Morgunblaðið - 12.06.1994, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 12.06.1994, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ LISTIR SUNNUDAGUR 12. JÚNÍ 1994 9 Klúbbur á lág- stemmdum nótum Klúbbur Listahátíðar er ómissandi hluti af Lista- hátíð hverju sinni; þar sem gestir og- gangandi geta blandað geði bæði við listamenn og hver við annan og notið lifandi tónlistar. Arni Matthías- son rekur dagskrá ___________ klúbbsins, sem að þessu sinni er á Sólon íslandus. SNAR þáttur í Listahátíð hveiju sinni er svonefndur Klúbbur Listahátíðar, þar sem gestir Listahátíðar og aðrir Íistamenn geta sest niður og fengið sér drykk eða kaffi undir lifandi tón- list og blandað geði við þá sem sækja það sem hátíðin hefur upp á að bjóða. Að þessu sinni er Klúbbur Listahátíð- ar í Sólon íslandus og þar hefur ver- ið þröng á þingi síðustu daga og verður áfram, aukinheldur sem fram- lag Sólons til Listahátíðar, málverka- sýning Sigurðar Guðmundssonar, hefur vakið athygli. Á tónleikasvið í Sólon Íslandus hafa stigið tónlistarmenn úr öllum áttum og leikið ólíkar gerðir tónlist- ar, sem verður að teljast viðeigandi á stað eins og Sólon íslandus sem er allt í senn; kaffibúlla, þægilegt veitingahús og menningarmiðstöð, Eliza Guðmundsdóttir á Sólon ís- landus hefur umsjón með Klúbbi Listahátíðar og segir að það samrým- ist mjög vel að reka kaffihús og veit- ingastað með lifandi tónlist. „Við höfum alltaf verið með lifandi tón- list, og því engin viðbrigði að fá klúbbinn inn til okkar. Við erum með hann uppi, þar sem galleríið er, og þar hafá tónlistarmennirnir leikið. Fólk vill koma og hlusta á tónlist og þegar það er uppi fær það frið til að hlusta á músíkina, það er ekki eins mikið skvaldur og umgangur. Eins ef það vill hvíla sig á tónlistinni og tala saman getur það farið niður. Sólon sækir mjög breiður hópur fólks, en um leið er stór hópur ein- mitt það fóik sem helst sækir atriði á Listahátíð. Það hefur viljað brenna við að fólk hefur haldið að það sé bara eldra fólk sem sækir Listahátíð, en því er öðru nær; það er fólk á öllu aldri og ekki síst yngra fólk, eins og við sjáum svo vel hjá okkur, þó sum atriðanna séu svolítið dýr.“ Eliza segir að á mánudagskvöldum sé yfírleitt alltaf jass, einnig hefur hljómsveitin Skárra en ekkert leikið nokkuð reglulega og fleiri eru tíðir gestir, en aliar eru sveitirnar eða tón- listarmennirnir á lágstemmdum nót- um, enda segir Eliza að ekki fari vel saman að vera með háværa harkalega tónlist og stað þar sem fólk komi saman til að spjalla saman, fá sér kaffibolla eða snarl, eða hlusta á afs- lappandi tónlist yfir vínglasi. Dagskráin á Sólon íslandi verður svohljóðandi út mánuðinn: í kvöld leikur Skárra en ekkert, mánudaginn 13. júní leikur Tríó Egils Hreinssonar jass, 14. júní leika Emil og Anna Sigga, 15. leikurTríó Ólafs Stephen- sens jass og Dönsku gleðigjafarnir syngja frá 22.00 til 22.30, 16. leikur Kvartett Marimba latintónlist, 17. leikur Magnús Blöndal Jóhannesson tvívegis, 18. treður Tríó Ólafs Steph- ensens aftur upp, 19. leikur Magnús Blöndal aftur, en hann er reglulegur gestur á Sólon, 20. leika Smurapar, 21. leikur Magnús Blöndal