Morgunblaðið - 06.05.1994, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 06.05.1994, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. MAÍ 1994 39 Ratleikur á vímu- varnar- daginn LIONSHREYFINGIN á íslandi hefur ákveðið að fyrsti laugar- dagurinn í maímánuði ár hvert skuli tileinkaður vímuvörnum. í tilefni af vímuvarnardeginum, 7. maí nk., gengst Lionessu- klúbbur Njarðvíkur fyrir rat- leik. Strætó fer frá Grunnskóla Njarðvíkur kl. 10.45 en leikur- inn hefst við Safnaðarheimilið í Innri-Njarðvík kl. 11. Strætó mun svo fara frá Innri-Njarðvík að Grunnskólanum að leik lokn- um kl. 12. Lionessur vonast til að Njarðvíkingar ijölmenni og taki þátt í skemmtilegum leik í fal- legu umhverfi. Þess má geta að ratleikurinn er framlag Lio- nessuklúbbsins til dagskrár, á ári fjölskyldunnar í Njarðvík. Einnig munu félagar úr Skátafélaginu Víkveija selja túlipana í tilefni af vímuvarnar- deginum. Nýr formað- ur Fjölnis AÐALFUNDUR Fjölnis FUS Rangárvallasýslu var haldinn í félagsmiðstöðinni á Hellu 13. apríl sl. Sveinn Óskar Sigurðsson baðst lausnar sem formaður og bar upp tillögu þess efnis að Davíð Guðjónsson frá Heliu yrði næsti formaður og var hann kjörinn. Meðstjórnendur voru kjörnir Magnús Örn Gylfason, Ölafur Freyr Sigurðsson, Einar Ingi Magnússon, Hulda Karlsdóttir, Daníel Reynisson og Sverrir Guðfinnsson. Landsþing ITC hefst í dag SUZANNE Shiflet, alþjóðafor- seti ITC, og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, alþingismaður, verða heiðursgestir á níunda landsþingi Landssamtaka ITC á íslandi, en þingið hefst í dag og því lýkur á sunnudaginn. Stef landsþingsins er „Enginn keðja er sterkari en veikasti hlekkur hennar." Á lands- þinginu verð- ur fjallað um ýmis mál. Haldin verður sérstök ræðu- keppni, flutt erindi um samskipti og samspil í starfsum- „ e.._ . i Suzanne Sniflet hverfl, felag- alþjóðaforseti ITC vitund og ábyrga forystu, myndvarpa og fleiri hjálpargögn og um radd- beitingu. Þá mun Suzanne Shiflet flytja erindi um forystu. Landsþingið er öllum opið, en það fer fram á Hótel Sögu í Reykjavík. ITC eru frjáls og óháð fé- lagasamtök. í því eru aðilar sem öðlast þekkingu til að fást við ýmiss konar viðfangsefni sem þeir voru kannski ekki í stakk búnir áður en þeir gengu í ITC. Félagsskapurinn er op inn konum og körlum á öllum aldri. FRÉTTIR Á myndinni eru f.v. í efri röð: Gústav Sigurðsson, Águst Sverrir Egilsson, Þorsteinn Gunnarsson og Jón Hallsson, sem tók við styrknum fyrir hönd ímu Þallar Jónsdóttur. I neðri röð f.v. Ingi- björg Rósa Björnsdóttir, Vala Ágústsdóttir, sem tók við styrknum fyrir hönd Þorleifs Ágústssonar, og Kristín Friðgeirsdóttir. Námustyrkir úr Námu Landsbankans SJÖ námsmenn fengu styrk úr Námunni, námsmannaþjónustu Landsbanka íslands, 29. apríl sl. Allir námsmenn sem eru félagar í Námunni eiga rétt á að sækja um þessa styrki. Tæplega 400 umsóknir bárust að þessu sinni en félagar í Námunni eru tæp- lega tíu þúsund. Þeir sem hlutu Námustyrkinn eru: Ágúst Sverrir Egilsson, í doktorsnámi í stærðfræði við U.C. Berkeley í Kaliforníu, Þor- leifur Ágústsson, í doktornámi í dýralífeðlisfræði við Gauta- borgarháskóla, Kristín