Morgunblaðið - 16.09.1994, Page 31

Morgunblaðið - 16.09.1994, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ MINIMINGAR FÖSTUDAGUR 16. SEPTEMBER 1994 31 EINAR EYFELLS + Einar Eyfells fæddist í Reykjavík 12. jan- úar 1922. Hann lést á Landspítalanum 7. september síðast- liðinn. Hann var sonur hjónanna Ingibjargar Einars- dóttur Eyfells og Eyjólfs Eyfells list- málara og ólst upp hjá foreldrum sín- um á heimOi þeirra á Skólavörðustíg 4 í Reykjavík. Einar naut auk atlætis foreldra sinna ómældrar um- hyggju Kristínar M; Jónsdóttur sem ásamt móður hans Ingi- björgu rak verslunina Baldurs- brá um árabil, en Kristín bjó með fjölskyldunni á Skóla- vörðustígnum. Einar var elstur fjögurra systkina en þau eru Jóhann Kristján, f. 1923, pró- fessor í listum við University of Central Florida í Orlando, kvæntur Kristínu Halldórsdótt- ur, Kristín, f. 1925, handavinnu- kennari, d. 1984, og Elín, f. 1926, húsmóðir, gift Þór Jó- hannssyni. Einar kvæntist Unni Nikuláksdóttur hinn 31. mars 1945. Unnur er dóttir hjónanna Nikulásar Friðrikssonar raf- magnseftirlitsmanns í Reykja- vík og Rögnu Stefánsdóttur. Einar og Unnur eignuðust tvær dætur, Ingibjörgu, f. 10. júlí 1948, gift 1969 Geir V. VU- hjálmssyni, þau skildu, gift 1980 Gísla Pálssyni, þau skildu, þeirra dóttir er Unnur Silfá, f. 14. september 1983; og Mar- gréti Kristínu, f. 16. maí 1951, gift 1969 Karli Davíðssyni. Syn- ir þeirra eru Einar Þór, f. 22. október 1969, unnusta hans er Auður Ebeneserdóttir, Karl Freyr, f. 18. mars 1972, unnusta hans er Sigríður Örvars- dóttir, þeirra dóttir er Margrét, f. 28. nóv- ember 1993, og Ingi- mar Örn, f. 30. júní 1975. Einar sigldi til Bandarikjanna 1942 og stundaði nám í vélaverkfræði við Kaliforníuháskóla í Berkeley og útskrif- aðist þaðan 1947. Eft- ir heimkomuna starf- aði hann nokkur ár sem forstjóri Vél- smiðjunnar Keilis, síðan sem verkfæraráðunautur Búnaðar- félags Islands og jafnframt framkvæmdastjóri Vélasjóðs í þrjú ár. Frá ársbyijun 1954 starfaði hann hjá Hamilton á Keflavíkurflugvelli og síðan hjá Sameinuðum verktökum. Einar sérhæfði sig í eldvörnum og slökkvikerfum. Árið 1963 stofn- aði hann Brunavarnir sf. Bruna- varnir fluttu inn eldvarnar- og slökkvibúnað, var Einar m.a. umboðsmaður fyrir Norsk ham- merverk um árabil eða þar til Brunavarnir sf. hættu innflutn- ingi 1991. Hann vann að upp- byggingu Eldvarnaeftirlits Reykjavíkurborgar og veitti því forstöðu fyrstu árin, hvarf svo aftur til starfa á Keflavíkur- flugvelli og vann hjá Islenskum aðalverktökum þar til hann lét af störfum 1990. Einar var mik- ill áhugamaður um skíðaíþrótt- ina og var hann einn af hluthöf- um í Fannborg hf., en Fannborg á og rekur Skíðaskólann í Kerl- ingarfjöllum. Þau Einar og Unnur voru stofnfélagar Þjóð- dansafélags Reykjavíkur. Utför Einars fer fram frá Dómkirkj- unni í dag. Hetja er fallin. Einar Eyfells hefði sómað sér vel sem herforingi fyrr á öldum. Hann hefði farið fremstur í flokki í sigursælum leiðöngrum og liðsmenn hans hefðu vitað nákvæm- lega til hvers var ætlast af þeim. Einar var prýddur mörgum dyggð- um foringjans, hann var hugrakkur, viljasterkur og drengur góður. Einar hafði djúpar rætur í ætt sini og landi og var mikið náttúrubarn. Hann var afreksmaður í íþróttum