Morgunblaðið - 06.05.1994, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 06.05.1994, Blaðsíða 8
8 FÖSTUDAGUR 6. MAÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Skoðanakönnun Þú ættir að láta dýralækni líta á merina, Sólrún mín. Það er nefnilega farið að frussast úr nösunum á henni. Verkstæðin óánægð með hlut sinn í Bílgreinasambandinu Hætta talin á klofningi innan sambandsins ÚTLIT er fyrir að Hallgrímur Gunnarsson, forstjóri Ræsis hf. og stjórnarmaður í Bflgreinasambandinu, verði einn í kjöri til formanns á aðalfundi sambandsins á morgun. Sigfús Sigfússon, forstjóri Heklu hf. og núverandi formaður, lætur þá af formennsku. Júlíus Vífill Ingvarsson, varaformaður Bílgreinasambandsins, lætur einnig af varaformennsku og sæti í stjóm sambandsins. Júlíus segir að fulltrúar verkstæðanna í Bílgreinasambandinu séu mjög óánægðir með sinn hlut og hætta sé á klofningi innan sambandsins. „Mér þykir vænt um að ótrúleg- ur fjöldi manna innan bílgreinar- innar hefur haft samband við mig á undanförnum dögum, eða eftir að ljóst var að sitjandi formaður myndi ekki gefa kost á sér. Ég hef hins vegar verið í stjórn og varafor- maður Bílgreinasambandins í sex ár og finnst það satt að segja nægi- legur tími,“ sagði Júlíus Vífíll. Júlíus Vífíll segir Bílgreinasam- bandið á miklum tímamótum og geti brugðið til beggja vona með framtíð þess. „Þær raddir hafa heyrst innan Bílgreinasambandsins að málefnum verkstæða væri betur komið innan sérstaks félags eða félagadeildar innan Bílgreinasam- bandsins. Það má að vissu leyti rökstyðja það. Ég tel þó að báðar fylkingarnar hafi notið góðs af því að vinna saman í einu félagi og því væri betra að hugsa málið vand- lega áður en farið væri ut í það að skipta Bílgreinasambandinu upp í félag verkstæðiseigenda og inn- flytjenda,“ sagði Júlíus Vífíll. Júlíus Vífíll segir að það sé veik- leiki í Bílgreinasambandinu að bif- reiðainnflytjendur sem eru um 10 talsins og greiði nálægt helming félagsgjalda hafi aðeins 6% at- kvæðisvægi. Innflytjendur hafi hver fyrir sig eitt atkvæði á móti hverju verkstæði sem eru sum hver mjög lítil og jafnvel eins manns fyrirtæki. Verkstæðin séu um 160-170 talsins fyrir utan vara- hlutasala sem eru um 15. Leitað sé sátta Hallgrímur Gunnarsson sagði að leitað hefði verið til sín um að hann gæfi kost á sér í kjöri til formanns í sambandinu nk. laugardag. Hann kvaðst taka undir það með Júlíusi Vífli að visst misvægi væri í því að hver félagsmaður hefði eitt at- kvæði hvort sem að baki væri stórt eða lítið fyrirtæki. „Hingað til hef- ur sambandinu tekist vel að halda sátt innan sinna raða og svona misvægi gerir þær kröfur til allra aðila að þeir fari fram af mikilli nærgætni og það sé um leið trygg- ing fyrir því að menn séu nauð- beygðir til að leita sátta um hin ýmsu mál,“ sagði Hallgrímur. Morgunblaðiö/Kristinn Meðferðarheimilið Tindar fær styrk MEÐFERÐARHEIMILIÐ Tindar á Kjalarnesi fékk nýlega um 200.000 krónur að gjöf sem söfnuðust í hádegisverði kvenna á Hótel Sögu nýlega. Þar ávarpaði frú Vigdís Finnbogadótt- ir, forseti Islands, konurnar. A myndinni er Sigrún Magnús- dóttir, forstöðumaður Tinda, að taka við styrknum úr hendi Hildar Jónsdóttur. Tindar er meðferðarheimili fyrir unglinga sem eiga við vímuefnavanda að stríða. I ræðu Sigrúnar Magn- úsdóttur á fundinum kom fram að meðalaldur skjólstæðinga heimilisins er 15. 85 unglingar voru lagðir þar inn á síðasta ári, 40 drengir og 45 stúlkur. Fjöldi skjólstæðinga meðferðar- heimilisins jókst um 30% milli áranna 1992 til 1993. Healey lávarður um heimsmálin Gullöld þjóð- ríkisins liðin Denis Healey Denis Healey, einn helsti leiðtogi breska Verkamanna- flokksins á síðari hluta þessar aldar, flutti í gær- kvöldi kvöldverðarræðu á ráðstefnu fyrir íslenska stofnanafjárfesta sem breska fjármálafyrirtækið Kleinwort & Benson gekkst fyrir á Hótel Sögu. Healey, sem að mestu hefur hætt beinum afskiptum af stjórnmálum, segist gera nokkuð af því nú að flytja kvöldverðarræður af þessu tagi hjá ýmsum hópum áhrifamanna. „Það er líka aldrei að vita nema að ég skrifi bók sem yrði eins konar grófur leiðarvísir að þeirri óreiðu sem nú ríkir á sviði heimsmála,“ segir Healey. Söguleg þáttaskil Hann segir endalok