Frið- geirsdóttir, nemandi á 3. ári í vélaverkfræði við Háskóla fs- lands, Þorsteinn Gunnarsson, nemandi á fimmta ári í læknis- fræði við Háskóla íslands, Gústav Sigurðsson, nemandi á tónlistar- og náttúrufræðibraut við Menntaskólann við Hamra- hlíð og á 8. stigi í klarínettuleik við Tónlistarskólann í Reykja- vík, Ingibjörg Rósa Björnsdótt- ir, nemandi á fjórðu önn í félags- fræðibraut við Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi og íma Þöll Jónsdóttir, fiðlunemandi hjá herra og frú Vamos í Oberl- in Ohio í Bandaríkjunum. í dómnefndinni sem sá um val á styrkþegum voru: Dr. Gylfi Þ. Gíslason, fyrrverandi ráð- herra, Haraldur Hallgrímsson, formaður skólafélags Mennta- skólans við Hamrahlíð, Sverrir Hermannsson, bankastjóri, Kjartan Gunnarsson, formaður bankaráðs, og Kristín Rafnar, útibússljóri Vesturbæjarútibús Landsbanka íslands. Hjónin Signý og Loftur fyrir framan bústaðinn sem þau hlutu í vinning hjá Happdrætti DAS. Vinningnr afhentur DREGIÐ var í Happdrætti DAS 9. apríl sl. í vorpottinum. Aðalvinning- urinn, sumarbústaður í Hraunborg- um í Grímsnesi, kom á miða nr. 14230 í laufi. Eigandi miðans er Signý Ágústa Gunnarsdóttir, Jöldu- gróf 7, Reykjavík. Var bústaðurinn afhentur fyrir skömmu. Signý og Loftur Jens Magnússon hjá Strætisvögnum Reykjavík, eig- inmaður hennar, sögðust ætla að eiga bústaðinn og njóta hans með börnum og barnabörnum en þau eiga 7 uppkomin börn. Loftur hefur dyttað að ferðabíl sem hann hefur átt í mörg ár'og ferðast mikið um landið en nú gæti hann hætt því og farið að njóta lífsins í bústaðnum. Hátíð harmonikunnar HÁTÍÐ harmonikunnnar verður haldin á Hótel íslandi í kvöld, föstudagskvöld 6. maí. Dagskrá hefst kl. 20.15 og lýkur kl. 3. Dagskrá hátíðarinnar er viðameiri en dæmi eru um hérlendis. Tónleik- ar verða frá kl. 20.15 til u.þ.b. 23. Að loknu stuttu hléi hefst síðan harmonikuballið og stendur til kl. 3. Börn hefja tónleikana kl. 20.15. Kl. 21 tekur við stórsveit Harmon- ikufélags Reykjavíkur. Stjórnandi er Karl Jónatansson. Einnig koma fram hljómsveitir frá harmonikufé- laginu Léttum tónum undir stjórn Karls Adólfssonar og frá Harmon- ikufélagi Rangæinga undir stjórn Grétar Geirssonar. Þá koma fram ýmsir harmonikuleikarar í einleik og samleik. Heiðursgestur kvöldsins er að þessu sinni danski harmonikusnill- ingurinn Filip Gade, en langafi Filips var tónskáldið Jakob Gade sem m.a. samdi hið heimsþekkta verk, Tango-Jalousie. Að loknum tónleikunum hefst harmoniku- dansleikur. Ríkisútvarpið er með beina út- sendingu af fyrri hluta tónleikanna og fyrri hluta dansleiksins. Hafnar- dagurí Hafnar- firði HAFNARDAGUR verður í Hafn- arfirði á morgun, laugardag. Hafnardagurinn hefst við smá- bátahöfnina með því að formaður hafnarstjórnar, Eyjólfur Sæ- mundsson, opnar Kænumarkað- inn. Lúðrasveit Tónlistarskóla Hafnaríjarðar leikur, hestar verða teymdir undir börnum og fiskabúr og botndýraker verða á staðnum. Efnt verður til torfæru- keppni á hjólum. Til sýnis verður stangveiðibátur sem gerður verð- ur út frá Hafnarfirði í sumar og siglingaklúbburinn Þytur mun bjóða fólki í siglingu. Félagar í björgunarsveitinni Fiskakletti sýna köfun o.fl. Fjörunesið verð- ur með skemmtisiglingar milli kl. 11 og 16. ■ RANI Sebíistiiui kemur til landsins helgina 6.