og hafði unun af því að glíma við náttúruöfl- in. Hann vissi svo sannarlega hvert hann ætlaði og oftast var hann svo viss í sinni sök að enginn efi komst að. Það er eðlilegt að stundum hafi gustað um mann með svo einarðar skoðanir sem hann fór ekki í graf- götur með. Rétt skal vera rétt. Á okkar umbreytingatímum veitir það ákveðna öryggiskennd að vita af mönnum eins og Einari sem standa af sér umrótið hvað sem á dynur. Einar verður að teljast óvenjulegur maður fyrir það hversu fast hann hélt sig við sínar ákveðnu skoðanir. Að sumu leyti var hann ákveðið viðmið fyrir okkur hin. Við meðal- mennirnir megum vera fólki eins og Einari þakklátir fyrir að draga fram skýra mynd af andstæðunum hjá mannfólkinu. Hann var óvenju kröfuharður maður en mestar kröfur gerði hann þó til sjálfs sín. Einkunn- arorð hans voru þau að ætla engum manni þau verkefni sem hann ekki réði við sjálfur með eigin hendi. Hann var alla tíð forkur duglegur og verklaginn maður. Handverk og verkfræði fór einstaklega vel saman hjá honum. Drift hans og lífsorka voru með ólíkindum. Að lokum varð Einar að gefast upp fyrir lúmskum óvini nútímans. I þeirri baráttu sýndi hann sinn sanna kjark og þá kom styrkur eig- inkonu hans og dætra einnig í ljós. Á æskuheimili Einars var hin and- lega veröld jafn raunveruleg og hinn áþreifanlegi efnisheimur. Hann bjó alla tíð að þessari trú og án hennar hefði hann varla verið jafn æðrulaus á kveðjustundu sem raun bar vitni. Ævi hans hlýtur að hafa kristallast í djúpu þakklæti er hann kvaddi þennan heim umvafmn kærleika fjöl- skyldu sinnar. v Eg þakka Einari og Unni eigin- konu hans fyrir þann styrk og þá umhyggju er þau veittu mér í æsku. Einnig votta ég Unni, dætrum henn- ar og þeirra fjölskyldum samúð mína og óska þeim blessunar Guðs um alla framtíð. Ingólfur Eyfells. Elskulegur tengdafaðir minn og vinur, Einar Eyfells verkfræðingur, er látinn. Hann lést á Landspítalan- um 7. september síðastliðinn. Horf- inn er sá sem mér og fjölskyldu minni var svo einstaklega hjartkær. Viljum við þakka forsjóninni fyrir hve lengi við fengum að njóta ljúf- mennsku hans og vináttu. Holl ráð voru ávallt á takteinum hjá Einari og fengu margir að njóta þeirra hjá honum bæði í leik og starfi. Gunnar Dal frændi minn segir svo fallega um vináttuna: Orð milli vina, gera daginn góðan. Það gleymist ei en býr í hjarta mér, sem lítið fræ. Það lifir og verður að blómi, og löngu seinna, góðan ávöxt ber. Kynni okkar spanna fjórðung ald- ar, og þeir sem voru svo lánsamir að kynnast tengdaföður mínum per- sónulega, munu minnast hans lengi sökum mannkosta hans og heiðar- leika. Fyrir fáeinum dögum kvöddumst við Einar á heimili hans við Selvogs- grunn 10. Við horfðumst í augu, fullvissir þess að til beggja vona gæti brugðið um aðra endurfundi. Endalok hans í þessu jarðríki voru staðreynd nokkrum dögum seinna. Hann varð að láta undan að þessu sinni. Naut hann umhyggju elsku- legrar eiginkonu sinnar Unnar og dætranna Ingibjargar og Margrétar þar til yfir lauk. Endalaust streyma minningar um hugann og læt ég nú staðar numið í þessum fátæklegu orðum mínum um elskulegan tengdaföður minn. Ég kveð kæran vin með söknuði og þakka honum samfylgdina af heilum hug. Ég veit að hann á góða heim- komu. