Morgunblaðið - 22.12.1994, Síða 26

Morgunblaðið - 22.12.1994, Síða 26
26 FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR „Sagan gleymda“ LIST OG HÖNNUN Aðalstræti 6 6 LEIÐIN TIL LÝÐVELDIS Sýning Þjóðminja- og Þjóðskjala- safns íslands. Opið frá 11-17 laugar- daga, sunnudaga, þriðjudaga og fimmtudaga til jóla. ÞEGAR ég snemmsumars skrif- aði smápistil um hina athyglis- verðu sýningu „Leiðin til lýðveldis“ sem Þjóðminja- og Þjóðskjalasafn- ið standa að í tilefni 50 ára af- mæli þess, átti ég frekar von á að hún vekti mikla athygli og umræður. Studdist ég þá við reynslu mína af svipuðum fram- kvæmdum erlendis, en slík er ör- tröð fólks að sá má teljast góður sem nær að skoða þær í þokkalegu næði. Hins vegar er líkast sem hér hafi tekist að gera fortíðina að úreltu og ómerku hugtaki og mik- ilvægast sé að rækta hið fáfengi- lega á ytri byrði samtímaflórunn- ar. Rithöfundurinn sem skrifaði pistil undir fyrirsögninni „Þjóð í upphlut“ virðist þannig ekki aðeins hafa haft á réttu að standa, held- ur verður vísunin beinskeyttari eftir því sem líður á afmælisárið. Þannig er sem þessi þjóð vilji ekki þekkja sögu sína og menn- ingu, vilji ekki vita af meginstoð- um lýðveldisins og vilji helst varpa íslenzkum sérkennum fyrir róða með hraði. Frekar gleypir hún við erlendum (ó)siðum og þá helst þá sem skara andleysu neysluþjóðfé- lagsins, þar sem lífsfyllingin er mammon og staðlaður draumur í glysumbúðum. En þetta er sem betur fer ekki alveg rétt, en tímarnir eru erfiðir hjá þjóð sem virðist hvorki hafa öðlast tilfinningu fyrir deginum eftir daginn á morgun, né vill viðurkenna að til hafi verið dagur á undan gærdeginum. Þó er það álit fróðra spekinga á nýrri tímum, að hér sé nokkuð jafnvægi nauð- synlegt og að sá sé jarðtengdastur samtímanum og jafnframt heil- brigðastur, sem líti jafnt til nútíð- ar fortíðar og framtíðar. það telj- ast þannig engin ellimörk að hafa áhuga á fortíðinni, einungis að lifa alfarið í liðnum tíma, sem er að sjálfsögðu allt annar handleggur. Það fyllti margan forundran að sjá allan þann fjölda, sem virtist helst valfarta á Þingvelli til að nærast á ruslfæði og ropvatni í tilefni afmælisins. Ennfremur líta það prúðbúna lið augum, sem safnar skuldum og er í þann veg- inn að sökkva þjóðarskútunni. Sömuleiðis undrast maður að lesa í fréttum að t.d. 30 þúsund manns hafí komið á bílasýningu sem opn- in var um eina helgi, og að 50-60 þúsund manns borgi inn á heimilis- sýningar sem standa í eina viku, þó þar sjáist trauðla annað en hver og einn getur leitað uppi á Laugaveginum hafi hann augun opin. Þó bíla- og vörusýningar njóti einnig hylli í útlandinu og þjóðhá- tíðir gleymist ekki, telst vart um aðra eins múgsefjun í skrautum- búðum að ræða og hér á landi. Hins vegar vekja sýningar sem skara þjóðarvitundina eins og t.d. „í Deiglunni“ og sú sem hér um ræðir ekki síður athygli og virð- umst við enn eiga nokkuð í land að jarðtengja söguna og vekja upp forvitni hjá ungum sem öldnum. annig var báðum þessum sýning- um gerð undarlega lítil skil í fjöl- miðlum og þær svo til dæmdar úr leik. Útlendir fjölmenntu þó á listasafnið, en færri komu í leigu- húsnæðið í Aðalstræti 6., þannig að slá má föstu að sú mikilvæga sýning hafi fullkomlega mætt af- gangi. Má þó telja að leiðin til fullveldis, sem fæddi af sér lýð- veldið, sé dýrmætasta eign hvers fijálsborins íslendings. Þá er menntakerfinu og almennri upp- lýsingamiðlun þannig háttað að fölvitringar framhaldsskóla vita vart meira en mannapar um heimslistina, sé dæmi tekið af spurningaþáttum í vörpunum. Eitthvað hefur farið úrleiðis og þá öðru fremur, að við höfum ekki af nægilegum metnaði fylgt straumi tímans. Sú þróun