Morgunblaðið - 06.05.1994, Qupperneq 16
16 FÖSTUDAGUR 6. MAÍ 1994
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Farið að hitna undir spænsku stjórninni vegna hneykslismála
Skorað á Gonzalez að segja
af sér sem forsætisráðherra
Madrid. Reuter.
STJÓRN sósíalistaflokksins á Spáni hefur átt undir högg að
sækja að undanförnu vegna margra hneykslismála en nú virðist
hafa keyrt um þverbak með handtöku fyrrverandi seðlabanka-
stjóra Spánar og kunns verðbréfasala. Eru þeir sakaðir um skatt-
svik og skjalafölsun. Þá hafa þingmenn og tveir ráðherrar sósíal-
istaflokksins sagt af sér á nokkrum dögum og annar vegna „van-
rækslu varðandi skattinn“. Vegna þessara mála hefur stjórnar-
andstaðan á Spáni krafist þess, að Felipe Gonzalez forsætisráð-
herra segi af sér, ella sé hætta á að orðstír þjóðarinnar bíði alvar-
legan hnekki.
Reuter
Serbneskur varðhundur
BELGRAD-BÚINN Nenad Gavrilovic sýnir hér hund af serbnesku
varðhundakyni, en hann hefur unnið að ræktun tegundarinnar
undanfarin tíu ár. Gavrilovic ræktaði dýrið með því að para sam-
an hunda af Napólí-Mastiff-, Rottweiler-, amerísku Staffordshire
grefil-, fjárhunda- og bosnísku úlfakyni. Serbneski varðhundurinn
er 70 sm hár, 70-80 kg að þyngd og feldurinn dökkgrár.
Aukin ökuréttindi
Námskeið til aukinna ökuréttinda er að hefjast.
Hér er um að ræða seinasta námskeiðið sem
haldið er þar til í haust.
Upplýsingar í síma 670300 eftir kl. 15.30 alla
virka daga.
Ökuskólinn í Mjódd,
Þarabakka 3.
IÐNSKÓLINN I'
HAFNARFIRÐI
REYKJAVÍKURVEGI 74 OG FLATAHRAUNI
SÍMAR 51490 0G 53190
Innritað verður í allar deildir skólans
á tímabilinu 24. maí til 3. júní og
verður skrifstofan þá opin
frá kl. 9.00 til 18.00.
Mariano Rubio, seðlabankastjóri
á Spáni frá 1984 til 1992, er sakað-
ur um skattsvik og skjalafals og
einnig Manuel de la Concha, verð-
bréfasali og viðskiptafélagi Rubios.
Eiga þeir yfir höfði sér allt að 20
ára fangelsi. Ofan á þetta bætist
svo, að Luis Angel Rojo, núverandi
seðlabankastjóri, upplýsti í fyrra-
dag, að hann hefði átt reikning hjá
De la Concha fram til 1990. Á hon-
um hefði þó aldrei verið meira en
11 milljónir kr. og fyrir því fé og
öðru hefði alltaf verið gerð full grein
á skattskýrslu.
Felipe Gonzalez forsætisráðherra
boðaði til blaðamannafundar í gær-
morgun til að útskýra afsögn ráð-
herranna en Antoni Asuncion inn-
anríkisráðherra sagði af sér sl.
laugardag. Var ástæðan sú, að lög-
reglunni hafði ekki tekist að hafa
uppi á Luis Roldan, fyrrverandi
yfirmanni þjóðvarðliðsins, en hann
er sakaður um fjárdrátt. Fer hann
nú huldu höfði en átti þó langt við-
tal við dagblaðið E1 Mundo þar sem
hann gaf í skyn, að hann vissi um
víðtæka spillingu og hét að fara
ekki í fangelsi einn.
Skatturinn ekki í lagi
Vicente Albero landbúnaðarráð-
herra sagði af sér í fyrradag og
skýrði frá því um leið, að hann
hefði staðið í fjárfestingum með
aðstoð De la Concha fyrir tíu árum
en þar hefði ekki verið um neitt
brask að ræða. Hann viðurkenndi
hins vegar, að hann hefði gerst
sekur um „dálitla vanrækslu varð-
andi skattinn“.
Þingmennirnir tveir, sem hafa
sagt af sér þingmennsku, eru Car-
los Solchaga, þingflokksformaður
sósíalista, og Jose Luis Corcuera,
fyrrverandi innanríkisráðherra.
Solchaga var efnahagsmálaráð-
herra þegar Rubio var skipaður
öðru sinni í embætti seðlabanka-
stjóra 1988 og mikill stuðningsmað-
ur hans en Corcuera hafði mikil
tengsl við Roldan er hann var ráð-
herra.
Gonzalez skipaði í gær nýja ráð-
herra í stað þeirra, sem hafa sagt
af sér. Juan Alberto Belloch dóms-
málaráðherra mun einnig taka við
innanríkisráðherraembættinu en
Luis Atienza tekur við sem landbún-
aðarráðherra.
Hætta á borgarastyrjöld í Jemen
Loftárásir
á fluffvelli
Sanaa. Reuter.
HÆTTA virðist á að borgarastyrjöld bijótist út í Jemen og í gær voru
gerðar loftárásir á flugvelli í tveimur helstu borgunum, Sanaa í norður-
hlutanum og Aden í suðurhlutanum. Ali Abdullah Saleh, forseti Jemens,
lýsti yfir neyðarástandi í gær og í yfirlýsingu varnarmálaráðuneytisins
var Ali Salem al-Baidh varaforseti, sem hefur aðsetur í Aden, sakaður
um að leiða landið út í stríð.
