Morgunblaðið - 29.06.1994, Síða 37

Morgunblaðið - 29.06.1994, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. JÚNÍ 1994 37 Nýr fram- kvæmdastjóri Blindrafélags HALLDÓR S. Rafnar lætur að eigin ósk af störfum fram- kvæmdastjóra Blindrafélagsins frá og með 1. júlí nk. Halldór hefur verið framkvæmdastjóri Blindrafélagsins síðan 1985 en var áður formaður félagsins og hefur gegnt fjölmörgum öðrum trúnaðarstörfum fyrir félagið. Við starfinu tekur Helgi Hjör- var, sem er 26 ára gamall og er í BA-námi í heimspeki við Há- skóla íslands. Helgi hefur stund- að íjölmiðlastörf bæði á Þjóðvilj- anum og Stöð 2 og tekið að sér ýmis verkefni. Blind ungmenni í sumarbúðum HALDNAR eru sumarbúðir á Varmalandi í Borgarfirði dagana 26. júní til 3. júlí fyrir blind og sjónskert ungmenni frá Norður- löndunum. Þátttakendur verða 30 talsins á aldrinum 16-26 ára. Tilgangur sumarbúðanna er að ungmennin fái tækifæri til að kynnast og miðla af mismun- andi reynslu sinni. Inntak sum- arbúðanna að þessu sinni er „virk þátttaka í íþrótta- og tó- mustundastarfi" og er dagskráin byggð upp í samræmi við það. Lögð er m.a. áhersla á að upp- lifa íslenska náttúru og hvetja þátttakendur tii virkni þrátt fyr- ir fötlun. Undirbúningur og skipulag hefur verið í höndum æskulýðsnefndar Blindrafélags- ins. ■ FYRIRLESTUR á vegum rafmagnsverkfræðiskorar Háskóla íslands verður haldinn fimmtudaginn 30. júní kl. 14 í húsi verkfræðideildar, VR-II, stofu 158. Fyrirlesari er dr. Þórður Runólfsson, Associate Professor Department of Electrical and Computer Engine- ering, The Johns Hopkins Uni- versity, Baltimore, MD; USA. Titill fyrirlestrarins er: Ahættu- næmar stýringar slembidreifðra kerfa eða „Risk Sensitive Cont- rol“. Þórður Runólfsson lauk BS-prófi í rafmagnsverkfræði frá University of Wisconsin — Madison 1983. Hann lauk síðan Ph.D.-prófi frá University of Michigan 1988. Þórður hefur starfað við Johns Hopkins Uni- versity í Baltimore síðan í janúar 1989 og er nú „Associate Pro- fessor". Hann hefur birt fjölda greina í ritrýndum fræðiritum, einkum á sviði stýritækni. ■ VINNINGAR í Happ- drætti Félags heyrnarlausra en dregið var 23. júní sl. Utan- landsferð með Flugleiðum. Kr. 60.000: 677, 971, 1133, 3235, 4247, 4399, 4510, 5453, 5813, 6279, 6442, 6671, 8010, 8710, 10091, 11012, 11976, 12036, 12668, 13309, 16943, 13674, 15150, 16368, 16789, 16943, 18683, 19305, 19875. Vöruúttekt hjá Bónus. Kr. 15.000: 161, 567, 985, 1043, 1091, 2175, 2860, 2932, 3118, 3144, 4677, 4747, 5121, 5987, 6093, 7186, 7367, 7901, 8135, 8513, 8591, 8686, 8935, 9407, 9499, 9631, 9660, 9816, 10381, 10692, 10850, 11806, 12138, 12166, 12256, 12530, 12593, 13660, 13682, 14459, 14477, 14562, 14900, 15275, 15475, 15944, 15999, 16108, 16671, 16964, 17801, 18318, 18839, 19020, 19358, 19662. Vinning- anna skal vitja á skrifstofu Fé- lags heyrnarlausra, Laugavegi 26, 4. hæð. Skrifstofan er opin aila virka daga nema föstudaga til kl. 14. (Birt án ábyrgðar.) FRÉTTIR Morgunblaðið/Árni Helgason Aleigan brann til kaldra kola JÓNÍNA Jóhannesdóttir á Hraunhálsi í Helgafellssveit missti aleigu sína þegar íbúðarhúsið að Hraunhálsi brann til kaldra kola í síðustu viku. Þar á meðal voru um 2000 bækur og rit, sem Jónína hafði safnað, margar þeirra verðmætar. Þegar eldurinn kom upp var Jónínal peningshúsi ásamt manni sem var gestkomandi