Morgunblaðið - 06.05.1994, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 6. MAÍ1994 33
I
í
1
I
i
I
I
f
I
I
I
I
í
I
<
1
I
i
MIIMIMIIMGAR
sem stóðu höllum fæti. Hins vegar
batt hún vonir við að flokkur sinn
myndi á Alþingi ná fram ýmsum
réttindamálum fólksins í landinu sem
og varð, en ekki af þeim hraða sem
hún kaus. Það er þó kannske engin
tilviljun að Aðalheiður réði miklu um
að það tókst að mynda ríkisstjórn
Steingríms Hermannssonar 1988,
stjórnina sem náði tveimur árum síð-
ar þjóðarsátt og lagði grunninn að
þeim stöðugleika sem ríkt hefur síð-
an.
Við Aðalheiður vorum bæði byij-
endur á Alþingi 1987, hún sjóuð i
harðri baráttu verkalýðsins og vön
að ganga beint fram og hlífa sér
hvergi. Eg dáðist fljótt að því hversu
einörð hún var og laus við alla til-
gerð og óþarfa mælgi. Þegar einhver
mál voru á dagskrá sem hún bar
fyrir bijósti gekk hún án þess að
hafa nokkuð í höndunum í ræðustól-
inn og talaði frá hjartanu. Þingmenn
tóku mjög tillit til orða hennar og
virtu þessa fullorðnu baráttukonu.
Hún var verðugur fulltrúi fólksins í
landinu þau ár sem hún sat á Alþingi.
Ég ætla að rifja upp brot úr tveim-
ur ræðum Aðalheiðar sem lýsa henni
vel. Hún gekk fram í baráttu fyrir
réttindum heimavinnandi húsmæðra
og um frumvarp um lífeyrisréttindi
sagði hún 2. desember 1987: „Ef
frumvarpið verður samþykkt þá
verður rutt úr vegi þeirri hindrun sem
felst í því hugarfari að hugsa sem
svo: Þessi kona er heima. Hún gerir
ekkert. Hún er bara húsmóðir. Þegar
ég lít til baka yfir mína ævi finnst
mér að ég hafi ekki sofnað þreyttari
í annan tíma en þegar ég var bara
húsmóðir og sveitakona og mér
finnst meira en mál til komið að fara
að meta þetta.“ Henni rann til rifja
að móðirin sem með uppeldisstarfi
sínu skyldi ekki hafa réttindi á borð
við aðra fyrir sitt mikla starf.
Þegar hún varði ríkisstjórnina í
sinni síðustu ræðu á Alþingi sem hún
var stundum kölluð „mamma“ að
sagði hún: „Hvað hefur áunnist? Þið
vitið það öll. Verðbólga mælist nú
minni en áður hefur þekkst. Vaxtaó-
freskjan er á hröðu undanhaldi. At-
vinnuvegir úti um landið eru á upp-
leið og atvinnuleysi minna en þeir
bjartsýnu þorðu að vona.“ Svo spurði
hún: „Vilja menn að fijálshyggjan
grálynd og grimm setjist aftur að
völdum? Spili hratt og villt og hlaupi
svo í fangið á EB þegar allt um þrýt-
ur?“ Síðustu varnaðarorðin féllu.
Styrkur var Alþingi að Aðalheiði
Bjarnfreðsdóttur og hún hafði áhrif
og setti annað og betra yfirbragð á
þingið. Þingmenn Framsóknar-
flokksins og Framsóknai-flokkurinn
þakka Aðalheiði við leiðarlok fyrir
samstarfið frá 1988 til 1991. Hún
ásamt Steingrími Hermannssyni áttu
stóran þátt í því hversu vel tókst að
stýra þjóðfélaginu inn á brautir sókn-
ar og samstöðu á þessum árum. Mín
tilfinning er sú að verkalýðshreyfing-
in hafi verið fúsari til samstarfs og
fundið betri hljómgrann fyrir sínum
viðhorfum í ríkisstjórn þar sem Aðal-
heiður Bjarnfreðsdóttir var mikils
metin og réð oft úrslitum.
