Morgunblaðið - 06.05.1994, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 6. MAÍ 1994 19
LISTIR
Hlustað á heiminn
MYNDLIST
Gallcrí Sólon
íslandus
MÁLVERK
Sigurður Orlygsson
30. apríl - 23. maí
Aðgangur ókeypis.
Flestir þeir sem ná að hasla sér
völl á myndlistarsviðinu gera það
í krafti persónulegra vinnubragða
og myndsýnar, sem almenningur
tengir síðan við þá; sérstaðan hef-
ur síðan markað ferilinn.
Myndsköpun Sigurðar Örlygs-
sonar hefur um langt skeið byggst
á gríðarstórum málverk-
um, þar sem geometrísk
form jafnt sem mannverur
hafa flotið um líkt og í
tómi; einnig hefur lista-
maðurinn verið ötull við að
smíða utan á myndirnar,
og gefa þeim þannig
þrívídd lágmyndarinnar, þó
eðlislögmálum málverksins
væri fylgt í hvívetna. En
Sigurður hefur einnig sýnt
fram á að þessi myndsýn
er ekki bundin við stærðir
verkanna, heldur nýtur hún
sín ekki síður í minni flöt-
um, eins og sást á sýningu
hans í Gallerí G 15 fyrir
tæpum tveimur árum.
Hér sýnir Sigurður þess-
ar tvær andstæður stærð-
anna saman; annars vegar
eru þrjú risastór olíumál-
verk, en hins vegar sextán minni
myndir, unnar með akríl á pappír.
Um er að ræða hluta úr tveimur
myndaflokkum, „Sköpun lista-
manns“ (stóru verkin) og
„Söngvarinn hlustar" (akrílmynd-
irnar). Sem fyrr skipta heiti verk-
anna nokkru máli hjá listamannin-
um og bera með sér ákveðnar til-
vísanir og tvíræðni, sem aftur er
endurspegluð í myndefninu.
Þetta kemur vel fram í mynda-
flokknum „Söngvarinn hlustar“.
Myndimar eru allar uppbyggðar á
svipaðan hátt; neðst fyrir miðju
má sjá mann (sem óneitanlega
minnir á stórsöngvarann Placido
Domingo) bíða með vökulum svip
eftir því sem berst til eyrna hans;
vatnskönnur, skálar, pípur, og
önnur kunnugleg tákn úr mynd-
heimi Sigurðar bera eitthvað í „tví-
ómi“ að eyrum hans ofan úr fletin-
4* _
með frönskum og sósu
=995.-
TAKWMEÐ , ; , / t TAKW MEÐ
-tilboðl UAW -tilboðl
Jarlínn
um. Hér má vissulega leika sér
með tvíræðni skynjunarinnar —
að sjá með eyrunum og hlusta
með augunum — því söngvarinn
þarf að sjálfsögðu á þeim hæfileik-
um að halda á sama hátt og lista-
menn á öllum sviðum, þannig að
tilvísunin til skarprar skynjunar
myndlistarmannsins er einnig til
staðar. í bakgrunni myndanna er
að finna fjölbreytta, lifandi litfleti,
sem um margt minna á þá veröld
vísindaskáldskapar, sem ýmsum
finnst myndsýn Sigurðar bera
mikinn keim af.
Stærri myndirnar eru um sumt
ólíkar því sem listamaðurinn hefur
verið að gera í stórum myndflötum
til skamms tíma. Hér er engu
Verk Sigurður Örlygssonar.
bætt utan á verkin og myndbygg-
ing er öllu einfaldari en áður. En
það er ekki nóg; heiti mynda-
flokksins, „Sköpun listamanns",
má skiíja á tvo vegu, þ.e. að verk-
in ijalli um það sem listamaðurinn
er að fást við, og hins vegar að
þau sýni á hvem hátt listamaður
verður til; þessu er skemmtilegt
að velta fyrir sér við skoðun þeirra.
í öllum þremur myndunum má
finna sterka sameiginlega þætti,
bæði varðandi vinnslu flatarins,
PaeeMaker námskeið
Tölvu- og verkfræöibjónustan
Tölvuskóli Halldórs Kristjanssonar
Grensásvegi 16 * ® 68 80 90
- kjarni málsins!
kunnugleg tákn, hausana góðu,
og hin fljótandi form; vegna þessa
beinist athygli skoðandans ekki
síður að því sem greinir þær að.
