Morgunblaðið - 22.12.1994, Page 41

Morgunblaðið - 22.12.1994, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 1994 41 MINNINGAR ÁSDÍS ÓLÖF INGVADÓTTIR + Ásdís Ólöf Ingvadóttir fæddist á Akureyri 10. desember 1968. Hún lést á Fjórð- ungssjúkrahúsinu á Akureyri 13. desem- ber síðastliðin. For- eldrar Ásdísar eru Ásgerður Snorra- dóttir, gjaldkeri, og Ingvi Þórðarson, at- vinnurekandi. Systkini Ásdísar eru Þórey, f. 1966, Fanney, f. 1971, nemi í Háskóla íslnds, og Sigfús, f. 1963, prestur, kvæntur Laufeyju Gísladóttur, kennara, f. 1970. Utför Ásdísar verður gerð frá Akureyrarkirkju í dag. MÍN KÆRA systurdóttir Ásdís Ólöf er látin eftir langa baráttu við erfiðan sjúkdóm. í huga mínum er hún ljósgeisli sem stöðugt veitti mér og öðrum birtu og yl. Eg á margar ljúfar minningar um vel gerða frænku mína og á auðvelt með að sjá frítt og glaðlegt andlit hennar fyrir mér þó hún sé farin af jarðríki. Ljóðið helgistef eftir Stefán Hörð Grímsson á einkar vel við um þá mynd sem ég sé fyrir mér þegar ég hugsa til Ásdísar en það hljóðar svo: Af fegurð blóms verður aldrei sagt aldrei sagt með orðum né þinni með neinum orðum. Það sem vakti at- hygli þeirra sem kynnt- ust Ásdísi sem barni og unglingi var m.a. hve hún hafði gott vald á rökhugsun og hversu ákveðnar skoðanir hún hafði á ólíkum hlutum. Hún var næm á líðan annaira og lagði sig fram um að gleðja þá sem hún umgekkst. Hún var réttsýn og ör- lát og góð við þá sem henni fannst að ættu erfitt. Hún var róleg að eðlisfari og tók hvaða vanda sem að steðjaði með mikilli rósemi og æðruleysi. Þó svo hún verði ekki, í orðsins fyllstu merkingu, í faðmi Ijölskyldu sinnar þessa kom- andi jólahátíð veit ég minning hennar lifir, í hjörtum aðstandenda, sem björt stjama á himni sem skín um eilífð. Ég veit að það gleddi Ásdísi að við sem lifum hana myndum biðja fyrir fögnuði og friði á fæðingarhá- tíð frelsarans. Henni hefði ugglaust mislíkað að sjá okkur hnuggin og hrygg því sjálf var hún að eðlisfari bjartsýn og kát. Ég bið Guð um styrka hönd til að leiða ykkur á lífsins vegi elsku Ásgerður, Ingvi og systrabörn og votta ykkur öllum dýpstu samúðar. Ég hugsa með ástúð til systur Ásdís- ar sem dvelst erlendis um þessar mundir og bið almættið að styðja hana í hennar systramissi sem og ykkur öll. Blessuð sé minning ástkærrar systurdóttur. Hvíli hún í Guðsfriði. Guðlaug Snorradóttir. Mig langar með örfáum orðum að minnast ástkærrar mágkonu minnar, Ásdísar Ólafar Ingvadóttur. Ég kynntist henni fyrst fyrir sex árum og minnist þess að hún tók á móti mér oþnum örmum og með sínu fallega brosi. Þannig var hún, svo hlý og notaleg og góða skapið og hennar létta lund væru aldrei langt undan. Þegar ég fór að vera meira inni á heimilinu urðum við góðar vinkonur og hún skipaði sérstakan sess í hjarta mínu. Við fórum oft saman í bíltúr og skruppum í bæinn. Áður en við héld- um af stað tókum við okkur til, ég setti varalit á hana og „spray“ í hár- ið og hún ljómaði öll af ánægju, því það var henni mjög mikiisvirði, að líta vel út og vera í fallegum fötum. Eitt atvik stendur upp úr í minn- ingunni. Ásdís var veik og lá á sjúkrahúsi. Ég og Sigfús maðurinn minn fórum í heimsókn til hennar. Við sátum hnuggin við rúmi og báð- um í hljóði fyrir heilsu hennar og lífi. I því opnar hún augun, lítur á okkur og segir. „Ég er bara veik, en þetta er allt í lagi.“ Þetta snerti mig djúpt og ég man að ég táraðist og hugsaði: Hvílík þolinmæði og styrkur sem Guð gefur henni. Það er svo oft með þá sem eru sjúkling- ar og þurfa að glíma við mikla erfið- leika að þeim er gefið ótrúlega mikið. Við hjónin höfum oft lagt Ásdisi í hendur Guðs og beðið fyrir henni í veikindum hennar. Guð tók ekki veikindin frá henni en Guð gaf henni æðruleysi til að berjast við sjúkdóm sinn. Guð hefur einnig gefið foreldr- um hennar og- systkinum mikinn styrk til að ganga í gegnum þessi veikindi með henni. Jesús sagði: „Ég er upprisan og lífið, hver sem trúir á mig mun lifa þótt hann deyi.“ Einnig sagði Jesús: „Ég lifi og þér munuð lifa.“ Ég bið Drottin Guð að blessa og hugga fjölskyldu Ásdísar. Laufey Gísladóttir. Létt lund, kímnigáfa og hlý fram- koma einkenndu Ásdísi Ingvadóttur. Unga stúlku, fulla af atorku og dugnaði, sem tók þátt .