Morgunblaðið - 06.05.1994, Page 52
MewáCd
-setur brag á sérhvern dag!
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1 103 RBYKJAVÍK
SlMI 691100, SlMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 3040 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTl 85
FÖSTUDAGUR 6. MAÍ 1994 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Forsætisráðherra
A
Astæða til
~ að lækka
nafnvexti
DAVÍÐ Oddsson, forsætisráðherra,
segir, að mismunur á verðtryggðum
lánum banka og óverðtryggðum í
vaxtakjörum sé orðinn allt of mik-
iil, og því hljóti bankar að taka til
skoðunar, hvort ekki sé tímabært
að lækka nafnvexti.
Davíð sagði í samtali við Morgun-
blaðið, að vissulega þyrfti að taka
tillit til og virða þann vanda bank-
anna sem skapast hefði vegna mik-
illa útlánatapa. „En mismunur á
verðtryggðum lánum bankanna
annars vegar og þeirri verðtrygg-
ingu sem felst í háum nafnvöxtum
og lágri verðbólgu hins vegar, er
orðinn allt of mikill. Það er ástæða
fyrir bankana til að taka á því,“
sagði Davíð.
Davíð benti á, að bankarnir hefðu
áður fyrr haldið því fram, þegar
þeir sökuðu ríkisvaldið um að halda
uppi háu raunvaxtastigi, að mis-
munur í vaxtakjörum verðtryggðra
* —og óverðtryggðra útlána mætti ekki
vera mikill.
-------------
Forstjóri SH
Styrkir ESB
rýra kjörin
STJÓRNENDUR Sölumiðstöðvar
hraðfrystihúsanna hafa áhyggjur
af samkeppnisstöðu íslensks sjávar-
útvegs ef Noregur gengur í ESB
eins og samið hefur verið um. Segja
TjBÍieir að ESB veiti 60-70 milljörðum
kr. í styrki til sjávarútvegs árlega.
Auk þess fyrirhugi ESB að veija
80 milljörðum kr. til uppbyggingar
í sjávarútvegi næstu sex ár og þar
af megi norsk sjávarútvegsfyrir-
tæki eiga von á 5 milljörðum á ári.
Friðrik Pálsson, forstjóri SH,
sagði á aðalfundi félagsins í gær
að fyrirfram ættu íslendingar ekki
að útiloka aðild að ESB frekar en
aðra kosti. Margt benti til að aðild
gæti reynst hagkvæm og æskileg.
■ Aðalfundur SH/6
Tvöföld afmælishátíð
NEMENDUR í Vogaskóla hafa
alla þessa viku haldið upp á 50
ára afmæli lýðveldisins og 35 ára
afmæli skólans síns. Hefðbundið
starf í skólanum hefur verið
brotið upp og þess í stað hafa
nemendurnir m.a. unnið að sér-
stökum verkefnum, skreytt skól-
ann, farið í ferðalag til Þing-
valla, haldið íþróttahátíð og teflt
á skákmóti, farið um hverfið sitt
í skrúðgöngu og haldið hátíð með
fjölskyldum sínum. Myndin var
tekin í skrúðgöngu sem farin var
um Vogahverfið í gær. Nemend-
ur skrýddust höfuðfötum sem
Morgunblaðið/Kristinn
búin voru til í skólanum og veif-
uðu fánum. Að skrúðgöngunni
lokinni var grillað á skólalóðinni
og öllum boðið upp á afmælis-
tertu. Nemendur hafa gefið út
skólablað i tilefni hátíðahaldanna
og ljóðabók með frumortum ljóð-
um eftir nemendur skólans.
Morgunblaðið/RAX
í kvöldsólinni
Sigrún Valdimarsdóttir á leið
í útreiðartúr í kvöldsólinni.
Ákveðið að kaupa
Super Puma þyrlu
RÍKISSTJÓRNIN ákveður með formlegum hætti á fundi sínum
næstkomandi þriðjudag að kaupa Super Puma björgunarþyrlu þá,
sem Þorsteinn Pálsson dómsmálaráðherra og þyrlukaupanefnd
hafa lagt til að keypt verði. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðs-
ins eru líkur á, að ríkisstjórnin samþykki á fundi sínum harðorða
ályktun, þar sem vinnubrögð bandarískra stjórnvalda í viðræðum
við íslendinga um þyrlumál að undanförnu verði gagnrýnd og
skýringa krafist.
Gagnrýni ríkisstjómarinnar
verður eftir það komið á framfæri
við bandarísk stjórnvöld, með
milligöngu Parkers Borg, sendi-
herra Bandaríkjanna á Islandi,
samkvæmt upplýsingum Morgun-
blaðsins.
