Morgunblaðið - 06.05.1994, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 06.05.1994, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ ERLEIMT FÖSTUDAGUR 6. MAÍ 1994 17 Karl Bretaprins ræðst gegn póli- tískri rétthugsun London. Daily Telegraph. RÆÐA Karls Bretaprins á fundi breskra blaðaútgefenda í fyrradag var helsta umræðuefni breskra fjölmiðla í gær. Gagnrýndi hann óvægilega menn og þrýstihópa sem boðað hafa svokallaða pólitíska rétthugsun sem stangast hefur á við gömul og góð gildi. Sagði hann betrunarboðarana hafa skaðað innviði bresks samfélags og kreddukenndur skoðanahroki sérfræðinga tæki ekki mið af skoðun- um og reynslu mannsins á götunni. Karl prins gagnrýndi tískukenn- ingar -um allt frá umönnun barna til menntamála og bókmennta- og hvatti breskan almenning til þess að rísa upp gegn „vitsmunalegu ofstæki" og verja í staðinn „veður- barðar lífsreglur." Prinsinn sagði að dirfðist mönn- um að láta í ljós skoðanir sem gengju gegn tíðarandanum ættu þeir á hættu að verða hræddir til undanláts af sérfræðingum. Gilti einu hvort menn létu í ljós andúð á tónlist sem óháð væri tóntegundum, lýstu stuðningi við málfræðinám eða tækju undir þá skoðun að nauðsyn- legt eða skynsamlegt kynni að vera að löðrunga börn. „Gildum og eigin- leikum sem gerðu Bretland svo sér- stakt, svo sem umburðarlyndi og gott skynbragð, er ógnað,“ sagði Karl prins. Ennfremur sagði Bretaprins að betrunarboðskapurinn hefði leitt til þess að menn veigruðu sér við því að setja út á slæmt málfar. í háskól- unum kepptust fræðingarnir við að tæta í sundur dýrlegar skáldsögur, ljóð og leikrit sem féllu ekki að kreddukenningum þeirra. Breskir vinstrimenn brugðust illa við ræðu prinsins en íhaldsmenn fögnuðu. Margir háskólamenn og fræðingar sökuðu hann um að vera úr tengslum við raunveruleikann og einfalda hlutina fram úr hófi. Aðrir urðu til þess að hrósa prinsinum fyrir að láta til sín taka mál sem alltof lengi hefði hrjáð breskt samfé- lag. Karli hleypt út KARL Bretaprins yfirgefur Hilton-hótelið í London eftir að hafa ráðist gegn pólitískri rétthugsun á fundi með breskum blaðaútgefendum. Áhorfendum gert kleift að stýra sjónvarpsefni miialwifn M nrnmnbl 'i (iid ^ Kaupmannahöfn. Morgunblaðið. INNAN þróunardeildar sænska sjónvarpsins hefur verið þróaður útbúnaður til að tengja við sjón- varpstæki þannig að áhorfendur geti sjálfir valið úr, blandað saman og geymt sjónvarpsefni að eigin vali. Um er að ræða lítinn kassa með hörðum diski, sem tekur á móti sjónvarpsefni og geymir. Út- búnaðurinn hefur þegar verið sýndur á ýmsum fjölmiðlunarsýn- ingum og verið verðlaunaður. Búist er við að hann verði kominn á markað eftir tvö ár. Að sögn þeirra sem hafa þróað búnaðinn verða sænskir sjónvarpsáhorfendur þar með þeir fyrstu, sem eiga kost á að nýta sér möguleika útbúnaðar- ins._ Útbúnaðurinn hefur verið þró- aður með því að blanda saman því nýjasta á sviði tölvu- og sjónvarps- tækni. í kassanum er harður disk- ur, sem tekur á móti sjónvarps- sendingum og geymir upplýs- ingarnar. Þar með geta sjónvarps- áhorfendur sjálfir stýrt endurtekn- ingum, til dæmis á íþróttaviðburð- um eða fræðslu- og kennsluþátt- um. Ef sjónvarpsstöðvar auka þjónustu sína aukast möguleikar áhorfenda enn, þannig að þeir geta til dæmis valið ítalskt tal á enska kvikmynd. Auk þess sem útbúnaðurinn getur tekið á móti sjónvarpssend- ingum getur hann einnig tekið á móti auglýsingaefni, þar sem hugsanlegt er að stór fyrirtæki kjósi að senda til dæmis út auglýs- ingaefni á þennan hátt, í stað þess að gefa út vöruiista. Átök við Brcko Boða vopnahlé bráðlega Brussel, Sartyevo, Zagreb, Brcko. Reuter. YFIRMAÐUR herafla Atlantshafs- bandalagsins (NATO) í Evrópu og aðstoðarframkvæmdastjóri þess héldu í gær til Zagreb í Króatíu og Sarajevo í Bosníu til fundar sem Yasushi Akashi, sérlegur sendifull- trúi Sameinuðu þjóðanna í Bosníu boðaði til. Til harðra deilna kom á milli NATO og SÞ í síðasta mánuði er Akashi neitaði að fyrirskipa loftá- rásir á Serba. Á sama tíma til- kynntu Bosníu-Serbar og múslimar um vopnahlé