Morgunblaðið - 06.05.1994, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 6. MAÍ 1994 35
af fólkinu þar og það sýndi henni
margan sóma. Fyrir fjórum árum
flutti hún til Reykjavíkur. Þá urðu
heimsóknimar fleiri. Alltaf var jafn
gaman að koma til ömmu og alltaf
tók hún á móti manni eins og höfð-
ingi væri þar á ferð. Eftir því sem
ég varð eldri óx sú virðing sem ég
bar fyrir ömmu minni. Hjá henni
lærði ég ótalmargt sem ég bý að í
lífinu og þann íjársjóð minninga er
mikils virði að eiga.
Ég kveð ömmu Jóhönnu með
virðingu og þakklæti.
Jóhanna Valgeirsdóttir.
Fyrstu minningar mínar um
ömmu einkennast af því hversu
sterkur persónuleiki hún var. Þannig
minnist ég hennar. Aðeins sex ára
gömul man ég eftir sterkri konu
geislandi af gleði og orku. Ég sé
hana fyrir mér standa brosandi með
hárið fallega upp sett, á stéttinni
fyrir utan húsið sitt á Hellissandi,
full tilhlökkunar að taka á móti gest-
um sínum. Einnig sé ég hana fyrir
mér syngjandi og létta í fasi á góðra
vina fundi, glæsilega í þjóðbúningi
sínum. Myndin af ömmu frá þessum
tíma er ljóslifandi fyrir augum mín-
um. Þannig vil ég varðveita minning-
una um elskulega ömmu mína.
Ferðir okkar systkina til ömmu
á Sandi voru margar á þessum
árum, því við bjuggum með foreldr-
um okkar í Ólafsvík. Ég er þakklát
fyrir að hafa fengið tækifæri til að
kynnast ömmu svona vel á þessum
árum. Amma var gestrisin og það
var sönn ánægja að sækja hana
heim. Það var bjart í stofunni henn-
ar og tignarlegur Snæfellsjökullinn
blasti við úr stofuglugganum, en
hann var augnayndi hennar.
Amma hafði ákaflega gaman af
að gefa börnum að borða. Þegar
vel var tekið til matarins var henni
mikið skemmt. Hún átti til að slá
sér á lær og hlæja, ánægð og undr-
andi. Amma átti auðvelt með að
gleðja aðra og láta gott af sér leiða.
Til að gleðja ömmu þurfti lítið til,
enda var hún kát að eðlisfari og
kunni að slá á létta strengi.
Samverustundir okkar systra
með ömmu fyrir vestan eru eftir-
minnilegar: Ferðirnar í blómagarð-
inn, í hraunið sem hún unni svo
vel, ferðirnar í beijamó og söng-
stundirnar í stofunni hennar ömmu,
þar sem hún lék á orgelið af mik-
illi innlifun. Sérstaklega eru minnis-
stæðar ferðir okkar í hraunið. Þá
var útbúið nesti og haldið af stað.
Við fundum notalega laut og bjugg-
um til hlóðir, svo hægt væri að hita
kakóið. Við komurn okkur þægilega
fyrir og alls staðar í kringum okkur
blasti við stórbrotið og fallegt
hraunið. Það var hægt að gera og
sjá svo ótal margt í hrauninu. Eitt
sumarið héldum við systurnar meira
að segja upp á afmælið okkar í
hrauninu hjá ömmu. Það var sann-
kölluð veisla og ógleymanleg stund.
Amma gaf mikið af sér og kenndi
mér margt og það er mikils virði
fyrir barn.
Amma hafði ákveðnar skoðanir,
hún var fylgin sér og lét ekki sitt
eftir liggja. Hún var sannkölluð
kjarnakona. Amma fylgdist vel með
barnabörnum og barnabarnabörn-
um sínum. Þrátt fyrir lasleika kom
hún fyrr á þessu ári á tveggja ára
afmælisdegi sonar míns og færði
honum pijónaða sokka og vettlinga.
Svona var amma.
Trúin var leiðarljós ömmu í lífinu
og traust hennar á trúna var óbifan-
leg. Hún var alla tíð viss um að
hún myndi hverfa til annars lífs,
enda sagði hún eins og segir í Dav-
íðssálmi nr. 23. „. . . í húsi Drottins
bý ég langa ævi.“
Amma var merk kona síns tíma.
Allt hennar líf og starf ber vott um
hversu mikill kvenskörungur hún
var. En fyrir mér var hún fyrst og
fremst góð arama. Hún var alveg
eins og hún átti að vera.
