Morgunblaðið - 06.05.1994, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 06.05.1994, Blaðsíða 14
14 FÖSTUDAGUR 6. MAÍ 1994 VIÐSKIPTI MORGUNBLAÐIÐ Fjárfestingarlán Tap Iðnlánasjóðs 565milljónir kr. á síðasta ári Hagnaður 50,6 milljómr fyrstu þrja manuðma TAP Iðnlánasjóðs á sl. ári nam alls um 565 milljónum króna samanborið við 56 milljóna hagnað árið 1992. Þessi slaka afkoma sjóðsins orsakast annars vegar af því að framlag í afskriftarreikning var stórhækkað og nam 954 milljónum á árinu í stað 439 milljóna árið 1992. Hins vegar lækkuðu hreinar fjármunatekjur fyrir framlög á afskriftarreikning úr um 648 milljónum 1992 í 469 milljónir 1993. Gert er ráð fyrir að afskriftar- framlagið lækki verulega á þessu ári þannig að sjóðurinn skili hagnaði. Um 50,6 milljóna hagnaður varð á Ástæður fyrir lækkandi fjár- magnstekjum fyrir framlög í af- skriftarreikning eru þau að vaxta- munur sjóðsins hefur lækkað sam- hliða lækkandi vöxtum hér á landi. Þá ber aukinn hluti af eignum sjóðs- ins ekki vexti vegna eigna sem sjóð- urinn hefur þurft að yfirtaka. Tryggingar fyrir útlánum hafa misst upphaflegt gildi sitt Á árinu 1993 voru lagðar 720,6 milljónir á afskriftarreikning vegna tiltekinna útlána sem talin eru í taps- hættu og einnig vegna mismunar á bókfærðu verði yfirtekinna eigna og líklegs markaðsverðs þeirra. Að auki var um að ræða almennt framlag á afskriftarreikninginn af varúðará- stæðum að fjárhæð 173,1 milljón eða sem svarar til 2,25% af útlánum. Endanlega voru hins vegar afskrifuð útlán að fjárhæð 791 milljón. sjóðnum fyrstu'þrjá mánuði ársins. Bragi Hannesson, forstjóri Iðn- lánasjóðs, rakti í sínu erindi á árs- fundi sjóðsins í gær helstu ástæður fyrir miklum afskriftum útlána á sl. ári. „Efnahagslægð undanfarinna ára er nú að koma niður á mörgum iðnfyrirtækjum með vaxandi þunga. Markaðsverð atvinnuhúsnæðis hefur lækkað verulega og við það hafa tryggingar misst upphaflegt gildi sitt. Markaðsverð tækja hefur hrun- ið í iðngreinum þar sem afkastageta er orðin of mikil. Samdráttur í eftir- spurn ýmissa vara og þjónustu hefur kippt fótunum undan mörgum fyrir- tækjum. Gengisfellingar og verð- bólga hafa á undanförnum árum hækkað höfuðstól lána á sama tíma og markaðsverð atvinnuhúsnæðis hefur lækkað. Gjaldþrot fyrirtækja hafa komið hart niður á öðrum fyrir- tækjum. Verktakastarfsemi og mannvirkjagerð er í algjöru lág- UMHVERFISVIÐURKENNING — Sæpiast hf á Dalvík hlaut umhverfisviðurkenningu Iðnlánasjóðs fyrir árið 1993. Það var Jón Baldvin Hannibalsson, utanríkisráðherra sem afhenti Kristjáni Aðalsteinssyni, framkvæmdastjóra Sæplasts verðlaunin á ársfundi sjóðsins í gær. Fyrirtækið þykir afar gengið á undan með góðu for- dæmi bæði hvað varðar aðbúnað starfsmanna og urhhyggju fyrir umhverfinu. Jafnframt hefur það leitast við að fullnægja kröfum neyt- enda um vistvænar vörur. Þá er í húsakynnum Sæplasts fullkominn mengunarvarnarbúnaður, stuðlað er að endurnýtingu hráefna og men- guðum úrgangi komið til eyðingar. marki enda verulegur samdráttur í fjárfestingum." Bragi gerði ennfremur grein fyrir endurbótum á starfi Iðnlánasjóðs undanfarin ár sem miðað hefðu að því að gera starf sjóðsins öruggara og árangursríkara. Hann rifjaði upp að rekstur IðnJánasjóðs hefði verið gerður sjálfstæður í upphafi árs 1990 en þegar á árinu 1989 