dæmið um harðnandi samkeppni er yfirlýsing frá fram- kvæmdastjórn Evópusambandsins þess efnis að Frakkar verði beðnir um að leyfa franska félaginu TAT, sem er í eignartengslum við keppi- nautinn British Airways, að halda uppi ferðum frá Orly-flugvelli við París til Lundúna, Marseilles og To- ulouse. Þetta mun valda auknum þrýstingi á innalandsflugfélag Air France, Air Inter, sem hefur haft einokun á þessum vinsælu ferðum. Vinnudeilur í október varð Air France fyrir alvarlegu verkfalli, sem leiddi til af- sagnar Bernards Attalis þáverandi stjórnarformanns, sem vildi endur- skipuleggja félagið og segja 4.000 manns upp störfum. Eftirmaður Attalis, Christian Blanc, hóf langvinnar sanmingaum- leitanir til þess að tryggja samstöðu um sparnaðaráætlun. Þegar um 14 verkalýðsfélög um 40.000 starfs- manna Air France höfðu hafnað áætluninni efndi Blanc til atkvæða- greiðslu um áætlunina meðal starfs- mannanna. Á óvart kom að 81 af hundraði þeirra samþykkti áætlun- ina, sem hefur verið tengd beiðni félagsins til ríkisins um 20 milljarða franka ríkisstyrk til þess að endur- fjármagna félagið og grynnka á 37 milljarða franka skuld þess. Framkvæmdastjórn Evrópusam- bandsins hefur til athugunar hvort enduríjármögnunin samrýmist sam- keppnireglum Rómarsáttmálans. Samkvæmt áætlun Blancs verður 5.000 mönnum sagt upp á þremur árum, vinnutími verður lengdur og laun fryst til þess að auka framleiðni og samkeppnishæfni. Skrifstofufólki verður fækkað, svo og flugvélum. Hoogovens Hagurinn vænkast Beverwyk, Stokkhólmi. Reuter. BÚIST er við, að hagnaður verði af rekstri hollenska stórfyrirtækisins Hoogovens á þessu ári eftir verulegt tap þijú ár í röð. Er það einkum mikill stálútflutningur til Bandaríkj- anna, sem veldur umskiptunum. Hoogovens hefur tapað nærri hálf- um milljarði dollara á þremur árum en vegna efnahagsbatans í Banda- ríkjunum hefur eftirspurn eftir unnu og hálfunnu stáli aukist töluvert. Sú hækkun, sem orðið hefur á álverði að undanförnu, hefur það hins vegar í för með sér að álframleiðslan er nú í járnum. QuarkXPress námskeið 94022 Tölvu- og verkfræöiþjónustan Tölvuskóli Halldórs Kristjanssonar Grensásvegi 16 • ® 68 80 90 Uta n k j ö rstaðaskr if stof a Sjálfstæðisflokksins Valhöll, Háaleitisbraut 1,3. hæð. Símar: 91-880900, 880901,880902. Utankjörfundar atkvæðagreiðsla fer fram hjá sýslumanninum í Reykjavík, Ármúlaskóla, virka daga kl. 10-12,14-18 og 20-22. Skrifstofan gefur upplýsingar um kjörskrá og allt sem lýtur að kosningum Aðstoð við kjörskrárkærur. Stuðningsfólk Sjálfstæðisflokksins! Vinsamlega látið okkur vita um aila kjósendur sem ekki verða heima á kjördag, 28. maí n.k. Reyltjavík €> flBSiíKir "tQ* i ék Golfvörur í miklu HH íív.'.'Í’T/- »wr. úrvali ! Wftgy&þ ' ‘V s,Æt - iMfy. ‘ • ,3Í HPnE jJr ’ Í j > ^ ^ m Opið föstudag frá kl. 9-18.30 Laugardag frá kl. I0-I3 mmLL :t,mmúTiLíFmm I GLÆSIBÆ • SÍMl 812922 • jf % | mmanon 1 Teykjavíkurvegi 64 • Hafnarfirði • Sími 651147 i p ■ 1 Silk Lux dragtirnar eru komnar, jakkar, pils, buxur og vesti. wmm 1 Einnig margar gerðir af drögtum, blússum, peysum, vestum og bolum. I’ v|||!£ | Opið frá kL 10 til 18. Lokað á laugaráögum. 1 Með einkaþotu urocard tii fyrir aðeins 25.820 kr, eða minna á mann! • r r .-5. jum Nú átt þú kost á að slást í för með glað- beittum handhöfum __________________________ Eurocard til Hamborgar í þotu á vegum Samvinnuferða-Landsýnar. Og þú hefur sannarlega ástæðu til að hlakka til: Framundan eru þrír heilir dagar í hinni gróðursælu og fögru Hamborg þar sem færi gefst á að njóta alls þess sem hin fjöruga borg hefur upp á að bjóða. Og verðið er frábært: Aðeins 25.820 kr. á mann. f þú ert handhafi ATLAS- eða gullkorts frá arocard færðu þar að auki 4000 kr. afslátt því 'sláttarávísunin gildir einnig fyrir þessa ferð.* Hamborg býður upp á ótal möguleika: Sigling á Alstervatninu eða gönguferð um þröng stræti gamla borgarhlutans þar sem ilminn leggur frá notalegum veitingahúsum og ævafornar bjórkrár eru á hverju strái. Það er gott að versla í Hamborg. I nýju, fjölbreyttu verslanahverfi sem tengist aðaljárnbrautarstöðinni, skammt frá hótelinu, er hægt að versla fram á kvöld bæði laugardag og sunnudag. ♦ Flogið verður frá Keflavík kl. 6.45 á föstudagsmorgni og til baka frá Hamborg kl. 20.00 á sunnudagskvöldi. Gist verður á fyrsta flokks hóteli, Holiday Inn Crowne Plaza, morgunverður innifalinn og íslenskur fararstjóri verður með hópnum. Innifalið í verði: Flug, gisting, morgunverður, fararstjórn, akstur til og frá flugvelli erlendis, skattar og gjöld. Hafðu strax samband við Samvinnuferðir-Landsýn °g tryggðu þér sæti í þessa einstöku ferð. Samvinnuíerúip Lanásýn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.