Morgunblaðið - 16.09.1994, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 1994 33 .
MINNINGAR
GISLIJONSSON
+ Gísli Jónsson
fæddist á Dunk
í Hörðudal í Dala-
sýslu 9. janúar
1926. Hann lést á
Borgarspítalanum
7. september síðast-
liðinn. Foreldrar
hans voru Jón
Laxdal, f. 1891, d.
1981, bóndi í
Blönduhlíð, og
Kristjana Ingiríður
Krisljánsdóttir, f.
1902, d. 1993, hús-
móðir í Blönduhlið.
Systkini Gísla eru:
Unnur, f. 1923, d.
1986, Magnús, f. 1927, Krislján,
f. 1931, Gunnar Aron, f. 1934,
Jónas Steinar, f. 1938, og Rögn-
valdur, f. 1941. Gísli byrjaði
búskap í Blönduhlið árið 1955
og bjó þar alla tíð. Hinn 14.
júlí 1956 giftist hann Svanhildi
Jóhönnu Kristjánsdóttur, f. 20.
maí 1933. Svanhildur er dóttir
Kristjáns Magnússonar, f. 1902,
d. 1988, bónda í Seljalandi, og
Þorbjargar Sigvaldadóttur, f.
1910, d. 1981, hús-
freyju í Seljalandi.
Börn Gisla og
Svanhildar eru:
Kristján Þormar, f.
1955, kvæntur
Rannveigu Finns-
dóttur, f. 1956.
Eiga þau fjögur
börn, Finn, f. 1975,
Svanhildi, f. 1977,
Fannar _ Þór, f.
1985, og ívar Orra,
f. 1989; Helga, f.
1957; Inga Jóna, f.
1958, gift Ingóifi
K. Þorsteinssyni, f.
1956. Eiga þau
tvær dætur, Ingu Sif, f. 1989,
og Hildi Hönnu, f. 1991. Ingólf-
ur á dóttur, Guðnýju Maren, f.
1978; Unnar Laxdal, f. 1973.
Einnig eiga þau uppeldisson,
Magnús Kristjánsson, f. 1959,
kvæntur Oddrúnu Maríu Páls-
dóttur, f. 1962. Eiga þau þijá
syni: Ingþór, f. 1982, Gísla Svan,
f. 1986, og Almar, f. 1990. Útför
Gísla verður gerð frá Snóks-
dalskirkju í dag.
ELSKU afi, þú ert dáinn. Við erum
svo ungar, að erfitt er að fyrir okk-
ur, að skilja þá staðreynd. Við skilj-
um þó, að þú kemur ekki framar í
dyragættina á móti okkur, þegar við
komum í Blönduhlíð, þú smalar ekki
saman kindunum þínum, og slærð
ekki oftar túnin þín, sem þú varst
nýbúinn að ljúka við. Við vorum svo
heppnar að fá að taka þátt í bú-
skapnum með þér, og nú síðast fyr-
ir örfáum vikum vorum við að hjálpa
þér við heyskapinn. Það er dýrmætt
fyrir okkur að eiga svo margar góð-
ar myndir af þér við ýmis tækifæri,
t.d. úti í fjárhúsi, við heyskap, á
hestbaki og í réttunum.
Elsku amma, þinn missir er mik-
ill, þið afi hafið verið saman í 40
ár. En veistu hvað, amma, við ætlum
að koma oft í heimsókn til þín svo
þú verðir ekki einmana.
Harpan er hljóðnuð - Sumri hallar senn
og sölna blóm.
„Hverf þú til duftsins." - Skynja skuium enn
vom skapadóm.
Varir um eilífð vorsins fyrirheit
að vakni fræ í nýjum gróðurreit.
Allt það sem lifir, leitar afturhvarfs
af leyndri þrá.
Hærra - æ hærra, upp til æðra starfs,
vill andinn ná.
Dauðinn er aðeins þögn við þáttaskil,
á þroskans leið, sem hver er vígður til.
Elsku afi, við þökkum fyrir allar
góðu stundirnar.
Inga Sif og Hildur Hanna.
Vér horfum allir upp til þín,
í eiiíft Ijósið Guði frá,
þar sem að dásöm dýrð þín skín.
Vor Drottinn Jesú, himnum á.
(P.J.)
Elsku afi okkar lést á gjörgæslu-
deild Borgarspítalans miðvikudaginn
7. september síðastliðinn. Okkur
langar að kveðja hann með þessum
fáu línum.