Stíðar áttum við náið og gott sam-
starf í bankaráði Búnaðarbankans,
ég sem formaður en hún varaformað-
ur. Þar gerðist það sama, barátta
fyrir fólkinu var henni efst í huga
en ég fann þó jafnan að hún gerði
þær kröfur til fólks að það gerði
skyldu sína og vildi að menn björguð-
ust af dugnaði sínum. Hún hafði aldr-
ei vanist öðru og taldi vinnuna upp-
sprettu hamingjunnar. Við áttum
mjög gott samstarf, hún hafði áhuga
á málefnum bankans og gerði kröfur
um aðhald og sparnað og gladdist
yfir góðri afkomu bankans. Aðalheið-
ur var óvenju heilsteypt manneskja
með mikla réttlætiskennd og ómyrk
í máli ef vegið var að hennar hugsjón-
um. Þá var erfítt að' mæta henni svo
rökföst var hún.
Aðaiheiður og Guðsteinn voru fiutt
heim í Rangárþing og höfðu komið
sér vel fyrir á dvalarheimili aldraðra
á Hvolsvelli. Þegar ég átti leið um
Hvolsvöll kíkti ég gjarnan inn hjá
þeim hjónum, drakk kaffibolla og við
ræddum málefni líðandi stundar. Nú
við leiðarlok vil ég þakka samstarfið
og allar skemmtilegu minningarnar
sem ég á af samskiptum mínum við
þessa merku baráttukonu.
Mér finnst héraðið okkar ögn flat-
ara eftir að hún er horfin og sakna
vinar í stað sem vildi vel og ráðlagði
heilt. Þeir eru margir sem munu
sakna Aðalheiðar Bjarnfreðsdóttur
og þakka við leiðarlok hennar mikla
starf og ósérhlífni í baráttunni fyrir
kjörum og sjálfsögðum mannréttind-
um kvenna og verkafólks.
Við Margrét sendum Guðsteini,
bömum hennar og afkomendum
samúðarkveðjur. Minningin um starf
og lífsbaráttu Aðalheiðar mun lifa
og er öllum til eftirbreytni.
Guðni Agústsson.
Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir tók
við formennsku í Sókn 1976 eftir
kosningar sem þá fóru fram. Hennar
beið erilsamur tími því mikil átök
voru þá á vinnumarkaði. Á þessum
árum náðust ýmsir merkir áfangar
inn í samninga, svo sem mat á hús-
móðurstarfi til starfsaldurs auk,
mats á húsmæðraskólaprófi um einn
launaflokk svo og veikindaréttur
vegna veikra barna, lenging á orlofi
og starfsmenntunarnámskeið. Þetta
eru þau atriði sem Aðalheiður var
hvað stoltust yfir að hafa átt þátt í
að næðu fram að ganga.
Ýmiskonar félagsstarf þróaðist
einnig á þessum árum og má þar
nefna sumarferðir Sóknar sem voru
helgarferðir innanlands. Þær ferðir
hafa verið farnar árlega frá þessum
tíma og njóta sífelldra vinsælda og
er þetta góð leið til að fólk kynnist
og fái notið landsins síns. Þá fór af
stað félagsvist á þessum árum og
með þrautseigju hélt spilanefndin út
því hægt fór þetta af stað. Þessi
starfsemi er í dag með miklum
blóma, þökk sé frumkvöðlunum.
Á þessum árum voru oft hörð
vinnustaðaátök og þurfti oft að
bregðast við með lagni til að ná fram
málamiðlun á vinnustöðum. Einnig
voru félagsleg átök sem oft komu
berlega í ljós á félagsfundum og
voru fundirnir oft mjög ijölmennir
og snörp skoðanaskipti sem ekki
greri yfir í einstaka tilfellum. Má þar
minnast eftirminnilegra funda bæði
í Hreyfilshúsinu og í Borgartúni 6,
þar sem samningar voru eitt sinn
felldir, og afhenti þá Aðalheiður óró-
legu deildinni samningsumboð en
viðsemjendur voru þeim viðskotaillir
þannig að endirinn fór í hendur Aðal-
heiðar sem leysti málið að lokum.
Það duldist engum sem kynntist
Aðalheiði að þar fór kona með stórt
hjarta og mikið skap. Skapinu beitti
hún ansi oft til að gefast ekki upp
þegar heilsan var henni erfið. Okkur
er minnisstætt þegar hún fékk
lungnabólgu fjórum sinnum sama
árið og gekk það langt að kalla til
sín samninganefnd borgar og ríkis
að sjúkrarúmi sínu á Landspítalanum
þar sem lagðar voru línur í úrlausn
á samningahnút. Samningsaðilar
Sóknar virtu vitsmuni Aðalheiðar
afar mikils enda var hún afar fljót
að sjá út leiðir í sarnningamálum og
fylgdi þeim vel.eftir. í starfi sínu sem
formaður Sóknar átti Aðalheiður
sæti í mörgum nefndum og ráðum
og fannst henni oft fara ærinn tími
í þetta. nefndamas og oft væri inni-
haldið rýrt sem útúr þessu kæmi.