í hringiðu lífs- ins með fjölskyldu sinni og vinum. Næstyngst íjögurra systkina, stolt foreldra sinna, samviskusöm og dug- leg. Foreldrarnir vöktu yfir velferð og þroska barnanna sinna. Ræturnar voru góðar og traustar. Umhverfið ástríkt óg uppbyggjandi. Ákjósan- legar aðstæður fyrir ungviðið sem undirbúningur fyrir lífið og viðfangs- efni þess. Þessi var jarðvegur Ásdís- ar, og sem barn og unglingur átti hún góða og áhyggjulausa daga heima á Akureyri. Enginn skilur og enginn veit hvað ræður. Sjúkdómur gerði vart við sig, svo alvarlegur að hann dró smám saman úr þreki hennar og hæfni til að fylgja eftir í samtímanum og taka þátt í atburðum dagsins með öðrum. Þessar óviðráðanlegu aðstæður urðu hennar hlutskipti í lífinu, og hún stóð þær með reisn þar til yfir lauk. Af miklu æðruleysi og stillingu tók hún hveijum degi og hverri rannsókn og meðferð sem hún þurfti að ganga gegnum. Studd af fjölskyldunni sem alltaf stóð þétt við hlið hennar. Margir, bæði fagfólk heilþrigðiskerf- isins og aðrir, reyndust ijölskyldunni einnig mjög vel og veittu stuðning og styrk. Umhyggja hennar sjálfrar fyrir sínum nánustu og umhverfi sínu var mikil. Sambandið milli móð- ur og dóttur var einstakt og náið, líkt og það hefði lækningamátt á erfiðum stundum. Nú er Ásdís horfin, eftir situr minningin um dökkhærða stúlku með stór falleg augu, alvarleg og með festu í svipnum. Þrátt fyrir veikindin og skerðinguna bjó hún alltaf yfir heilindum sem voru gef- andi og sterk. Elsku Gerða, Ingvi, systkini og mágkona Ásdísar og aðrir ástvinir. Minningin um góða og heilsteypta stúlku er dýrmæt. Stúlku sem tókst á við það sem varð hennar hlut- skipti í lífinu og gekk í gegnum það af ótrúlegri stillingu og æðruleysi. Ég og fjölskylda mín sendum ykkur innilegar samúðarkveðjur. Guð gefi ykkur styrk og friðsæla jólahátíð. Gunnhildur Valdimarsdóttir. Elsku Ásdís. Við minnumst þín sem lítillar stúlku með bjart bros. Þú komst til okkar í bekkinn um miðjan barna- skóla. Það fór lítið fyrir þér en með brosinu bjarta og hinu rólega fasi eignaðist þú þinn sess í bekknum. Þó við værum öll ung að árum gerð- um við okkur öll ljóst að þú gekkst ekki heil til skógar. Fjarvistir voru tíðar, en það breytti því ekki að þú varst velkomin aftur í hópinn og við vonum að þú hafir fundið það. Það er furðuleg tilfinning fyrir okkur sem finnst við vera í blóma lífsins að heyra af láti þínu. Leiðir skildu eftir barnaskólann, en við fylgdumst alltaf með þér úr ljar- lægð. Við vissum að veikindi þín hefðu sett mark á þig, en dauðinn kemur alltaf jafn mikið á óvart og er okkur unga fólkinu svo fjarlægur. Við þökkum þér fyrir þær fallegu minningar sem þú gafst okkur og við munum alltaf bera í hjarta okk- ar. Vissa okkar er sú að nú sért þú á fallegum og góðum stað. Skín ei ljúfast ævi þeirra yfir, sem ung á morpi lífsins staða nemur, og eilíflega, óháð, því sem kemur, í æsku sinni tignu fegurð lifir? Sem sjálfur Drottinn mildum lófum lyki um lífsins perlu í gullnu augnabliki (Tómas Guðm.) Við vottum fjökskyldu Ásdísar innilega samúð. Bekkarfélagar í Lundaskóla 1979-82. ALLUR AGOÐIAF SÖLU BÓKARINNAR RENNUR TIL WÓÐBÓKÁSJÓÐS STÚDENTA! f/vuui er | • augnayndi Þjóð á Þingvöllurn, bókin um afmælishátíðina í tilefni 50 ára afmælis lýðveldisins í sumar, er einhver glæstasta og um leið sú þjóðlegasta ájóbbókamarkaðnum að þessu sinni. í bókinni eru um 200 litmyndir, teknar affremstu Ijósmyndurum landsins. Ur ritdómi: / „ Eg minnist þess varla að hafa séð glæsilegri prentgrip. ... Bók þessi er augnayndi að skoða og hafa í höndum ... Ingólfur Margeirsson, sem margt gott hefur skrifað, hefur leyst verk sitt vel af hendi... Frágangur bókarinnar er sömuleiðis skýr vitnisburður um það hvers íslenskir bókagerðarmenn eru megnugir ef þeir fá tækifæri.“ — Sigwrján Bjömsson, Morgunblaðinu 44 Ingólfur Margeirsson Skoðaðu Þjóð á Þingvöllum í næitu bókavorilun! Einstök bók - minning til framtíðar! '\t>cins v l«S() kr. VAKA-HELGAFÍLL SIðumúla 8, 108 Reykjavík

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.