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinimir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. (V. Briem.) Karl Davíðsson. Genginn er góður drengur langt um aldur fram eftir harða baráttu við vondan sjúkdóm. Hann var flutt- ur á Landspítalann daginn áður en hann lést. Einar var ekki vel hraust- ur sem barn, en hann stundaði íþróttir af kappi og öðlaðist krafta og hreysti. Hann lifði þannig lífi, að hann, og allir vinir hans, bjugg- ust við, að hann yrði langlífur og ern; en enginn má sköpum renna. Hann stundaði skíði og sund með- an kraftar entust, var auk þess reglulega í líkamsæfingum, göngum og skokki. Oft fór hann í ferðalög með Unni, konu sinni, bæði innan lands og utan. Mörg hin síðari ár fóru þau til Spánar, oftast tvisvar á ári og voru þar einnig stundaðar skíðaferðir. Einar var einn af stofn- endum skíðaskólans í Kerlingarfjöll- um og vann þeirri stofnun vel og dyggilega allt til hins síðasta. Eftir að hann lauk námi í véla- verkfræði í Kaliforníu 1947 gerðist hann forstjóri Vélsmiðjunnar Keilis hf. og starfaði þar í þijú ár en réðst þá til Búnaðarfélags íslands sem verkfæraráðunautur, en því starfi fylgdi framkvæmdastjóm Vélasjóðs. Vélasjóður var ríkisstofnun, sem átti og rak um 30 skurðgröfur víðsvegar um landið. Með skurðgröfum voru grafnir framræsluskurðir, sem al- staðar má sjá í sveitum landsins. Undir hans stjórn var komið upp verkstæði í Reykjavík og voru gröf- urnar flestar fluttar þangað með reglulegu millibili til viðhalds og við- gerða að vetrinum. Þá var undir hans stjórn byijað að láta nokkra skurðgröfustjóra vinna í ákvæðis- vinnu, en það varð síðar almenn regla við gröft framræsluskurða. Eftir þriggja ára starf réðst Einar til amerískra verktaka á Keflavíkur- flugvelli en litlu síðar fór hann til Sameinaðra verktaka og loks til ís- lenskra aðalverktaka og átti mestan starfsaldur sinn hjá þeim. Hann starfaði þó um hríð við Brunamála- stofnun og Eldvarnaeftirlit Reykja- víkur en hvarf aftur frá þeim störf- um til íslenskra aðalverktaka. Einar skipulagði verk sín mjög vel, var fylginn sér og vel látinn af samstarfsmönnum sínum. Hann var frændrækinn, átti marga vini, var tryggur vinum sínum og með af- brigðum hjálpfús. Á ferðaiögum var hann úrræða- góður og röskur hvað sem á bját- aði, hvort sem var að gera við bíl eða ná honum upp úr festu. Við áttum saman góða bernsku og unglingsár og vorum öllum stund- um saman, bræðurnir Einar og Jó- hann og undirritaður. Fyrstu árin sem ég man, vorum við í Reykholti á sumrin hjá afa okkar og ömmu. Síðan vorum við skólabræður, stund- uðum saman leiki og íþróttir, sund, skíði og handbolta þar til leiðir skildi og hver fór til síns náms. Einar og Jóhann fóru báðir til náms í Kalifor- níu. Einar var elstur okkar þriggja, ári eldri en við Jóhann. Hann hafði því oftast frumkvæðið og forustuna. Okkur Jóhanni fannst hann oft óþarflega stríðinn en stríðnin vandist fljótt af honum. Á skíðum var Einar áræðinn í bröttum brekkum en aldr- ei glannafenginn. Hann keppti nokk- ur ár í svigi fyrir ÍR. Einar var reglusamur, þó að hann gæti glaðst með góðum vinum. Hann fór yfirleitt snemma heim úr boðum enda þurfti hann að vakna snemma vegna starfa sinna. Ekki líkaði öll- um, er hann stóð upp, þegar gleði