Morgunblaðið - 06.05.1994, Blaðsíða 20
20 FÖSTUDAGUR 6. MAÍ 1994
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
ARFUR
FORMÆÐRANNA
MYNPLIST
Portið ilafnarfiröi
BLÖNDUÐ TÆKNI
Alda Sig’urðardóttir
30. apríl - 15. maí.
Aðgangur ókeypis.
Alda Sigurðardóttir er'í síðari
hópnum. Þessa fyrstu einkasýn-
ingu sína tileinkar hún ömmu
sinni, sem lést á síðasta hausti,
á hundraðasta aldursári; hin hóg-
væru viðfangefni sín hér sækir
hún einnig í arf horfinna kynslóða
formæðra sinna.
Alda kemur að
myndlistinni með
í^ölbreytta
reynslu; hún lauk
hjúkrunarprófi og
stundað nám í
fatahönnum í Par-
ís áður en hún
sneri sér af krafti
að myndlistarná-
mi, en hún út-
skrifaðist frá fjö-
tæknideild Mynd-
lista- og handíðaskóla íslands
1993.
Hin unga listakona leitar til
hefðarinnar, en gerir sér fulla
grein fyrir hverfulleik hennar. I
sýningarskrá segir hún um m.a.:
„Yfirleitt gerum við okkur ekki
grein fyrir því að þekking okkar,
veruleiki og draumar eru arfur
genginna kynslóða. Við handleik-
um þennan arf eins og fjöregg
og vinnum úr honum. A hverjum
degi veljum við ómeðvitað hvað
deyr og hvað lifir, hverju við vilj-
um gleyma og hveiju halda við.
í því er fólgið viðfangsefni mitt,
að munda lítið verkfæri, tengja
saman þræði í litlar myndir sem
sjálfar eru augnablik á milli kyn-
slóðanna.“
Það verkfæri sem Aida er hér
að vísa til er heklunálin, sem
amma hennar kenndi henni ungri
að meðhöndla; verkin sem hún
sýnir eru hekluð úr gömlum
tvinna og fest með bókbandslími
á plexigler. Við þessa lýsingu
mætti ætla, að ekki væri mikil
fjölbreytni á ferðinni og svo virð-
ist ekki við fyrstu sýn; en nánari
skoðun leiðir í ljós að Alda hefur
með ýmsum hætti náð að gefa
hverri mynd fyrir sig sjálfstæða
tilveru og í heild sinni verða tilvís-
anir verkanna til lífsins og sköp-
unar þess áberandi.
Þetta næst fram fyrst og
fremst með því að nota hlýja liti
í verkin og með því að skapa í
þeim sjálfstæðar
fellingar, totur og
samtengingar,
sem minna í mörg-
um tilvikum á lík-
amann, fæðinguna
og móðurmjólkina;
samtengingin er
einnig sterkur
þáttur í sumum
myndanna, og þró-
unin, uppvöxtur-
inn kemur jafnvel
fram í einu verk-
anna með litabreytingum á hinum
ýmsu stigum þroskaferilsins.
í einu verki liggja þræðirnir
síðan lausir og óbundnir og minna
þannig á að þrátt fyrir allt er líf-
svefurinn aldrei ofinn endanlega
og alltaf má vænta nýrra tengsla;
á næsta augnabliki getur allt
verið breytt.
Það þarf nokkra dirfsku til að
leggja upp með jafn einfalda
myndgerð og hætt er við að ýms-
um þyki lítið til koma. Umfangið
og margbreytileikinn eru hins
vegar ekki helstu mælikvarðarnir
á verðuga myndlist, heldur sjálf-
stæði og innsýn hinnar listrænu
hugsunar, sem vissulega byggist
á arfi kynslóðanna; því verður að
segja að þessi sýning er góð byij-
un fyrir listferil Öldu Sigurðar-
dóttur.
Eiríkur Þorláksson
Atriði úr Gaukshreiðrinu.
Gauks-
hreiðrið
Síðustu sýningar
vorsins
AÐEINS eru tvær sýningar eftir á
þessu leikári á Gaukshreiðrinu, en
leikritið verður tekið aftur til sýn-
ingar á Stóra sviðinu í haust.
Gaukshreiðrið víkur nú að sinni
fyrir uppfærslu Listahátíðar á Nifl-
ungahringnum eftir Wagner, en
æfingar á Niflungahringnum heij-
ast á Stóra sviðinu um miðjan maí.
í fréttatilkynningu segir: „Mikil
aðsókn hefur verið á þeim sýningum
sem komnar eru á Gaukshreiðrinu
og eru aðeins fáein sæti laus á síð-
ustu tveimur sýningum vorsins.
Hafa m.a. hópar frá vinnustöðum
og félagasamtökum þurft að bíða
til hausts með leikhúsferð á Gauks-
hreiðrið."
Með helstu hlutverk fara Pálmi
Gestsson, Ragnheiður Steindórs-
dóttir og Jóhann Sigurðsson. Með
önnur veigamikil hlutverk fara m.a.
Sigurður Skúlason, Hilmar Jónsson,
Hjálmar Hjálmarsson, Sigurður
Sigutjónsson, Stefán Jónsson og
Erlingur Gíslason. Leikstjóri er
Hávar Sigutjónsson.
Aðalfundur
Bílgreinasambandsins
verður haldinn laugardaginn 7. maí nk. á Hótel Sögu og hefst kl. 9.15
Dagskrá:
Kl. 09.15 Fundarsetning, Sigfús Sigfússon, formaður BGS
Kl. 09.30 Starf og skipulaggning BGS.
Tillögur stjórnar um starf og skipulag BGS -Umræður
Kl 10.30 Atvinnumál í bílgreininni - Svört atvinnustarfsemi
Hugmyndir um aðgerðir
Kl. 11.30 Staða bílgreinarinnar í íslensklu efnahagslífi
Guðmundur Magnússon prófessor
Kl. 12.00 Hádegisverður - Hádegisverðarerindi.
Halldór Blöndal, samgönguráðherra
Kl. 13.30 Dagskrá sérgreinafundar
A. Verkstæðisfundur
B. Bílamálarar og bifreiðasmiðir
C. Bifreiðainnflytjendur
D. Smurstöðvar
E. Varahlutasalar
Kl. 15.30 Niðurstöður sérgreinafunda. (Sal A- Hótel Sögu).
Kl. 16.00 Aðalfundur Bílgreinasambandsins. (SalA - Hótel Sögu)
Aðalfundarstörf skv. 9 gr. laga sambandsins.
Stjórn BGS hvetur sambandsaðila til að mæta á fundinn.
Stjórn Bílgreinasambandsins