sem hefur átt sér stað í hámenningar- ríkjum um virðingu fyrir andlegum verðmætum hefur þannig síður náð hingað. Á meðan því efnislega er lyft á stall, öllu sem eyðist og glatast, rýrnar að sama skapi virð- ingin fyrir varanlegum verðmæt- um bæði handföstum sem andleg- um. Enginn er ég sagnfræðingur og því ekki mitt hlutverk að skrifa um þá hlið framkvæmdarinnar sem er um leið veigamesti þáttur sýningarinnar, en hún skarar um sumt svið lista og hönnunar, en helst óar mér tómlætið í kringum hana. Samt er verið að segja frá því er upp, upp, reis íslands þjóð. Sýningin er hafsjór af fróðleik og við skoðun hennar getur fólk lesið sögu mikilvægasta tímabils full- veldisbaráttunnar milliliðalaust. Miðað við allar aðstæður hefur hönnun hennar tekist vel, en meg- inveigurinn telst að þar er svo margt sem forvitni vekur, lýsir upp sálarkirnuna og hreyfir við hjarta- vessunum. Einkum hinar mörgu ágætu ljösmyndir, en sumar þeirra eru óborganlegar heimildir um atvinnuhætti og mannlíf á tímabil- inu. - Vildi með þessum línum öðru fremur vekja athygli á sýn- ingunni og minna á að senn falla dyr að stöfum. Bragi Ásgeirsson Guðirnir voru geimfarar KVIKMYNPIR Regnboginn STJÖRNUHLIÐIÐ „STARGATE" ★ ★ Vi Leikstjóri: Roland Emmerich. Hand- rit: Emmerich og Dean Devlin. Aðal- hlutverk: Kurt Russell, James Spad- er, Jaye Davidson. Carolco Pictures. 1994. ÞÆR ERU orðnar allt of sjald- séðar útgeimsmyndirnar frá Holly- wood. Jólamynd Regnbogans, Stjörnuhliðið eða „Stargate", bætir sáran skort á slíkum myndum og er því kannski bitastæðari en ella. Hún er ekkert stórvirki á sínu sviði en haganlega gerð og byggð á þeim forvitnilegu kenningum að guðirnir hafi verið geimfarar þótt ekki hafi þeir beint verið merkilegir heldur svona illþýði sem má finna óvíða í dýrum Hollywoodmyndum. Sagan er forvitnileg framan af og ágætlega útfærð þótt leikstjór- inn, Roland Emmerich, komist ekki með tærnar þar sem t.d. James Cameron og Steven Spielberg hafa hælana og maður hálfpartinn sakn- ar þeirra trausta handbragðs. Und- arlegur hringlaga gripur finnst í eyðimörkinni við pýramídana í ATRIÐI úr Stjörnuhliðinu. Egyptalandi og bandaríski herinn fær fornleifafræðing, ágætlega pró- fessorslegan James Spader, til að ráða í rúnir hans. Fræðingurinn kemst að því að gripurinn er hlið inn í annað stjörnukerfi og heldur í gegnum það ásamt litlum hópi Mikil átök um stofnun félagsins Bók um sögu verkalýðshreyfingar A-Skaftfellinga komin út GISLI Sverrir Arnason bókasafns- fræðingur hefur skráð sögu At- vinnufélags Hafnarverkalýðs á Hornafirði. Félagið var starfandi á árunum 1929-42, en þá var það leyst upp og Verkalýðsfélagið Jök- ull stofnað. „Stofnun félagsins var sérstök og urðu átök strax mikil um nafn þess. Það var nýtt fyrir verkamenn á Hornafirði að tala um verkalýðsfélag og hlaut það að lok- um nafnið Atvinnufélag hafnar- verkalýðs á Hornafirði," sagði Gísli í samtali við Morgunblaðið. Aðalatvinnurekandinn á staðnum var kaupfélagið og fáeinum árum eftir stofnun verkalýðsfélagsins gerðist kaupfélagsstjórinn félagi. „Verkamennirnir treystu sér ekki til að koma í veg fyrir að hann fengi inngöngu, því þeir áttu allt sitt undir kaupfélaginu. Hann var áber- andi í félagsstarfinu og tók þátt í átökum um veru félagsins í ASÍ, sem endaði með því að félagið sagði sig úr Alþýðusambandinu 1939.