Morgunblaðið - 06.05.1994, Qupperneq 10
10 FÖSTÚDAGUR 6. MAÍ 1994
MO'RGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Leikfangasafnið
Aukafjár-
veiting
samþykkt
BORGARRÁÐ hefur samþykkt 500
þúsund króna aukafjárveitingu
vegna leikfangasafns dagmæðra.
Um 300 þúsundum verður varið til
lagfæringa á húsnæði safnsins og
200 þúsund til kaupa á nýjum leik-
föngum.
Dagvist barna gerði í vetur
samning við dagmæður um rekstur
og umsjón leikfangasafnsins sem
dagmæður höfðu rekið áður. Safnið
var formlega opnað í nýjum húsa-
kynnum um miðjan síðasta mánuð.
Talið er nauðsynlegt að bæta leik-
fangakost safnsins, en til að það
sé hægt þarf að gera nokkrar end-
urbætur á kjallara Laugaborgar við
Leirulæk.
..—-------
Sektir vegna
nagladekkja
LÖGREGLAN í
Reykjavík hefur
haft í nógu að snú-
ast við að kæra
ökumenn eða
áminna fyrir að
hafa trassað að
taka nagladekkin
undan bílum sín-
um.
Frá því á þriðju-
dagsmorgni og þar
til síðdegis í gær
hafði lögreglan
haft afskipti af 49
ökumönnum vegna þessa. Sektin
fyrir að vera á negldum eftir 15.
apríl er 2.500 krónur og gildir þá
einu hvort nagladekkin eru eitt eða
fleiri.
Atvinnulevsi í anníl on nóvemben 1 991-19941 1 9 9 2 | V 19 9 3 1994
Vinnumarkaðskönnun Hagstofunnar 19 9 1
apríl nóv. aprfl nóv. P april nóv. aprfl
Atvinnulausir skv. skiigreiningu ILO 1,9 2,8 3,1 4,7 . 5,2 5,0 6,0
Áætlaður heildarfjöldi atvinnulausra 2.800 4.000 4.500 7.000 7.700 7.500 9.000
Áætlað vinnuafi 141.600 145.100 145.400 149.800 148.700 148.900 150.000
Skráð atvinnuleysi skv.
Féiagsmáiaráðuneyti
Hlutfall skráðra atvinnulausra af vinnuafli 1,4 1,5 2,6 3,1 4,4 4,1 í lok c o mars
Einstaklingar á skrá í miðjum mánuði 1.975 2.158 3.792 4.612 6.503 5.831 mare 7.989
9.000 án atvinnu samkvæmt vinnumarkaðskönnun Hagstofu
Atvinnuleysi meðal
16-19 ára er um 17%
Reykjavík
kynnt í París
HEIMSFERÐIR kynna nú í París
sérferð til Reykjavíkur í samvinnu
við franskar ferðaskrifstofur og
koma hingað til lands 150 franskir
ferðamenn 3.-5. júní til að kynnast
höfuðborginni og landi og þjóð.
Þessi ferð er tilkomin vegna
franskrar ráðstefnu sem haldin var
í september á síðasta ári á vegum
Heimsferða en þá dvöldu 300
Frakkar í Reykjavík í þijá daga og
líkaði frábærlega allur aðbúnaður
og náttúrufegurð höfuðborgarinnar
og nágrennis, að því er segir í frétt
frá Heimsferðum.
Með því að nota sama flug og
flytur Frakkana hingað til íslands
geta Heimsferðir einnig boðið mjög
ódýra ferð til Parísar 3.-5. júní sem
er að verða uppseld.
Stóraukinn áhugi er á íslandi
sem nýjum valkosti fyrir ferðamenn
frá Frakklandi og Spáni og með
leiguflugi Heimsferða koma _nú yfir
800 franskir ferðamenn til íslands
í sumar.
NÍU þúsund manns voru atvinnu-
lausir á landinu um miðjan apríl-
mánuð eða 6% af vinnuaflinu, sam-
kvæmt niðurstöðu vinnumarkaðs-
könnunar Hagstofu íslands. í sams
konar könnun fyrir rétt rúmlega
ári síðan reyndist atvinnuleysið vera
5,2% eða um 7.700 manns og í
nóvember var atvinnuleysið heldur
minna eða 7.500 manns sem jafn-
gildir um 5% af vinnuaflinu. Tala
atvinnulausra nú er nokkru hærri
en fram kemur í tölum vinnumála-
skrifstofu félagsmálaráðuneytis yf-
ir þá sem skráðir eru atvinnulausir,
en samkvæmt þeirri skráningu voru
tæplega átta þúsund manns eða
5,2% af vinnuaflinu atvinnulaust í
lok marsmánaðar.
