Morgunblaðið - 06.05.1994, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 6. MAÍ 1994 37
DÓROTHEA
JÓNSDÓTTIR
I
I
I
I
j
i
I DAG, 6. maí, er níræð
heiðurskonan Dórothea
Jónsdóttir á Siglufirði
og voru foreldrar henn-
ar hjónin Guðlaug
Gísladóttir og Jón Jó-
hannesson. Alls urðu
börn þeirra tíu og var
Dórothea næstelst.
Auk hennar eru nú að-
eins á lífi Jóhannes, f.
1916 og býr í Reykja-
vík, og Bryndís, sem
fædd er 1914 og býr á
Siglufirði.
Systkinin sem látin
eru voru: Helga, f.
1902, d. 1949, Klara, f. 1906, d.
1969, Jóhannes (eldri), f. 1908, d.
1914, Anna, f. 1909, d. 1983,
Ófeigur Trausti, f. 1912, d. 1932,
Ingibjörg, f. 1918, d. 1973, Finn-
bogi, f. 1928, d. 1930.
Jón Jóhannesson, faðir Dórotheu,
var þekktur fræðimaður og fékkst
við sagnaritun og söfnun íslenskra
fræða. Einnig var hann sjálfmennt-
aður málafærslumaður og varð
fljótt vinsæll sem slíkur, og var því
oft fjarri heimilinu.
Guðlaug, kona hans,
var harðdugleg mynd-
arkona sem með mik-
illi vinnu og ósérhlífni
þess tíma sá ein um
börn og bú í fjarveru
Jóns.
Ég get ímyndað mér
að Dórothea hafi erft
helstu eðliskosti for-
eldra sinna beggja,
eljusemina og iðnina
frá móður sinni og
fróðleiksþorstann og
frásagnargleðina frá
föður sínum.
Dórothea, sem reyndar alltaf er
kölluð Thea, vann frá barnæsku við
síldarsöltun. Hún sagði mér einu
sinni frá því hvernig það atvikaðist
að hún fór að salta, þá innan við
tíu ára gömul. Verkstjórinn á síldar-
planinu hét henni því, að ef hún
hlypi fram í sveit til að kalla til
vinnu konu sem þar bjó, fengi hún
pláss fyrir sig sjálfa. Hvort þetta
var alvara hjá verkstjóranum segist
Thea ekki vita, en hún hljóp um
Eitt blab fyrir alla!
- kjarni málsins!
AFMÆLI
óraveg til að sækja konuna, hermdi
svo loforðið upp á verkstjórann, og
átti eftir það sitt fasta pláss á plan-
inu.
Meðfram barneignum og bústörf-
um saltaði Thea alltaf þegar færi
gafst. Hún hefur sagt mér frá því
að þegar kallað var til söltunar,
hvenær sem var sólarhringsins, bað
hún eldri börnin fyrir þau yngri,
signdi allan hópinn og fór svo til
vinnu. Þetta hefur mér alltaf fund-
ist dæmigert fyrir Theu og lýsandi
fyrir dugnað hennar, æðruleysi og
trú á það góða.
Eiginmaður Theu var Einar Ás-
grímsson frá Nefstöðum í Fljótum,
f. 6. nóvember 1896, d. 5. október
1979. Hann starfaði lengst af sem
beykir og síldarmatsmaður á Siglu-
firði. Börn Theu og Einars eru:
Jón, f. 31. janúar 1926, býr í Hafn-
arfirði, kona hans er Guðrún Val-
berg; Ásta, f. 14. maí 1928, býr í
Rvík, gift Páli Gunnólfssyni; Ás-
grímur, f. 7. nóvember 1929, býr
með móður sinni á Siglufirði; Guð-
laug, f. 29. mars 1932, býr í Sand-
gerði, var gift Siguijóni Jóhannes-
syni sem lést 1970; Sólveig, f. 14.
júní 1933, býr í Hafnarfirði, gift
Helga Einarssyni; Brynjar, f. 17.
september 1936, d. 27. júní 1984,
bjó í Vestmannaeyjum, hans kona
var Guðrún Ólafsdóttir; Stella, f.