Ég kveð elskulega ömmu mína
með söknuði. Ég vona að mér auðn-
ist að varðveita allar fallegu minn-
ingarnar um hana í huga mínum
og hjarta. Megi algóður Guð blessa
hana og geyma.
Steinunn Hreinsdóttir.
MINNINGAR
KRISTINN MAGNÚS
MAGNÚSSON
+ Kristinn Magn-
ús Magnússon
fæddist í Reykjavík
1. desember 1915
og lést á öldrun-
ardeiid Landspítal-
ans 27. april 1994,
78 ára að aldri, eft-
ir langvarandi veik-
indi. Foreldrar
hans voru Sigríður
Guðmundsdóttir og
Magnús Magnússon
og eignuðust þau
þrjú börn, Guð-
laugu, Kristin og
Björgvin, sem dó
þriggja ára að
aldri. Kristinn kvæntist danskri
konu, Lilly Margarethe, sem er
fædd Hansen, 12. mars 1952,
en áður eignaðist hann son,
Hafstein, sem kvæntur er Guð-
rúnu Ágústu Steinþórsdóttur
og eiga þau þrjú börn. Jarðar-
för Kristins hefur farið fram.
Nú legg ég augun aftur,
ó, Guð, þinn náðarkraftur
mín veri vöm í nótt.
Æ, virst mig að þér taka,
mér yfir láttu vaka
þinn engil svo ég sofí rótt.
(Þýð. S. Egilsson.)
Mér er ljúft að minnast Kristins
með nokkrum orðum. Það er
skammt stórra högga á milli hjá
okkur í ættar- og vinahópnum, þar
sem maðurinn minn, Steinþór Ei-
ríksson, andaðist 4. mars sl. Þeir
voru systrasynir og alla tíð góðir
vinir.
Foreldrar Kidda frænda, eins og
hann var alltaf kallaður á mínu
heimili, bjuggu í Hafnarfirði um
tíma, en fluttu aftur til Reykjavíkur
og bjuggu á ýmsum stöðum í bæn-
um, aðallega í Vesturbænum.
Ungur að árum þurfti Kiddi að
gerast fyrirvinna heimilisins ásamt
systur sinni. Sigríður móðir þeirra
festi kaup á íbúð á Framnesvegi
10 og má nærri geta að það hefur
verið þungur róður, kreppan í al-
gleymingi og mikið atvinnuleysi.
Það þótti mikið lán að komast í
fiskvinnu. Guðmundur Eiríksson
frændi þeirra var verkstjóri á Þor-
móðsstöðum og tók þau í vinnu og
þar kynntist ég þeim systkinum.
Unnum við þar saman í nokkur ár,
svo það eru orðin yfir 60 ár síðan
kunningsskapurinn
hófst og aldrei hefur
slest upp á vinskapinn.
Ég bjó á heimilinu hjá
þeim meira og minna
í þijú ár. Þar var gott
að vera, Sigríður móðir
þeirra var mikið væn
og bráðmyndarleg
kona.
. Kiddi vann svo síðar
nokkur ár í Lýsis-
hreinsunarstöð Bern-
hards Petersen. Þegar
hann hætti þar keypti
hann sér vörubíl og
gerði hann út um tíma.
Fór hann svo út í leigu-
bílaakstur og vann hjá Hreyfli eins
lengi og heilsan leyfði. Lilly eigin-
kona hans var smurbrauðsdama,
vann lengi í Birninum og voru snitt-
urnar hennar heimsfrægar á íslandi
í það minnsta.
Guðlaug systir Kidda giftist
Bjarna Karlssyni málarameistara
6. maí 1944 og eignuðust þau tvær
dætur, Sigríði og Astríði. Lauga dó
1963, langt um aldur fram, og var
hennar sárt saknað. Mikill sam-
gangur var á milli heimila okkar
og þótti öllum vænt um Laugu
frænku.
Kiddi fór ekki með offorsi í líf-
inu, hann var rólegur og prúður
maður. Áhugamál hans voru, held
ég, hið daglega amstur. Hann las
mikið í gamla daga, en í seinni tíð
þótti honum ósköp gaman að spjalla
um bíla og var hann mjög vel heima
í þeim málum.
