Morgunblaðið - 22.12.1994, Síða 10
10 FIMMTUDAGUR 22. DESBMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
SJÚKRALIÐADEILAN
Úttekt BHMR-tíðinda á ævitekjum
Viðræður
Taxtalaun
staðgreiðsla skatta
endurgr. námslána
Nettólaun
núvirt með 1,7%
48.199.788
8.113.631
2.270.743
37.815.414
24.457.272
40.437.146
3.143.862
37.293.284
25.575.728
7.762.642
4.969.769
2.270.743
522.130
(1.118.456 )
19,2
158,1
100,0
1,4
-4,4
Fjármálaráðherra um sjúkraliðaverkfallið
Sáralítill munur milli
hjúkrunarfræðinga
og sjúkraliða
BHMR-tíðindi
inga á ævitekjum háskólamennt-
aðra hjúkrunarfræðinga annars
vegar og sjúkraliða hins vegar
vegna umræðunnar um kjör þessara
stétta.
Við útreikningana er tekið tillit
til endurgreiðslu námslána, skatt-
kerfís og þess að tekjumar berast
Hjúkrfr.
kr.
tíðinda segir: „Niðurstaðan er sú
að munurinn á ævitækjum þessara
hópa m.v. núverandi launakerfi er
sáralítill. Þessi samanburður gildir
sjálfsagt fyrir marga hópa háskóla-
manna gagnvart þeim sem ekki
hafa Iagt í slíka fjárfestingu í
menntun.
Sjúkraliði Mismunur
kr. kr. %
halda áfram
Morgunblaðið/Kristinn
VERKFALLSVERÐIR sjúkraliða skoða inn í bíl sem ætlaði með
hjúkrunarvörur úr birgðageymslu Rikisspítala í upphafi verkfalls.
SAMNINGANEFNDIR Sjúkraliða-
félagsins og ríkisins samþykktu á
sáttafundi í gær að halda samninga-
viðræðum áfram. Kristín Á. Guð-
mundsdóttir, formaður félagsins,
sagði að ríkið hefði opnað á lausnir
varðandi nokkur atriði nýs samnings
og hyggst félagið svara þeim í dag.
Hún sagði að ríkið hefði lagt fram
skjal þar sem það lýsti sig tilbúið
að ræða röðun í launaflokka og
menntunarmál sjúkraliða auk þess
sem ítrekuð var ósk um að senda
deiluna í kjaradóm. Ekki var boðin
nein prósentuhækkun, segir Kristín.
Sjúkraliðar lögðu í fyrradag til
að gert yrði hlé á samningaviðræð-
um þar sem þær hefðu engum
árangri skilað. Kristín sagði nú
ákveðið að halda áfram viðræðum
um ýmis hliðaratriði og láta reyna
á hvort samkomulag næðist um þau.
Heildarlaun 73.601.076 60.898.341 12.702.735 20,9
staðgreiðsla skatta 18.741.530 11.704.826 7.036.704 60,1
endurgr. námslána 2.158.915 100,0
Nettólaun 52.700.631 49.193.515 3.507.116 7,1
núvirt með 1,7% 33.961.921 33.697.799 264.122 0,8
Lausn gæti falist í
Þær forsendur sem eru gefnar
við útreikninginn eru eftirfarandi:
Sjúkraliðinn hefur störf 18 ára og
starfar til 65 ára aldurs. Miðað er
við að hann starfi á öldrunardeild.
Hjúkrunarfræðingurinn hefur störf
24 ára og starfar til 65 ára aldurs.
Laun hjúkrunarfræðings skv.
launaflokki 207, laun sjúkraliða
skv. launaflokki 113. Gert er ráð
fyrir núverandi tekjuskattshlutfalli
og persónuafslætti. Námslán
1.900.000 krónur með 1% vöxtum.
Gert er ráð fyrir endurgreiðslu skv.
núgildandi reglum LIN.
Atvinnuhúsnæði
KRINGLAN. Mjög vel staðsett 175 fm verslhúsn. á
neðri aðalhæð í þessari eftirsóttu verslunarmiðst. Húsn. er
mjög vel innr. Skipti mögul. á minna plássi innan Kringlunnar
eða á góðum verslunarstað í Rvík. Húsn. getur losnað fljótl.
VIÐARHÖFÐI. •Til sölu 4000 fm atvhúsnæði, sem
hægt er að skipta í margar smærri einingar. í húsn. er íþrótta-
salur með tilheyrandi lofthæð. 1400 fm lagerhúsn. sem hægt
er að stækka í 2200 fm. Góðar innkdyr, mikil iofthæð.
FURUGERÐI. Vel innr. 442 fm skrifsthúsn. á tveimur
hæðum. Ýmsir nýtingarmöguleikar.
NÝBÝLAVEGUR - DALBRAUTARMEGIN.
Til sölu eða leigu skrifstofuhúsn., 120 fm, á 1. hæð, 300 fm á
2. hæð og 300 fm á 3. hæð. Lyftuhús. Malbikað bílastæðap-
ort. Útsýni. Góð greiðsiukjör. Hagstætt verð.
