Morgunblaðið - 06.05.1994, Side 4

Morgunblaðið - 06.05.1994, Side 4
I 4 FÖSTUDAGUR 6. MAÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ • FRÉTTIR Scháfer-hundar drápu kettling Eiganda sagt að losa sig við hundana SVEITARSTJÓRI Kjalarnes- hrepps hefur gefið eiganda Scháfer-hundanna tveggja, sem réðust á kettling og drápu í fyrradag, nokkurra daga frest til að losa sig við hundana. At- vikið hefur verið kært til lög- reglu. Jón Pétur Líndal sveitarstjóri segir að eigandinn fái tækifæri til að losa sig við hundana áður en gripið verði til aðgerða. Hann segir að ekki sé hægt að sætta sig við að menn ali húsdýr sem ráðist á önnur húsdýr. „Það sem við erum fyrst og fremst að hugsa um þegar menn eru með svona grimma hunda er hvað gæti gerst ef börn eru að leika sér með kött og hundamir sleppa lausir á meðan,“ sagði Jón Pétur. Hjörvar langefstur í dómum HJÖRVAR frá Arnarstöðum, fjögurra vetra stóðhestur, vakti verulega athygli þegar hann var dæmdur ásamt öðr- um hestum Stóðhestastöðvar- innar á miðvikudag. Hlaut hann 8,45 í einkunn fyrir byggingu og 7,86 fyrir hæfi- leika, samtals 8,15. Hjörvar, sem er undan Otri frá Sauðárkróki og Hrafntinnu frá Amarstöðum, þykir mjög efnilegur og talið líklegt að hann geti skákað bróður sínum Orra frá Þúfu, sem þykir einn fremsti stóðhestur landsins. Af fimm vetra hestum stóð efstur Gulltoppur frá Skíðdal, en hann hlaut 8,0 í aðalein- kunn. Ekki heill heilsu Reiknað var með að Þorri frá Þúfu myndi standa efstur af fimm vetra hestum, en hann gekk ekki heill til skógar og var því einungis dæmdur fyrir byggingu. Hlaut hann 8,33 í einkunn. í gær voru útanað- komandi hestar dæmdir og þar á meðal Svartur frá Unalæk og fleiri góðir hestar. Sýning Stóðhestastöðvarinnar verður á morgun, laugardag, eftir hádegi og er búist við miklum ljölda fólks eins og venjulega. Gjaldheimta lóðajöfnunargjalds í Hafnarfirði dæmd olögmæt Eigandi glataði ekki rétti til endurheimtu gjaldsins LÓÐAJÖFNUNARGJALD sem Hafnar- fjarðarbær lagði á tiltekinn lóðareiganda árið 1987 hefur verið dæmt ólögmætt í Hæstarétti. Segir að bærinn hafí ekki get- að sýnt fram á á kostnað sem réttlæti gjald- tökuna, teljist hún því skattlagning sem engin lagaheimild sé fyrir. í dómnum segir einnig að húseigandinn hafi ekki glatað rétti sínum til endurheimtu lóðajöfn- unargjaldsins þótt hann hafi ekki gert fyrirvara um greiðsluna og segir Ragnar Aðalsteinsson formaður Lögmannafélags Islands það stefnu- breytingu af hálfu dómstólsins. Guðmundur Benediktsson bæjarlögmaður Hafnarfjarðar seg- ir niðurstöðuna ekki gera að verkum að allir sem greitt hafi gjaldið geti krafist endurgreiðslu, meta verði hvert tilvik fyrir sig. Bæjarstjóm Hafnarfjarðar samþykkti 12. mars 1987 að sérstakt lóðajöfnunargjald skyldi innheimt vegna óbyggðra lóða, sem úthlutað yrði á byggðum svæðum í bænum og bæru lítil sem engin upptökugjöld. Voru þau sett á upphaf- lega til þess að bera kostnað af uppkaupum bæjarins á lóðum og byggingum. Var lóðareig- andinn krafinn um 