Morgunblaðið - 22.12.1994, Page 2

Morgunblaðið - 22.12.1994, Page 2
2 FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Maður og kona lítt meidd eftir veltu þar sem fljótandi köfnunarefni flóði um bíl þeirra „Sckúnduspursmál að sleppa lifandi“ MAÐUR og kona sluppu naumlega og lítið sködduð þegar vindhviða feykti sendibíl hlöðnum köfnunar- efnisdunkum út af hálum veginum undir Hafnarfjalli í gærmorgun. Bíllinn fór 2l/i veltu niður a.m.k. 20 metra bratta hlíð og við veltuna fóru köfnunarefnisdunkamir á fleygiferð inni í bílnum og opnuð- ust þannig að h-196 gráðu kalt fljótandi köfnunarefni flæddi um bílinn. Fólkið, Ingimar Einarsson, starfsmaður nautastöðvarinnar á Hvanneyri, og Sigríður Gróa Jak- obsdóttir, starfsmaður á Hvann- eyri, gat strax losað sig úr bflbelt- um og komist út um brotna hliðar- rúðu áður en fljótandi köfnunar- efnið flóði um allt farþegarými bílsins. Bæði hlutu kalsár Litlu mátti þó muna, að sögn Ingimars, og bæði hlutu kalsár, 2. stigs bruna, við það að köfnun- arefni slettist á þau. „Það var sek- únduspursmál að við næðum að komast í tæka tíð lifandi út úr bílnum þar sem hann stóð á toppn- um og fljótandi köfnunarefnið lak út úr tönkunum," sagði hann í samtali við Morgunblaðið í gær. Ingimar Einarsson er starfs- maður nautastöðvarinnar á Hvanneyri og var á leið til Reykja- víkur þeirra erinda að ganga frá sendingum til sæðingamanna víða um landið. í sendibílnum var á annan tug 10-30 lítra dunka, sem í var sæði geymt í +196 gráðu köldi köfnunarefni. Mikið hvass- viðri var í hlákunni í gærmorgun og vegurinn glerháll undir Hafnar- fjalli. Við hæðina hjá Gijóteyri hreif vindhviða bílinn og þeytti út fyrir veg þar sem hann valt a.m.k. 20 metra niður gil og hafnaði á toppnum. Bæði Ingimar og farþegi hans voru í bílbeltum, meiddust ekki og gátu strax komist út úr gjörónýtu bílflakinu. „Nánast um leið og bíllinn stoppaði gat ég losað festinguna á beltinu og komst svo út um brotna hliðarrúðu en hún var að- eins lengur að losa beltið og brenndist kannski heldur meira en ég fyrir bragðið," sagði Ingimar. „Strax og bfllinn fór í veltuna ultu kútarnir um og það fór að hellast úr þeim en þeir eru með lausum töppum. Það myndaðist strax mikil gufa þegar efnið kom í samband við andrúmsloftið. Önn- ur höndin á mér fór í lækinn sem rann um bílinn,“ sagði Ingimar. í bráðri lífshættu „Það er ekki spurning að við vorum í bráðri lífshættu þarna inni í bílnum og það var sekúndu- spursmál fyrir okkur að ná að komast út í tæka tíð til að halda lífí,“ sagði hann. Ingimar sagði að veður hefði verið snælduvitlaust í veðravítinu undir Hafnarfjalli í gærmorgun. Þau Sigríður Gróa klöngruðust upp á veg og gengu síðan áleiðis að Borgarnesi. Ferðin þennan spöl tók um klukkustund og á leiðinni lá oft við að þau fykju um koll. Helst var að þau gætu staðið af sér veðrið á þeim köflum þar sem vegurinn var svo hátt byggður upp að skjól var að norðanverðu. A veginum sjálfum var ekki stætt vegna hálku og vindhviða. Ekki varð bfll á vegi Ingimars og Sigríð- ar fyrr en við vegamótin að Borg- arfjarðarbrúnni. Þau voru flutt í söluskálann við brúna og fengu þar skjól og kaffísopa meðan lög- regla var kvödd á staðinn. Síðan var Sigríður flutt á heilsu- gæslustöðina til aðhlynningar vegna kalsáranna sem hún hlaut á fæti inni í bílnum. Ingimar sagði að bæði hefðu líklega hlotið 2. stigs kalbruna sem vonast væri til að jafnaði sig á nokkrum dögum eða vikum. Sjálfur fór hann rakleiðis á slys- staðinn að nýju og var þar lung- ann úr deginum í gær við að bjarga því af farmi bílsins sem bjargað varð. Hann sagði að þorri köfnun- arefniskútanna hefði staðist velt- una og náðst óskemmdur úr bíl- flakinu. Léleg vegargerð Ingimar sagðist telja að óhent- ugar vegaraðstæður hefðu átt rík- an þátt í því að bfllinn valt. Á þessum hættulega kafla væri ekk- ert grindverk eða leiðari til að hindra útafakstur. Þá væri vegar- hallinn þama öfugur og því þyrfti mun minna en ella til að þeyta bílum út af veginum. Loks vantaði hentuga vegaröxl til að hægt væri að koma a.m.k. tveimur hjólum á fast undirlag þegar um slíka hálku væri að ræða. Ingimar kvaðst strax í gær hafa gert athugasemd- ir við þetta við Vegagerðina í Borgarnesi. Morgunblaðið/Þorkell Samningsveð til umfjöllunar í allsherjarnefnd Sátta leitað um veð- setningu kvóta FORMAÐUR allsherjamefndar Alþingis segist vona að samkomu- lag náist um breytingar á ákvæði í stjómarfmmvarpi um samnings- veð sem orðið hefur að deiluefni milli