AUÐBREKKA. 400 fm atvhúsn. á 2. hæð. Selst gegn
vægu verði.
DRANGAHRAUN - HF. 150 fm atvhúsn. á götu-
hæð. Góð aðkoma og innkeyrsla.
FISKISLOÐ. 500 fm atvhúsnæði/fiskverkunarhús. 5 m
lofthæð, milliloft í hluta. Langtlán.
HLIÐASMARI. Skrifstofuhúsn. af ýmsum stærðum og
gerðum í nýju húsunum við Hlíðasmára, m.a. 760 fm skrifsth.
á 3. hæð í lyfthúsi og 426 fm á götuhæð auk 426 fm skrifsth.
á 2. hæð. Selst í heilu lagi eða í hlutum. Til afh. strax u. innr.
FAXAFEN. TiJ sölu 1500 fm atvinnuhúsn. á götuhæð.
Hagstæð áhv. langtímalán.
HÖFÐABAKKI. Til sölu eða leigu 290 fm skrifsthúsn.,
þ.e. 120 fm á götuh. og 170 fm á 2. hæð. Húsn. er allt nýl.
og fullinnr. á glæsil. hátt. Allar lagnir, s.s. tölvu- og símalagnir,
fyrir hendi. Laust strax. Góð greiðslukj. Hagst. langtímalán.
SKIPHOLT. Glæsil. 320 fm skrifstofuhúsæði. á 3. hæð
í nýlegu húsi. Góðar innr. Afh. fljótl. Góð greiðslukjör.
SKEIFAN. Til sölu tvær 288 fm skrifstofuhæðir, 2. og 3.
hæð. Laust strax.
SUÐURLANDSBRAUT. Glæsil. innr. 425 fm skrifst-
hæð (6. hæð) í nýju húsi. Getur selst í einingum með langtímale-
igusamn.
Þetta er aðeins sýnishorn úr söluskrá okkar yfir atvinnuhús-
næði. Kaupendur! Nú fer í hönd rétti tíminn til að kaupa atvinnu-
húsnæði. Leitið nánari upplýsinga.
Seljendur ath.: Höfum fjölda kaupenda að ýmsum stærðum
og gerðum atvinnuhúsnæðis.
Fasteignamarkaðurinn hf.,
fm rl Óðinsgötu 4, símar 11540 og 21700, fax 620540.
y, j I Jón Guðmundsson, sölustjóri, lögg. fasteignasali,
f J Ólafur Stefánsson, viðskfræð, lögg. fasteignasali.
nýju tilboði ríkisins
FRIÐRIK Sophusson fjármálaráð-
herra sagði á Alþingi í gær að í
. nýju tilboði ríkisins til sjúkraliða,
sem lagt var fram í gær, felist að
sjúkraliðar fái sömu launahækkun
og aðrar heilbrigðisstéttir hafa
fengið á undanförnum árum.
„Ég skora á forustumenn Sjúkra-
liðafélags íslands að skoða tilboðið
vel, því ég er vissum að ef það er
skoðað af fyllstu alvöru þá er hægt
að ná saman í þessari viðkvæmu
deilu,“ sagði Friðrik á Alþingi.
Ólafur Ragnar Grímsson þing-
maður Alþýðubandalags tók verk-
fall sjúkraliða til umræðu utan dag-
skrár á Alþingi í gær og krafðist
svara frá ríkisstjórninni um það
hvað hún hygðist gera til að leysa
deiluna fyrir jól og áramót.
Hann sagði að hjúkrunarfræð-
ingar hefðu fengið allt að 15%
launahækkun fyrr á þessu ári og
starfsmenn ríkisstofnana eins pg
Þjóðminjasafns og Listasafns ís-
lands hefðu undanfarið fengið allt
að 9% launahækkun gegnum nám-
28. febr. 1993
• Kjarasamningur Sjúkraliða-
félagsins rennur út.
13. okt. 1994
• Samþykkt á kjaramálafundi
Sjúkraliðafélagsins að boða til
allsherjaratkvæðagreiðslu um
boðun verkfalls þar sem samn-
ingaviðræður hafi engum
árangri skilað. Tillagan er sam-
þykkt með 346 atkvæðum gegn
30.
24. okt.
• Tillaga um boðun verkfalls 10.
nóvember samþykkt í allsherjar-
atkvæðagreiðslu með 738 at-
kvæðum gegn 129.
10. nóv.
• Verkfall hefst eftir ajl sjúkra-
liðar hafa hafnað tillboði samn-
inganefndar ríkisins um 3%
iaunahækkun.
11. nóv.
• Hópur sjúkraliða mætir ekki
til starfa á nokkrum deildum á
Borgarspítala og Ríkisspítölum
vegna ágreinings um fram-
kvæmd verkfallsins.
15. nóv.
