Morgunblaðið - 22.12.1994, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 1994 13
LANDIÐ
Stykkishólmskirkja
Nýjar kirkju-
klukkur vígðar
Stykkishólmi - Við messu á aðfanga-
dag er stefnt að því að vígja nýjar
kirkjuklukkur í Stykkishólmskirkju.
Um er að ræða fjórar klukkur sem
smíðaðar eru hjá fyrirtækinu Royal
Eijsbouts.
Stærsta klukkan vegur um 700 kg
en samtals vega klukkurnar um 1.600
kg. Þrjár klukkurnar eru með vélbún-
aði og þar að auki með utaná liggj-
andi hamar. Minnsta klukkan er föst
og er í henni aðeins hamar. Hringing-
artækin eru frönsk frá Bodet og eru
mjög fullkomin. Þau eru tölvustýrð
og er stýringin sú fullkomnasta sem
hefur verið sett í kirkju á Islandi.
Með þessum búnaði er hægt að spila
íjögurra tóna stef og stilla á sjálfvirka
hringingu hvenær sem óskað er.
Búið er að mata klukkurnar að
spila rétt fyrir kl. 12 svokallað
Westminster-stef og slá síðan 12 högg
og þær leika aftur stefið kl. 18 og
slá þá 6 högg.
Vélaverkstæði Jóhanns Ólafssonar
í Hafnarfirði smíðaði burðarvirkið til
að halda uppi klukkunum sem er
mikil smíð.
Morgunblaðið/Árni Helgason
VERIÐ að setja nýju klukkurnar í Stykkishólmskirkju á sinn stað.
Morgunblaðið/Anna Ingólfsdóttir
YNGSTU nemendur Tónskóla Egilsstaðaskóla á tónleikum.
Jólatónleikar
Tónskóla Egilsstaða
Egilsstöðum - Nemendur Tón-
skóla Egilsstaða léku fyrir gesti
á árlegum jólatónleikum skólans
í Egilsstaðakirkju.
Blásarasveit, strengjasveit,
einleikarar á píanó, selló og
flautur komu fram. Poppsveit
skólans spilaði tvö lög. Yngstu
nemendurnir fluttu frumskóg-
arsinfóníu í fjórum þáttum við
mikla hrifningu foreldra og
gesta.
Tónlistarlíf á Egilsstöðum er
blómlegt um þessar mundir og
nemendum í Tónskólanum hefur
fjölgað um 30 nemendur í vetur.
Heilsuleysi á Hólmatindi
Skipstj ómarmenn
veiktust skyndilega
SKIPSTJÓRI og 1. stýrimaður skut-
togarans Hólmatinds frá Eskifirði
veiktust skyndilega um helgina þar
sem togarinn var á veiðum og þurfti
því að sigla í land. Skipið kom til
hafnar aðfaranótt þriðjudags, en
átti upphaflega ekki að koma fyrr
en rúmlega degi síðar. .
Emil Thorarensen útgerðarstjóri
sagði að síðdegis á sunnudag hefði
1. stýrimaður orðið tilfinningalaus
eða lamast í öðrum helmingi andlits-
ins og verið fluttur í land að ráði
læknis.
Á mánudagsmorgun hafi skip-
stjórinn síðan verið farinn að kenna
sér meins. Lýstu einkenni hans sér
sem jafnvægisleysi, einnig sá hann
tvöfalt og segir Er.iil að augun hafi
ekki hreyfst sem skyldi. Emil segir
að þá hafi verið ákveðið að sigla í
land, enda ekki hægt að hafa það
úti án vanra skipstjórnarmanna.
Ekki einu veikindin
Þetta eru ekki einu skipstjórnar-
menn skipsins sem hafi veikst, því
nýlega hafi maður sem leysir af 1.
og 2. stýrimann einnig veikst og
verið frá vinnu síðan. Emil segir að
það hafi vakið undrun að einungis
þeir sem vinni í brúnni hafi veikst.
Báðir mennirnir eru nú í Reykja-
vík til frekari rannsóknar.
Maripé skór ^
og töskur úrvali
J/ólagjöfin hennar
Opið frá kl. 9-22
SKÓVERSLUN KÓPAV0GS Hamraborg3, sími41754.
Árbókin ÁRI01993
er komin út
ÁrbókinÁRlÐ 1993 er komin út.
Merkustu atburöir alþjóðamála raktir í
máli og myndum. Sórkaflar um
læknisfræði, tækni, umhverfismál,
kvikmyndir, myndiist, tísku og íþróttir.
ítarlegur íslandskafli.
Ómissandi fróðleiksnáma fyrir alla
fjölskylduna.
Verð aðeins 5.995,-
1 5% afsláttur til
áskrifenda
ATHUGIÐ,
NÝR ÚTGEFANDI
Árbókin - bókaútgáfa
jörundarholti 139 - 300 Akranesi
sími 93-14660 - fax 93-14666
Skötuhlaðborð
Þorláksmessu, 23. desember - hádegisverður
Kæst tindabikkja, kæst skata, söltuð skata, skötustappa, steikt
fersk tindabikkja, saltfiskur, plokkfiskur, rúgbrauð, rófur,
kartöflur, hamsatólg, vestfirðingur, smjör. Eftirréttahlaðborð.
P E R L A N
Veitingahús Öskjuhlíð,
sími 620200, fax 620207