Morgunblaðið - 06.05.1994, Page 22
22 FÖSTUDAGUR 6. MAÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSEIMDAR GREIINIAR
Samskíptin við Kína
Nágrannaþjóðir okkar,
vestan hafs og austan,
keppast við að auka
SIÐARI GREIN
í NÝLEGRI för minni til Austur-
Asíu, með viðkomu í Japan, Kína
og Suður-Kóreu, tilkynnti ég kín-
verskum stjórnvöldum, eins og fram
kom í fyrri grein minni, að Island
vildi opna þar sendiráðsskrifstofu,
og virða þannig grundvallarregluna
um gagnkvæmni í samskiptum
þjóðanna.
í fyrri grein minni segir að við-
skiptahagsmunir væru mikilvæg
ástæða ákvarðana um rekstur
sendiskrifstofa erlendis. Viðskipti
íslands hafa farið vaxandi við Suð-
Austur Asíu undanfarin ár (sjá
töflu) og eru líkur fyrir því að svo
verði áfram, eftir því sem þessi lönd
verða ríkari. Jafnvel þótt meðaltekj-
ur séu ennþá lágar í sumum þess-
ara ríkja, fer þeim sífellt fjölgandi,
sem hafa jafnmiklar eða meiri tekj-
ur en Vesturlandabúar. Á töflunni
sést að Suðaustur-Asía er orðinn
jafnmikilvægur markaður fyrir ís-
lenskan útflutning og Bandaríkja-
markaður. Velta vöruviðskipta var
um 12% við þessi ríki á síðasta ári,
miðað við 12,7% fyrir Bandaríkin.
Það land sem kaupir mest af ís-
landi í Suðaustur-Asíu er Japan,
sem var fjórða mikilvægasta út-
flutningslandið 1993 á eftir Bret-
landi, Bandaríkjunum og Þýska-
landi. Taívan lenti í 13. sæti árið
1992 og jókst útflutningur þangað
um 25% í fyrra. Árangur íslands í
Taívan gefur einhveija vísbendingu
um framtíðarmöguleikana í Kína,
þar sem íbúar eru 55-falt fleiri.
Þar sem viðskipti Islands eru
meiri við Japan en við Kína og
nærliggjandi svæði, Taívan og
Hong Kong, samanlagt væri freist-
andi að álykta að skynsamlegra
væri fyrir ísland að opna sendiskrif-
stofu fyrst í Tókýó. Nokkrar ástæð-
ur eru fyrir því að svo
er ekki. Ein sú mikil-
vægasta er að viðskipti
við Japan hafa þróast
á markaðsgrundvelli,
án atbeina eða með litl-
um afskiptum stjórn-
valda. Allt önnur staða
ríkir í Kína, sem enn
býr við miðstýrt hag-
kerfi, þótt vissulega
séu að verða breytingar
á því. En í stórum
dráttum er það enn svo
að þar hafa stjórnvöld
veruleg afskipti af
milliríkj aviðskiptum.
Sendiskrifstofa myndi
því koma íslenskum
fyrirtækjum að mun meira gagni
en í Japan. Við þetta bætast þau
sjónarmið sem áður eru rakin, um
stöðu Kína í heiminum, gagn-
kvæmnissjónarmið og kostn-
mönnum sendiráða að
sinna vissum verkefn-
um í þágu lands og
þjóðar, sem viðskipta-
skrifstofa mætti ekki
alltaf vinna. Fyrir
minni ríkin er því yfir-
leitt hagkvæmara að
vera með sendiráð en
viðskiptaskrifstofur,
þótt stóru ríkin geti
leyft sér að reka hvort
tveggja. í Kína væri
hvorki skynsamlegt né
hagkvæmt að vera ein-
göngu með viðskipta-
skrifstofu.
Mat á árangri
Þótt ísland opni sendiskrifstofu
í Kína um næstu áramót, með að-
stöðu í sendiráði Svíþjóðar til þess
samskipti við Asíuþjóð-
ir, staðhæfir Jón Bald-
vin Hannibalsson,
vegna margvíslegra við-
skiptamöguleika sem
þar bjóðast.
að byija með, mun það ekki í sjálfu
sér leiða til stóraukins útflutnings
strax á næsta ári. Stofnun sendi-
ráðs er langtíma ráðstöfun. Ekki
verður unnt að meta árangurinn
fyrr en í fyrsta lagi eftir 3-4 ár.