Jóhannes- son, 22. leikur Blúsband Andreu, 23. leikur Magnús Blöndal, 24. leikur Tríó Jamm, 25. leikur Tríó Ólafs Stephensens, 26. leikir Einar Krist- ján Einarsson, gítarleikari, 27. leika Reynir Sigurðsson og Þórir Baldurs- son, 28. leikur Magnús Blöndal, 29. verður Vínarkvöld og 30. leikur Skárra en ekkert. MN Lisfahátíð í dag ÍSLENSKI dansflokkurinn dansar Lýðveldisdansa í Borgarleikhúsinu klukkan 14.00 og 20.00 í dag. Kvennakórin Dzintars syngur í Víði- staðarkirkju klukkann 17.00. Verk Atla Heimis Sveinssonar Tíminn og vatnið verður frumflutt í Langholts- kirkju klukkan 20.00. Sýningum Stepanek og Maslin í Galierí Gangur og Helga Þorgils Ólafssonar í Listasafni ASÍ lýkur í dag. Tryggvi Ólafsson sýnir í Gallerí Borg, Dieter Roth í Nýlistasafninu, John Greer í Gallerí 11, Sigurður Guðmundsson á Sólon ísíandus, Ilja Kabakov í sýningarsalnum Annarri hæð, Rudy Antio í Gallerí Úmbru, Kristján Guðmundsson í Gallerí Sævars Karls og Joel Peter Witkin á Mokka. Á Kjarvalsstöðum stendur yfir sýn- ingin íslensk samtímalist en Lista- safn íslands speglar tímabilið frá alþingishátíð til lýðvelsisstofnunn- ar. Islandsmerki og önnur súlnaverk Sigurjóns Ólafssonar eru í safni hans og verk Jóns Engilberts í FÍM- salnum og í Norræna húsinu. í sama húsi eru einnig verk sex ungra gull- smiða. Leifur Kaldal gullsmiður sýnir í Stöðlakoti og loks er ný finnsk glerlist í Ráðhúsi Reykjavíkur. í Ásmundarsal sýna íslenskir akrki- tektar hugleiðingar sínar um Mann- virki-Iandslag-rými. Hljómsveitin Skárra en ekkert skemmtir gestum Klúbbs Listahátíðar á kaffihúsinu Sóloni íslandus frá klukk- an 22.00. Annað kvöld leikur Tríó Egils Jónssonar á Sólon íslandus. Vladimir Ashkenazy heldur tón- leika í Háskólabíó klukkan 20.00 á mánudagskvöld. TIL SÖLU Liebherr PR732Log PR722 jarðýtur, árgerð 1991. Einnig Volvo N12, árgerð 1986, nýr á götu 1991, ekinn 165 þús. km með malarvagni, árgerð 1991, og Mercedes Benz 813, árgerð 1980. Góð greiðslukjör möguleg. Allar nánari upplýsingar veitir Bílasalan Hraun í síma 91-652727. Síóustu sætin til Benidorm ll júní frá kr. 39 900 í 3 vikur Glæsilegt kynningartilboð á nýjan gististað Heimsferða á Benidorm í sumar, Mayra. Mjög góðar nýlegar íbúðir staðsettar miðsvæðis á Benidorm, stutt á ströndina og í alla þjónustu. Allar íbúðir eru vel innréttaðar, með baði, eldhúsi, svefnherbergi, stofu og svölum og lítil sundlaug er við hótelið. Frábær valkostur sem farþegum okkar hefur hkað afar vel. Bókaðu strax og tryggðu þér síðustu scetin meðan enn er laust. «,39.900 Aðeins 5 íbúðir eftir á þessu tilboðsverði Verð pr. mann, m.v. hjón með 2 börn, 2-11 ára. Verð kr. 34.900 Verð pr. mann m.v. 2 í íbúð. Flugvallarskattar: Kr. 3.660 f. fullorðna og kr. 2.405 f. böm. Nú getur þú eignast þessi vönduðu sjónvarpstæki á ótrúlegu verði. Víðóma (nicam stereo), textavarp, músafjarstýring, valmyndir á skjá o.fl. i'l 25" IUOKIA TV 6355 Munalán, Vísa og Euro-raðgreiðslur RONNING BORGARTÚNI 24 SÍMI 68 58 68 Metrú Akureyrl Rafcind ICgiIsstBðum Ncisti Vestmannaeyjum Itafeindaþ. Brynjólfs Hitfn Rafliús Kctlavík Litsýn Rcykjavík Hcimskringlan Reykjavík

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.