Borg vildi í gær ekki tjá sig
efnislega um þá gagnrýni, sem
ráðherrar ríkisstjórnarinnar hafa
sett fram á þá bandarísku. „Við
höfum útvegað íslenskum stjórn-
völdum allt sem þau hafa farið
fram á, að því er varðar þyrlur,“
svarar sendiherrann, og einnig:
„Astæða þess að einvörðungu einn
maður var í bandarísku sendi-
nefndinni, er sú að það var ekki
fyrr en síðastliðinn föstudag, sem
sendiráði Bandaríkjanna varð
kunnugt um þá ósk íslenskra
stjórnvalda, að hingað kæmi
bandarísk sendinefnd eigi síðar en
á þriðjudag í þessari viku.“
Afstaða ríkisstjórnarinnar til
kaupanna á Super Puma, er sú,
að sú ákvörðun setji á engan hátt
strik í reikninginn í framhaldsvið-
ræðum við Bandaríkjamenn.
Fyrirvari um endursölu
Ríkisstjórnin vill halda því opnu,
að ef viðunandi samningar takast
á milli íslands og Bandaríkjanna,
verði bundið þannig um hnúta í
kaupsamningi á Super Puma þyrl-
unni, að þar verði einhver fyrir-
vari um endursölu.
Það munu líða 12 til 14 mánuð-
ir frá því að kaupsamningur er
undirritaður, þar til Super Puman
verður afhent. Við undirritun
verða greiddar 100 milljónir króna
en eftirstöðvar við afhendingu.
■ Miðsíða: Innlendur vettvangur
Meðalfjölskylda skuldar 3,9 millj.
SKULDIR heimilanna jukust um 26 millj-
arða króna á síðasta ári og námu í árslok
256 milljörðum. Þetta svarar til 970 þúsund
króna skuldar á mann, eða tæplega 3,9
milljóna króna skuldar á hverja fjögurra
manna fjölskyldu. Þetta kemur fram í
skýrslu Jóhönnu Sigurðardóttur félagsmála-
ráðherra sem lögð var fram á Alþingi í gær.
Skuldir heimilanna uxu um 8,7% að raun-
gildi á síðasta ári og hafa vaxið hratt sl.
áratug. í skýrslunni kemur fram að sam-
kvæmt útreikningum Þjóðhagsstofnunar
hafi skuldirnar numið 25% af ráðstöfunar-
tekjum árið 1980 en 1993 var hlutfallið
komið upp í 116%.
Lægri tekjur — hærri skuldir
í skýrslunni segir að athygli vekji að hlut-
fall húsnæðisskulda í heildarskuldum heimila
hafi farið lækkandi. Samkvæmt skattfram-
Skuldir heimilanna jukust um
26 milljarða króna í fyrra
tölum 1993 eru skuldir hlutfallslega mestar
hjá þeim sem telja fram lægstar tekjur. Hjón
með tekjur undir 1 millj. greiða að meðaltali
um 20% sinna tekna í vexti en hjón með 5
millj. kr. tekjur og meira greiða að meðal-
tali tæp 5% í vexti. Skuldir eru mestar á
aldursbilinu 31-35 ára en lækka hratt eftir
það. Orsaka þess hve skuldir heimila hafa
vaxið hratt, telur ráðhera einkum að leita í
því að þegar verðtryggingu var komið á áttu
heimilin í landinu að verulegu leyti skuld-
laust húsnæði. Því þurfti að endurfjármagna
allt húsnæði þegar það skipti um eigendur.
Þá hafi verið horfið frá verulegri skömmtun
á lánsfé til heimilanna og lánstími húsnæðis-
lána hefur lengst. Einnig er mikil fjölgun
ungs fólks á húsnæðismarkað talin skýra um
20% af aukningu skulda.
Skuldum er mjög ójafnt skipt milli aldurs-
hópa. Þannig sýni kannanir að þorri íbúðar-
eigenda 50 ára og eldri höfðu greitt upp öll
sín húsnæðislán, og í lok síðasta árs voru
rúmlega 70% innlána í eigu miðaldra eða
eldri. I skýrslunni segir, að ráðuneytið telji
ástæðu til að gera athugun sem leiði frekar
i ljós þann mun sem virðist vera á milli kyn-
slóða með tilliti til lífskjara, skulda, eigna
og afkomumöguleika. Ráðherra segir breytt-
Skuldir heimilanna
sem hlutfall af ráðstöfunar-
tekjum 1980-1993
Aðrar skuldir
Húsnæðisskuldir
93spá
ar aðstæður á fjármagnsmarkaði kalla á
forvarnir og fræðslu um lykilatriði fjármála.