Könnunin náði til 4.180 manna
og bárust svör frá 3.788 eða rúm-
lega 90%. Samkvæmt niðurstöðum
könnunarinnar er atvinnuleysi álíka
mikið meðal karla og kvenna og
hlutfallslega jafnmargir voru at-
vinnulausir á höfuðborgarsvæðinu
og á landsbyggðinni.
Atvinnuleysi mest hjá
ungu fólki
Atvinnuleysi er mest meðal yngri
aldurshópa og er það í samræmi
við niðurstöðu fyrri kannanna. Það
er um 17% meðal aldurshópa 16-19
ára og um 10% meðal aldurshópa
20-29 ára. Samsvarandi atvinnu-
leysi meðal 30-39 ára er 3,7% og
5,1% með 40-49 ára.
Þá kemur fram að heildarvinnu-
tími karimanna er 49,1 klukkustund
en kvenna 34,2 vinnustundir. vinnu-
tíminn er stystur á höfuðborgar-
svæðinu 41,2, í kaupstöðum og
bæjum 42,5 stundir og lengstur í
öðrum sveitarfélögum 45,4 stundir.
Rúmlega 87% karla voru í fullu
starfi en tæplega 50% kvenna og
um 45 þeirra voru í hlutastarfi.
Honda er auðveldur í
endursölu og heldur sér
vel í veröi. Hugleiddu það,
nema þii sért að kaupa
þér bii til lífstíðar.
Það er mikill munur á því hversu
vel bílar halda sér í verði. Munurinn
á endursöluverði ársgamallrar
Honda og annarra bíla getur verið
töluverður. Að ári liðnu getur
Honda verið allt að 25% verðmeiri
en aðrir bílar í sama verðflokki.
VATNAGÖRÐUM - SÍMI 689900
-góð fjárfesting
Morgunblaðið/Kristinn
Forsetinn fær nælu frá
Málræktarsjóði
VIGDÍSI Finnbogadóttur, forseta
íslands, var í gær afhent fyrsta
barmnælan sem Islenski málrækt-
arsjóðurinn er að hefja sölu á.
Nælan er með merki íslenskrar
málræktar sem Björn H. Jónsson
teiknaði fyrir Islenska málnefnd
árið 1985. Það er hugbúnaðarfyr-
irtækið Kerfi hf. sem gaf sjóðnum
1.000 nælur til eflingar á starfi
Málræktarsjóðs. Hver næla kostar
500 krónur og verður til sölu hjá
íslenskri málstöð fyrst um sinn.
Baldur Jónsson, formaður sjóðs-
stjórnar, afhenti forsetanum næl-
una við stutta athöfn í gestabú-
stað forsetans í gær. „Mér er
sæmd af því að bera þessa fallegu
nælu,“ sagði forseti Islands við
þetta tækifæri og þakkaði gjöfina.
Jon Baldvm, starfandi iðnaðarráðherra
Frumkvöðlar eigi
aðgang að áhættufé
MIKIL þörf er á því að tryggja ís-
lenskum fyrirtækjum, sem þurfa
að standa undir rannsóknum eða
framkvæma og markaðssetja nýj-
ungar aðgang að áhættufé, að
mati Jóns Baldvins Hannibalssonar,
starfandi iðnaðarráðherra. Hann
sagði í samtali við Morgunblaðið í
gær, er hann var inntur álits á sam-
þykkt miðstjórnarfundar Fram-
sóknarflokksins í þá veru að Iðnl-
ánasjóði verði breytt í áhættulána-
sjóð, að þær hugmyndir séu á rétt-
um forsendum, þótt hann viti ekki
hvort þær eru framkvæmanlegar.
„Það er veruleg hindrun fyrir
framkvæmd og markaðssetningu
nýjunga, að áhættufé skortir. Sú
aðferð að krefjast öryggisveðsetn-
ingar upp í topp fyrir öllum lánveit-
ingum, bendir til frumstæðrar
banka- og lánaþjónustu,“ sagði Jón
Baldvin. Hann telur að tilraunir til
þess að leysa þetta mál, svo sem
með Þróunarfélaginu hafi ekki skil-
að nægum árangri. „Þannig að
hugmyndir Halldórs Ásgrímssonar,
eru að þessu leyti á réttum forsend-
um og góðra gjalda verðar. Hvort
unnt er að framkvæma þessar hug-
myndir, sem lengi hafa verið á dag-
skrá í stjórnkerfinu, með þeim ein-
falda hætti að breyta Iðnlánasjóði,
það skal ósagt látið á þessari
stundu. Um það get ég ekki full-
yrt, enda er það ekki aðalatriði
málsins, heldur hitt, hvað er unnt
að gera til þess að tryggja frum-
kvæðisaðilum og nýjungasmiðum i
íslensku atvinnulífi greiðari aðgang
að áhættufé, ef um er að ræða líf-
vænlegar og arðvænlegar hug-
myndir" sagði ráðherrann.