Morgunblaðið - 06.05.1994, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 06.05.1994, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. MAÍ 1994 41 BREF TIL BLAÐSIIMS Kirkjan á ári fjölskyldunnar Brýnasta verkefnið að leggja grunn að heil- steyptri fjölskyldustefnu Frá hr. Ólafi Skúlasyni: FIMMTA sunnudag eftir páska kallar kirkjan söfnuð saman til að fela guði ákveðið málefni, sem sér- staklega er helgað í fyrirbæninni. Þegar bænarefni liðinna ára eru skoðuð, kemur fram lýsing á ís- lenskri þjóð, vanda hennar á hverj- um tíma, vonum sem vonbrigðum. Og ekki hefur verið látið svo, sem eyjan okkar skýli fyrir áhrifum frá veröld allri eða að nálægð við aðr- ar þjóðir skipti engu. í bænarefn- um sést umhyggja fyrir hag ann- arra, hvort heldur stríð hrjáir eða hungur sverfur að. Það kemur engum á óvart, þótt ég hafi kosið að biðja söfnuði að sameinast á bænadegi um málefni fjölskyldunnar. Hvert ár í kirkjunni er vitanlega ár fjölskyldunnar og aldrei erum við jafn sterkt minnt á það eins og við fermingar vors- ins. Þá gengur ekki aðeins ferm- ingarbarnið fram fyrir söfnuð og krýpur við altari, heldur íjölskyld- an öll, þá allt er sem hestl vonum við og væntum. En þetta ár er sérstaklega til- greint sem ár fjölskyldunnar að beiðni Sameinuðu þjóðanna. Við fögnum því víðtækum stuðningi annarra aðila við þetta höfuðverk- efni kirkjunnar og helgum bæna- daginn umfjöllun um fjölskylduna og fyrirbæn fyrir heill hennar og samstöðu. Á síðasta kirkjuþingi var ein- róma samþykkt ályktun, þar sem lögð er áhersla á sérstöðu kirkj- unnar í þessu máli, þrátt fyrir sjálf- sagða samvinnu við aðila, með því að kalla þetta ár ár fjölskyldunn- ar í kirkjunni. Og ennfremur seg- ir þar m.a.: „Markmið árs fjöl- skyldunnar í kirkjunni er að styrkja stöðu fjölskyldunnar sem grun- neiningar í mannlegu samfélagi. Kirkjan tekur heils hugar undir þau sjónarmið, að eitt brýnata verkefnið til að ná því markmiði sé að leggja grunn að heilsteyptri fjölskyldustefnu. Slík stefna, sé hún meira en orðin tóm, boðar róttækt endurmat á verðmæta- mati, nánast hvar sem borið er niður í hina samfélagslegu skipan, í uppeldis- og skólamálum, at- vinnumálum, efnahagsmálum, húsnæðismálum, heilbrigðis- og félagsmálum, svo að nokkuð sé nefnt. Hér er með öðrum orðum vikið að þeim ytri búnáði, sem hvað mestu ræður um hagsæld fjölskyldunnar í bráð og lengd. „En þótt hagsæld vegi þungt þá ræðst farsæld fjölskyldunnar af fleiri þáttum, sem vafalaust valda enn meiru en lífslánið. Þá beinast sjónir að hinni innri gerð fjölskyldulífsins, hvernig þau sem fjölskyldan mynda, á öllum æviske- iðum, eru undir það búin að sálar og siðferðisstyrk og atgervi öllu að ganga saman lífsgönguna, er hefst með fæðingu og lýkur með dauða.“ „Sé farsæld íjölskyldunnar skoðuð í þessu heildarsamhengi ytri búnaðar og innri gerðar, þá kemur í ljós, að þann styrk sem fjölskyldan þarfnast til að „lifa af“ jafnt í meðlæti sem mótlæti, sækir hún til þess innri styrks í andlegum skilningi, sem hún hefur sér til stuðnings. Samræmd, heilsteypt ijölskyldustefna er reist í senn á ytri og innri búnaði fjölskyldunnar og gagnkvæmri viðurkenningu á mikilvægi hvors tveggja fyrir heilladrjúgt fjölskyldulif." Markmiðið með ári fjölskyldunn- ar í kirkjunni er mótun fjölskyldu- stefnu á grunni kristinnar trúar og lífsskoðunar. Ég bið því presta og söfnuði að sameinast á bænadegi í fyrirbæn fyrir fjölskyldum öllum, samstöðu þeirá og styrkingu í trú. En einnig hvet ég til þess, að nú þegar sé farið að huga að því við undirbún- ing vetrarstarfsins að taka þessi mál sérstaklega fyrir. Mæli.