9. febrúar 1940, býr á Siglufirði,
gift Páli Gunnlaugssyni.
Barnabörnin urðu 25 talsins,
fjöldi langömmubarnanna er kom-
inn á fimmta tug og langa-
langömmubörnin eru þegar orðin
fjögur. Afkomendurnir og fjölskyld-
ur þeirra fylla nú hundraðið og vel
það.
Næstum alla búskapartíð þeirra
Theu og Einars stóð heimili þeirra
á Grundargötu 9 og þar býr Thea
enn ásamt syni þeirra, Ásgrími.
Þarna fæddust börnin, öll nema
Jón, og þarna fæddust líka nokkur
af fyrstu barnabörnunum sem áttu
sín fyrstu spor í húsi afa og ömmu.
Grundargata 9 hefur því spilað
stóra rullu í lífi fjölda fólks. Húsið
byggðu Einar og Thea í félagi við
Jóhann bróður Einars og Halldóru,
fyrri konu hans, og bjuggu fjöl-
skyldurnar þar í félagi í nokkur ár.
Seinna keyptu þau svo hinn hlutann
og varð þá rýmra um þann fjölda
fólks sem þar hefur verið, bæði
heimilisfólk og gestkomandi. Geta
má nærri að á margmennu heimili
hafi oft verið líf og fjör og mikið
umstang. Alltaf var einhver að
koma í mat og kaffi og húsmóðirin
óþreytandi í að veita af rausn þeim
sem settust að borðum hennar. Svo
er raunar enn, þó aldurinn sé orðinn
hár og þrekið minna og aðrir sjái
þá um að hræra í pottunum.
Á langri ævi hefur Thea þurft
að sjá á bak mörgum ástvinum og
vinum og við þau áföll alltaf sýnt
ótrúlegt æðruleysi. Með sömu still-
ingu bregst hún við fylgikvillum
hækkandi aldurs, segist jafnan vera
„heldur skárri í dag en í gær“.
Margt hefur breyst á undanförnum
árum og áratugum. Hljóðlátara er
nú en áður á Grundargötu 9. Flest-
ir afkomendurnir eru búsettir fjarri
og ættingjar og vinir farnir í ferð-
ina löngu. En Thea situr á bekknum
sínum og hallar sér fram á borðið
og rifjar upp liðinn tíma. Margur
hefur setið þar hjá henni og hlustað
á hana segja frá. Hún man Siglu-
fjörð gamla tímans. Siglufjörð upp-
byggingar og síldarævintýra og
Siglufjörð versnandi atvinnulífs og
horfinna drauma. Hún fylgist vel
með veðri og dægurmálum, bæði
úr dagblöðum, útvarpi og sjónvarpi
og er eins og áður hafsjór af fróð-
leik og sögum.
Ógleymanleg kona þeim sem
henni hafa kynnst.
Elsku Thea. Á afmælisdaginn
hugsum við Bigga til þin frá Belg-
íu. Hjartanlegar hamingjuóskir
færðu frá ijölskyldu okkar allri.
Eigðu góðan dag með börnum þín-
um og öllum hinum.
Freyja.
Fermingar
sunnudag-
inn 8. maí
Ferming í Seljakirkju kl. 14.
Prestur sr. Valgeir Ástráðsson.
Fermd verður:
Iðunn Dögg Gylfadóttir,
Seljabraut 38, Reykjavík.
Ferming í Eyrarbakkapresta-
kalli í Stokkseyrarkirkju kl. 11.
Prestur sr. Úlfar Guðmundsson.
Fermd verða:
Agnes Lind Jónsdóttir,
Hásteinsvegi 24.
Ari Klængur Jónsson,
íragerði 12.
Bryndís Alexandersdóttir,
Hásteinsvegi 33.
