Morgunblaðið - 22.12.1994, Side 12
12 FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
Alþýðubandalagið vill bjóða út
ný lán og eldri skuldir
Styðja auknar lán-
tökur hækki fjár-
magnskostnaður ekki
TILLÖGU fulltrúa Alþýðubandalags-
ins í bæjarstjórn Akureyrar um að
könnuð verði hagkvæmni þess að
bjóða út ný lán og eldri skuldir Akur-
eyrarbæjar, sem eru á óhagstæðum
kjörum, í enn frekari mæli en nú er
gert með það fyrir augum að ná fram
lækkun á ijármagnskostnaði bæjar-
ins, sem lögð var fram við umræðu
um fjárhagsáætlun fyrir næsta ár,
var vísað til frekari skoðunar í bæjar-
ráði.
í greinargerð með tillögunni kem-
ur fram að áætlaður fjármagnskostn-
aður bæjarsjóðs á árinu 1995 sé 70
milljónir króna og framkvæmdasjóðs
um 55 milljónir króna eða samtals
125 milljónir. Auk þess stefni hafnar-
sjóður í umtalsverðar lántökur vegna
flotkvíarkaupa.
„Leiði könnun sú, sem hér er gerð
tillaga um, í ljós að mögulegt sé að
lækka fjármagnskostnað bæjarins
sem hlutfall af heildarútgjöldum er
Alþýðubandalagið reiðubúið, með til-
liti til þeirrar takmörkuðu fram-
kvæmdagetu sem fjárhagsáætlun
ársins 1995 ber með sér, að styðja
auknar lántökur enda hækki fjár-
magnskostnaðurinn ekki frá því sem
áætlunin gerir ráð fyrir,“ segir í
greinargerð sem Sigríður Stefáns-
dóttir flutti á fundi bæjarstjórnar.
Breytingartillögur við frumvarp
að fjárhagsáætlun næsta árs sem
Sigríður lagði fram voru allar felldar
við afgreiðslu áætlunarinnar á bæj-
arstjórnarfundi á þriðjudag. Þær
gerðu ráð fyrir að Rafveitu Akur-
eyrar yrði gert að greiða 2% afgjald,
eða 16,5 milljónir króna af eigin fé
veitunnar, til bæjarsjóðs. Þá lagði
hún til 5,5 milljóna króna lækkun
útgjalda en þetta fé átti að mæta
22 milljóna króna útgjaldahækkun
sem hún lagði til. Þar var m.a. um
að ræða framlag til jafnréttis- og
fræðslufulltrúa, til Menntasmiðju
kvenna, til ritunar sögu Akureyrar
og til framkvæmda á.sviði menning-
ar- fræðslu- og félagsmála.
Oft séð það svartara
Sigríður sagðist styðja heilshugar
ákvörðun meirihlutans um að setja
skólamá! í forgang. Hún sagði of
marga lausa enda í áætluninni en
mikið væri talað um þrönga stöðu
bæjarsjóðs. Sú staða sem Akureyrar-
bær stæði frammi fyrir væri þó
barnaleikur þegar mið væri tekið af
bæjarfélögum af svipaðri stærðargr-
áðu. „Við stöndum ekki frammi fyrir
eins slæmri stöðu og margir telja,
víða standa tekjur vart undir rekstri
sveitarfélaga og ég tel að við höfum
oft séð það svartara en núna, en
vissulega er minna svigrúm til fram-
kvæmda en stundum áður,“ sagði
Sigríður.
Bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins
segir fjárhagsáætlun metnaðarlausa
Ekki minna svig-
rúm nú en áður
SIGURÐUR J. Sigurðsson, bæjarfull-
trúi Sjálfstæðisflokksins, sagði við
síðari umræðu um fjárhagsáætlun
bæjarsjóðs í bæjarstjóm Akureyrar
að núverandi meirihluti hefði ekki
minna fé til ráðstöfunar en fráfarandi
meirihluti hafði nema að einu leyti,
hvað gatnagerðargjöldin varðar, en
það kæmi til af döpru ástandi í bygg-
ingariðnaði. Fyrrverandi meirihluti
Sjálfstæðisflokksins og Alþýðubanda-
lagsins hefði þurft að glíma við ýmis
erfíð peningamál sem ekki væru á
borðinu nú. „Það er ekki minna svig-
rúm nú en áður eins og þráfaldlega
er haldið fram, vandamálið sem meiri-
hlutinn á við að glíma eru þau loforð
sem hann gaf bæjarbúum fyrir kosn-
ingar og þarf nú að draga í land
með,“ sagði Sigurður.
Rafveita greiði arð
Sigurður lagði til að Rafveitu
Akureyrar yrði gert að greiða árlegt
framlag, 20 milljónir króna, sem arð
af starfsemi sinni til Framkvæmda-
sjóðs en sú tillaga var felld. Rafveit-
an væri vel stætt fyrirtæki sem þyldi
vel að leggja fram fé til uppbygging-
ar atvinnulífs í bænum. Bærinn hefði
á undanförum árum lagt mikið fé í
að endurreisa fyrirtæki sem væru
nú stórir viðskiptavinir veitunnar og
því væri ekki óeðliegt að hún legði
sitt af mörkum nú. Bæjarstjóri sagði
meirihlutann ekki geta fallist á slíkar
tillögur og taldi það svigrúm sem
væri eða myndi skapast hjá veitunni
ætti að koma notendum til góða í
lækkuðu orkuverði.