-8. maí á veg- um safnaðarins Orðs lífsins. Rani Sebastian er frá Malasíu en býr sem stendur í Sví- þjóð og kennri þar á biblíuskó- lanum Livets Ord Bibelcenter í Uppsölum, stærsta biblíu- skóla Evrópu. Á kvöldbiblíuskóla Orðs lífsins 6. maí mun Rani Sebastian kenna um náðargjafir Heilags anda, hveijar þær eru og hvernig þær virka í lífi okk- ar. Kennslan hefst kl. 20, vægt námskeiðsgjald og veitingar inni- faldar. Ollum er heimil þátttaka. Almennar samkomur með Rani Sebastian verða laugardaginn 7. maí kl. 20.30 og sunnudaginn 8. maí kl. 11 og 20.30. Allir eru velkomnir. Allar samverur fara fram í húsakynnum Orðs lífsins á Grensásvegi 8 í Reykjavík. ■ FARIÐ verður í vorferð fjöl- skyldunnar laugardaginn 7. maí en hún er skipulögð af mæðra- og feðramorgnum í Laugar- neskirkju. Brottför verður frá Laugarneskirkju kl. 10 árdegis. Að þessu sinni er ferðinni heitið í Vatnaskóg en þar verður farið í leiki og höfð samvera. ■ STJÓRN Landsamtaka hjartasjúklinga hefur ákveðið að efna til merkjasölu dagana 6. og 7. maí og valdi kjörorð- ið: Vinnum saman, verndum hjartað. Á myndinni sést for- maður LHS, Sigurður Helga- son, afhenda Guðmundi Árna Stefánssyni, heilbrigðisráð- herra, fyrsta merkið. Merkið sem selt verður er rauða hjartað á pijóni til að stinga í barminn eins og verið hefur áður og kostar merkið 300 kr. ■ OPIÐ hús verður í leikskól- um og skóladagheimilum í Graf- arvogi laugardaginn 7. maí frá kl. 10.30 til 12.30. Með opnu húsi gefst tækifæri til að koma í Grafarvoginn og kynna sér starfsemi leikskólanna. Börn á leikskólaaldri, foreldrar, systkini, ömmur og afar eru öll velkomin. ■ í VÖRSLU lögreglunnar er margt óskilamuna svo sem reið- hjól, barnakerrur, fatnaður, lyklaveski, lyklakippur, seðla- veski, handtöskur, úr, gleraugu o.m.fl. Þeim sem slíkum munum hafa glatað er bent á að hafa samband við skrifstofu óskila- muna Borgartúni 33 (inngang- ur sjávarmegin) frá kl. 10-12 og kl. 14-16 alla virka daga. Oskilamunir sem hafa verið í vörslu lögreglunnar í ár eða leng- ur verða seldir á uppboði í upp- boðssal Vöku á Eldshöfða 4-6 laugardaginn 7. maí. Uppboðið hefst kl. 13.30. ■ SVEINSPRÓF í framreiðslu og matreiðslu voru haldin 4., 5. og 6. maí í Hótel- og veitinga- skóla íslands á Suðurlandsbraut 2. Framreiðslunemar sýna veislu- borð af ýmsu tilefni og mat- reiðslunemar sýna rétti úr ýms- um hráefnistegundum, listræna og fagurskreytta. Sýningin á sveinsprófsverkefnum er opin al- menningi í dag frá kl. 14 til kl. 15. SUMARÁÆTLUN M/S HERJÓLFS Gildir frá 6. maí til 4. sept. 1994. Frá Frá Vestmannaeyjum Þorlákshöfn Alla daga 08.15 12.00 Föstudaga og sunnudaga 15.30 19.00 Auk þess á fimmtudögum í júní og júlí 15.30 19.30 Ferðir skipsins falla niður 22. maí (hvítasunnudag) og 5. júní (sjómannadag). Annan í hvítasunnu verða tvær ferðir eins og á sunnudögum. Þá getur áætlunin breyst dagana 29. júlí til 1. ág- úst vegna Þjóðhátfðar Vestmannaeyja. Heriólfur h(. Sími 98-12800, myndsendir 98-12991 Vestmannaeyjum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.