Byggja verður upp aðstöðu, stofna
sambönd, heimsækja nágrannaríki,
byggja upp traust. Mjög mikilvægt
Jón Baldvin
Hannibalsson
að.
Sendiráð eða
viðskiptaskrifstofa
Því er stundum haldið fram að
betra væri að stofna viðskiptaskrif-
stofur en sendiráð erlendis. Þótt
viðskiptaskrifstofur geti verið æski-
legar í sumum tilfellum, þá eru þær
yfirleitt verri kostur fyrir lítil lönd.
Slíkar skrifstofur njóta yfírleitt ekki
skattafríðinda, nema þær séu hluti
af sendiráði eða ræðisskrifstofu.
Þær eru álíka dýrar í rekstri og
sendiráð, sem geta sinnt mun fjöl-
breyttara hlutverki. 011 sendiráð
Islands eru viðskiptaskrifstofur, en
viðskiptaskrifstofur geta aldrei ver-
ið sendiráð. Sendiherra er viður-
kenndur fulltrúi þjóðhöfðingja og
sem slíkur hefur hann yfirleitt mun
betri aðgang að stjómvöldum. Auk
þessgilda fastmótaðar reglur í sam-
skiptum þjóða, sem heimila starfs-
Utanríkisverslun viö Austur-Asiu o.fl. 1992 og 1993
Útflutningur FOB Innflutningur CflF Milljónir kr. 1992 Útflutningur % 1993 % Breyting 1992 Innflutningur % 1993 % Breyting
A. Japan 6.628,0 7,5% 8.777,1 9,3% 32,4% 5.579,1 53% 5.056,9 53% -93%
B. Suöur-Kórea 89,1 0,1% 225,7 03% 153,3% 729,0 03% 7613 03% 43%
C. Kína o.fl. 1.4933 1,7% 1.904,3 2,0% 27,5% 2.0873 23% 2.3013 23% 103%
Taívan 1.476.0 1,7% 1.845,8 1,9% 25,1% 787,9 0,8% 844,4 0,9% 7,2%
Hong Kong 11,8 0,0% 49,9 0,1% 322,9% 622,1 0,6% 526,3 0,6% -15,4%
AlþýðulýÖveldið 6.0 0,0% 8,6 0,0% 43,3% 677,3 0,7% 931,1 1,0% 37,5%
D. ASEAN 32,9 0,0% 51,5 0,1% 56,5% 5803 0,6% 6013 0,7% 33%
Tafland 8,9 0.0% 24,0 0,0% 169,7% 199,9 03% 139,2 0,2% -30,4%
Singapúr 18,6 0,0% 15J 0,0% -16,7% 144,5 0,1% 1593 0,2% 10,2%
Indónesía 3.3 0,0% 8,9 0,0% 169,7% 87,1 0,1% 128,8 0,1% 47,9%
Malasía 1,4 0,0% 2,7 0,0% 92,9% 89,7 0,1% 124,5 0,1% 38,8%
Filippseyjar 0,7 0,0% 0,4 0,0% -42,9% 59,6 0,1% 49,5 0,1% -16,9%
Brúnei 0,0 0,0% 0,0 0,0% 0,0% 0,0 0,0% 0,0 0,0% 0,0%
Samtals A-D 8.243,8 9,4% 10.958,6 11,6% 32,9% 8.9763 93% 8.7213 9,6% -23%
E. Óseanía 65,1 0,1% 1533 0,2% 1353% 2.5523 2,6% 2.2693 23% -11,1%
Ástralía 59,9 0,1% 43,6 0,0% -27,2% 2.468,3 2,5% 2.202,6 2,4% -10,8%
Nýja-Sjáland 5,2 0,0% 109,6 0,1% 2007,7% 83,9 0,1% 66,9 0,1% -20,3%
Samtals A-E 8.308,9 9,5% 11.1113 11,7% 33,7% 113283 11,9% 10.991,0 12,0% -4,7%
Bandaríkin 10.038,8 11,4% 15.164,4 16,0% 51,1% 8.012,1 8,3% 8.502,9 9,3% 6,1%
Alls 87.832,9 100,0% 94.7033 100,0% 7,8% 96.895,4 100,0% 9007,0 100,0% -53%
Á töflunni sést að mikil útflutningsaukning hefur orðið frá Islandi til Austur-Asíu,
um 33% milli ára 1992-93. Útflutningurinn var orðinn 11,6% heildarútflutnings
1993 (en meðaltalsútflutningur til Bandaríkjanna 1990-93 var 12,6%). Útflutningur
til aðildarríkja Samtaka suð-austur Asíuþjóða (ASEAN) er enn lítill, en talið er að
þar geti verið svigrúm til útflutningsaukningar.