Allt er breytingunum háð. Það
hefur verið föst venja að Kiddi og
Lillý hafa verið með okkur fjölskyld-
unni við öll hátíðleg tækifæri í
gegnum árin, enginn jóladagur hef-
ur fallið úr um 30 ára skeið. Kiddi
komst til okkar í afmæliskaffi síð-
ast í október, en hann var Iagður
inn á Landspítalann fyrir jól.
Við söknum öll Kidda frænda,
hann hefur verið fastur liður í lífi
okkar, en við samgleðjumst honum
innilega að vera genginn á Guðs
síns fund.
Við þig, Lillý mín, vil ég segja,
að þú hefur staðið þig með prýði
og reynst Kidda afburða vel þrátt
fyrir þín veikindi. Bið ég góðan Guð
að gefa þér styrk og frið.
Elsku Kiddi, þú ert kvaddur með
virðingu og þökk frá okkur á Reyni-
melnum.
Guðríður Steindórsdóttir.
t
Ástkær sonur okkar, bróðir, föfiur-
bróðir og mágur,
HALLGRÍMUR ÓSKAR
LÚÐVÍKSSON,
Óðinsgötu 1, Reykjavík,
áður á Háteig 3, Keflavík,
verður jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju
laugardaginn 7. maí kl. 16.00.
Þeim, sem vilja minnast hans, er bent
á baeklunardeild Borgarspítalans.
Bjarney Sigurðardóttir, Lúðvík Guðmundsson,
Sigurður B. Lúðvíksson, Jóhanna S. Vilhjálmsdóttir,
Hafdís Lúðviksdóttir, Daöi Freyr Sigurðsson,
Bryndís Lúðvíksdóttir, Eyþór Atli Sigurðsson.
t
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
ÞORLEIFUR SIGURÐSSON,
Baldursgötu 22a,
Reykjavík,
lést í Borgarspítalanum 4. maí.
Hilmar Þorleifsson, Borghildur Guöjónsdóttir,
Sigurður Fossan Þorleifsson, Kristín Jónsdóttir,
Jóna Þorleifsdóttir, Sigurður E. Þorvaldsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
sonur og bróðir,
ÍVAR ARNÓRSSON,
Lundarbrekku 16,
Kópavogi,
verður jarðsunginn frá Hjallakirkju í
Kópavogi þriðjudaginn 10. maíkl. 13.30.
Blóm og kransar eru vinsamlega af-
þakkaðir, en þeim, sem vilja minnast
hans, er bent á líknarfélög.
Jóhanna Steinsdóttir,
Silja, Katrfn og Eva Karen,
Betsy Ivarsdóttir, Arnór Pálsson,
Páll, Ágúst og Elísabet.
t
Maðurinn minn,
KRISTINN MAGNÚS MAGNÚSSON,
Bárugötu 37,
lést 27. apríl s.l., á öldrunardeild Landspítalans, Hátúni 10b.
Jarðarförin hefur farið fram. Þakka innilega góða umönnun og
auðsýnda samúð.
Lilly Magnússon.
t
Ástkær eiginmaður minn,
BENEDIKT INGVARSSON,
Álmholti 9,
Mosfellsbæ,
lést á gjörgæsludeild Borgarspítalans 4. maí.
Hjördfs Þorkelsdóttir.
t
Þökkum innilega öllum þeim, er sýndu okkur samúð og hlýhug
við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
SIGRÍÐAR STEINGRÍMSDÓTTUR,
Víðimel 35,
Reykjavík.
Hörður Lorange, Hjördís Benónýsdóttir,
Alda Sigurjónsdóttir, Hjörtur Halldórsson,
Gréta Sigurjónsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
AÐALHEIÐUR BJARNFREÐSDÓTTIR,
fyrrv. alþingismaður
og formaður Sóknar,
Kirkjuhvoli,
verður jarðsungin frá Stórólfshvolskirkju laugardaginn 7. maí
kl. 14.00.
Minningarathöfn verður i Hallgrímskirkju föstudaginn 6. maí
kl. 13.30.
Þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á Styrktarsjóð Vífils-
staðaspítala.
Guösteinn Þorstemsson,
börn, tengdabörn, barnabörn
og barnabarnabörn.
t
Okkar innilegustu þakkir sendum við þeim, sem sýndu okkur
samúð og vinarhug við andlát og útför
KARÓLÍNU STEINUNNAR SUMARLIÐADÓTTUR
frá Tungugröf,
Lindargötu 57. >
Guð blessi ykkur öll.
Svanhildur Kjartans, Maria G. Sigurðardóttir,
Guðrún Jensdóttir
og aðrir aðstandendur.