hefði verið gerður samningur við Price Waterhouse/IKO um úttekt á skipu- lagsmálum sjóðsins. Lánanefnd vinnur eftir sérstöku lánareglum sem stjórn sjóðsins setur og tekur stjórn t.d. ákvörðun um afgreiðslu umsókna sem eru hærri en 30 millj- ónir. Þar að auki hefur sérstök stefnumótunarnefnd unnið að verk- efnum í tengslum við útlán og trygg- ingar sem miða að því að vanda afgreiðslu lánsumsókna og bæta Geir A. Gunnlaugsson, stjórnarformaður Iðnlánasjóðs, um útlánatapsvandann Kröfur lánastofnana um upp- lýsingagjöf alltof vægar Iðnlánasjóður, Fjárfestingarlánadeild: Afskriftir 1991-93, flokkað eftir atvinnugreinum Húsgagna- og tréiðnaður (1 6)' F*oldl fynrtækia 20,1% GEIR A. Gunniaugsson, stjómarformaður Iðnlánasjóðs, telur kröfur ís- lenskra banka og fjármálastofnana um upplýsingagjöf fyrirtækja alltof vægar. Ársuppgjöri sé oft ekki skilað fyrr en hálfu eða heilu ári eftir lok rekstrarárs og eigi þetta ekki síst við um þau fyrirtæki sem eigi í erfíðleik- um. Hann segir jafnframt ljóst að íslenskar fjármálastofnanir hljóti í fram- tíðinni að gera auknar kröfur um eigið fé þeirra fyrirtækja sem þær lána til. Þetta kom fram í ræðu Geirs á ársfundi Iðnlánasjóðs í gær. Lagmetisiðnaður (6) Jámiðnaður(16) Gleriðnaður(l) Plastefmnaiðnaður (3) prentiðnaöur (8) Annað (25) Afskriftarreikningur í ársbyrjun 1993 Framlag vegna tilgreindra útlána Almennt framlag hækkað 2,25% Endanlega afskrifað 1993 Staða afskriftareiknings í árslok Mllljónlr kr. 586,50 +720,60 +173,10 -791,10 689,10 ) 10,7% „Miðað við þá vitneskju og reynslu sem ég hef af rekstri fyrir- tækja erlendis eru kröfur þær sem íjármálastofnanir í fjölmörgum öðr- um löndum gera til eigin fjár og um upplýsingagjöf fyrirtækja mun meiri en hér tíðkast. Mjög algengt er að fyrirtækin verði að senda bönkum og fjármálastofnunum mánaðarlegar upplýsingar um rekstur. Á þetta ekki hvað síst við ef tap er á rekstri eða hann gengur illa. Berist þessar upplýsingar ekki, eru lán gjaldfelld," sagði Geir m.a. i ræðu sinni. Fjárfestingarbankinn Hann sagðist telja að íslenskir bankar og fjármálastofnanir ættu að gera auknar kröfur um upplýs- ingar frá fyrirtækjum og gera mun fyrr kröfur til fyrirtækja um aðgerð- ir til endurbóta í rekstri en gert væri. „I mjög mörgum tilfellum má minnka það tjón sem yfirvofandi er ef gripið er til aðgerða strax.“ - kjarni málsins! Geir gagnrýndi í ræðu sinni á ársfundinum að frumvarp um stofn- un íslenska fjárfestingarbankans hf. með samruna Iðnlánasjóðs og Iðnþróunarsjóðs hefði ekki náð fram að ganga. I frumvarpinu var gert ráð fyrir því að hagsmunasam- tök í iðnaði eignuðust hlut í ís- lenska fjárfestingarbankanum á móti ríkissjóði sem síðan yrði heim- ilt að selja sinn hlut í bankanum. „Talið var að allgóð samstaða hefði tekist um þetta mál því með því hefði verið stigið mikilvægt skref til eflingar íslenskum iðnaði, stofn- aður hefði verið öflugur fjárfesting- arbanki og tryggð hefðu verið fram- lög til vöruþróunarverkefna. Því miður hefur þetta mál strandað á andstöðu nokkurra aðila sem beitt hafa áhrifum sínum.