stjómarflokkanna. Fmmvarp um samningsveð var fyrst afgreitt í ríkisstjórn og lagt fram á þingi fyrir tveimur árum en varð þá ekki að lögum. Fmm- Hagnaðurá Pósti og síma AFKOMA Pósts og síma er 350 milljónum kr. betri á þessu ári en ráð var fyrir gert í fjárlögum og verður aukinn hagnaður notaður til að fjárfestinga. Veija á 300 milljónum af þessum fjármunum til sæsímastrengsins Canus milli Kanada og Bandaríkj- anna, sem er framhald af Cantat-3 Ijósleiðarastrengnum milli Evrópu og Kanada. varpið var aftur Iagt fram á þingi í haust og er nú til meðferðar í allsheijarnefnd. f því er ákvæði um að þegar skip sé sett að veði geti veðrétturinn einnig náð til veiðiheimilda skips. Nú hefur Sig- hvatur Björgvinsson viðskiptaráð- herra mótmælt þessu ákvæði og sagt það stríða gegn því ákvæði í lögum um stjóm fískveiða að físki- miðin séu sameign þjóðarinnar. Þorsteinn Pálsson sjávarútvegs- ráðherra hefur á móti sagt að ef þetta yrði bannað væri grundvell- inum kippt undan sjávarútvegi víða á landsbyggðinni. Leitað samkomulags Sólveig Pétursdóttir formaður allsheijamefndar sagði að þessum þætti fmmvarpsins hafí verið vísað til sjávarútvegsnefndar þingsins og þaðan hefði ekki borist svar. „Það er hugsarilegt að taka á þessu máli milli jóla og nýárs, halda fundi í báðum nefndunum og skoða hvort hægt sé að fínna samkomulag, jafnvel með einhverri breytingartil- lögu,“ sagði Sólveig. Hugmyndir hafa verið í nefnd- inni um að breyta orðalagi tillög- unnar þannig að hún tengist fyrstu grein laga um stjórn fiskveiða, sem kveður á um að fískimiðin séu sam- eign þjóðarinnar. Bent er á, að í 11. grein laganna um stjórn fisk- veiða er ákvæði um að við sölu á fiskiskipi fylgi aflahlutdeild þess nema samið sé um annað. Því þyki eðlilegt að sama meginregla gildi við veðsetningu. Sólveig sagði að með umræddri frumvarpsgrein væri verið að stað- festa þann hátt sem nú sé hafður á við veðsetningu skipa og því teldi hún ekki skynsamlegt að fella greinina út úr frumvarpinu. „Ég held að þetta mál byggist á mis- skilningi. Við erum í allsheijar- nefnd að ijalla um þetta mál sem réttarfarsmál, þar sem verið er að setja heildarlög um samningsveð og því verðum við að taka á þessu,“ sagði Sólveig. 57 stúdent- ar braut- skráðir fráMH MENNTA- og fjölbrautaskól- ar landsins útskrifa margir stúdenta um þessar mundir. Meðal þeirra er Menntaskól- inn við Hamrahlíð sem braut- skráði í gær 57 stúdenta, 32 konur og 25 karla. Rektor minntist í ræðu sinni Kristjáns Reynis Guðmunds- sonar, nemanda skólans, sem lést 24. nóvember sl. Nokkur tónlistaratriði voru flutt við athöfnina. Blokk- flautusveit nemenda flutti nokkur jólalög kór skólans söng eins og venja er, Halla Steinunn Stefánsdóttir ný- stúdent og dúx flutti Adagio úr 1. einleikssónötu fyrir fiðlu eftir J.S. Bach og kammer- sveit nemenda lék Pastorale úr Jólakonsertinum eftir Archangello Corelli. Magnús Ingólfsson kennari ávarpaði nýstúdenta og Egill Heiðar Anton Pálsson flutti samkomunni kveðju nýstúd- enta. Halldór Laxness Fágætt safn verka finnst FUNDIST hefur í Kaupmannahöfn safn af frumútgáfum verka Halldórs Laxness, segir Bragi Kristjónsson í Bókavörðunni. Alls er um að ræða 73 prentanir af verkum skáldsins. Bragi segir að safnið hafí fundist þegar elsta fornbókaverslun Norð- urlanda, Lynge og Sön í Kaup- mannahöfn, keypti bókasafn hins látna prófessors Chr. Westergaard- Nielsen, sem lést nýlega. Hann var þekktur málvísindamaður í norræn- um tungum, mikill vinur Halldórs, auk þess sem hann var mörgum ís- lendingum að góðu kunnur frá bar- áttudögum handritaheimtar. Margar fágætar frumútgáfur Bragi segir að safnið innihaldi m.a. sumar af allra fágætustu frum- útgáfum á verkum skáldsins, Kvæðakver, Barn náttúrunnar, allar útgáfur af Vefaranum mikla frá Kasmír og hinar umdeildu pólitísku bækur skáldsins frá 4. áratugnum. Að sögn Braga er auk þess að finna í safninu fáséðustu frumútgáfu Lax- ness sem ber titilinn Nokkrar sögur og er sérprent úr Morgunblaðinu frá árinu 1923. ♦ » *------- Fannst látinn í höfninni KAFAKAK fundu í gær lík í mannsins sem saknað hafði vi á Siglufirði frá því aðfaranótt síð- astliðins sunnu- dags. Maðurinn hét Theódór Sig- uijón Norðquist . til heimilis á Urð- f arvegi 18 á ísafirði. Theódór var matsveinn á Hafrafeili ÍS og fannst lik hans í höfninni um degisbil í gær eftir mikla Theódór var 61 árs gamall lætur hann eftir sig eiginkoni fjögur uppkomin börn. Theódói Norðquis

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.