Hér gefa hinir ólíku meginlitir
(dumbrautt, blátt, gulbrúnt) helst
tilefni til íhugunar um hin mis-
munandi skeið sköpunarinnar og
tengsl þeirra við heildina, sé litið
á verkin sem þrímynd.
Uppsetning sýningarinnar nýtir
veggrýmið í Gallerí Sólon íslandus
eins og best verður gert; það er
rúmt um stóru myndirnar og auð-
velt að nálgast þær minni af pallin-
um andspænis stigaganginum.
Sigurður Örlygsson hefur náð
að skapa í verkum sínum sérstæð-
an myndheim, sem helst ber keim
af hinu súrrealíska sviði;
listamaðurinn hefur litið til
formfestu René Magritte,
furðusamsetninga Max
Ernst og dulúðar Paul Delv-
aux og nýtt sér þessa þætti
ásamt eigin framlagi til að
skapa ímynd raunveruleika,
sem þó er ekki til, en finnst
á mörkum drauma og mar-
traða, samtímans og fram-
tíðar. Þessi samlíking nær
þó tæpast að skilgreina þá
veröld, sem flýtur um verk
listamannsins; til þess dug-
ar ekki einfaldur saman-
burður, heldur verður hver
skoðandi að nálgast þennap
myndheim á forsendum
eigin skynjunar — ef til vill
með því að hlusta.
Eiríkur Þorláksson
Kvennakór Reykjavíkur
Vortónleikar í
Langholtskirkju
KVENNAKOR Reykjavíkur held-
ur vortónleika í Langholtskirkju
dagana 7. maí kl. 17.00 og 11.
maí kl. 20.30.
Auk kórfélaga koma fram
smærri hópar ásamt einsöngvara,
Sigrúnu Hjálmtýsdóttur. Svana
Víkingsdóttir leikur undir á píanó.
Stjórnandi kórsins er Margrét J.
Pálmadóttir. Á efnisskránni verð-
ur íslensk tónlist, erlend sígild tón-
list, lög úr óperum, óperettum og
söngleikjum.
Kvennakór Reykjavíkur var
stofnaður í janúar á síðasta ári
og hélt tvenna tónleika í Lang-
holtskirkju sl. vor. Einnig hélt
kórinn aðventutónleika í Hall-
grímskirkju í desember sl. Kórinn
hefur auk þess komið fram á
mannamótum við ýmis tækifæri,
nú síðast á hátíð helgaðri ári fjöl-
skyldunnarí Háskólabíói í janúar
si. Auk þess héldu félgar úr kórn-
um, sem leggur áherslu á eldri
tónlist og kalla sig „Vox Fem-
inae“, tónleika í Seltjarnarnes-
kirkju í mars sl. ásamt Ingu Back-
man, söngkonu.
í kórnum starfa nú eitt hundrað
konur og hefur kórinn einnig rek-
ið kórskóla í.vetur undir stjórn
Margrétar J. Pálmadóttur.
Kvennakórinn hefur einnig starf-
rækt skemmtikór eftir áramót fyr-
ir konur utan kórsins og hefur
hann verið í umsjón Jóhönnu Þór-
hallsdóttur og Aðalheiðar Þor-
steinsdóttur. Auk „Vox feminae“
sem áður var getið starfar nú létt-
sveit innan kórsins undir hand-
leiðslu Bjarkar Jónsdóttur og
Svönu Víkingsdóttur.
Miðasala er við innganginn og
hjá kórfélögum. Styrktarfélagar
kórsins sækja einnig sína miða við
innganginn.
MERKJASALA 6.-7. MAÍ
V I N N U M
S A M A N
/rYY//rSf/X//
Ert þú í hópi þeirra sem boröa óholla fæðu, hreyfa sig lítiö, hvílast óreglulega og
eru jafnan undir miklu álagi?
Ef svo er aætir þú átt á hættu að fá hjartasjúkdóma
og peir gera sjaldan boö á undan ser.
Landssamtök hjartasjúklinga berjast gegn hjartasjúkdómum, gæta hagsmuna
hjartasjúklinga og styrkja hjartalækningar á íslandi.
Þú getur lagt okkur lið með því að kaupa merki samtakanna, eða með því að
gerast félagi. Landssamtökin eru samtök allra áhugamanna um verndun hjartans.
LANDSSAMTÖK HJARTASJUKLINGA
Hafnarhúsinu viö Tryggvagötu, sími 25744.