stóð sem hæst í veislum og fór heim með konu sína. Ákvörðunum hans varð ekki haggað þá né endranær. Sumum fannst hann oft harður og ósveigjanlegur. Einar þoldi illa hvers konar óreglu og aumingjaskap og gat verið dómharður gagnvart fólki. Hann var alinn upp á mannmörgu heimili þar sem oft var aðkomufólk og taka þurfti tillit til þess. Eyjólfur faðir hans vann að málverkum sínum á lofti Safnahússins en móðir hans, Ingibjörg, og Kristín Jónsdóttir ráku saman hannyrðaverslun í húsinu, sem þau bjuggu í. Þær höfðu í nógu að snúast en gáfu sér þó.túna til þess að líta eftir okkur þrem, oft óstýrilátum og uppátektasömum. Sjaldan vorum við skammaðir en augnaráð þeirra beggja, Kristínar og sérstaklega Ingibjargar, var þannig, að við vildum síður misbjóða þessum konum. Einar barðist nokkur ár við krabbameinið og kveinkaði sér aldrei en greinilegt var, að honum fannst þetta snubbótt endalok. Hann naut umhyggju Unnar, konu sinnar, og dætranna, Ingibjargar og Margrét- ar, til síðasta dags. Eftir stendur minningin um hjálp- saman og góðan vin og frænda. Hann var drengur góður. Haraldur Árnason. „Vinir mínir fara fjöld, feigðin þessa heimtar köld.“ Þessar ljóðlínur Bólu-Hjálmars koma upp í hugann þegar vinir kærir kveðja. Undanfarin fjögur ár höfum við fylgst með hetjulegri baráttu vinar okkar Einars Éyfells við banvænan sjúkdóm. Að sjálfsögðu er það mikið áfall fyrir hvern sem er að fá þann úr- skurð, að hann gangi með illkynjað krabbamein. Ekki síst á það við hreystimenni sem Einar Eyfells, sem aldrei hafði orðið misdægurt um dagana. En aldrei heyrðist æðruorð af hans vörum og allra síst hvarfl- aði það að honum að gefast upp. Fjárans krabbinn skyldi fá að hafa fyrir því, honum skyldi ekki takast að leggja hann að velli fyrirhafnar- laust. Einar hélt sínu striki eins og ekk- ert hefði í skorist, stundaði sund og skokk, skíði og leikfimi svo lengi sem fætur báru hann. Við undruðumst andlegan styrk þessa manns sem gekk svo vígdjarfur á vit skapadæg- urs síns að minnti mest á fornkapp- ann og kjarkmanninn Þóri Jökul, sem kvað er hann var leiddur á af- tökustaðinn „Upp skaltu á kjöl klífa, köld er sjávar drífa. Kostaðu huginn að herða, hér muntu lífit verða. Skafl beygjattu skalli, þótt skúr á þik falli. Ást hafðir þú meyja, eitt sinn skal hverr deyja.“ Einar stóð ekki einn í þessu stranga stríði. Hann átti hugrakkan lífsförunaut, hana Unni sína, sem stóð við hlið hans sem klettur og létti honum lífið með glaðværð sinni og óbilandi kjarki og bjartsýni. Þannig naut hann umhyggju hennar og blíðu uns yfir lauk. Fjölskylda hans öll sameinaðist í því að gera honum sjúkdóminn léttbærari og dæturnar, Ingibjörg og Margrét, voru foreldrum sínum stoð og stytta í þessum stormi lífsins. Einar og Unnur voru einstaklega samhent hjón. Þau áttu sameiginleg áhugamál í íþróttum og listum. Sem margir vita voru fyrstu kynni þeirra á skautum á Reykjavíkurtjörn og átti skautaíþróttin eflaust þátt í því að Unnur lét heillast af þessum unga manni sem var allra fremstur í skautahlaupi Reykvíkinga á þeim tíma. Einar sleppti ekki Unni úr augsýn eftir þeirra fyrsta fund en þá var hún aðeins 16 ára sprund. Hann var þá á leið til háskólanáms í Bandaríkjunum en hún beið hans í festum, þar til hún náði