Þú varst svo góður afi og kenndir
okkur svo margt, að umgangast
dýrin og bera virðingu fyrir þeim
og jörðinni sem þau lifðu á. Þú varst
óþreytandi 'að leyfa okkur að vera
með í heyskapnum, vera í dráttarvél-
inni þegar þú varst að snúa heyinu
eða hirða og oft sofnuðum við í henni
við taktfast vélarhljóðið. Þá hélst þú
á okkur inn til ömmu og sagði með
afsökunartón: „Hann sofnaði víst
anginn litli.“
Eins viljum við þakka þér fyrir,
afi, að leyfa okkur að taka þátt í
sauðburðinum, að sjá nýtt líf koma
í heiminn, síðan að bólusetja og
marka litlu greyin og að lokum að
reka upp fyrir tún. Og eins fyrir öll
dýrin sem þú og amma hafið gefið
okkur, nú síðast þegar við hittumst
öll í afmælinu hans Fannars Þórs
19. ágúst. Þá vakti gjöfin ykkar,
rauðblesótt hestfolald, ólýsanlega
hamingju í bijósti afmælisbarnsins.
En nú er haustið komið og leitir
og réttir framundan. Það verður
sárt að sjá ekki afa sinn lengur draga
fé í Blönduhlíðardilkinn. En nú ert
þú kominn til Guðs og við vitum að
langamma hefur tekið á móti þér
og vafið þig örmum sínum, það er
svo stutt síðan hún fór líka til Guðs.
Við söknum þín, afi minn, en við
verðum dugleg að hjálpa ömmu og
hugga hana í hennar miklu sorg.
Þetta er gangur lífsins, við vitum
það, en alltaf er jafnerfitt að sætta
sig við það er ástvinur hverfur á
braut. Við kveðjum þig með ijóðinu
sem á svo vel við þig:
Undir Dalanna sól, við minn einfalda óð
hef ég unað við kyrrláta fór,
undir Dalanna sól hef ég lifað mín ljóð,
ég hef leitað og fundið mín svör,
undir Dalanna sól hef ég gæfuna gist,
stundum grátið en oftast. í fögnuði kysst.
Undir Dalanna sól á ég bú mitt og ból
og minn bikar, minn arinn, minn svefnstað
og skjól.
(Hallgrímur Jónsson frá Ljárskógum.)
Góður Guð blessi minningu þína.
Finnur, Svanhildur,
Fannar Þór og ívar Orri.
t
Frændi okkar,
GUNNAR NÍELSEN BJÖRNSSON,
Teigaseli 4,
Reykjavík,
lést á gjörgæsludeild Borgarspítalans 15. september.
Ættingjar og vinir.
t
Hjartkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
MARIA ALDÍS PÁLSDÓTTIR,
Hrafnistu,
Hafnarfirði,
fyrrum Austurbrún 2,
er lést 8. september sl. verður jarð-
sungin frá Langholtskirkju föstudaginn
16. september kl. 15.00.
Blóm og kransar eru vinsamlega af-
þakkaðiren þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á líknarstofn-
anir.
Margrét Jörundsdóttir, Kristinn Sveinsson,
Karl Jörundsson, Valgerður Frímann,
Páll Trausti Jörundsson, Inga indiana Svala Vilhjálmsdóttir,
Jórunn Jörundsdóttir, Geir Hauksson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og
útför elskulegs eiginmanns míns, bróður og mágs,
BJÖRNS EINARSSONAR,
Kleppsvegi 120.
Gertrud Einarsson,
Halla Einarsdóttir,
Jónas Einarsson, Guðbjörg Haraldsdóttir,
Ingimar Einarsson, Matthea K. Guðmundsdóttir,
Georg Fransson, Brynja Ragnarsdóttir
og fjölskyldur.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og
útför föður okkar, tengdaföður og afa,
SIG. GUNNARS SIGURÐSSONAR
fyrrv. varaslökkviliðsstjóra.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Reykjalundar, Hjúkrunarheimilisins
Skjóls og Hrafnistu í Hafnarfirði.
Guðmundur Sigurðsson, Helga Halldórsdóttir,
Sigurður Ágúst Sigurðsson, Guðrún B. Björnsdóttir
og barnabörn.
t
Þökkum innilega samúð og vináttu okkur sýnda við andlát og
útför föður okkar, tengdaföður, afa, langafa og bróður,
AXELS JÚLÍUSAR JÓNSSONAR
frá Stóru-Hildisey,
Engjavegi 45,
Selfossi,
Guð blessi ykkur öll.