íbúar í Sanaa vöknuðu upp við
falibyssu- og loftvarnaskothríð í
gærmorgun og mátti sjá reykjar-
bólstra stíga upp frá flugvellinum.
Var fólk mjög skelft og í gær var
borgin rafmagnslaus og fáir á ferli
nema hermenn. Flestir útlendingar
í borginni eru samankomnir á
Sheraton-hótelinu, meðal annars
Guðrún M. Guðmundsdóttir en
maður hennar, Hannes Yaghi, er
einn af hótelstjórunum. Sagði Guð-
rún í viðtali við Morgunblaðið, að
mikið hefði gengið á í gærmorgun
en í gærdag, var allt með kyrrum
kjörum. Kvað hún þau hjónin og
börn þeirra tvö vera óhult á hótel-
inu en flugvöllurinn var lokaður og
því vissi hún ekki hvenær hún kæm-
ist út úr landinu. í gærkvöldi bloss-
uðu bardagar upp að nýju og barst
sú tilkynning frá frönskum stjórn-
völdum að íbúar ESB-ríkja yrðu
fluttir á brott frá Aden.
Saleh forseti, sem er íhaldssam-
ur, og Baidh, leiðtogi sósíalista-
flokks Suður-Jemens, sameinuðu
landið 1990 en sambúðin hefur ver-
ið stirð og einkennst af gagn-
kvæmri tortryggni. Að sögn sunn-
anmanna réðust þeir á flugvöllinn
í Sanaa til að hefna árásar norðan-
manna á flugvöllinn í Aden en ekki
er vitað nákvæmlega um tjón í árás-
unum. Tilraunir arabaríkjanna og
Roberts Pelletreaus, aðstoðarutan-
ríkisráðherra Bandaríkjanna í mál-
efnum Miðausturlanda, til að bera
sáttarorð á milli sunnan- og norðan-
manna hafa engan árangur borið.
Michael Fay hýdd-
ur í Singapore
New York. Reuter.
HINN átján ára gamli
Michael Fay, sem dæmdur
var fyrir spellvirki í Singap-
ore fyrir skömmu, var
hýddur fjórum vandar-
höggum í fangelsi í landinu
í gær. Faðir Fay, George,
sagðist í gær myndu hefja
baráttu við yfirvöld í Sin-
gapore vegna hýðingarinn-
ar, sem sonurinn var
dæmdur til. Hyggst hann Michael
vinna að því að viðskiptabann verði
sett á landið og sett verði spuminga-
merki við „bestukjara-
samninga" Singapore við
Bandaríkin.
George Fay fullyrti í gær
að sonur sinn væri ekki
sekur um að úða málningu
á bíla en fyrir það var Mich-
ael dæmdur í íjögurra mán-
aða fangelsi, tii 2.000 dala
sektar og til að þola sex
vandarhögg. Þeim var
F»y fækkað í fjögur í vikunni.
Bill Clinton, Bandaríkjaforseti,
mótmælti hýðingunni í gær.
Díana ekki
birt ber-
brjósta
SPÆNSK
glansritaút-
gáfa hefur
slegið skjald-
borg um Dí-
önu Breta-
prmsessu.
Fyrirtækið
hefur keypt
sýningarrétt
um heim allan að sólbaðsmynd-
um sem teknar voru af henni
bijóstaberri á baðströnd á
Spárii um helgina en ætlar
hvorki að birta þær né selja.
Áður en fyrirtækið, sem gefur
út glans- og slúðurritin Hola
og Hello, keypti myndirnar
höfðu breskum blöðum verið
boðnar myndirnar fyrir eina
milljón punda, jafnvirði 107
milljóna króna.
Andlátið á
simsvaranum
HJUKRUNARKONA í Hong
Kong varð nýlega uppvís að því
að hafa lesið skilaboð um and-
lát ungrar konu inn á símsvara
eiginmannsins. Aðrar leiðir til
að ná til mannsins voru árang-
urslausar. Hljómaði hávær
diskótónlist í bakgrunninum er
hjúkrunarkonan sagði: „Þetta
er á Queen Mary-spítalanum.
Konan þín er nú þegar látin..."
Vilja ekki
birta samtölin
FARÞEGAFLUGMENN kunna
að leggjast gegn því að samtöl
þeirra í stjórnklefa verði tekin
upp. Ástæðan er gremja þeirra
yfir því að upptaka með sam-
tölum flugmanna tævanskrar
þotu sem fórst í Nagoya í síð-
ustu viku skyldi birt í heild
sinni. Alþjóðasamtök flug-
manna (IFÁLPA) sögðu í gær
að endurtæki það sig yrðu upp-
tökurnar stöðvaðar.
Hlynntir ESB
í Austurríki
RÚMLEGA helmingur austur-
rísku þjóðarinnar styður aðild
Austurríkis að Evrópusam-
bandinu (ESB). í niðurstöðum
Gallup-könnunar sem birtar
voru í gær sögðust 51% myndu
greiða atkvæði með aðild ef
kosið væri nú en 38% sögðust
myndu greiða mótatkvæði.
Nýlegar kannanir sýna að
stuðningur við aðild að ESB
mælist 47% í Finnlandi, 33% í
Svíþjóð og um 30% í Noregi.
Enn eitt lík
fundið
BRESKA lögreglan sagðist í
gær hafa fundið jarðneskar
leifar ungrar stúlku undir eld-
húsgólfi fyrrum heimilis fjölda-
morðingjans Frederick West í
borginni Gloucester. Áður
höfðu líkamsleifar níu meintra
fórnarlamba Wests fundist
undir gólfi eða í veggjum
Cromwellstrætis 25 og leifar
eins í akri.
I
>
I
>