Morgunblaðið - 06.05.1994, Page 49
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 6. MAÍ 1994 49 ~
IÞROTTIR
KNATTSPYRNA / LANDSLIÐIÐ
Stórskotahríð Brasilíu-
manna en bara þriú mörk
Skúli Unnar
Sveinsson
skrifar frá
Brasilíu
ÍSLENSKA landsliðið í knatt-
spyrnu getur verið nokkuð
anægt með fyrsta landsleik sinn
gegn Brasilíu sem fram fór aðf-
ararnótt fimmtudagsins. Brasil-
íumenn gerðu að vísu þrjú mörk
gegn engu en því má ekki
gleyma að ekki er langt síðan
Argentínumenn töpuðu 2:0 hér.
Auðvitað voru Brasiliumenn
miklu betri, eins og við var að
búast, en fslensku leikmennirnir
gerðu sitt besta. Þeir voru í
hiutverki músarinnar og skiluðu
þvf hlutverki ágætlega. Liðið
getur leikið betur, en síðari hálf-
leikur var bara ágætur, þrátt
fyrir þreytu sem hlýtur að hafa
sagt til sfn eftir stanslausan elt-
ingaleik í fyrri hállfeik.
Segja má að Brasilíumenn hafi
byrjað með sankallaðri stór-
skotahríð í kjölfar flugeldasýningar
fyrir leikinn. Fyrstu
Qórar mínúturnar
áttu þeir þrjú hörku-
skot að marki og
fengu þijár horn-
spyrnur. Sýningin héit svo áfram og
yfirburðir Brasilíumanna voru al-
gjörir í fyrri hálfleik.
Mikið fjör var í leiknum, Brasilíu-
menn léku af miklum krafti og
hraða, leikmenn voru mjög hreyfan-
legir án boltans og hending var ef
þeir léku honum ekki með fyrstu
snertingu til samheija. Þetta varð
til þess að íslenska liðið var löngum
í hálfgerðum eltingaleik. Það sem
háði þvi þó mest var hversu auðvelt
það reyndist heimamönnum að kom-
ast upp miðjuna, og þannig náðu
þeir að skapa mikinn usla upp við
markið. Undir þann leka var sett í
síðari hálfleik, að mestu.
Brasilíumenn fengu átta mjög góð
færi í fyrri hálfleik, auk þeirra sem
þeir skoruðu úr. Fyrsta markið kom
á 34. mín. og skrifast það á hinn
17 ára Ronaldo, besta mann vallar-
ins. íslensku leikmennirnir vildu
reyndar fá dæmda rangstöðu þá, en
línuverðirnir virtust ekki vita hvað
rangstaða er, ef miðað er við
frammistöðu þeirra að þessu sinni.
Tveimur mín. síðar átti Eyjólfur
gott skot rétt utan markteigshorns-
ins vinstra megin. „Ég hitti boltann
mjög vel með vinstri, en því miður
markmanninn lika. Boltinn fór í
hausinn á honum,“ sagði Eyjólfur.
Annað mark Brasilíumanna gerði
Zinho úr vítaspyrnu skömmu fyrir
leikhlé, og var vítaspyrnudómurinn
vafasamur.
Heppnir
Það verður að segjast eins og er
að íslendingar voru heppnir að vera
aðeins 0:2 undir í leikhléi og óneit-
anlega var maður hræddur um að
illa færi í síðari hálfleik þegar þreyt-
an eftir eltingaleik fyrri hálfleiks
færi að segja til sín. En íslenska lið-
ið kom tvíeflt til leiks og lék af mik-
illi skynsemi þanaig að það gat
gengið af velli með fullri reisn í leiks-
lok þrátt fyrir 0:3 tap. Tapið hefði
hægiega getað orðið stærri og ís-
lensku strákarnir hefðu líka getað
skorað, með smá heppni.
Leikmenn settu undir lekann á
miðjunni eftir hlé og gáfu sér meiri
tíma til að leika saman þegar þeir
höfðu knöttinn.
Besta færi íslands í hálfleiknum
Fast sótt að marki íslands
Reuter
BRASILÍUMENN sóttu af miklum krafti að íslenska markinu, fengu mikið að færum en nýttu aðeins þtjú. Hér er það
Zinho sem gerist nærgöngull, en hann skallaði yfir markið. Hann gerði annað markið í leiknum úr víti.
kom á 83. mín. Arnór sendi fyrir
markið frá hægri kanti, Eyjólfur
kastaði sér fram og skallaði. Hann
hitti boltann illa og markvörðurinn
náði að krafla í hann og bjarga
marki. Brasilíumenn brunuðu svo
fram og Viola, sem hafði farið illa
með nokkur færi, skoraði loksins.