ég með efni því, sem er að finna í Gjörðum kirkjuþings 1993 og því öðru, sem nefnd sú, sem kirkjuráð skipaði í samræmi við samþykktir kirkju- þings til að vinna að mótun fjöl- skyldustefnu kirkjunnar, mun senda frá sér. Færi bænadagurinn 8. maí nk. fjölskyldur fram fyrir Guð og fylgi blessun hans íslenskri þjóð í far- sælu fjölskyldulífi, sem byggist á trú í kærleika og tillitssemi. ÓLAFUR SKÚLASON, biskup. Stórfrétt fyrir foreldra Frá Brynjólfi Lárentínusarsyni: EIN AF stórfréttum síðari hluta aprílmánaðar lét ekki mikið yfir sér og sumir ijölmiðlar sáu ekki einu sinni ástæðu til að fjalla um hana. En ég veit að foreldrar barna og unglinga fögnuðu því sem þar kom fram. SÁÁ og Reykjavíkurborg til- kynntu um samstarf um aðgerðir til að stemma stigu við áfengis- neyslu unglinga. Það kom fram hjá þeim Þórarni Tyrfingssyni, formanni SÁÁ, og Árna Sigfús- syni, borgarstjóra, að markmiðin eru skýr. Það á að leita leiða til að koma alfarið í veg fyrir áfengis- neyslu unglinga. Þarna taka höndum saman tveir aðilar sem ég bind miklar vonir við að hafi árangur sem erfiði. SAÁ hefur fagþekkingu í þessum efnum og Reykjavíkurborg hefur sinnt margvíslegu forvamastarfi, ekki síst með því að leggja mikla áherslu á uppbyggingu íþrótta- starfs fyrir böm og unglinga. Þúsundir foreldra um allt land hafa miklar áhyggjur af því hvern- ig áfengis- og fíkniefnaneysla nær sífellt til yngri aldurshópa. Allt umhverfið otar vímugjöfunum að unglingunum og þá skortir þekk- ingu og þroska til að sporna á móti. Á okkur sem eldri erum hvílir sú ábyrgð að veita börnunum FLESTAR alvarlegar líkamsárásir eru gerðar af unglingum einhvers konar vímuástandi. fræðslu og aðhald til að standast áfengi og fíkniefni og að stöðva framboð slíkra efna til unglinga. Nánast daglega eltast ijölmiðlar við æsifréttir sem tengjast mis- notkun unglinga á vímuefnum. Nýlega kom fram að flestar alvar- legar líkamsárásir eru gerðar af unglingum í einhvers konar vímu- ástandi. Ég ætla að vona að fjölm- iðlarnir sýni_ hinu gagnmerka frumkvæði SÁÁ og Reykjavíkur- borgar ekki minni áhuga. BRYNJÓLFUR LÁRENTÍNUSSON, fomaður unglingaráðs Vals. Laugavegi45 - simi 21255 I kvöld: Skráning í hina árlegu Presleykeppni í karaoke. Upphitun og undanrásir. Laugardagskvöld: Úrslit í hinni árlegu Presleykeppni Tveggja vina og Presleyklúbbsins. Gömlu dansarnir föstudagskvöld fró kl. 21.00. Hljómsveit Þorvaldar Björnssonar og Kolbrún. Drcmgey, Stakkahlíð 17, sími 685540. VAGNHÖFÐA 11, REYKJAVÍK, SÍMI 685090 Gömlu og nýju dansarnir íkvöld frá kl. 22-3 Hljómsveitin Túnis leikur Hljómsveitin Gleðigjafamir ásamt Andra Bachmann og Ellý Vilhjálms skemmta í kvöld Sími 686220 ... , ..,.,Ö' Hátíðartónleikar og stórdansleikur íkvöldkl 20.15 til 03.00 Dagskrá: Kl. 20.15 Barnatónleikar. Kynnir: Aldís Arinbjarnardóttir. Kl. 21.00 Tónleikar. Stórsveit Harmónfkufélag Reykjavíkur undir stjórn Karls Jónatanssonar, hljómsveit frá Harmonikufélaginu Léttir tónar undir stjórn Karls Adolfssonar og hljómsveit Harmonikufélags Rangæinga undir stjórn Grétars Geirssonar. Einleikarar: FILIP GADE frá Danmörku, Jóna Einars- dóttir, Sveinn Rúnar Bjömsson, Garðar Olgeirs- son, Grétar Geirsson og Ólafur Þ. Kristjánsson Kynnir: Örn Arason. Kl. 23.30 Dansleikur. Hijómsveitin Neistar ásamt Hjördísi Geirs, hljómsveit Jónu Einarsdóttur, léttsveit Ulrich Falkners, léttsveit Björns Ólafs Hallgrfms- sonar og léttsveit H.R. ásamt einleikurum kvöldsins á léttum nótum. Forsölumiðar hjá félögum i H.R. kr. 1.000 lýkurkl. 17.30. Verð við inngang kr. 1.200 Húsið opnao kl. 20.00. Adgangur fyrir börn yngri en 12 ára ókeypis á bamatónieika. Eitt blab fyrir alla! - kjarni málsins!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.