Morgunblaðið - 06.05.1994, Qupperneq 6
6 FÖSTUDAGUR 6. MAÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
________________APALFUMPUR SÖLUMIÐSTÖÐVARIIMMAR ________________
Besta rekstrarniðurstaðan í sögu Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna
Hagnaður 600 millj.
og 21 milljarðs sala
Morgunblaðið/Kristinn
FRIÐRIK Pálsson forstjóri SH og Alda Möller fundarritari stinga saman nefjum á aðalfundi SH í
gær undir árvökulum augum Ólafs B. Ólafssonar varaformanns SH.
FRAMLEIÐSLA frystihúsa og
frystiskipa, sem fela Sölumiðstöð
hraðfrystihúsanna sölu afurða
sinna, var tæplega 102 þúsund
tonn á síðasta ári eða tæplega 22%
meiri en árið áður. Heildarsala fé-
lagsins nam 21,2 milljörðum kr.
sem er 10% verðmætisaukning frá
síðasta ári. Kom þetta fram í
skýrslu Jóns Ingvarssonar stjóm-
arformanns SH á aðalfundi félags-
ins sem haldinn er í Reykjavík.
Tæplega 600 milljóna kr. hagnaður
SH og dótturfyrirtækja er besta
rekstrarniðurstaða í liðlega 50 ára
sögu félagsins.
Mesta aukning í framleiðslu ein-
stakra tegunda var í karfa, eða
75%, og stafar það aðallega af því
að félagið tók að sér sölu á afurðum
erlendra frystitogara. Aukning varð
einnig í framleiðslu á þorski, ýsu,
síld, loðnu og ýmsum flatfiskteg-
undum. Þá varð 60% aukning í
framleiðslu rækju. Hins vegar varð
verulegur samdráttur í ufsa, loðnu-
hrognum, steinbít og nokkur í grá-
lúðu. Af einstökum framleiðendum
var mest framleitt hjá Útgerðarfé-
lagi Akureyringa hf., eða 12 þúsund
tonn að verðmæti 2.736 milljónir
kr. og 11.200 tonn hjá Granda hf.
að verðmæti 2.030 milljónir kr.
SH annast nú sölu afurða 23
frystitogara og eru 13 þeirra í eigu
útgerða utan SH. „Þrátt fyrir mik-
inn samdrátt á flestum sviðum at-
vinnulífsins vegna síminnkandi
þorskafla hér við land hafa stór-
auknar úthafsveiðar svo og aukin
sala fyrir aðila utan félagsins og
þá einkum erlendra aðila bætt fé-
laginu það upp og þar með skotið
fleiri stoðum undir rekstur félags-
ins,“ sagði Jón. Félagið tók að sér
sölu afurða fyrir átta verks'miðju-
skip þýska útgerðarfélagsins
Mecklenburger Hochseefischerei
sem er í meirihlutaeigu Útgerðarfé-
lags Akureyringa. Auk þess hefur
SH tekið að sér sölu og þjónustu
fyrir tvö rússnesk verksmiðjuskip
sem gerð eru út frá Rostock.
Friðrik Pálsson, forstjóri SH,
sagði að reynslan af samskiptum
við eigendur hinna tíu erlendu
frystitogara væri góð. Ýmsir aðrir
erlendir aðilar hefðu leitað svipaðs
samstarfs og að því yrði hugað á
næstunni.
Óhagstæð verðþróun
Verðþróun var framleiðendum
óhagstæð á flestum mörkuðum eins
og árið áður, að sögn Jóns. Á
Bandaríkjamarkaði hélst verð þó
nokkuð stöðugt og Bandaríkjadalur
styrktist verulega umfram Evrópu-
gjaldmiðla. Verð lækkaði á nær öll-
um tegundum bolfisks á Evrópu-
markaði og verð þorskflaka lækk-
aði til dæmis um 14-18% eftir teg-
undum og löndum. Hækkun á jap-
önsku yeni um 35% gerði hins veg-
ar betur en að vega upp þá verð-
lækkun sem varð á Japansmarkaði.
595 milljóna kr. hagnaður varð
af reksti SH og dótturfélaganna í
fyrra, þar af 227 milljóna kr. hagn-
aður af móðurfélaginu. Hagnaðin-
um af SH í Reykjavík var ráðstafað
þannig að 87 milljónir voru greidd-
ar eigendum og 140 milljónir færð-
ar félagsmönnum til eignar á endur-
greiðslureikninga þeirra.