Birkír bestur
Birkir Kristinsson var besti maður
íslenska liðsins. Hann hafði mikið að
gera, og gerði aðeins ein mistök, þeg-
ar hann hikaði í úthlaupinu í þriðja
markinu. Vömin stóð sig ágætlega
og var Rúnar þar bestur, en hann lék
hægra megin. Hann lenti sjaldan í
teljandi erfíðleikum auk þess sem
hann vár mjög yfirvegaður. Daði og
Kristján voru traustir í miðri vöm-
inni, sérstaklega í seinni hálfleik og
vinstra megin var Ólafur fastur fyrir.
Sigurður, Hlynur og Amór þurftu
mikið að aðstoða vörnina og gerðu
það ágætlega en voru stundum of
fljótir að losa sig við knöttinn með
löngum spymum fram völlinn, en þá
voru fáir bláklæddir leikmenn
frammi. Reyndar var þeim nokkur
vorkunn því Brasilíumenn vom eins
og býflugur út um allt og gáfu ís-
lensku leikmönnunum engan frið.
Þorvaldur hefur oftast leikið betur og
lítið fór fyrir Amari á vinstri vængn-
um, en hann tók þó nokkra laglega
spretti og sýndi þá hvað hann er lipur
með knöttinn. Eyjólfur var duglegur
við að koma til baka og aðstoða vöm-
ina, og hélt boltanum vel.
Hjá Brasilíumönnum var Ronaldo
bestur; þar er á ferð drengur sem
vert er að fylgjast vel með í framtíð-
inni. Viola, sem er í baráttunni um
sæti sem þriðji framheiji liðsins fyr-
ir HM í sumar, tryggði sér vænt-
anlega farseðilinn til Bandaríkjanna
með góðum leik. Gríðarlega snagg-
aralegur og hættulegur leikmaður.
Félagi Eyjólfs hjá Stuttgart, Dunga,
var traustur sem aftasti miðjumaður
og kom mikið við sögu í uppbygg-
ingu sóknanna. Annars léku allir vel
en þessir þrír þó best.
Brasilía - Island
0:3
Da Silva-Ressacada leikvangurinn í Florianopolis, vináttulandsleikur í knattspymu,
miðvikudaginn 4. maí 1994.
Aðstæður: Mjög góðar; logn, hiti um 20 stig og völlurinn góður.
Mörk Brasilíu: Ronaldo (34.), Zinho (43. vsp.), Viola (83.)
Gult spjald: Aldair (52. fyrir brot) — Ólafur Þórðarson (14. fyrir brot), Sigurður
Jónsson (45. fyrir mótmæli).
Rautt spjald: Enginn.
Áhorfendur: 23.000
Brasilía: Zetti — Santos (Cafu 46.), Aldair, Branco (Leonardo 63.) — Jorginho
(Sampaio 46.), Zinho (Pulto 85.), Ronaldo, Dunga, Mazinho — Sergio, Viola (Savio
85.)
ísland: Birkir Kristinsson (Kristján Finnbogason 87.) — Rúnar Kristinsson (Ámar
Grétarsson 76.), Kristján Jónsson, Izudin Daði Dervic, Ólafur Þórðarson (Sigur-
steinn Gíslason 76.) — Amór Guðjohnsen, Þorvaldur Örlygsson, Hlynur Stefánsson,
Sigurður Jónsson (Þormóður Egilsson 87.), Amar Gunnlaugsson (Bjarki Gunnlaugs-
son 87.) — Eyjólfur Sverrisson.
„Sáttur
við seinni
hálfleik“
Eg var tiltölulega sáttur við
seinni hálfleikinn, því þá
reyndum við að spila en gerðum
lítið af því í þeim fyrri. í fyrri
hálfleik gerðu strákamir ekki
eins og ég lagði upp, kannski
hafa þeir misskilið mig eða ég
ekki iagt nógu skýrar línur. Við
ætluðum að þétta miðjuna til
að þeir kæmust ekki þar i gegn
og láta þá spila frekar upp kant-
ana, og vera svo búnir að skipu-
leggja okkur í teignum þegar
boltinn kæmi fyrir. Þegar það
gekk eftir var aldrei um neina
verulega hættu að ræða, sagði
Ásgeir Elíasson, Iandsliðsþjálf-
ari við Morgunblaðið að leik
loknum.