Af þessu má meðal annars sjá hvern-
ig hún stýrði stjórnarfundum sem
voru stuttir og markvissir og ekkert
óþarfa mas um aukaatriði. Þetta var
hennar stíll og því breytti enginn.
Árið 1982 var tekin ákvörðun um
að Starfsmannafélagið Sókn eignað-
ist eigið húsnæði bæði fyrir skrifstof-
ur og fundi. Þetta var stórhuga
ákvörðun og þótti ýmsum nóg um.
1983 tók Aðaiheiður fyrstu skóflu-
stunguna að Sóknarhúsinu í Skip-
holti 50A. Húsið var stórt og var
strax í upphafi gert ráð fyrir að selja
hluta þess. Verkakvennafélagið
Framsókn varð til að kaupa 1. hæð
hússins fyrir skrifstofur sínar. Einnig
voru seldar íbúðir sem eru á efstu
hæð hússins. En stærsti hluti hússins
er í eigu Sóknar og var það vígt 12.
apríl 1986. Þetta hús hefur verið
mikil lyftistöng fyrir félagið og er
það vel þekkt sem Sóknarhúsið. Þar
fer fram mikil starfsemi, bæði félags-
leg og líkamleg, því þar er rekin
heilsurækt sem var sú fyrsta sinnar
tegundar á íslandi sem sérstaklega
var sniðin að þörfum kvenna og einn-
ig til að vinna á versta meini ís-
lensks vinnumarkaðar „vöðvabólgu".
Þetta eru stórir draumar sem Aðal-
heiður sá til að rættust. Við í Sókn
erum stolt af að hafa átt meðal okk-
ar aðra eins konu og Aðalheiði Bjam-
freðsdóttur.
Þá er rétt að minnast þess að hún
var málsvari þeirra sem minna máttu
sín, ekki bara í Sókn heldur einnig
síðar á Alþingi. Það var henni svo
eiginlegt að engum duldist að þar
talaði kona með þekkingu á kröppum
kjörum og langvarandi veikindum
enda þekkti hún hvort tveggja af
eigin reynslu.
Árin sem Aðalheiður vann fyrir
Sókn urðu ellefu, en þá var heilsan
farin að gefa sig og vildi hún því
hafa jafnari vinnu og ætlaði að hætta
störfum vorið 1987 sem formaður.
Hún vildi gjarnan taka saman sögu
Sóknar á því ári og næsta en margt
„fer öðruvísi en ætlað er því um vorið
er hún kosin inn á Alþingi fyrir Borg-
araflokkinn. En Starfsmannafélagið
Sókn var henni afar kært og fylgdist
hún með starfsemi félagsins alveg
fram að hinstu stundu. Bar hún hag
þess fyrir bijósti og var félagsmaður
þess af lífi og sál.
Starfsmannafélagið Sókn þakkar
Aðalheiði hennar merku störf fyrir
Sókn sem hér hefur aðeins verið
getið. Þá viljum við sérstaklega
þakka maka hennar Guðsteini Þor-
steinssyni sem stóð við bakið á henni
öll hennar starfsár. Við sendum Guð-
steini, börnum hennar og öðrum að-
standendum samúðarkveðjur og biðj-
um Guð að varðveita ykkur í sorg
ykkar.
Stjórn Starfsmanna-
félagsins Sóknar.
Elskuleg vinkona mín er látin. Við
Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir kynnt-
umst fyrir um 15 árum. Þá var ég
að sækja námskeið í Námsflokkunum
fyrir sóknarstarfsmenn. Á þessum
námskeiðum kenndi hún réttindi og
skyldur starfsfólks og var það mikil
reynsla að fá beint í æð allt um kjara-
samninga og réttindi sem þeim
fylgja. Seinna kynntumst við betur
þegar ég sótti fjölmennasta trúnað-
armannanámskeið Sóknar á Freyju-
götunni. Lærðum við þar með að
leita til félagsins þegar mál komu
til úrlausnar sem við ekki kunnum
skil á.