Fyrsta ársfjórðung þessa árs
jókst framleiðsla framleiðenda inn-
an SH um 2.240 tonn eða um 9%
miðað við sömu mánuði í fyrra.
í áætlunum félagsins fyrir árið
1994 er reiknað með hagnaði af
rekstri samstæðunnar og þó þróun
markaðsverðs á árinu 1993 hafi
verið hagstæð er vonast til þess að
með batnandi efnahag í mikilvæg-
um viðskiptalöndum í Evrópu og
Bandaríkjunum fari fiskmarkaðir
að styrkjast aftur eftir lægð undan-
farinna ára.
I
t
>
I
s
Friðrik Pálsson forstjóri
ESB-aðild gæti
reynst hagkvæm
og verið æskileg
FRIÐRIK Pálsson, forstjóri Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna, segir
að íslendingar eigi hvorki að útiloka fyrirfram aðild að Evrópusamband-
inu né aðra kosti. „Margt bendir til þess að aðild gæti reynst okkur
hagkvæm og æskileg," sagði hann í ræðu á aðalfundi SH í gær. Jón
Ingvarsson lét í ljós þá skoðun sína að umsókn um fulla aðild að ESB
kæmi aðeins til álita að íslendingum yrði tryggð full og óskoruð yfir-
ráð yfír auðlindunum umhverfís landið.
Forgangsatriði að
meta stöðuna
Formaður og for-
stjóri SH ræddu báðir
um breytta _ sam-
keppnisstöðu fslend-
inga ef Svíar, Finnar,
Austurríkismenn og þó
sérstaklega Norðmenn
ganga úr EFTA og í
Evrópusambandið í
samræmi við samninga
þeirra við ESB. Jón
sagði að það hlyti að
verða forgangsatriði að
meta stöðu landsins í
breyttu pólitísku og við-
skiptalegu umhverfi og
um leið að skilgreina
hvaða áhrif þessar
breytingar hefðu á stöðu okkar. Síð-
an yrði að meta kostina og með hvaða
hætti íslenskra hagsmuna yrði best
gætt. Þegar stefnan hafi verið mörk-
uð sé tímabært að hefja viðræður
við ESB um framtíðarsamskipti og
stöðu íslands í hinu evrópska sam-
starfí.
Jón sagði að þrír kostir virtust
nærtækastir: EES starfi afram með
ísland eitt utan ESB, ísland geri
tvíhliða samning við ESB eða að ís-
land sæki um fulia aðild. Sagði hann
að síðastnefndí kosturinn kæmi þó
því aðeins til álita að sínu mati að
Islendingum yrði tryggð full og
óskoruð yfirráð yfir auðlindunum
umhverfis landið, „en þeim yfirráðum
virðast Norðmenn hafa fórnað í
samningunum við Evrópusamband-
ið“
Friðrik Pálsson sagði að Evrópu-
JÓN Ingvarsson,
slj ómarfor maður.
sambandið hefði á und-
anförnum árum og ára-
tugum verið að missa
veiðiheimildir víða um
heiminn. Hlutfall eigin
afla hefði stöðugt
minnkað og innflutn-
ingur aukist. _Nú væri
veiði ESB og íslands á
þorsk, ýsu og ufsa
næsta áþekk. Hins veg-
ar myndi heildarmagn
ESB af eigin veiði meira
en tvöfaldast við inn-
göngu Norðmanna og
þar með yrði komin upp
allt önnur staða en áður
þegar Norðmenn og ís-
lendingar áttu sameig-
inlegra hagsmuna að
gæta innan EFTA og í
samningum við ESB. Orðaði hann
það svo að Norðmenn sem hefðu til
dæmis hjálpað okkur við að aflétta
innflutningstakmörkunum Frakka á
dögunum myndu skipta um félag við
inngöngu í ESB og hefðu aðra hags-
muni að veija auk sinna eigin.
„Við eigum fyrirfram hvorki að
útiloka aðild að ESB né neina aðra
kosti. Margt bendir til þess, að aðild
gæti reynst okkur hagkvæm og
æskiieg. Við verðum að geta rætt
öll sjónarmið öfgalaust í þessu mik-
ilvæga máli og einungis viðræður við
ESB munu geta skorið úr um það,
hvaða lokamarkmiði við eigum að
reyna að ná,“ sagði Friðrik.