á bænum og missti sá föggur sínar aðrar en fötin sem hann stóð í. Eldurinn magnaðist skjótt og þótt slökkvilið kæmi á vettvang strax og til þess var leitað urðu strekkingsvindur og erfiðleikar með að nálgast vatn til að torvelda slökkvistarf og flýta fyrir útbreiðslu eldsins. Tryggingar eru óverulegar og er ekki talið að ráðist verði í viðgerð á því sem eftir stendur af húsinu. Orsök brunans er óljós en til rannsóknar. Menn hallast að því að kviknað hafi í út frá eldavél. Samvinna norrænnastyrktarfélaga krabbameinssjúkra barna Ráðstefna um eftir- köst krabbameins STYRKTARFÉLAG krabbameins- sjúkra barna í Noregi bauð um síðustu helgi fulltrúum félaganna annars staðar á Norðurlöndunum til ráðstefnu um eftirköst krabba- meins og krabbameinsmeðferðar hjá börnum. Foreldrafélögin hafa með sér nána samvinnu á ýmsum sviðum og m.a. um að bæta hag barnanna með það fyrir augum að daglegt líf þeirra geti orðið sem eðlilegast. Félögin munu nú í fyrsta sinn beina sjónum sínum að þeim hópi barna sem hefur fengið ýmiss kon- ar eftirköst, andleg og líkamleg, eftir krabbameinsmeðferð. Um þessi vandamál hefur lítið verið íjallað fram að þessu en vegna framfara í læknavísindum læknast æ fleiri börn af krabba- meini. Hins vegar fá mörg þeirra eftirköst sem valda því að þau geta ekki lifað jafneðlilegu lífi og ef þau hefðu ekki fengið sjúkdóm- inn. Styrktarfélag krabbameins- sjúkra barna í Noregi hefur gert könnun í þessum efnum og er ráð- * Utgjöld heilbrigðisráðuneytisins Allt leyst innan ráðuneytis GUÐMUNDUR Árni Stefánsson félagsmálaráðherra og fyrrverandi heilbrigðis- og tryggingamálaráð- herra fullyrðir í athugasemd sem hanngerir, að aldrei hafi komið til greina að nefnd úr íjármálaráðu- neytinu yrði fengin til þess að stýra fjármálum heilbrigðisráðuneytisins. Það sé því misskilningur, sem hann vilji leiðrétta, að ríkisstjórnin hafi haft áform um slíkt. Guðmundur Árni segir að stjórn fjármála hafi gengið ágætlega í heilbrigðisráðuneytinu og telur raunar að staða þess sé fyllilega viðunandi og í samræmi við megin- efni ijárlaga. „Breyttar forsendur gerðu okkur erfiðara fyrir en ella að halda útgjöldum ráðuneytisins innan fjárlaga. Fyrst og síðast eru það ákvarðanir ríkisstjórnarinnar sjálfrar eða Alþingis sem valda því,“ sagði hann. Guðmundur bendir á að nefnd skipuð embættismönnum ráðuneytisins hafi árum saman unnið jöfnum höndum að því að gæta þess að forsendur fjárlaga gangi fram. Hún starfi í samstarfi við fjármálaráðuneyti á sama hátt og önnur fagráðuneyti. gert að gera samsvarandi kannan- ir annars staðar á Norðurlöndun- um. Áformað er að safna því saman sem ritað hefur verið um eftirköst barna og ungmenna. ------» ♦ ♦----- Náttúru- skoðuní ferðtil Yiðeyjar- Náttúruverndarfélag Suðvestur- lands efnir til vettvangsferðar til náttúruskoðunar í Viðey á fimmtu- dag. Farið verður frá Klettavör, Viðeyjarfeijulæginu í Sundahöfn, klukkan 20. Einnig verður fjallað um hinar fjórar eyjamar á Kolla- firði; Akurey, Engey, Lundey og Þerney, náttúrufar þeirra, sögu og gildi fyrir náttúruskoðun og útivist. Ferðin er farin í tilefni af því að nákvæmlega tíu ár eru liðin frá því að NVSV fór af stað með ferðaröð undir heitinu „Umhverfið okkar“. Síðan 1984 hefur félagið árlega staðið fyrir mörgum ferðum út í eyjarnar með aðaláherslu á Engey. Leiðsögumenn í ferðinni