Guðjón Axelsson, Ásdis Ágústsdóttir,
Ingigerður Axelsdóttir,
Jón Axelsson,
Erla Axelsdóttir, Birgir Schram,
barnabörn, barnabarnabörn,
Vigdís Jónsdóttir.
t
Þökkum auðsýnda samúð vegna andláts móður okkar, tengda-
móður, ömmu og langömmu,
MARGRÉTAR ÓLAFSDÓTTUR,
frá Steðja,
Anna Eggertsdóttir,
Stefán Eggertsson,
Guðrún Eggertsdóttir, Edwin Kaaber,
Sigvaldi Þór Eggertsson, Sigríður Einarsdóttir,
Ragna Valgerður Eggertsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Lokað
Vegna jarðarfarar DR. BRODDA JÓHANNESSON-
AR, fyrrverandi rektors, verða sk-rifstofur skólans,
bókasafn, gagnasmiðja og kennslumiðstöð lokuð
frá kl. 14.00 föstudaginn 16. september. Kennsla
fellur niður frá kl. 14.00-16.30.
Kennaraháskóli íslands.
I.O.O.F. 12=176916872=
(
I
(
(
(
(
Pýrmídinn -
andleg
miðstöð
námskeið
Laugardaginn 17. sept. kl.
10-16, dagsnámskeið sem June
Hughes annast. Námsefni:
1. Ilmolíumeðferð (Aroma-
therapy).
2. Viöbragðaflæði (Reflexo-
i°gy)-
3. Nudd.
Sunnudaginn 18. september kl.
10-16, dagsnámskeið sem June
og Geoff Hughes annast. Náms-
efni:
1. Áran
2. Áru-teikningar.
3. Hugleiðsla.
4. Slökunar-hugleiösla.
Kynnið ykkur kvölddagskrána,
hún er mjög spennandi.
Pýramídinn
Dugguvogi 2,
símar 882526 og 881415.
Félagsfólk!
Vinnudagur verður í nýjum aðal-
stöðvum félaganna við Holtaveg
á morgun. Unnið verður frá kl.
8 og fram eftir degi. Þvífleiri sem
mæta, því styttri tími. Allt vinnu-
framlag þegið með þökkum.
Tökum höndum saman um að
Ijúka þrifum og frágangi fyrir
vígsluna eftir rúma viku. Matur
og kaffi á staðnum.
Hallveigarstíg 1 •sími 614330
Dagsferðir um helgina:
Laugardaginn 17. sept.
Kl. 9.00: Skarðsheiði 8. áfangi
háfjallasyrpu. I þessum næstsíð-
asta áfanga háfjallasyrpunnar
er stefnt á Skarðsheiðina en hún
er hæst 1040 m. Ath. brottför
er kl. 9.00 frá BSl bensínsölu.
Verð kr. 1800/2000.
Sunnudaginn 18. sept.
Kl. 10.30: Vitagangan 6. áfangi
og fjölskyldugangan. Farið verð-
ur i Þorlákshafnarvita og Sel-
vogsvita. Fjörur f nágrenni þeirra
gengnar og lífríkið skoðað.
Haustlita- og grillveisluferð í
Bása 23.-25. sept.
Fjölbreyttar gönguferðir. Sam-
eiginleg grillveisla á laugardags-
kvöld og kvöldvaka.
Yfir Fimmvörðuháls 24.-25. sep.
Nú fer í hönd einn fallegasti
tíminn á hálendinu auk þess sem
göngufæri yfir hálsinn er sérlega
gott. Upplýsingar og miðasala á
skrifstofu Útivistar.
Utivist.
Frá Sálar-
> > rannsókna-
félagi
íslands
Skyggnilýsingafundur
Skoski miðillinn
Mary Armour
verður með
skyggnilýsinga-
fund í kvöld,
föstudaginn
16. september,
í Garðastræti 8,
kl. 20.00.
Mary Armour býður einnig uppá
einkafundi og eru bókanir í sím-
um 18130 og 618130.
Stjórnin.
FERÐAFÉLAG
® ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 SÍMI 682533
Helgarferðir
16.-18. spet. kl. 20.00:
Landmannalaugar - Hrafnt-
innusker - Álftavatn.
16.-18. sept. kl. 20.00: I sam-
vinnu við fslenska fjallahjóla-
klúbbinn - hjólað um Fjalla-
baksleið.
Upplýsingar og farmiðasala á
skrifstofu F.Í., Mörkinni 6.
Dagsferðir:
Sunnudagur 18. sept.
1) Kl. 10.30 Hrómundartindur -
Grændalur.
2) Kl. 13.00 Reykjadalur -
Grændalur.
Mánudaginn 19. sep. kl. 20.00:
Vættaganga í Hafnarfirði.
Brottför frá Umferðarmiðstöð-
inni, austanmegin og Mörkinni
6.
Ferðafélag íslands.
Hvítasunnukirkjan
Fíladelfía
Alnonn samkoma i kvöld kl.
20.30 í umsjón ungs fólks. Frá
kl. 20.00 er bænastund fram að
samkomunni.
Allir hjartanlega velkomnir.