Dagný Alma Sigvaldadóttir,
Eyrarbraut 24.
Einar Hans Jakobsson,
Strandgötu 12.
Friðrik Einarsson,
íragerði 6.
Guðrún Helga Elvarsdóttir,
Garði.
Kristinn Ágúst Eggertsson,
Hásteinsvegi 15.
Númi Snær Gunnarsson,
Hásteinsvegi 5.
Olafur Már Olafsson,
Hásteinsvegi 17.
Ragnar Helgi Pétursson,
Heiðarbrún 20.
Silja Hrund Einarsdóttir,
Hásteinsvegi 27.
Ferming i Reynivallakirkju i
Kjós kl. 14. Prestur sr. Gunnar
Kristjánsson. Fermd verða:
Anna Sjgríður Guðbrandsdóttir,
Hækingsdal.
Berglind Sigurþórsdóttir,
Meðalfelli.
Valdimar Ágúst Emilsson,
Gijóteyri.
Ferming í Skálholtsprestakalli í
Haukadalskirkju kl. 14. Prestur
sr. Guðmundur Óli Ólafsson.
Fermdur verður:
Ólafur Bjarni Loftsson,
Lambabrún, Reykholtshv., Bisk.
í
I
1
:
i
i
I
í
3
1
I
3
R AD AUGL YSINGAR
Lausafjáruppboð á
óskilamunum
Eftir beiöni lögreglustjórans í Reykjavík fer fram uppboð á ýmsum
óskilamunum, m.a. reiðhjólum, úrum, fatnaði og fleiri munum.
Uppboðið fer fram í uppboðssal Vöku hf., á Eldshöfða 4, Ártúns-
höfða, laugardaginn 7. maí 1994 og hefst það kl. 13.30.
Greiðsla við hamarshögg.
Naeg bilastæði.
Sýslumaðurinn i Reykjavík.
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirtalinni eign verður háð á henni sjálfri
sem hér segir:
Hlíðarvegur 10, efri hæð, Suðureyri, þingl. eig. Ingvar Bragason og
Sigurður Þórisson, gerðarbeiðandi innheimtumaður ríkissjóðs,
9. maí 1994 kl. 14.00.
Sýslumaðurínn á isafirði,
5. maí 1994.
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirtöldum eignum verður háö á þeim sjálf-
um sem hér segir:
Hásteinsvegur 12, Stokkseyri, þingl. eig. Kjartan Jónsson, gerðar-
beiðandi er Búnaðarbanki Islands, föstudaginn 13. maí 1994, kl.
10.00.
Eyrarbraut 20, Stokkseyri, þingl. eig. Gunnar Einarsson, gerðarbeið-
andi er Lífeyrissjóður sjómanna, föstudaginn 13. maí 1994, kl. 10.30.
Nesbrú 3, Eyrarbakka, þingl. eig. Nesbrún hf., gerðarbeiðandi er
Eyrarbakkahreppur, föstudaginn 13. maí 1994, kl. 11.00.
Sýslumaðurínn á Selfossi,
5. mai 1994.
Lausafjáruppboð
Uppboð á óskilamunum í vörslu lögreglunnar í Árnessýslu verður
haldið við bifreiðageymslu lögreglunnar á Hörðuvöllum 1, Selfossi,
laugardaginn 14. maí nk. og hefst kl. 14.00. Boðin verða upp reið-
hjól, útilegubúnaður og aðrir óskilamunir, sem veriö hafa í vörslu
lögreglu í a.m.k. eitt ár. Greiðsla við hamarshögg.
Skorað er á þá aöila, sem sakna lausafjármuna er kunna aö vera í
vörslu lögreglu, að sýna fram á eignarrétt sinn eigi síðar en föstudag-
inn 13. maí fyrir kl. 14.00.
Selfossi, 18. apríl 1994.
Sýslumaðurinn á Selfossi.