200.000 og segir Guðmund- ur að Hæstiréttur líti svo á að í því tilviki hafi verið um hreina skattlagningu að ræða þar eð bærinn hafi ekki getað sýnt fram á kostnað vegna lóðarinnar. Hvert tilvik metið Aðspurður hvort allir sem greitt hafi lóða- jöfnunargjald til bæjarins geti krafist endur- greiðslu segir hann. að þótt ekki hafi verið sýnt fram á kostnað í þessu tilviki sé ekki þar með sagt að bærinn geti það ekki í öðrum. „Það verður að meta hvert tilvik fyrir sig og geti bærinn ekki sýnt fram á kostnað verður hann að greiða til baka,“ segir Guðmundur. Hann segir ennfremur að lóðajöfnunargjaldið hafi verið lagt á í mjög fáum tilfellum á sínum tíma og ekki hin síðustu ár. Aðspurður um fjölda greiðenda sagði hann: „Það þarf að fletta þessu upp til að fá nákvæman fjölda en eftir því sem óbyggðum lóðum hefur fækkað hefur verið minna um þetta.“ Ragnar Aðalsteinsson formaður Lögmannafé- lags Islands segir að dómur Hæstaréttar feli í sér stefnubreytingu að því leyti að lóðareigand- inn hafi ekki glatað rétti sínum til endurheimtu á gjaldinu þótt hann hafi reitt það af hendi án þess^að gera fyrirvara um greiðsluna. „Á sínum tíma gekk dómur þar sem sagði að tiltekin álagning væri brot á stjórnarskrá en þar sem maðurinn 'hefði greitt án fyrirvara væri hann bundinn af því. Einn dómenda greiddi minnihlutaatkvæði þar sem sagði að með því eimdi eftir af þeirri gömlu hugsun að konungur- inn gerði aldrei rangt. Síðan kemur niðurstaða þriggja manna dóms sem segir hið gagnstæða, að gjaldið sé ólöglega á lagt og að lóðareigand- inn hafi ekki glatað rétti sínum til endurheimtu gjaldsins þótt hann hafí ekki gert fyrirvara, án þess að rökstyðja það frekar. Það er stefnubreyt- ing,“ segir Ragnar Aðalsteinsson. Fundur Samfoks með Ingibjörgu Sólrúnu og Árna Sigfússyni Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson Gulltoppur frá Skíðdal stóð efstur af fimm vetra hestum með slétta átta í einkunn, knapi er Eiríkur Guðmundsson. Stóðhestastöðin Bygginga- dagar í fyrsta skipti „ÞANNIG rís byggðin" er kjörorð byggingadaga sem Samtök iðn- aðarins standa fyrir á morgun, laugardaginn 7. maí og sunnu- daginn 8. maí, í samvinnu við byggingafyrirtæki og framleið- endur í byggingaiðnaði. Um 20 fyrirtæki, verktakar og framleiðslufýrirtæki, eiga aðild að byggingadögunum og munu þau kynna íbúðir og framleiðslu sína, hvert á sínu athafnasvæði, auk þess sem sérstök kynning og ráðgjöf um viðhald fasteigna verður hjá Rann- sóknarstofnun byggingariðnaðarins. „Markmiðið er að gera bygg- ingariðnaðinn sýnilegri en verið hefur og hvetja fólk til athafna á þessu sviði," segir Lína Guðlaug Atladóttir, markaðsstjóri hjá Sam- tökum iðnaðarins. Byggingadag- amir eru haldnir í fyrsta skipti að þessu sinni, og segir Lína Guðlaug það ráðast af því að aðilarnir sem standa að þeim, hafa til þessa ekki tilheyrt sömu samtökum fyrr en nú. HLJÓMSVEITIN Sniglabandið hefur frá síðasta hausti verið með útvarpsþátt á Aðalstöðinni á fimmtudögum og hefur hann vak- ið nokkra athygli, því