er í þessum ríkjum að aðili sé á
staðnum til þess að fylgja málum
eftir. Kostnaðurinn yrði svipaður
og fyrir lítið sýslumannsembætti.
Varðandi þá möguleika sem ís-
lendingum bjóðast í Kína og víðar,
mun reynslan leiða það í ljós, hvaða
valkostir eru fýsilegastir. Sjávaraf-
urðir verða vissulega áfram mikil-
væg útflutningsvara til Asíu, bæði
ódýrari tegundir og þær verðmeiri.
í framtíðinni verður að skoða mögu-
leika á að fullvinna vöruna meira
hérlendis og aðlaga hana markaðs-
aðstæðum í þessum löndum. Á
þessu sviði þarf að vinna mikið
undirbúningsstarf.
Þá eru í Kína möguleikar fyrir
ísland til þess að bjóða ýmsa þjón-
ustu, verkfræðiþjónustu, verktaka-
þjónustu við jarðhita, vegagerð o.fl.
Allt eru þetta valkostir fyrir íslensk
fyrirtæki sem vilja færa út kvíarn-
ar. Loks má nefna að einhver fyrir-
tæki munu sjálfsagt vilja styrkja
stöðu sína í framtíðinni með 'sam-
starfsverkefnum í þessum löndum;
t.d. með því að framleiða á stærri
markaði vöru, sem reynst hefur vel
á íslandi, svo sem veiðarfæri, sér-
hæfðan vinnufatnað og tæknibún-
að.
Nágrannaþjóðir íslands, bæði
vestan hafs og austan, keppast nú
við að auka samskipti sín við Asíu-
þjóðir, vegna þeirra viðskiptamögu- j
leika sem þar bjóðast og væntan- ^
legs ávinnings af gagnkvæmu sam-
starfi. Það mun reynast heillaspor
fyrir íslendinga í framtíðinni að
stíga þetta fyrsta skref nú til að
treysta samskipti landsins við Kína
og aðrar Asíuþjóðir.
Á næsta ári verður kvennaráð-
stefna Sameinuðu þjóðanna haldin
í Peking. Um svipað leyti mun for-
seti íslands fara í sína fyrstu opin- 1
beru heimsókn til Kína. Ég vona I
að íslenskt sendiráð í Peking hafi j
þá tekið rösklega til starfa.
Höfundur er utanríkisráðherra og
formaður Alþýðuflokksins —
Jafnaðarmannaflokks íslands.
Þau eru á
okkar vegum.
Styöjum við bakið á þeim.
+
Rauði kross íslands
Rauöarárstig 18,105 Reykjavík, sími 91 -626722
Sendifulltrúar Rauða krossins á neyðarsvæðum eru oft síðasta
von hinna varnarlausu. Þeir hafa bjargað milljónum mannslífa
um víða veröld.Við íslendingar höfum lagt okkar að mörkum í
því mannúðarstarfi. En betur má ef duga skal.
Á sjötta tug íslenskra sendifulltrúa úr mörgum starfsgreinum
hafa starfað á vegum Rauða krossins í 30 löndum á undan-
förnum árum. Þeir njóta virðingar og eru eftirsóttir vegna
víðtækrar reynslu, útsjónarsemi og dugnaðar - mannkosta sem
nýtast vel þar sem allt er í hers höndum.
Taktu þátt í mannúðarstarfinu með okkur og greiddu
gíróseðilinn í næsta banka eða pósthúsi.
Framlag þitt hjálpar þeim.
i