• Félagsdómur dæmir sjúkra-
liðum í vil í máli sem Landa-
kotsspítali höfðaði gegn Sjúkral-
iðafélaginu vegna ágreinings um
undanþágulista.
skeið. „Er ekki tími til kominn að
ríkisstjórnin öll gefi samninganefnd
ríkisins fyrirmæli um að koma fram
með tilboð um kjarasamninga í
samræmi við þá samninga sem
gerðir hafa verið fyrr á þessu ári?“
sagði Ólafur Ragnar.
Margir þingmenn stjórnarand-
stöðunnar tóku í sama streng og
gagnrýndu stjórnvöld og samninga-
nefnd ríkisins harðlega fyrir dug-
leysi og viljaleysi í samningum við
sjúkraliða, en fjármálaráðherra vís-
aði þessu á bug og sagði að samn-
inganefnd ríkisins hefði lagt sig
fram um að reyna að leysa deilina.
Hann sagði einnig að samningar
við hjúkrunarfræðinga hefðu aukið
útgjöld ríkisins um 6% en ekki 15%.
Áhersla á samninga
Sighvatur Björgvinsson heil-
brigðisráðherra sagði við Morgun-
blaðið að staðan í sjúkraliðadeilunni
væri mjög alvarleg því þær tilraun-
ir sem hefðu verið gerðar til að ná
deiluaðilum saman fyrir jól virtust
ætla að mistakast. Hann sagði að
Dagsetningar í deilunni
22. nóv.
• Landlæknir segir að álag á
starfsfólk heilbrigðisstofnana
hafi aukist mjög mikið og dæmi
séu um að fólk hafi veikst vegna
þessa.
• Hjúkrunarforstjóri Hrafnistu
í Hafnarfirði segir að mönnun á
Hrafnistu sé undir öryggismörk-
um.
26. nóv.
• Sjúkraliðar leggja fram kröfu
um 5.500 kr. hækkun allra launa-
flokka. Tilboðið þýðir 20% hækk-
un þegar allt er talið.
28. nóv.
• Samninganefnd ríkisins býður
sjúkraliðum 4% launahækkun.
Sjúkraliðar hafna því.
2. des.
• Fjármálaráðherra leggur
fram svar við fyrirspurn á Al-
þingi sem sýnir að laun hjúkrun-
arfræðinga hafa hækkað um 15%
frá maí 1993 á meðan laun sjúkr-
aliða hafa hækkað um 1%.
• Landlæknir ritar sjúkraliðum
bréf og óskar eftir að þeir veiti
rýmri undanþágur frá verkfall-
inu.
6. des.
• Forysta Sjúkraliðafélagsins
gengur á fund fjármálaráðherra
og heilbrigðisráðherra ásamt
landlækni.
stjómvöld gætu ósköp lítið annað
gert en að halda áfram viðræðum
við sjúkraliða.
„Það sem er alvarlegast er að
eftir áramót er þetta orðin hluti af
almennri vinnudeilu í þjóðfélaginu
og þá verður enn erfíðara en það
er núna að leysa verkfall sjúkraliða
sérstaklega,“ sagði Sighvatur enn-
fremur. Hann sagðist leggja áherslu
á að samningar næðust. „Það getur
verið að síðasta vonin til þess sé
að ríkissáttasemjari, sem er sá eini
sem getur gripið inn í atburðarás-
ina, geti ef til vill lagt fram ein-
hveija tillögu."
Aðspurður hvort lagasetning á
verkfallið kæmi til greina sagðist
hann telja svo ekki vera. Hins veg-
ar breyttust aðstæður mikið um
áramót þegar deila sjúkraliða við
ríkisvaldið yrði hluti af almennum
kjarasamningum á vinnumarkaði
og sú staða gæti komið upp að lausn
á deilu sjúkraliða yrði að skoðast
sem hluti af heildarlausn á vinnu-
markaði og það gæti verið langt í
að slík lausn fyndist.
8. des.
• Samninganefnd ríkisins ræðir
deiluna á formlegum fundi með
fjármálaráðherra.
• Borgarsljórinn í Reykjavík
ritar fjármálaráðherra bréf og
óskar eftir að endir verði bund-
inn á deiluna hið fyrsta.
9. des.
• Samninganefnd ríkisins legg-
ur fram nýtt tilboð um samning
um 3-4% launahækkun til ára-
móta og gerðardóm sem á að
bera saman laun sjúkraliða og
annarra heilbrigðisstétta.
• Sjúkraliðar tapa máli í Félags-
dómi sem fjallar um undanþágu-
lista á fimm deildum Ríkisspítal-
anna.
12. des.
• Deiluaðilar samþykkja að ein-
beita sér að því að ná samkomu-
lagi um aðra þæfti samnings en
þá sem lúta að launaliðnum.
19. des.
• Samninganefnd ríkisins ítrek-
ar fyrra tilboð um gerðardóm.
20. des.
• Sjúkraliðafélagið hafnar til-
boðinu formlega og leggur til að
samningaviðræðum verði slitið.
Samningaviðræðum er samt
haldið áfram.