piltarnir víla ekki fyrir sér að leika hvert það Iag sem hlustendur óska eft- ir að fá að heyra. Virðist þá litlu skipta hvort það er 40 ára dans- lag eða nýjasta vinsældalista- poppið. Hljómsveitina skipa þeir Björgvin Ploder, trommur, Einar • • Oðravísi óskalög Rúnarsson, orgel og harmoniku, Pálmi Sigurhjartarson, píanó, Skúli Gautason, gítar, og Þorgils Björgvinsson, gítar, auk þess sem Jón S. Ingólfsson, bassaleikari, Morgunblaðið/RAX leggur þeim lið í útsendingunum. Skúli segir skýringuna á því hversu mörg lög hljómsveitin hafi á takteinum vera þá, að hún hafi starfað í níu ár og því hlotið mikla reynslu. Þá séu þeir félag- arnir alætur á tónlist og safni því stöðugt í sarpinn. „ Auk þess að spila óskalög að hætti hússins erum við með draumaráðninga- þjónustu, pólitískt horn, óholl- ustuhorn og fleira.“ Sammála um að grunnskólar verði einsetnir Ámi sagði að ákveðið hefði verið að Reykjavíkurborg greiddi tvær kennslustundir til viðbótar í 1.-3. bekk og eina kennslustund í 4. bekk þannig að allir grunnskólanemar á aldrinum 6-9 ára njóti 27 stunda kennslu. „Með þessari ákvörðun höfum við tekið forystu á Norður- löndum hvað varðar kennslutíma yngri nemenda að teknu tillitit til styttra skólaárs hér á landi,“ sagði Árni. 3 milljarðar á 5 árum Hann tilkynnti jafnframt um að á næstu fimm árum yrði Varið þrem- ur milljörðum til uppbyggingar skólamannvirkja í Reykjavík eða um 600 milljónum á ári. Með því ætti að vera hægt að Ijúka að mestu við þá stefnumörkun Sjálfstæðis- flokksins að hafa alla skóla í borg- inni einsetna. Ingibjörg Sólrún sagði að R-list- inn myndi setja skólamál, bæði leik- skóla- og grunnskólamál, í önd- vegi. „Þannig munum við fylgja eftir öllum þeim fjölmörgu tillögum sem fulltrúar Reykjavíkurlistans í borgarstjórn hafa flutt um þessi mál á umliðnum árum en ævinlega verið vísað frá af Sjálfstæðisflokkn- um, valdaflokknum í borginni," sagði Ingibjörg Sólrún. „Svo dæmi sé tekið fluttu borgar- fulltrúar Kvennalistans og Nýs vettvangs tillögu' fyrir gerð fjár- hagsáætlunar 1991, annars vegar um einsetinn skóla og hins vegar að miða skólabyggingar við fá- mennari skóla en nú er. Þessum , tillögum báðum var vísað frá með þeim rökum Árna Sigfússonar að ^ þær væru óraunhæfar. Kostnaður- I inn af þeim væri 5-6 þúsund millj- ónir,“ sagði Ingibjörg Sólrún. SAMFOK, Samband foreldrafélaga í grunnskólum í Reykjavík, hélt fund í Gerðubergi í gærkvöldi þar sem Árni Sigfússon borgarstjóri og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, borgarstjóraefni R-listans, fluttu framsöguerindi og svöruðu fyrirspurnum. I máli þeirra beggja kom fram að eitt helsta stefnumarkmið í málefnum grunnskólanna í Reykjavík væri að gera þá einsetna. , Morgunblaðið/Sverrir INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir og Arni Sigfússon fluttu fram- söguerindi og svöruðu fyrirspurnum um skólamál á fjölmennuin fundi sem haldinn var á vegum Samfoks í Gerðubergi í gærkvöldi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.