Morgunblaðið - 06.05.1994, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 06.05.1994, Blaðsíða 2
2 FÖSTUDAGUR 6. MAÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ Beint áfram núl Morgunblaðið/Júlíus SLIPPURINN í Reykjavík er mikið athafnasvæði. Hér er Freyr tekinn í dráttarbrautina til botnhreinsunar. Stjómarlið ekki einhuga um leigubætur Þrír þingmeim andvígir ÞRÍR þingmenn Sjálfstæðisflokks- ins lýstu í gærkvöldi yfir andstöðu við frumvarp félagsmálaráðherra um húsaleigubætur. Björn Bjamason og Sturla Böð- varsson lýstu stuðningi við mark- mið frumvarpsins, en sögðu að þeim væri stefnt í hættu með afgreiðslu frumvarpsins í núverandi mynd í andstöðu við stjórn Sambands'ís- lenskra sveitarfélaga og sveitarfé- lög. Jóhanna Sigurðardóttir félags- málaráðherra sagði, að fulltrúi Sambands íslenskra sveitarfélaga hefði setið í nefnd, sem lagði til að framkvæmd húsaleigubótanna yrði hjá sveitarfélögunum. Vilhjálmur Egilsson lýsti yfir andstöðu við málið á meðan húsa- leigutekjur væru skattlagðar að fullu og sagði að húsaleigubætur myndu annars óhjákvæmilega leiða til þess að húsaleiga hækki. Meirihluti félagsmálanefndar af- greiddi málið i gærkvöldi með smá- vægilegum breytingum. FRÉTTIR____________________ Samgönguráðherra um arðsemi vegaframkvæmda Höfuðborgin verði næsta stórverkefni FULL ÁSTÆÐA er til að vegaframkvæmdir á höfuðborgar- svæðinu verði næsta stórverkefni í nýrri vegaáætlun að mati Halldórs Blöndals samgönguráðherra. Hann lagði, á ráðstefnu Tæknifræðingafélags Islands og Verkfræðingafélags íslands, áherslu á mikilvægi þess að ört vaxandi borg fylgdu viðeigandi endurbætur á vegakerfi. Með veð i veiði- stjóraun ERLENDIR lánardrottnar íslend- inga virðast líta á skynsamlega fiskveiðistjórnun hér við land sem eins konar veð eða tryggingu fyrir því að skuldirnar verði greiddar. „Við höfum orðið varir við að erlendir bankamenn sem koma til landsins koma gjarnan í sjávarút- vegsráðuneytið til að fullvissa sig um að það sé alvara hér á bak við fiskveiðistjórnun og nýtingu auð- lindarinnar," sagði Þorsteinn Páls- son sjávarútvegsráðherra við Morgunblaðið. Hann sagði greinilegt að erlend- ir bankar litu á skynsamlega fisk- veiðistjórnun sem undirstöðu láns- trausts íslendinga. „Þeir hafa gert sér grein fyrir því að greiðslugeta okkar er undir því komin,“ sagði Þorsteinn. Halldór sagðist ekki geta lofað því að 800 milljónum yrði varið til vegaframkvæmda á Reykjavíkur- svæðinu á hveiju ári á næstu árum eins og vegamálastjóri lagði til grundvallar í erindi á ráðstefnunni. Engu að síður mætti fara ýmsar leiðir að því markmiði, m.a. með svæðisbundnu gjaldi á orkugjafa. Halldór gat þess að á meðan lögð hefði verið áhersla á samgöngubæt- ur úti á landi hefði borgin stækkað og umferð orðið þyngri. Engu að síður hefðu framlög til vegafram- kvæmda lengi verið í lágmarki. Nokkur stígandi hefði orðið frá 1989 en betur mætti ef duga skyldi. Astæða væri til að gera vegafram- kvæmdir í höfuðborginni að næsta stórverkefni í vegaáætlun. Framkvæmdir við aðalæðar í borginni séu dýrar en dragi úr slysa- hættu, töfum og óþægindum, og séu þess vegna mjög arðsamar. Hann nefndi gatnamót Hafnfjarðarvegar á Arnarneshæð. Þar hefðu orðið 27 til 28 slys með meiðslum að meðal- tali á ári fjögur ár áður en mislæg gatnamót hefðu verið fullbúin árið 1991. Ári eftir hefðu orðið 6 óhöpp á gatnamótunum og enginn meiðst. Nú renna 370 milijónir af vegafé í ríkissjóð, með því að nýta markaða tekjustofna til fulls næðust 450 millj- ónir króna og loks má hugsa sér svæðisbundið gjald á orkugjafa, bensín og díselolíu, sem nýttist til vegagerðar á viðkomandi svæði. Þessar leiðir, einhver þeirra eða sam- bland þeirra koma vissulega til greina," sagði Halldór í þessu sam- bandi í samtali við Morgunblaðið. Hvað forgangsverkefni varðaði sagði hann að lögð yrði áhersla á að tvöfalda Ártúnsbrekku niður að Elliðaám, tvöfalda Reykjanesbraut til Hafnarfjarðar og koma upp mis- lægum gatnamótum á nokkrum stöðum í borginni. Morgunblaðinu í dag fylgir auglýsingablaðið „Utspil“ frá Tæknivali. Norrænir ráðherrar í Reykjavík FUNDUR utanríkisráðherra Norðurlandanna hófst í Reykja- vík í gær og heldur áfram í dag. I frétt frá utanríkisráðu- neytinu segir að ráðherrarnir muni m.a. fjalla um öryggismál og stöðugleika í Norður-Evr- ópu, einkum ástandið í Rúss- landi og Eystrasaltslöndunum. Aðild nýrra ríkja að Evrópu- sambandinu verður einnig á dagskrá svo og umræður um Ráðstefnuna um samvinnu og öryggi í Evrópu (RÖSE), nor- ræna þátttöku í friðargæslu- sveitum Sameinuðu þjóðanna í fyrrverandi Júgóslavíu, friðar- viðræður þar og neyðarhjálp Morgunblaðið/Sverrir RÁÐHERRARNIR Jón Baldvin Hannibalsson, Margareta af 1 Ugglas frá Svíþjóð og Niels Helveg Pedersen frá Danmörku. og uppbyggingarstarf. Einnig ræða um ástandið í Mið-Austur- munu utanríkisráðherrarnir löndum og Suður-Afríku. í MORGUNBLAÐINU þessa dagana taka lesendur eftir nokkr- um breytingum á niðurröðun efnis blaðsins. Markmiðið er að færa saman tengda efnisþætti, þannig að þeir verði aðgengilegri Breytt efnisskipan í Morgunblaðinu fyrir lesendur. Á myndinni hér að neðan er sýnt hvar helstu efnis- þætti er að finna. Dagskrá ljós- vakamiðlanna er nú á öftustu opnu blaðsins ásamt dagbók og veðurkorti. íþróttaopnan færist Viðskipti/Atvinnulff fram um eina opnu. Teikning Sigmunds verður á sama stað og áður — á blaðsíðu 8 — innan um ■ Listir innlendar fréttir. Staksteinar verða aftarlega í blaðinu í grennd við Bréf til blaðsins, Velvakanda og Víkverja og ýmsa þjónustu- tengda þætti. Leiðari Baksíða,J Dagbók- innlendar Veður fréttir Krossgáta Utvarp/ Sjónvarp Kvikmynda- auglýsingar fréttum Víkverji Bréftil blaðsins 39 Myndasögur Staksteinar - 36 35 Minningargreinar- Þjónusta Afmæli Sérblöð dagsins eru Fasteignir og Daglegt líf

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.