Morgunblaðið - 12.06.1994, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 12.06.1994, Blaðsíða 21
Alframleiðslan 1969-1993 100 þús. tonn----------------- illlll l l l l l l III 80 60 40 20 70 75 '80 ’85 Flúorinnihald í grasi og heyi í nágrenni álversins 1968-1993 25ppm Það sem af er irinu I m m n iimmii i.i i.......— útreikningum. Hann telur þörf á því að menn fari að meta umhverfis- þætti sem raunveruleg verðmæti og umgangast þá sem slíka. En er ekki hætta á að stóriðja á borð við álver séu blettur á ásjónu lands sem vill státa af hreinleika og umhverfisgæð- um? „Ég tel að ÍSAL sé gott dæmi um iðnfyrirtæki sem hefur tekið um- hverfisáhrif sín föstum tökum. Ég er fullviss um að starfsemi ÍSAL' veldur ekki skaða í íslensku um- hverfi. Vissulega komu upp vanda- mál í byijun, en við höfum náð tökum á þeim líkt og flúormælingarnar sýna. Hér fyrir utan eru til dæmis sjókvíar með eldislaxi, sem standa rétt við flæðigryfju þar sem kerbrot- um er fargað. Það er vel fylgst með þessu af vísindamönnum og sú að- ferð sem notuð er við förgunina tryggir að förgunin veldur engum skaða, eins og endurteknar mælingar hafa staðfest. Ef rétt er staðið að álbræðslu og stjómendur hennar eru meðvitaðir um mikilvægi umhverfis- gæslu þá tel ég hægt að tryggja að verksmiðjan valdi ekki skaða. Það þarf að setja skýrar reglur um um- hverfismál og sjá um að þeim sé framfylgt. Þjóðfélagið má ekki sofna á verðinum og það verður alltaf að hafa vakandi auga með iðjuverum." Roth segir að Þjóðveijar séu sér almenn betur meðvitaðir um um- hverfismál en íslendingar. Hann seg- ist á vissan hátt sakna umhverf- isverndarmanna og umhverfissinna hér á landi. Hins vegar megi mönnum vera Ijóst að umhverfisvandi er miklu meiri í Þýskalandi en hér. Þar sé umhverfisumræðan á mjög háu plani og mikið talað, en því miður verði minna úr athöfnum. „Það er öfugþró- un í þessum efnum í Þýskalandi. Við lofuðum á Rio-ráðstefnunni að minnka koltvísýringsrriengun um Kynntu þér ótrúlegt gistitilboð: Hótel Valhöll ÞingvöIIum, sími 98-22622 Hótel Ork Hveragerði, sími 98-34700 Hótel Norðurland Akureyri, sími 96-22600 Hóm Garður Hringbraut, Reykjavík, sími 91-15656 MORGUNBLAÐIÐ fjórðung, en það hefur ekkert gerst. Okuhraðinn er ótakmarkaður á hrað- brautunum, það bólar ekki á orku- skatti, þetta hafa hingað til verið innantóm orð.“ Mælir ekki með ESB aðild Roth segir að tilkoma Evrópska efnahagssvæðisins hafí ekki haft nein merkjanleg áhrif á starfsemi ÍSAL. Fyrirtækið hafi haft fijálsan aðgang að þeim löndum sem kaupa framleiðsluna. Ekki hafí orðið vart aukinnar ásóknar útlendinga í vinnu hjá fyrirtækinu og þeim hafi raunar fækkað í áranna rás. Ekki sé lengur þörf á að sækja sérhæfða starfsmenn til útlanda. Hér fæst vel menntað starfsfólk á öllum sviðum. En telur Roth ástæðu fyrir íslendinga að sækja um aðild að Evrópusamband- inu? „Ég er ekki frá því að íslendingar gætu haft efnahagslegan ávinning af aðild að ESB. En þegar ég skoða þróun mála í Evrópu og þá einkum í Þýskalandi, þá mæli ég ekki með því að ísland sæki um aðild. Ég held að það yrði til skaða hvað varðar umhverfismál. Þjóðveijar hafa til dæmis flutt iðnaðarúrgang sinn víða til fátækari landa. Evrópusambandið hefur einungis staðið sig vel ef miðað er við eldra gildismat. í ljósi hins nýja gildismats, sem leggur til dæm- is áherslu á umhverfísþætti, hefur ESB stáðið sig illa. Hagkerfi sem byggt er á kostnað umhverfísins og komandi kynslóða getur ekki talist árangursríkt. Ég vil sjá ísland þróast í þá átt að það verði fyrirmyndarþjóð- félag sem fer öðruvísi að en við höf- um gert á meginlandinu, þið getið lært af mistökum okkar. Við njótum tveggja stórra kosta hér, víðfeðms lands og fámennis. Menntunarstig þjóðarinnar er mjög hátt og við get- um fylgst með því sem er að gerast í umheiminum og dregið ályktanir af því. ísland getur orðið fyrirmynd að því marki að aðrar þjóðir sjái í henni valkost. Lýðræðisland þar sem íbúarnir njóta góðra lífskjara, án þess að níðast á náttúrunni eða kom- andi kynslóðum." SUNNUDAGUR 12. JÚNÍ 1994 21 Aðstaðan á gististöðum Benidorm er til mikillar fyrirmyndar — frá Levante Club hinu vinsæla íbúðarhóteli. Einn farþegi okkar á Hvítu ströndinni komst svo að orði: Innifalið: Flug, gisting, akstur til og frá flugvelli erlendis, íslensk fararstjórn, skattar og gjöld. ea/VTLAS* EUROCARD. Sam vinnuferöir-L anðs ýn Reyk|avík: Austurstræti 12 • S. 91 - 69 10 10 • Innanlandsferðir S. 91 - 69 10 70 • Slmbréf 91 - 2 77 96 / 69 10 95 • Telex 2241 • Hótel Sögu við Hagatorg • S. 91 - 62 22 77 • Slmbréf 91 - 62 24 60 Hafnarljöröur: Bæjarhrauni 14 • S. 91 - 6511 55 • Símbréf 91 - 655355 Keflavík: Hafnargötu 35 • S. 92 -13 400 • Slmbréf 92- 13 490 Akranes: Breiðargötu 1 • S. 93 - 1 33 86 • Símbréf 93 -1 11 95 Akureyrl: Ráðhústorgi 1 • S. 96 - 27200 • Slmbróf 96 -1 10 35 Vestmannaeyjar: Vestmannabraut 38 • S. 98 -1 12 71 • Símbréf 98 -1 27 92 Benidorm á Hvítu ströndinni á austurströnd Spánar er eftirlæti íslenskra sóldýrkenda og það ekki að ástæðulausu: © Silkimjúk, hvít sandströnd © Gullfallegt umhverfi og einstök veðurbiíða ® Framúrskarandi gististaðir O Fjölskrúðugt skemmtanalíf © Aragrúi verslana og veitingastaða © Siglingar© Sjóskíði © Seglbretti © Skoðunarferðir © Útimarkaðir © Vatnsleikjagarður © Grillveislur og óvænt uppátæki íslensku fararstjóranna. íbúðargistingin sniðin að þörfum allra - líka knattspyrnuáhugamanna! Levante Club er mjög gott íbúðarhótel þar sem öll aðstaða er eins og best verður á kosið. Groenlandia er nýtt íbúðarhótel rétt hjá strandgötunni. ATH: Sjónvafp er í hverri íbúð þannig að knattspyrnuáhugamenn geta fylgst með HM!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.