Það var gott að leita til Aðalheiðar
og hafði hún mikinn áhuga á hvern-
ig okkur gengi úti á vinnustöðunum.
Ári seinna kvaddi hún mig til frek-
ari starfa fyrir félagið og upp frá
því áttum við afar náið samstarf,
m.a. í byggingarnefnd vegna Sókn-
arhússins. Vinátta hennar hefur ver-
ið mér og fjölskyldu minni afar mik-
ils virði og höfum við haldið nánu
sambandi hin síðari ár með heim-
sóknum og símtölum því alltaf vildi
hún fylgjast með félaginu og einnig
fá fréttir af fjölskyldunni en betri
helmingur minn er af skaftfellsku
bergi brotinn og tókst þeim að rekja
saman ættir sínar sem henni þótti
nú ekki lakara.
Nokkur áhugamál áttum við sam-
eiginleg, þó sérstaklega skógrækt en
þar var hugurinn á flugi þegar við
ræddum um trjálundina sem okkur
voru kærastir. Bóklestur var okkur
sameiginlegur og sótti ég fyrir hana
bækur í bókasafnið um tíma en hafði
varla undan þar sem hún var afar
hraðlæs.
Á sumardaginn fyrsta litum við
inn til hennar á Vífilsstöðum og hún
þá fjarskalega lasin en spurði samt
um félagið og hvað væri helst á döf-
inni. Þannig var hún í sínum veikind-
um, hugurinn bar hana þangað sem
hún vildi.
Margs er að minnast þegar litið
er til baka en hæst ber minninguna
um afar stórbrotna konu sem hafði
hijúfa framkomu en stórt hjarta og
stóran faðm fyrir þá sem fengu að
kynnast henni nánar. Það að eiga
Aðalheiði að vini var stór gjöf sem
ég vil þakka um leið og ég kveð, þig
kæra vinkona, með söknuði.
Ég sendi þér, Guðsteinn, hjartans
kveðjur. Einnig votta ég börnum og
öðrum aðstandendum innilega samúð
mína.
Þórunn Sveinbjörnsdóttir,
Formaður Sóknar.
Nú eru sextán ár liðin frá því
stofnun Leigjendasamtakanna var
ákveðin. Ég hafði rætt við nokkra
verkalýðsleiðtoga, sem flestir tóku
hugmyndinni vel, en ekkert gerðist.
Svo náði ég símasambandi við Aðal-
heiði, sem þá var formaður Sóknar,
og hún sagði strax: Við gerum þetta,
og þar með var stofnunin ákveðin.
Aðalheiður gekk í það af krafti að
koma stofnfundinum á, útvegaði
húsnæði og frummælanda og lét
auglýsa fundinn. Oftar mun Aðal-
heiður hafa lagt lið réttindabaráttu
manna í húsnæðismálum, og einnig
eftir að hún varð þingmaður.
Við leiðarlok þakka Leigjendasam-
tökin Aðalheiði stuðninginn og bar-
áttu hennar alla fyrir réttindum fá-
tækra.
F.h. Leigjendasamtakanna,
Jón Kjartansson frá Pálmholti,
form.
Fleiri minningargreinar um
Aðalheiði Bjarnfreðsdóttur
bíða birtingar ogmunu birtast
í blaðinu næstu daga.
t
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
MARGRÉT JÓNSDÓTTIR,
Ölkeldu II,
Staðarsveit,
sem lést að kvöldi 1. maí, verður jarð-
sungin frá Staðastaðarkirkju laugardag-
inn 7. maí kl. 14.00.
Sætaferð verður frá BSÍ kl. 11.00.
Gfsli Þórðarson,
Þórður Gíslason,
Ingibjörg Þórðardóttir,
Stefán Konráð Þórðarson,
Jón Svavar Þórðarson,
Haukur Þórðarson,
Signý Þórðardóttir,
Kristján Þórðarson,
Tama Bjarnason,
Snæbjörn Sveinsson,
Ragna (varsdóttir,
Bryndfs Jónasdóttir,
Rósa Erlendsdóttir,
Helgi Jóhannesson,
Astrid Gundersen,
barnabörn og barnabarnabarn.
stydjum D-listann
Ágústa Johnson
líkamsræktarþjálfari
Eva Ottósdóttir
Sóknarstarfsmaður
Páll Eiríksson
fyrrv. yfirlögregluþjónn
Björgvin Halldórsson
tónlistarmaður
Dagur Sigurðsson
handknattleiksmaður