Sigurður gagnrýndi meirihlutann
fyrir metnaðarlausa fjárhagsáætlun,
skattar væru hækkaðir og dregið úr
framkvæmdum, engin tilraun gerð
til að greiða skuldir, eins og fyrrver-
andi meirihluta hefði tekist að gera
og kæmi öllum til góða. „Það er
keyrt í afturábakgír," sagði Sigurður
og benti á að stórum verkefnum
væri ekki sinnt, eins og byggingu
við Amtsbókasafnið, verkefni við
sundlaug og félagslegum íbúðar-
byggingum.
AKUREYRI
Síðasta
djasskvöld
ársins í
Deiglunni
SÍÐASTA djasskvöldið á ár-
inu verður í Deiglunni í kvöld,
fimmtudagskvöldið 22.
desember. Djassinn hefur
verið fastur liður í Gilinu frá
upphafi Listasumars ’94 en
hann hefur verið haldinn í
samstarfi við Café Karólínu.
Nýjar útsetningar á
íslenskum jólalögum
Að þessu sinni verður að
mestu flutt frumsamið efni,
nýjar útsetningar á íslenskum
jólalögum og lög þekktra höf-
unda ens og Benny Golson,
Vayne Shorter og fleiri.
Flytjendur eru þeir Jón
Rafnsson, kontrabassaleik-
ari, Kari Olgeirsson, hljóm-
borð og Karl Petersen á
trommur. Þeir eru allir kenn-
arar við Tónlistarskólann á
Akureyri auk þess að hafa
tekið virkan þátt í blómlegu
djasslífi bæjarins á undan-
förnum árum.
Tónlistarmennirnir hefja
leikinn á sama tíma og
verslanir loka, það er klukkan
22.00.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Kaupmenn
kvarta ekki
ANNIR eru nú í hámarki vegna
undirbúnings jólahátíðarinnar
og sagði Ragnar Sverrisson,
formaður Kaupmannasamtaka
Akureyrar, að flestum verslun-
armönnum bæri saman um að
jólaverslunin væri ívíð meiri en
var í fyrra. Langstærstu versl-
unardagarnir væru þó eftir, en
verslanir á Akureyri verða opn-
ar til kl. 22 í kvöld og á Þorláks-
messu er opið til 23. „Og síðan
er ætíð geysimikið verslað á
aðfangadagsmorgun,“ sagði
Ragnar. Hann sagði að þegar
tíð væri góð eins og verið hefði
undanfarna daga kæmi mikið
af fólki til að versla í bænum,
sumir langt að eins og frá
Blönduósi og jafnvel allt austan
af Egilsstöðum.
-----♦ ♦------
Síðustu sýningar á
Landi míns föður
Dalvík.. Morgunblaðið
LEIKFÉLAG Dalvíkur hefur að
undanförnu sýnt leikritið Land míns
föður við ágætar viðtökur og hefur
aðkomufólk verið sérstaklega dug-
legt að sækja sýninguna. Á milli
jóla og nýjárs verða þijár sýningar
á verkinu, hin fyrsta 27. desember
og síðan 29. og 30. desember og
er áætlað sú sýning verði sú síðasta.
Bæjarstjórn
Akureyrar
Styrkur til
kvenna-
handbolta
umdeildur
„EF ÞETTA er angi af jafn-
réttisbaráttu í landinu þá er
ég hættur að skilja," sagði
Heimir Ingimarsson, bæjarfull-
trúi Alþýðubandalags, á fundi
bæjarstjórnar Akureyrar í til-
efni af styrkjum til jafnréttis-
verkefna sem jafnréttisnefnd
bæjarins veitir. Styrkurinn sem
varð Heimi tilefni til vanga-
veltna er 100 þúsund króna
styrkur til uppbyggingar
kvennahandbolta á Akureyri.
„Má það vera að íþróttafor-
ystan í þessu sveitarfélagi sé
með þeim ósköpum gerð að
þurfa að fara þessa leið svo
konur geti stundað áhugagrein
sína í íþróttum,“ sagði Heimir
og vildi vita hvar ósköpin gætu
endað og hversu marga 100
þúsund kalla væri hægt að
kría út úr jafnréttisnefnd til
íþrótta.
Gísli Bragi Hjartarson, Al-
þýðuflokki, sagðist fagna því
að jafnréttisnefndin sæi sér
fært að styrkja þetta verkefni.
Ljóst væri að á vissum stigum
ætti íþróttastarfsemi kvenna
undir högg að sækja.
Engir
bruggarar?
„ÞAÐ er alltaf verið að taka
bruggara fyrir sunnan og um
daginn var einn tekinn á Rauf-
arhöfn. Það hefur vakið athygli
að hér á Akureyri er aldrei tek-
inn bruggari. Hér virðist vera
látið óátalið að menn bruggi
allt að 1.600 lítra á mánuði til
eigin þarfa,“ sagði Oddur Hall-
dórsson, bæjarfulltrúi, á fundi
bæjarstjómar í tilefni af bókun
félagsmálaráðs um átak í úti-
vistarmálum barna og ung-
menna. Forseti bæjarstjómar
bað bæjarfulltrúann vinsamleg-
ast að koma þessum upplýsing-
um til lögreglunnar.
Reglur rýmkaðar
Félagsmálaráð leggur til að
útivistarreglur verði rýmkaðar
þannig að ungmenni á aldrin-
um 13 til 16 ára fái að vera
úti tveimur tímum lengur tvö
kvöld í viku, um helgar eða til
kl. 24. íþrótta- og tómstunda-
ráð hafði lagt til að reglurnar
yrðu rýmkaðar meira þannig
að útivistartíminn yrði til kl. 1
eftir miðnætti um helgar. Odd-
ur sem er fulltrúi í ráðinu sagði
að ráðið hefði jafnfiamt viljað
taka upp harkalegri aðgerðir
til að stemma stigu við ungl-
ingadrykkju.