Friðrik sagði eitt alveg víst. ESB
með Noreg innanborð væri allt annað
ESB en án Noregs og sama mætti
segja um EFTA. „Samvinna okkar
við Norðmenn hefur verið góð í
Þorsk-, ýsu- og ufsaveiði
á hlutfallslegri skiptingu veiðinnar á milli
Noregs og EB/ESB ef Noregur gengur IESB
1993
E8 33%
1994
Islantlog «
Wnrípmrr ö
EFTA og ég leyfi mér að fullyrða,
að samstaða þessara tveggja mikil-
vægu sjávarútvegsþjóða gæti orðið
mjög sterk innan ESB. Við höfum
mjög líka hagsmuni og myndum
hafa yfir að ráða langstærstum hluta
eigin afla sambandsins," sagði Frið-
rik.
Þá vakti hann athygli á því að við
inngöngu Noregs í ESB yrðu styrkir
til sjávarútvegsins þar eðlilegur hluti
af styrkjakerfi sambandsins og það
muni gera samkeppnisstöðu íslend-
inga enn erfiðari en fyrr og rýra lífs-
kjör okkar.
„Hvernig sem þetta fer, mun ekki
verða heimsendir af þessum sökum,
en svo mikilvægir eru þessir markað-
ir okkur, að við megum einskins láta
ófreistað við að leita bestu samn-
inga. Við náum þeim ekki nema við
séum opnir fyrir öllum hugmyndum,"
sagði Friðrik Pálsson.
Þátttaka
í túnfisk-
veiðum á
Indlandi
SH-fyrirtæki fái lægri
vexti af afurðalánum
BANKAR telja að fyrirtæki sem
selja afurðir sínar í gegnum SH
ættu að fá lægri vexti af afurðalán-
um sem nemur einum kjörvaxta-
flokki. Kom þetta fram hjá Jóni
Ingvarssyni, formanni Sölumið-
stöðvarinnar, á aðalfundi félagsins
í gær.
Fram kom hjá Jóni að Sölumið-
stöðin hefur átt viðræður við við-
skiptabankana um breytingar á
fyrirkomulagi afurðalána, lækkun
vaxta og annars kostnaðar. Hann
sagði að bankarnir hafi ekki talið
efni til að breyta fyrirkomulaginu
en lýst því yfir að þeir vildu láta
þá þætti sem draga úr áhættu
bankanna, meðal annars hvaða
útflutningsfyrirtæki ætti í hlut,
hafa áhrif á vaxtakjörin. Sumir
hefðu lýst því yfír að fyrirtæki sem
seldi afurðir sínar í gegnum SH
ætti að fá lægri vexti af afurðalán-
um sem næmi einum kjörvaxta-
flokki. Aðrir hafi tekið í sama
streng. „Þetta er að sjálfsögðu
ánægjuleg viðurkenning fyrir Sölu-
miðstöðina, og er þess vænst að
þetta gangi eftir,“ sagði Jón.
„Þrátt fyrir það, að vel hefur
tekist til í ýmsum efnum við stjórn
efnahagsmála á sl. ári vantar mik-
ið á að tekist hafi að hemja bank-
ana að því er vexti og vaxtamun
varðar og má fullyrða, að þetta sé
einn erfiðasti hjallinn til bættra lífs-
kjara í þessu landi. Vaxtamunurinn
er svo mikill sem raun ber vitni
vegna afskrifta bankakerfisins sem
skipta hundruð milljónum í mánuði
hverjum og stafa af gömlum út-
lánatöpum, sem núverandi við-
skiptavinir bankanna eru látnir
greiða. Auk þess er samkeppni
milli banka hér á landi að því er
útlán varðar nánast óþekkt fyrir-
brigði," sagði Jón.
SÖLUMIÐSTÖÐ hraðfrystihús-
anna tekur þátt í samstarfi um
stofnun félags á Indlandi um veiðar
og vinnslu á túnfiski. Fyrir liggur
loforð indverskra stjórnvalda uin
að félagið fái heimild til að veiða
50 þúsund tonn af fiski á ári innan
indverskrar lögsögu og þau tryggja
80% fjárfestingarinnar með hag-
kvæmum kjörum.
Vísindamenn telja að auðug tún-
fiskmið séu innan indversku lögsög-
unnar en þau hafa verið lítið nýtt
til þessa. Félagið mun vinna að
þessu verkefni í samvinnu við
Tikkoo Corporation sem er í eigu
Ravi Tikkoo, fyrrum skipaeiganda.
Sölumiðstöðin mun hafa með hönd-
um útgerðarstjórn, gæðastjórn og
sölu afurða. Undirbúningur að
stofnun félagsins er í fullum gangi,
að sögn Jóns Ingvarssonar, stjórn-
arformanns SH, og er beðið endan-
legrar staðfestingar stjórnvalda á
Indlandi.