“ Hann sagði mikilvægt að mál þetta fengist leyst eftir þeim megin- leiðum sem frumvarpið gerði ráð fyrir. „Með sameiningu fjárfesting- arlánasjóða iðnaðarins á að nást fram aukin hagræðing sem leitt getur til lækkandi vaxta. Þá er nauðsynlegt í ástandi doða og kreppu að tryggja aukin framlög til vöruþróunar og markaðsmála og rétt að nota hlut og ávöxtun eigin fjár Iðnlánasjóðs og Iðnþróunar- sjóðs í því sambandi." verklagsreglur við lögfræðilega inn- heimtu, skuldbreytingar og mál í sérstakri skoðun. Meðal annarra breytinga var stofnun sérstakrar lánaeftirlits- og eignadeildar sem hefur frá árinu 1992 haft skipulags- bundið eftirlit með stöðu einstakra útlána Iðnlánasjóðs. „Með þessum aðgerðum og miklu varúðarframlagi í afskriftarreikning útlána verður ekki séð að þörf verði á endurtekningu afskriftarframlags í líkingu við það sem varð á árinu 1993. Samkvæmt áætlun mun Iðnl- ánasjóður vera rekinn með hagnaði á þessu ári. Fyrir liggur árshlutaupp- gjör Iðnlánasjóðs fyrir fyrstu þijá mánuði ársins 1994 sem stjórn sjóðs- ins hefur fjallað um og endurskoð- endur hafa kannað og áritað. Sýnir það hagnað upp á 50,6 milljónir eft- ir framlag til afskriftarreiknings og skatta," sagði Bragi. Lánsfjár aflað innanlands Rekstrarkostnaður Iðnlánasjóðs varð alla samkvæmt reikningum sjóðsins 122,5 milljónir en í þessari tölu er 7,5 milljóna kostnaður sem einkum er vegna reksturs yfirtekinna eigna. Rekstrarkostnaður að frátöld- um þessum lið varð 115 milljónir en var 120 milljónir árið áður. Er stefnt að áframhaldandi lækkun á rekstrar- kostnaði sjóðsins á árinu 1994. Stefnt er að því að nýta lántöku- heimildir Iðnlánasjóðs sem eru 2.600 milljónir á þessu ári með öflun lánsfj- ár á innlendum lánamarkaði. Þegar hefur verið aflað 550 milljóna með skuldabréfaútboði. Þá hafa verið sett á markaðinn bréf að fjárhæð 300 milljónir en það íjármagn verður notað til að greiða innlent lán með 8,65% vöxtum. Heildarútlán í árslok voru 13.767 milljónir. Eigið fé í árslok var 2.694 milljónir og eiginfjárhlutfall 24% samkvæmt Bis-reglum. Slagur um söluhæsta lyfiðí heiminum London. Reuter. BREZKA lyfjafyrirtækið Glaxo hefur höfðað mál til þess að koma í veg fyrir að ein rekstrar- eining keppinautarins Ciba- Geigy selji ódýra eftirlíkingu af metsölulyfinu Zantac, sem er notað gegn magasári, í Banda- ríkjunum. Málið höfðar Glaxo til þess að halda gífurlegum tekjum sín- um af Zantac fyrir dómstóli í New Jersey gegn fyrirtækinu Geneva Pharmaceuticals, sem er sakað um brot á einkaleyfi. Glaxo segir að frá 1996 ætli Geneva að selja gerð af Zantac- lyfinu með efni úr upphaflegu formúlunni, sem var notuð, og að það sé brot á einkaleyfi Glaxo til ársins 2002 á nýrri formúlu, sem nú er notuð. Tekjur Glaxo af Zantac nema 2,2 milljörðum punda á ári. Sala á lyfinu nemur 44% af allri sölu Glaxo og sérfræðingar telja að 2A af hagnaði fyrirtæk- isins eigi rætur að rekja til lyfs- ins. Geneva-fyrirtækið lét til skar- ar skríða gegn einkaleyfi Glaxos í síðasta mánuði með því að leggja fram umsókn um að selja Zantac, og kvaðst hafa fundið leið til þess að framleiða efnið í upphaflegu formúlunni — virka efnafræðilega efnið í Zantac - sem bryti ekki gegn einkaleyfi Glaxos á síðari formúlunni. Nú hefur Glaxo svarað fyrir sig. Þar sem Glaxo lét skríða til skarar áður en 45 dagar eru liðn- ir síðan Genfar-fyrirtækið lagði fram umsókn sína verður um- sóknin lögð til hliðar. Sam- kvæmt bandarískum lögum er líklegt að umsóknin verði ekki samþykkt í 30 mánuði.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.