Skorradalur
Til sýnis og sölu er gullfallegur, fullbúinn
sumarbústaður í landi Dagverðarness nr. 4.
Hann verður til sýnis laugardaginn 7. maí frá
kl. 12-18.
Upplýsingar í símum 93-14144/12456.
Til sölu
Zetor 7245 4x4, árg. ’91, verð kr. 850 þús.
án vsk. Zetor 5011, árg. '81, verð kr. 150
þús. án vsk. Baggavagn, verð kr. 95 þús.
án vsk. Class bindivél, árg. ’79.
Upplýsingar í síma 98-78933.
. V
SJALFSTÆÐISFLOKKURINN
FÉLAGSSTARF
Spjallfundur Óðins
um atvinnumál
Spjallfundur Óðins um atvinnumál verður í
Óðinsherberginu í Valhöll, Háaleitisbraut 1,
laugardaginn 7. mai 10.00.
Gestur fundarins verður Inga Jóna Þórðar-
dóttir, viðskiptafræðingur, sem skipar 3.
sæti framboðslista sjálfstæðismanna fyrir
borgarstjórnarkosningarnar.
Kaffi á könnunni.
Allir velkomnir.
Stjórnin.
Kópavogsbúar
Gönguferð
Kópavogsbúum er boðið að skoða uppbyggingu íþróttamannvirkja í
Kópavogsdal laugardaginn 7. maí. Gengið verður um svæðið og
íþróttahúsin skoðuð undir leiðsögn valinkunnra manna.
Lagt verður af stað frá Félagsheimilinu, Fannborg 2, kl. 13.00.
Kópavogsbúar fjölmennið.
Sjálfstæðisfélag Kópavogs.
SHt Q auglýsingctr
MG félag íslands
heldur aðalfund laugardaginn
7. maí kl. 14.00 á Hótel Lind,
Rauðarárstíg 18, Reykjavík.
Myndband sýnt um Myasthenia
Gravis (vöðvaslensfár).
MG félag (slands er félag sjúkl-
inga með Myasthenia Gravis
(vöðvaslensfár) sjúkdóminn svo
og þeirra, sem vilja leggja mál-
efninu lið.
skíðadeild
Innanfélagsmót verður haldið
helaina 7. og 8. maí.
Dagskrá:
Laugardagur 7. maí:
Kl. 11 Stórsvig 12 ára og yngri.
Kl. 13 Stórsvig 13 ára og
eldri, karla- og kvennaflokkur.
Kl. 15 Stórsvig, Öölingar.
Sunnudagur 8. maf:
Kl. 10 Svig 11-12 ára, 13-14
ára, 15-16 ára, karla- og kvenna-
flokkur.
Kl. 13 Svig 9-10 ára, 8 ára og
yngri.
Kl. 14 Svig, Öðlingar.
Verðlaunaafhending að móti
loknu.
Munið eftir kökunum.
Upplýsingar á símsvara 77750.
Stjórnin.
I.O.O.F. 1 = 175568'/2 =
I.O.O.F. 12 = 175567 = H.F
Orð lífsins,
Grensásvegi8
Kvöldbiblíuskóli kl. 20.00 með
Rani Sebastian.
Vægt námskeiðsgjald.
öllum heimil þátttaka.
Innflytjendur til
Bandaríkjanna
Þú gæti orðið einn af þeim
55.000, sem valdir verða úr til
að flytja til Bandarikjanna, sam-
kvæmt nýja (USINS) fjölbreyti-
lega vegabréfsáritunar-happ-
drættinu.
Láttu skrá þig núna! Frestur
rennur út 30. júní 1994. Það er
auðvelt og einfalt. Við sýnum
pér hvernig á að taka þátt í happ-
drættinu með fullnægjandi upp-
lýsingum og leiðbeiningum.
Sendu 25 Bandaríkjadali (tékka
eða póstávísun) til: East-West
Immigrant Services, P.O. Box
1984, Wailuku, Hl 96793, U.S.A.