“ Upp úr því fór að flosna um fé- lagsskapinn og menn voru óánægð- ir með þátttöku kaupfélagsstjórans. Fór svo að félaginu var slitið á sögQ- legan hátt 1942. Sama kvöld var óháð félag, Jökull, stofnað. Fundagerðarbókin kom í leitirnar eftir áratugi Það var að undirlagi forsvars- manna félagsins og þá einkum Björns Grétars Sveinssonar að bók- in var skrifuð. Gísli segir hafa gengið ótrúlega vel að safna gögn- um og kveikjan að skrifunum hafi að hluta til verið að fundargerðar- bók gamla félagsins fannst eftir marga áratugi, en hún hafði verið talin glötuð. „Varðandi heimildirn- ar var ég svo heppinn að ég tók viðtöl við gamalt fólk þegar ég hófst handa árið 1987. Margt af þessu fólki er látið núna, þannig að þar náði ég í mikinn fjársjóð. Einnig náði ég í heimildir á söfnum og í einkaeigu." Fjöldi ljósmynda prýða bókina og eru fjölmargar þeirra úr eigu einstaklinga. Aftast í bókinni eru æviskrár félagsmanna og hefur tek- ist að útvega myndir af nær því öllum. Nýjar bækur Æviminningar Lauru Goodman Salverson ÚT ERU komnar Játningar land- nemadóttur, eftir kanadísku skáld- konuna og Vestur-íslendinginn Lauru Goodman Salverson í þýð- ingu Margrétar Björgvinsdóttur. Á frummálinu heitir' bókin Confess- ions of an Immigrant’s Daughter. Hún var fyrst gefin út í Lundúnum árið 1939. Laura Goodman Salverson fædd- ist árið 1890 í Winnipeg. Foreldrar hennar voru Lárus Guðmundsson frá Ferjukoti og Ingibjörg Guð- mundsdóttir frá Kollsá í Stranda- sýslu. Þau fluttust vestur um haf árið 1887 og settust fyrst að í Winnipeg þar sem þau bjuggu við kröpp kjör. í kynningu útgefanda segir: „Játningar landnemadóttur eru æviminningar skáldkonunnar og hlaut hún á sínum tíma æðstu bók- menntaverðlaun Kananda fyrir frá- sögn sína. í bókinni er dregin upp sannverðug mynd af kjörum og aðbúnaði innflytjenda um síðustu aldamót og sagt frá örlögum íslend- inga í Vesturheimi sem nutu ekki þeirrar velgengni sem oftast er haldið á lofti. Þetta er þroskasaga konu sem skrifar af einlægni og kímni um eigið líf og rithöfundar- feril." Laura Goodman Salverson var fyrsti íslendingurinn í Kanada sem samdi meiriháttar bókmenntaverk á ensku. Hún var sæmd margvísleg- um verðlaunum á rithöfundarferli sínum. Að undanskilinni einni smá- sögu er þetta fyrsta verk hennar sem kemur út í íslenskri þýðingu. Útgefandi er Bókaútgáfan Orms- tunga. Bókin er 460 síður. Hönnun kápu og umbrot annast auglýsinga- stofan Einn, tveir og þrír. Hún er prentuð hjá Steindórsprenti-Guten- berg. hermanna undir stjórn brodda- klippts Kurts Russells. Stjörnuhliðið byrjar mjög vel og besti hluti myndarinnar kynnir per- sónurnar til sögunnar og hið dular- fulla stjörnuhlið og tekst Emmerich og félögum að skapa talsverða eftir- væntingu og spennu. En þegar til hinnar fjarlægu plánetu kemur fer sagan smám saman að verða kunn- uglegri með uppreisnaröflum sem ferðalangarnir beijast með gegn hinum illa kúgara (Jaye Davidson) og sagan fellur í gömlu stjörnu- stríðsklisjuna. Hasarinn er ágæt- lega framsettur en spennan aðeins viðunandi eins og myndin öll. Þótt myndin sé alls ekkert stór- virki hefur hún ákveðið skemmti- gildi en bestu útgeimsmyndirnar eru annað og meira en hrein skemmtun. Þær gera nýjar upp- götvanir og fara með mann þangað sem enginn hefur áður farið. Við höfum áður farið í þetta ferðalag. Arnaldur Indriðason Nýjar plötur Söngvar Karmelsystra ÚT er kominn geisladiskur með söng Karmelsystra í Hafnarfirði. Diskurinn ber heitið Söngvar Karmelsystra með undirtitlinum Bænir fyrir ísland, Pólland og heim- inn og hefur að geyma 20 lög og sálma úr ýmsum áttum. Meðal laga á disknum er fyrsti þjóðsöngur Pólveija frá 13. öld, og ennfremur íslensk þjóðlög og lög eftir ýmsa höfunda svo sem Eyþór Stefánsson, Pál ísólfsson, Þórarin Guðmundsson, J.S. Bach, W.A. Mozart og fleiri. Japis sá um útgáfuna, en diskur- inn er til sölu í Karmelklaustrinu í Hafnarfirði, Bókasölu kaþólskra, Kirkjuhúsinu, Japis og í Fríhöfninni á Keflavíkurflugvelli.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.