kalda stríðsins marka endalok þess tíma mannkynssögunnar er þjóðríkið var í fyrirrúmi. Þetta hafi verið söguleg þáttaskil á svipaðan hátt og franska byltingin var á sínum tíma. „Ég held að margir þættir séu nú að grafa undan þjóðríkinu. Augljósir utanaðkomandi þættir eru t.d. alþjóðavæðing fjármála- viðskipta og það að umhverfis- mengun þekkir engin landamæri. Við erum enn að slátra sauðfé í norðurhluta Englands vegna Tjernóbílslyssins. Þá er það sú staðreynd að ný tpskni gerir mönnum kleift að framleiða vörur með einungis broti af því vinnu- afli sem áður þurfti. Það hefur reynst mjög erfitt að fínna því fólki vinnu innan þjónustugeir- ans, sem fær ekki vinnu í fram- leiðslugeiranum. Sérstakt vanda- mál í okkar landi er að í stað fulls starfs fyrir karlmann kemur hlutastarf fyrir konu. Það grefur enn frekar undan ijölskyldunni, sem er mikið áhyggjuefni." Aukin alþjóðleg glæpastarf- semi er einnig að mati Healey mjög alvarlegt vandamál. „Stund- um held ég að framtíð Evrópu muni ráðast af lokaorrustunni um Berlín milli sikileysku og tsjetsjen-mafíunnar. Og þar er ég ekki að gera að gamni mínu,“ segir Healey. Innan þjóðríkjanna segir hann einnig gæta mikils óöryggis sem grafi undan þeim. Fólk óttist um grundvallaratriði á borð við vinnu og húsnæði. Þá valdi minnihlutahópar innan þjóð- ríkjanna spennu. Versta dæmið sé Bosnía, en það sama sé að gerast t.d. í Afríku og fyrrum Sovétríkjunum. Ekki svæðisbundin vandamál „Ég held að mesti vandinn sé sá að ekki er lengur hægt að finna vandamál sem eru svæðisbundin. Flest er þau að finna innan landa- mæra þjóðríkis. Þess vegna eiga Sameinuðu þjóðirnar svo erfitt með að ákveða hvað beri að gera í Rúanda, Angóla, Mósambík eða Bosníu.“ Hann segir nauðsynlegt að stjórnvöld beini sjónum sínum að þessum vandamálum í auknum mæli en það sé erfitt þegar þau séu jafn upptekin af innanlands- vandamálum og raun ber vitni, ekki síst Bandaríkin. Þá skorti sárlega forystu á Vesturlöndum. - Þú nefnir skort á forystu. Er það sökum þess að Bandaríkja- ►Healey lávarðar er fæddur árið 1917. Hann var fyrst kjör- inn á breska þingið fyrir Verkamannaflokkinn árið 1952 og sat þar til ársins 1992. Hann var varnarmálaráðherra Bretlands á árunum 1964-70 og fjármálaráðherra 1974- 1979. Hann var talsmaður Verkamannaflokksins í sljórn- arandstöðu í efnahagsmálum 1979- 80 og í utanríkismálum 1980- 87. Healey situr nú í lávarðadeild breska þingsins. Hann hefur ritað fjölmargar bækur á undanförnum áratug- um, flestar þeirra um utanrík- is- og öryggismál. stjórn sýnir ekki nægilega for- ystu? „Það er að mínu mati mjög óréttlátt að kenna Bandaríkja- mönnum einvörðungu um. Innan Evrópusambandsins búa nú fleiri en í Bandaríkjunum og efnahags- mátturinn er svipaður. Ef forysta hefði verið fyrir hendi hefði ESB átt að láta vandann í fyrrverandi Júgóslavíu til sín taka án banda- rískrar aðstoðar. Afskipti Banda- ríkjamanna hafa leitt til afskipta Rússa, sem hafa haft bæði sínar góðu og slæmu hliðar. Mér verður stundum hugsað til ástands mála fyrir tuttugu árum. Þá var Helm- ut Schmidt við völd í Þýskalandi og styrk og örygg foyrsta í Frakk- landi og að mínu mati Bretlandi einnig. Það hefur ekki verið að finna nógu skýra forystu í Banda- ríkiunum frá því Nixori var for- seti.“ En telur Healey að ESB geti orðið að afli á alþjóðavettvangi? Hann segist telja að Evrópusam- bandið geti stækkað en að það muni ekki dýpka á þann hátt sem stofnendur þess sáu fyrir sér. „Ég vona þó að stærstu aðildarríkin, Þýskaland, Frakkland og Bret- land, geti gert eitthvað ef þar verður forysta fyrir hendi. Að mínu mati hafa Þjóðverjar sýnt meiri forystu en menn viðurkenna almennt, þrátt fyrir gífurlegar efnahagslegar byrðar vegna sam- einingarinnar. Þá veita þeir 90% allrar erlendrar aðstoðar til Rússa og stóran hluta aðstoðarinnar til Austur-Evrópu. Við verðum ein- ungis að sætta okkur við að þeir muni ávallt eiga hagsmuna að gæta í austri jafnt sem vestri. Það væri jákvætt ef við myndum veita Þjóðveijum aukinn stuðn- ing. Frakkar eiga við mikinn inn- byrðis vanda að etja og mér skilst að jafnvel í London eigi stjórnin í vandræðum." „Skortir sárlega for- ystu“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.