verða Kjartan Thors jarðfræðingur, Jó- hann Pálsson grasafræðingur og garðyrkjustjóri Reykjavíkur og Stefán Bergmann lektor í líffræði við Kennaraháskólann. Ferðin tek- ur um þrjá tíma. Allir eru velkomn- ir og er fargjald 400 krónur fyrir fullorðna og 200 krónur fyrir börn. Guðmundur Heimisson, sölustjóri, Jón Loftsson, skógræktar- stjóri, Rolf Johansen, stórkaupmaður og Pétur Haraldsson, framkvæmdastjóri Rolf Johansen & co. E1 Marino gefur fé til skógræktar í TILEFNI af 50 ára afmæli Lýðveld- isins íslands mun E1 Marino í Mexíkó leggja grunn að kaffiskógum í hveij- um landsfjórðungi. í hvert skipti sem dós af E1 Marino-kaffi er keypt á Islandi verður ein tijáplanta gróður- sett, í samstarfi við Skógrækt ríkis- ins, í einum af fjórum kaffiskógun- um. „íslendingar hafa tekið E1 Marino- kaffinu vel. Það er E1 Marino mikils virði og það vilja þeir sýna í verki. Menningar- og viðskiptatengsl ís- lands og Mexíkó hafa aukist mikið sl. ár. En löndin hafa tengst mikið lengur en þjóðirnar sem þau byggja. í aldanna rás hefur Golfstraumurinn borið hlýja sjávarstrauma til íslands frá Mexíkó og skapað þau skilyrði sem nauðsynleg eru fjölbreyttu gróð- urlífi. E1 Marino finnst því viðeig- andi að slást í förina með Golf- straumnum í tilefni af 50 ára af- mæli lýðveldisins og leggja hönd á plóg í skógrækt íslendinga," segir í frétt frá fyrirtækinu. Breytingar hjá tíma- ritinu Heimsmynd TÍMARITIÐ Heimsmynd hefur nú tekið miklum breytingum en 2. tbl. Heimsmyndar 1994 lítur nú dagsins ljós. Eigendaskipti hafa orðið á tímaritinu en Herdís Þorgeirsdóttir hefur selt útgáfuna Friðriki Frið- rikssyni sem nú er útgefandi. Nýr ritstjóri var ráðinn í stað Herdísar, Vilborg Einarsdóttir, áður blaða- maður á Morgunblaðinu. Helstu breytingar á tímaritinu eru að brotið er stærra en verið hefur og í annan stað er ritið veg- legra en áður. Stærsta breytingin er fólgin i því að Heimsmynd hefur gengið til samstarfs við Matar- og vínklúbbinn sem mun framvegis hafa til umráða hluta af tímaritinu undir nafninu Sælkerinn — blað um matreiðslu, vín og lífsstíl. Ritstjóri Sælkerans er Sigurður J. Hall. Allir áskrifendur að Heimsmynd eru sjálfkrafa félagar í Matar- og vínklúbbnum með öllum þeim fríð- indum sem því fylgir. Með þessu hefti fylgir Gullkort Sælkerans, en á öftustu síðum Sælkerans er að finna yfirlit yfir þá veitingastaði og þær verslanir sem veita félögum ríflegan afslátt af vörum sínum og þjónustu. Aðild að Matar- og vín- klúbbnum er innifalin í áskriftar- verði Heimsmyndar en í áskrift kostar hvert tölublað 490 krónur. -------»■■-»-♦------ ■ FÉLAGIÐ Fjölskylduvernd boðar til almenns fundar fimmtu- daginn 30. júní í samkomusa! Langholtskirkju um mannrétt- indamál fjölskyldunnar og um- gengnisrétt foreldra og barna. Snyrtistofan Tara flytur í nýtt húsnæði Snyrtistofan Tara í Kópavoginum hefur flutt í nýtt húsnæði að Digra- nesheiði 15. Um er að ræða mun stærra húsnæði og af því tilefni hefur verið aukið til muna við vöruval stofunnar. Snyrtistofan Tara býður við- skiptavinum sínum einnig upp á helgar og kvöldtíma en annars er opið frá 9.30 til 18 virka daga. Morgunblaðið/Árni Sæberg Eigandi stofunnar er Undína Signiundsdóttir snyrtifræð- ingur en á myndinni er auk hennar starfsmaður stofunnar Hanna Fanney Steinarsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.