„Það komu kaflar í fyrri hálf-
leik sem við hættum okkur of
framarlega i vöminni en seinni
hálfleikurinn var aftur á móti r-
lagi, strákarnir voru reyndar
þreyttir eftir eltingaleikinn í
fyrri hálfeik en á móti kom að
Brasilíumenn voru 2:0 yfir og
léku því ef til vill ekki af sama
krafti. Við vorum mun skynsam-
ari þá en í fyrri hálfleik, fengum
nokkur færi og hefðum átt að
geta skorað eitt mark, jafnvel
tvö með heppni," sagði Asgeir.
„Maður veit, að þegar farið
er í svona leiki, er liðið 80-90%
af tímanum í vöm. Því er mikil-
vægt að vera þolinmóður í vöm,
og halda boltanum þegar hann
næst, og það tókst okkur í seinni
hálfleik. Það er nefnilega þannig
að þegar þurfa að veijast og eru
ekki með boltann — meira að
segja Brasilíumenn — hafa þeir
ekki tækifæri til að sýna hversu
flinkir þeir eru, og þá er það
okkar að stjóma leiknum. Það
má eigilega segja að strákamir
hafí hlaupið og unnið vel í fyrri
hálfleik og í þeim seinni hafí
ágætis spil bæst við,“ sagði
Ásgeir.
u
Þrjátíu og fimm skot gegn sjö
Ifyrri hálfleik áttu heimamenn 20 skot að marki íslands og fengu
sjö hornspyrnur á meðan okkar menn skutu fjórum sinnum að
marki en fengu ekki horn. í seinni hálfleik áttu Brasilíumenn 15 skot
að marki og fengu þtjú horn, en íslensku strákarnir náðu þremur
skotum að marki og fengu enga hornspyrnu. Þrátt fyrir þessa stór-
skotahríð er rétt að taka fram að flest skotin voru tiltölulega hættulítil.
Carlos Alberto
„Ánægður
„Við voram með nokkra unga
stráka í liðinu, hálfgerða krakka;
Ronaldo er aðeins 17 ára og Leo-
nardo 19 en þeir stóðu sig vel og
á heildina litið er ég mjög ánægð-
ur. Ég held að strákarnir hafi náð
að vinna vel úr því sem fyrir þá
var lagt. En við þurftum að hafa
fyrir því að sigra íslenska liðið,
sem kom mér á óvart, því það
vann markvisst og skipulega að
hlutunum og lék því eins vel og
það gat, held ég.“
Rúnar Kristinsson
„Ég held þetta séu ekki óeðlileg-
ar tölur. Þeir era gríðarlega tekn-
ískir og halda boltanum vel, og það
er ekkert grín að veijast þeim.
Þetta era sífellt hlaup og því verða
menn fyrr þreyttir. Þeir eru ótrú-
lega góðir — ég held þetta sé besta
lið sem ég spilað við þó svo maður
hafi spilað á móti mörgum góðum.“
Amór Guðjohnsen
„Þetta var rosalega erfítt, svei
mér ef þetta er ekki erfiðasta lið
sem ég hef spilað á móti. Þeir
spila þannig knattspyrnu; mikill
hraði, gríðarleg tækni og bolta-
meðferðin alveg einstök. Seinni
hálfleikurinn var mun skárri hjá
okkur en sá fyrri, þá áttum við
fleiri sóknir þrátt fyrir að vera
orðnir þreyttir eftir eltingaleikinn
við þá í fyrri hálfleik."
Reuter
Viola, sem gerði þriðja mark Brasilíumanna, skýtur að marki íslands. Ólafur
Þórðarson (8) er til vamar og úti á vellinum sést Hlynur Stefánsson.
„Aldrei lent í svona
eltingaleik ádur“
Þetta var erfítt, gríðarlega erfítt. Þeir eru fljótir og teknískir, sérstak-
lega framlínumennirnir. Þeir komust mikið aftur fyrir okkur; þeh''
spila mikið með einni snertingu og það varð til þess að við vorum að elta
þá allan tímann. Ég held ég hafi aldrei lent í svona eltingaleik áður,“
sagði Sigurður Jónsson við Morgunblaðið eftir leikinn.
„Þetta brasilíska lið er án efa eitt það sterkasta sem ég hef leikið á
móti. Ég vona bara að Brasilíumenn fari að vinna heimsmeistaratitilinn,
þó ekki væri nema fyrir fólkið í landinu, sem lifir hreinlega fyrir fót-
bolta. Það er frábært að hafa fengið tækifæri til að fylgjast með því.“
Sigurður var einn fárra íslenskra leikmannanna sem skipti um keppnis-
treyju við brasilískan leikmann. „Ég verð öragglega í brasilísku peysunni
fyrir framan sjónvarpið í sumar. Afram Brasilía!" sagði Sigurður.