Morgunblaðið - 12.06.1994, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 12.06.1994, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. JÚNÍ 1994 43 ÍÞRÓTTIR Vlncenzo Sclfo - ítali, sem gerð- ist belgískur ríkisborgari — leikur í þriflja :sjnn .í heimsmeistarakeppni. HLEYPTU AÐEINS ÞEIM BESTU INN A GOLF TIL ÞIN Carlos Valderrama, miðvallarspiiari og einn hárprúðasti knattspyrnumaður heims, er fyrirliði Kolumbíumanna og klæðist peysu nr. 10. Bergkamp, 25 ára, leikur með Hol- lendingum. Hann er í hópi hættuleg- ustu miðheija heims, enda mjög marksækinn — skoraði tvö mörk gegn Pólverjum, þegar Hollendingar gulltryggðu sér farseðilinn til Banda- ríkjanna. Bergkamp hóf að leika með Ajax 18 ára, en er nú í herbúðum Inter Mílanó. Frá Rúmeníu kemur „konungur Karpataijailanna" Georghe Hagi, 29 ára miðvallarspilari, sem er þekkt- ur fyrir leikni sína og hraða og þá . er hann afar hættulegur skotmaður — hefur skorað flest mörk fyrir Rúm- eníu. Real Madrid keypti Hagi eftir HM á Ítalíu 1990 fyrir 214 millj. ísl. kr., en seldi hann tveimur árum seinna til ítalska félagið Brescia. Hagi fór á kostum þegar Rúmenía lagði Wales að velli, 2:1, í Cardiff — í keppni um HM-sæti. Skoraði glæsi- legt mark og var maðurinn á bak við sigur Rúmeníu. Brasilíumenn tefla hinum 29 ára fyrirliða Rai fram í peysu nr. 10, en hann er bróðir Socratesar, fyrirliða j Brasilíumanna í HM á Spáni 1982 1 og í Mexíkó 1986. Rai er miðvallar- spilari og vakti strax mikla athygli fyrir leikni sína — var kominn í hóp bestu leikmanna heims 1992, þegar hann skoraði bæði mörk Sao Paulo, 2:0, gegn Barcelona í keppni um titil- inn besta knattspymufélag heims í Tókýó. Mjög skotharður leikmaður , sem er frægur fyrir að skora mörk I með skotum af löngu færi. Rai var ekki sami leikmaðurinn eftir að hann (gekk til liðs við franska félagið Par- ís St. Germain í júlí 1993 — kaup- verð 220 millj. ísl. kr. Hann féll ekki vel inn í leik Parísarliðsins og mátti lengi vel verma varamannabekkinn. Carlos Alberto, þjálfari Brasilíu- manna, sneri ekki bakinu við Rai þó að móti hafí blásið hjá honum í Frakklandi. Einn hárprúðasti knattspymu- maður heims, Carlos Valderrama, Ímiðvallarspilari Kólumbíu, klæðist peysu nr. 10. Hann vakti mikla at- ( hygli í HM á Ítalíu 1990. Valderr- ama, sem er 33 ára, er fyrirliði Kól- umbíumanna og lykilmaður liðs þeirra, sem er talið eitt það besta í heimi. Hann stjórnar leik liðsins á miðjunni — er alltaf á ferðinni. Vald- errama, sem leikur með Atletico Junior, lék um tíma með liðum í Dennls Bergkamp leikur með Hol- lendingum. Hann er í hópi hættuleg- ustu miðherja heims. Frakklandi og Spáni — Montpellier og Real Valladolid. Jose Maria Bakero, fyrirliði Barcelona, 31 árs, leikur í peysu nr. 10 hjá Spánveijum. Bakero er mjög sókndjarfur miðvallarspilari, sem, getur leikið á fullri ferð allan leik- inn. Hann hefur gott vald á knettin- um, er fljótur að snúa vörn í sókn — og á þá til að Ijúka sóknarlotunum sjálfur, með mörkum. Bakero er einnig mjög góður skallamaður. Hann er einn af níu leikmönnum frá Barcelona sem klæðast landsliðs- < peysu Spánveija í HM. Þetta eru allt leikmenn sem eiga eftir að koma mikið við sögu í heims- meistarakeppninni í Bandaríkjunum, enda frábærir knattspyrnumenn. —--------- ið gefum parketinu þínu nýtt líf Er parketið þitt orðið rispað og matt? Þá er kominn tími til að slípa það og endurlakka. Parketið verður eins ogmýtt og.þú kemur í veg fyrir óbætanlegt slit á viðnum. Hjá okkur starfa aðeins viðurkenndir fagmenn með áralanga reynslu og sérfræðiþekkingu í meðferð á parketgólfum. Hringdu eða komdu til okkar og við gerum tilboð í efni og vinnu. Teppaland Parketgótf Grensásvegi 13, símar: 81 35 77 og 67 17 17 Georghe Hagi er 29 ára miðvallar- spilari frá Rúmeníu. Hann hefur skor- að flest mörk fyrir Rúmeníp, ?;j

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.