innan tveggja sólar- hringa. Yfirmaður heraflans, George Joulwan og aðstoðarframkvæmda- stjórinn, Sergio Balanzino hittu Ak- ashi í gær en halda í dag til Sarajevo. Innan NATO er nú til íhugunar tillaga Bandaríkjamanna og Frakka um að hóta Bosníu-Serbum enn frek- ari loftárásum, ráðist þeir á borgina Brcko. Þá hafa SÞ neitað að fylgja fimm serbneskum 'skriðdrekum í gegnum griðasvæði NATO við Sarajevo. Herir Bosníu-Serba og múslima, sem eiga í átökum nærri Brcko, sögðust í gær myndu undirrita vopnahléssamning innan næstu tveggja sólarhringa. Tilkynnti Nik- olai Kiljevic, varaforseti Bosníu- Serba, um þetta eftir fund með full- trúum SÞ. Fyrr um daginn höfðu Serbar lýst því yfir að þeir myndu ekki láta af hendi landsvæði til að koma á friði og sögðust myndu veija mikilvæga flutningaleið sína til norð- urhlutans fram í rauðan dauðann. EUROSTAR, vönduð v-þýsk stúlknahjól. Frá 5 ára, 18“ kr. 14.255, stgr. 13.542. Frá 6 ára, 20" kr. 18.400, stgr. 17.480. Frá 8 ára, 24" kr. 19.200, stgr. 18.240. DIAMOND SAHARA, 24” 18 gíra fjallahjól. SHIMANO SIS, traust og góð hjól með átaksbremsum, álgjörðum, standara, brúsa og glrhllf. Frábært verð kr.21.900, stgr. 20.805. DIAMOND ROCKY, 20" vönduð fjallahjól mðe SHIMANO SIS, gírum, átaksbremsum, álgjörðum, standara, brúsa og glrhllf. 6 gíra kr. 18.900, stgr. 17.955,12 glra kr. 22.900, stgr. 21.755. EUROSTAR, vönduð 26“ og 28“ v-þýsk dömuhjól með brettum, bögglabera, Ijósum, standara og bjöllu. Án glra, verð frá kr. 19.500, stgr. 18.525. 3 gíra, verð frá kr. 23.900, stgr. 22.705. BRONCO TRACK, 26" 18 gira fjallahjól. SHIMANO SIS, vönduð og góð hjól á mjög góðu verði. Átaksbremsur, álgjaröir, standari, brúsi og gírhlif. Verð aðeins kr. 22.500, stgr. 21.375. DIAMOND NEVADA, 24" 18 gíra vel útbúið fjallahjól með SHIMANO DUAL SIS gírum, traust og góð hjól með átaksbremsum, álgjöröum, standara, brúsa og girhllf. Verð kr. 23.900, stgr. 22.705. HIGHLANDER, dömu og herra fjallahjól frá V-Þýskalandi, með brettum, bögglabera, Ijósum og standara. 20" ón glra kr. 20.900, stgr. 19.855. 20" 3 glra kr. 24.900, stgr. 23.655. 24" 3 glra kr. 25.700, stgr. 24.415. 26" 3 gira kr. 26.800, stgr. 25.460. DIAMOND ADVENTURE, 26’ 21 gíra glæsilegt fjallahjól með SHIMANO ALTUS C10 girum, átaksbremsur, álgjarðir, standari, brúsi og glrhlíf, frábært tilboðsverð kr. 29.400, stgr. 27.930, verð áður kr. 37.680. DIAMOND NEVADA, 26" 18 glra fjallahjól. SHIMANO SIS, traust og góð hjól með átaksbremsum, álgjörðum, standara, brúsa og gírhlíf. Gott verð kr. 23.900, stgr. 22.705. DIAMOND EXPLOSIVE, 26” 21 gira glæsilegt fjallahjól með SHIMANO ALTUS C10 glrum. Átaksbremsur, álgjarðir, standari, brúsi og gírhlif, frábært tilboðsverð kr. 29.400, stgr. 27.930, verð áður kr. 37.680. VIVI fjallahjól með hjálpardekkjum, fyrirstelpu og stráka. Frá 3 ára 12'á, verð frá kr. 11.400, stgr. 10.830. Fra4 ára 14", verðfra kr. 11.900, stgr. 11.305. Frá 5 ára 16", verð frá kr. 12.300, stgr. 11.685. BRONDO ROCKET, 26" 21 glra SHIMANO ALTVIO glrar með GRIP-SHIFT STR 300i glrhandföngum. Átksbremsur, álgjarðir, álsveifar, standari, bdisi, glrhllf og gróf torfærudekk. Verð 31.500, stgr. 29.925. ITALTRIKE þríhjól, vönduð og endingargóð þríhjól. Margar gerðir og litir, verð frá kr. 4.700, stgr. 4.465. Kreditkort og greiðslusamningar, sendum í póstkröfu. HJólin eru afhent samsett og stlllt á fullkomnu relöhjólaverkstæðl. Ársábyrgö og frí upphersla eftlr mánuö. Varahlutlr og vlögerölr, vandlö vallð og versllð í sérverslun. Símar 353220 og 688860 Ármúla l/erslunin wv Æmk ÆSS ÆSB | ‘ 144R FULL BUB AF HJOLUM Á FRÁBÆRU VERÐI DIAMOND X-1000, 26“ 18 gíra fjallahjól. SHIMANO SIS, vönduð og góð hjól á frábæru verði. Átaksbremsur, álgjarðir, standari, brúsi og gírhllf. Verð aðiens kr. 21.000, stgr. 19.950. VIVI barnahjól með hjálpardekkjum. Þessi léttu og meðfærilegu barnahjól hafa reynst frábærlega hér á landi. Frá 3 ára 12'h, kr. 9.600, stgr. 9.120. Frá 4 ára 14", kr. 10.400, stgr. 9.880. Frá 5 ára 16", kr. 10.900, stgr. 10.355.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.