löglegum giftingaraldri og fór þá vestur, þar sem þau gengu í hjónaband. Það bar með tímanum ríkulegan ávöxt, tvær fallegar og vel gerðar dætur, sem gefið hafa þeim fjögur barnabörn, sem verið hafa afa sínum og ömmu miklir gleðigjafar. Eitt langömmu- og langafabarn, lítil stúlka, hefur einnig litið dagsins ljós. Það duldist engum, hversu innilega Einar dáði og dýrkaði Unni sína og hennar fal- legu söngrödd. Hann studdi hana með ráðum og dáð í löngu og óeigin- gjörnu starfi hennar fyrir Þjóðdansa- félag Reykjavíkur sem undirleikari, dansari og einsöngvari. Honum var það ljóst, að Unnur hefði getað náð langt í sönglistinni, hefði hún fengið tækifæri til þess að fara inn á þá braut, og hann kunni því betur að meta það, að Unnur skyldi helga sig honum og dætrunum. Kynni okkar Einars og Unnar tengjast upphaflega skíðaíþróttinni og Kerlingarfjöllum. Fljótlega eftir að við byijuðum með skíðanámskeið þar efra urðu Einar og Unnur tíðir gestir þar. Líkaði okkur svo vel fé- lagsskapur þeirra, að við buðum Einari að vera með í stofnun hlutafé- lags um rekstur skíðaskólans árið 1964, sem við nefndum Fannborg. Við vorum 8 félagar sem áttum hlut að máli og er Einar sá fyrsti sem fellur frá. Við höfum átt náið sam- starf á þeim vettvangi um 30 ára skeið. Við höfum einnig verið saman í leikfimisflokki ásamt allmörgum skíðafélögum okkar frá fyrstu sumr- um í Kerlingarfjöllum. Báðir þessir hópar hafa notið einstakrar gestrisni Einars og Unnar og hafa þau átt stóran þátt í þeim vináttutengslum sem þar hafa skapast. Er þessa nú minnst með kæru þakklæti. Einar var ákaflega lipur skíða- maður sem kom best fram í „skíða- ballettinum" sem hann var braut- ryðjandi í hér á landi. Var unun að horfa á hann leika listir sínar og engan hef ég séð enn þá honum fremri í þessari íþrótt hér. Einar var ekki við eina fjölina felldur í íþróttum eins og hér hefur komið fram. Hann lagði stund á box áður fyrr og varla leið sá dagur, að þau Unnur færu ekki í sund og skokk saman. íþrótt- ir áttu eflaust ríkan þátt í því, hversu mikill atorkumaður og dugnaðar- forkur hann var. Hann var fastur fyrir eins og títt er um slíka menn, trölltryggur vinur, en vildi lítil sam- skipti hafa við þá sem ekki voru honum að skapi. Greiðvikni og hjálp- semi voru honum í blóð borin og var þá sama hver í hlut átti. Kom þetta skýrt fram í samskiptum hans við aldraða, sem hann sýndi einstaka umhyggju og tillitsemi. Það var gott að eiga Einar og Unni að vinum. Því fengum við Kristín að kynnast æ betur er á ævina leið. Samverustundirnar verða okkur dýrmætar í sjóði endurminninganna. Við söknum góðs vinar og sendum Unni og öllum ástvinum Einars inni- legustu samúðarkveðjur okkar og fjölskyldu okkar. Blessuð sé minning Einars Ey- • - fells. Valdimar Ornólfsson. t Eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir og amma, ÓLÖF JÓNSDÓTTIR, lést i dvalarheimilinu Droplaugarstöð- um 9. september sl. Útförin hefur farið fram. Þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á stuðning við Tjaldanesheimilið í Mosfellsbæ. Hans Kr. Eyjólfsson, Lára Hansdóttir, Gunnar Þ. Gunnarsson, Bragi Hansson, Rose Marie Christiansen, Grétar Magnús Hansson, Krístín Sigsteinsdóttir og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.